Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.03.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1993 2________________________ Samið á ný um búvöru- kaup varn- arliðsins VARNARLIÐIÐ á Keflavíkurflug- velli kaupir nautakjöt, kjúklinga og egg fyrir 234.120 dollara á tímabilinu frá 1. apríl næstkom- andi til 31. mars 1994, eða jafn- virði 15,2 milljóna króna, sam- kvæmt samkomulagi sem gert hefur verið við bandarísk sljórn- völd um endurnýjun samnings frá 1987 um kaup varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli á íslenskum landbúnaðarafurðum. Samkvæmt samningnum er vam- arliðinu gert kleift að kaupa allt að 6.000 pund (2.722 kg) af nauta- kjöti, 12.000 pund (5.443 kg) af kjúkíingum og 120.000 pund af eggj- um. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er umsamið verð á nautakjöti 3,90 dollarar pund- ið, eða 560 kr. kílóið, en það er 0,45 dollurum minna en samdist um í fyrra fyrir yfirstandandi tímabil. Verðið er óbreytt fyrir pundið af kjúklingum, eða 2,96 dollarar (425 kr. kílóið), en pundið af eggjum lækkar um 0,04 dollara í 1,46 doll- ara (209 kr. kílóið). Samtals keypti vamarliðið íslensk- ar matvömr fyrir tæplega 1,5 millj- ónir dollara á síðastliðnu ári, eða jafnvirði 86,5 milljóna króna miðað við 57,68 kr. gengi dollars. Þar er um að ræða nautakjöt, kjúklinga, egg, lambakjöt, mjólkurvömr, osta og smjör, ís, físk, rækjur, brauðvör- ur, bjór og aðrar vömr. ♦ ♦ ♦ A Islandsbankl 400 millj. hjá eigna- lausu búi KRÖFUR Islandsbanka í eigna- laust þrotabú JL-byggingavara sf. námu rúmum 400 milljónum króna vegna viðskipta sem áttu sér stað fyrir sameiningu bankanna sem stóðu að stofnun íslandsbanka. Landsbankinn lýsti um 50 mil(jón króna kröfum og Búnaðarbankinn um 35 miiyónum. Þá átti Verð- bréfasjóðurinn hf. kröfur að höf- uðstóli um 53 mil(jónir króna og kröfur Kaupþings námu um 27 mil(jónum. Alls námu lýstar kröf- ur tæpum 600 mil(jónum. Að sögn Bergsteins Georgssonar hdl., skiptastjóra vom JL-bygginga- vömr sf. að miklu leyti leifar þess fyrirtækis sem upphaflega stóð fyrir rekstri í nafni Jóns Loftssonar í JL- húsinu við Hringbraut. Fyrirtækið varð til árið 1987 eftir að rekstri var að mestu leyti hætt. Aðalmarkmið félagsins var að ljúka framkvæmdum við húsbyggingu við Ártúnshöfða og selja til lúkningar skulda en það hús var seit á nauðungamppboðum. í dag SVR vinsælt Mikill meirihluti íbúa höfuðborgar- svæðisins eða tæp 83% hefur já- kvætt viðhorf til Strætisvagna Reykjavíkur 18 í lausu lofti Heimsmeistaraeinvígið í skák er í hættu eftir að Kasparov og Short sneru bökum saman í andstöðu gegn Alþjóða skáksambandinu 27 Konráð til Hauka Konráð Olavsan landsliðsmaður í handknattleik hefur ákveðið að snúa heim frá Þýskalandi og leika með Haukum í úrslitakeppninni 42 Leiðari_________________________ Þáttaskil í landbúnaði 22 Vaknaði upp við vondan draum í lögreglustöðinni í Grindavík í gærmorgun Ölvaður unglingur braut rúður Neglt fyrir gluggana Morgunblaðið/Frímann Olafsson SMIÐIR voru mættir í morgunsárið til að negla fyrir glugga lögreglustöðvarinnar í Grindavík. Gríndavfk. HANN vaknaði upp við vondan draum símstöðvarstjórinn í Grindavík í gær- morgun þegar verið var að brjóta rúð- ur í lögreglustöðinni. Póstur og sími er í sama húsnæði og lögreglustöðin. Hann hafði samband við lögregluna sem brá skjótt við. Þegar hún kom á vettvang var rúðubrjóturinn kominn inn á lögreglu- stöðina ásamt félaga sínum og gerði sig líklegan til að halda skemmdarverkunum áfram. Hann hafði þá kastað gijóti að tölvubúnaði stöðvarinnar en ekki hitt. Undir áhrifum Búið var að bijóta fímm rúður á fram- hlið hússins og lágu glerbrot um allt og yfír öllu á lögreglustöðinni. Að sögn lög- reglunnar er tjónvaldurinn piltur á 17. ári og mun hann hafa gert tilraun til að fá vist á meðferðarstöðinni á Vogi fyrr um nóttina. Þegar hann fékk afsvar hafí hann haldið út mjög æstur og brotið rúðumar í lögreglustöðinni. Hann var vistaður ásamt félaga sínum í fangageymslum. FÓ Slitnað hefur upp úr viðræðum Sjómannasambandsins og VSÍ Sj ómannafélög beðin um umboð tíl verkfallsboðunar Fulltrúi LÍÚ segir sjómenn fara fram á stórhækkun skiptakjara SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum samninganefndar Sjómannasam- bands íslands og samninganefndar Vinnuveitendasambandsins, sem fer með samningsumboð fyrir hönd LÍÚ, eftir fund þessara aðila um gerð kjarasamnings fiskimanna hjá ríkissáttasemjara í gær. Sjómannasambandið hefur farið þess á leit við aðildarfélög sín að þau veiti samninganefndinni umboð til verkfallsboðunar. Að sögn Hólmgeirs Jónssonar, framkvæmdasljóra Sjómannasambandsins, má búast við að niðurstaða félaganna liggi fyrir um 10. mars. Jón- as Haraldsson, skrifstofustjóri LÍÚ, sem situr í samninganefnd VSÍ, segir Sjómannasambandið hafa farið fram á stórhækkun skipta- kjara sjómanna í ýmsum sérveiðisamningum. Samningafundur þessara aðila í gær var árangurslaus og hefur ekki verið óskað eftir að annar fundur verði haldinn að sögn Guð- laugs Þorvaldssonar ríkissátta- semjara. 12 sérveiðisamningar Á fundinum í gær lögðu fulltrúar sjómanna fram kröfur í fjórum lið- um og var þar m.a. farið fram á að gerðir verði tólf sérveiðisamn- ingar sem fjalla m.a. um veiðar á ígulkerum, frystingu á humri, salt- fískveiðar togara, togbáta, línu- og netabáta, að sögn Jónasar Haralds- sonar. „Þama er að ýmsu leyti verið að nota tækifærið til að stórhækka skiptakjörin undir því yfirskyni að gera rammasamninga um ákveðnar Úr verínu E- Unnið að þróun fískmerkis — físksalan dregst ört saman — Breytingar á fiskmörkuðunum í Evrópu — Enn ein sönnunin fyrir mikilli hollustu fisklýsis veiðar," sagði hann. Sagði Jónas að í mörgum tilfellum væri farið fram á verulegar launahækkanir, m.a. um 10% viðbótarálag og hækkun skiptakjara. „Við vorum ekki tilbúnir að bæta svona veru- legum hækkunum á okkur," sagði hann. Hólmgeir Jónsson sagði að við- semjendumir hefðu hafnað að ræða öll mál á fundinum í gær. Sagði hann að aðildarfélög sjómannasam- bandsins hefðu að undanfömu ver- ið að afla sér heimildar til verkfalls- boðunar en nú hefði verið ákveðið að óska eftir að þau veittu samn- inganefndinni umboð til boðunar verkfalls þar sem viðræðumar í gær hefðu reynst árangurslausar og siglt í strand. Myndosögur ^ Myndir ungra listamanna - Draumur - Skemmtilegar þrautir - Drátthagi blýanturinn - Búðu til hörpu - Pínugolf - Myndasögur - Stafarugl Leiðangri Bjama Sæmundssonar lokið Erfitt ár- ferði fyr- ir lífríkið HELSTU niðurstöður úr hinum árlega sjórannsóknarleiðangri Bjarna Sæmundssonar í síðasta mánuði liggja nú fyrir. Að sögn Svend Aage Malmberg haffræð- ings, sem var leiðangursstjóri, sýna mælingar nú að erfítt ár- ferði verður fyrir lifríkið í haf- inu umhverfis ísland i ár en tvö undanfarin ár, 1991 og 1992, voru góðæri fyrir lífríkið. Fram kom í leiðangrinum að sjávarhiti og selta í hlýsjónum fyr- ir Suður- og Vesturlandi var undir meðallagi. Hlýsjórinn náði fyrir Kögur en austar á norðurmiðum gætti hans ekki, þar var kaldur svalsjór og er það breyting til hins verra frá vetrunum 1991-92. Sömu sögu er að segja um Aust- fjarðamið, þar gætti hlýsjávar ekki djúpt út af Austurlandi, þ.e. á Rauða torginu. Heildamiðurstöður í ár sýna því hlýsjó að sunnan með hitastigi undir meðallagi og svalt ástand á norðurmiðum sem líkja má við köldu árin 1981-83 og 1989-90. Lítil hætta virðist þó á hafís í vetur og vor. Erfitt að meta áhrifin í máli Svend Aage kemur fram að erfitt sé að meta áhrifín af þess- um mælingum á lífríkið í heild í smáatriðum en reynslan sýni að þegar köld ár eru eins og nú eigi lífríkið erfítt uppdráttar. „Fæðu- keðjan í sjónum styrkist almennt þegar hlýsjór er við landið en veik- ist að sama skapi í köldu árunum," segir Svend Aage. „Þetta á sér- staklega við um uppeldisstöðvar ungfisks fyrir Norður- og Aust- urlandi." Tillögur í atvinnu- málum lagðar fram TILLOGUR viðræðuhópa aðila vinnumarkaðarins til úrbóta í at- vinnumálum verða lagðar fram á fundi Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands íslands í dag, en átta viðræðuhópar hafa verið að störfum undanfarið og hver um sig fjallað um tiltek- ið svið atvinnulífsins. Tillögurnar verða síðan settar saman í eina heild og væntanlega kynntar stjórnvöldum í framhaldinu, jafn- framt því sem haldið verður áfram að ræða aðra þætti kjarasamn- ings aðila. Helstu mál sem hóparnir hafa Qallað um eru sjávarútvegsmál, verklegar framkvæmdir, orka og nýting hennar, ferðaþjónusta, fisk- eldi, nýsköpun í atvinnulífi, Island sem þjónustumiðstöð í Atlantshafi og erlendar fjárfestingar. Fundurinn í dag verður haldinn í húsakynnum Alþýðusambandsins og hefst klukkan 13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.