Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.03.1993, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARZ 1993 EFNI 2 FRETTIR/INNLEIMT Þjóðin eldist og útgjöld- inaukast ÚTGJÖLD til heilbrigðismála hljóta að aukast þrátt fyrir að fyllsta aðhalds sé gætt vegna þess að íslenska þjóðin er að eldast. Hlutfall 65 ára og eldri hefur afgerandi áhrif á útgjöld til heilbrigðismála, þetta hlut- fall fer stöðugt vaxandi og eft- ir aldamót stefnir í verxdega fjölgun í þessum aldurshópi hér á landi. Þetta kom fram í ræðu sem Sig- hvatur Björgvinsson heilbrigðisráð- herra hélt á sameiginlegum fundi um framtíðarstefnu í heilbrigðis- málum sem Félag um heilbrigðis- löggjöf og Félag um heilsuhagfræði efndu til í gær. Á fundinum voru um 60 manns og var fjallað um siðfræðileg og hagfræðileg álitamál í heilbrigðismálum. Sighvatur sagði að þó útgjöld til heilbrigðismála hefðu stöðugt farið vaxandi undanfama áratugi hefði hlutdeild einstaklinga í heildar- kostnaði staðið í stað og verið um 13% á árunum 1984-92. Morgunblaðið/Sverrir Japanskur rokkari í Bláa lóninu EINN af þekktustu rokksöngvurum Japans, Nagashi að nafni, er nú staddur hérlendis við upptökur á myndbandi við eitt laga sinna. Meðal upptökustaða er Bláa lónið þar sem tökur fóru fram í gærmorgun. Þar var meðal annars útbúin hafmeyja eins og sjá má á innfelldu myndinni. Það er Friðrik Þór Friðriksson sem hefur umsjón með upptökunum hérlendis. Tilboð Landsvirkjunar á sölu forgangsrafmagns með afsláttarkjörum Nokkur fyrirtæki hafa samið um afsláttarkjör NOKKUR fyrirtæki hafa þegar notfært sér tilboð Lands- virkjunar á forgangsrafmagni með afsláttarkjörum með samningum við einstakar rafveitur á landinu, að sögn Þorsteins Hilmarssonar upplýsingafulltrúa Landsvirkj- unar. Þá segir hann að um helmingur hafna landsins eigi kost á að kaupa umframrafmagn á þessum kjörum en hafnarstjórnir sem annast afgreiðslu á rafmagni til skipa séu viða að undirbúa gerð slíkra samninga. Þorsteinn hafði ekki upplýsingar I samningar fara fram við viðkom- um hversu margir samningar andi rafveitur á hveiju orkuveitu- hefðu þegar verið gerðir þar sem | svæði. Verkbann sett í Heijólfsdeilu? ÚRSLITATELRAUN til að ná sáttum í Heijólfsdeilunni átti að gera á fundi sem hófst í Vestmannaeyjum klukkan 16 í gær. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari sagði í sam- tali við Morgunblaðið fyrir fundinn að hann væri svartsýnn á að samkomulag væri í sjónmáli. Hann hefur boðað að hann fari frá Eyjum í dag. Heimildir Morgunblaðsins herma að verkbann verði strax boðað á þá starfshópa sem ekki eru í verkfalli ef upp úr slitnar. Viðræður hafa staðið yfír í deil- unni frá því á þriðjudag. Að sögn sáttasemjara skiptust aðilar á til- boðum í gær og fyrradag en án árangurs. Að mati deiluaðila er málið enn nálægt upphafspunkti. Allir starfshópar um borð hafa átt aðild að viðræðunum en þó mun ekki liggja fyrir staðfestur vilji til að ganga til heildarsamnings er taki til allra starfshópa. Söguburður kveðinn niður Að undanfömu hafa gengið sögusagnir um, að hin svonefnda svartklædda kona, sem staðin var að málverkastuldi í Hall- grímskirkju og íkveikju í húsi við Bræðraborgarstíg, væri dóttir ráðherra í núverandi ríkisstjóm. Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, eru þessar sögusagnir gersamlega úr lausu lofti gripnar og ósannar með ölíu. Er þess að vænta, að með þessum upplýsingum sé þessi söguburður kveðinn niður. 300 fyrirtæki uppfylla skilyrði Kaupendur þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði sem m.a. fela í sér að um aukna rafmagnsnotkun verði að ræða eða að lágmarki í 300 megawattstundir á ári. Er áætlað að um 300 fyrirtæki á land- inu séu af þeirri stærðargráðu að þau geti notfært sér tilboðið sem stendur í fímm ár. Afslátturinn sem boðið er upp á nemur um 35-40% af heildsöluverði Lands- virkjunar. Nokkur iðnfyrirtæki og ylrækt- arbændur hafa þegar nýtt sér til- boðið að sögn Þorsteins. Þá benti hann að að fyrirhugað væri að loðnubræðslur verði raf- væddar í auknum mæli í stað olíu- notkunar og gætu þær þá fengið afhenta ótrygga orku á lægra verði. Til að svo verði þurfa bræðslumar að fjárfesta í nýjum búnaði. Þau mál eru nú í athugun í sérstakri nefnd á vegum iðnaðar- ráðuneytisins og em líkur á að niðurstaða liggi fyrir með vorinu skv. upplýsingum Þorsteins. íslandsmót í þolfimi er í kvöld ÍSLANDSMÓTH) í þol- fimi verður haldið í kvöld á Hótel íslandi, en það er liður í heimsmeistara- keppninni í þessari íþrótt. Hefst það klukkan 20.00 í kvöld. Meðal keppænda er Norður- landameistarinn, Magnús Scheving, sem vann titilinn í Svíþjóð fyrir skömmu. Keppt er í þremur flokkum, einstaklings- flokki karla og kvenna og flokki para. Sigurvegarar mótsins keppa síðan fyrir íslands hönd á heimsmeistaramóti í Suzuki í Japan um páskana, en keppend- ur sem fóru þangað í fyrra náðu góðum árangri. Andstaða við vega- gerð um Dragháls „SAMEIGINLEGUR fundur bæjarstjórna Akraness og Borgar- ness Iýsir andstöðu við þær hugmyndir sem samgönguráðherra viðraði í umræðum á Alþingi nýverið. Til að stytta leið til Norðurlands nefnir ráðherra að jöfnu vegagerð á Draghálsi og Hesthálsi og gerð ganga undir Hvalfjörð," segir í ályktun sem bæjarstjórnir Akraness og Borgarness hafa sent frá sér. Bæjarstjórnir Akraness og Borg- amess benda á að fyrri kosturinn mun aðeins þjóna litlum hluta þeirr- ar umferðar sem fer um Hvalfjörð auk þess sem fjallvegir eru erfíðir yfírferðar að vetrarlagi. Rúmlega helmingur umferðar um Hvalfjörð á upphaf og endi á Akranesi, í Borgarnesi og í næsta nágrenni. „Göng undir Hvalíjörð myndu skipta sköpum fyrir þá umferð um leið og þau kæmu öllum öðrum vegfarendum til góða, m.a. stytta þau Norðlendingum leið til og frá Reykjavík mun meira en fyrrgreind- ar hugmyndir," segir í ályktuninni. ► 1-48 Hótel mamma ►Flest bendir til þess að unga fólkið yfirgefi hreiðrið seinna en áðurtíðkaðist./lO í lastabæli Orgons ►Súsanna Svavarsdóttir skrifar um ieiksýningu LR á Tartuffe Moliéres i Borgarleikhúsinu./13 Líf róður Jeltsíns ►Boris Jeltsín á undir högg að sækja gagnvart þinginu og er þess beðið hvaða spil hann á uppí erm- inni./14 íslenski fjárfestingar- bankinn ►Agnes Bragadóttir fíallar um hina umdeildu ákvörðun iðnaðar- ráðherra að steypa saman sjóðum iðnaðarins./16 Öðruvísi dagar ►ingvar E. Sigurðsson leikari hefur fengið góða dóma fyrir frammistöðu sína á leiksviðinu sfð- ustu þijú ár./18 Rómantíkin blómstrar ►Ekki er seinna vænna að glöggva sig á tískunni fyrir næsta vetur en þar verður rómantíkin allsráðandi./20 Vildiég hefðiekkl gert þetta ►Rætt við pilt sem átti þátt f miklu eignatjóni fyrir skömmu./22 B ►1-28 Hressar hverfislöggur ► Breiðholtslögreglan hefur verið mikið í fréttum enda teygja lög- reglumennimir þar langan arm laganna um allt höfuðborgarsvæð- ið./l Takið mér eins og ég er ►Spænsk-þýska tónskáldið Maria De Álvear kom til íslands til að flytja tónverk sem hún samdi fyrir ÍSMÚS, tónlistarvöku RÚV./6 Ljósmyndir ársins 1992 ►Bestu ljósmyndir liðins árs eru sýndar á sýningu Blaðaljósmynd- arafélags Islands, sem lýkur nú um helgina./10 Virði ávallt Drakúla ►Breski leikarinn Christopher Lee í viðtali við Morgunblaðið en hann verður í dómnefnd norrænu kvik- myndahátíðarinnar sem haldin verður hér í næstu viku./13 C FERMINGAR ► 1-20 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 17b Leiðari 24 Fólk 1 fréttum 18b Helgispjall 24 Myndasögur 20b Reykjavlkurbréf 24 Brids 20b Minningar 30 Stjömuspá 20b fþréttir 42 Skák 20b Útvarp/sjónvarp 44 Bíó/dans 21b Gárur 47 Bréf til blaðsins 24b Mannlifsstr. 8b Velvakandi 24b ídag 12b Samsafnið 2Gb Dægurtónlist 16b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.