Morgunblaðið - 14.03.1993, Side 35
MORGÚNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
SUNNUÚÁöL'R 14. MÁRZ 1993
35
Viðskiptafræðingur
með þekkingu á útgerð, óskast í tímabundið
verkefni.
Svör sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
þriðjudagskvöld, merkt: „V - 3521“.
Raftækjaverslun
Óskum eftir að ráða starfsmann í raftækja-
verslun (lampar). Starfið felst í sölu, af-
greiðslu, lagerstörfum og öllum almennum
verslunarstörfum. Um er að ræða framtíðar-
starf. Krafist er snyrtimennsku, reglusemi
og stundvísi. Æskilegur aldur 20-35 ára.
Upplýsingar um aldur, nám og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 20. mars
merktar: „Raftækjaverslun - 11888“.
Garðabær
Fóstrur
Fóstra óskast á leikskólann Hæðarból frá
maí eða júní. Vinnutími eftir hádegi.
Leitið upplýsinga um starfsaðstöðu og launa-
kjör hjá leikskólastjóra í síma 657670
eða 656651.
Matreiðslumaður
HAGKAUP óskar eftir að ráða matreiðslu-
mann til starfa á föstudögum og laugardög-
um í verslun fyrirtækisins í Hólagarði.
Upplýsingar um starfið veitir verslunarstjóri
á staðnum (ekki í síma).
HAGKAUP
Sölufólk óskast
á Reykjavíkursvæðinu og um allt land til að
selja vandaðan fatnað og skylda vöru á góðu
verði. Miklir möguleikar fyrir duglegt fólk.
Fæst ekki í verslunum.
Góðfúslega sendið umsóknir með helstu
upplýsingum til auglýsingadeildar Mbl.
merktar: „Uppgrip - 8267“.
Traustur aðili
Ég er 35 ára reglusamur fjölskyldumaður og
vantar vinnu. Hef unnið við vöktun skipa, sjó-
mennsku, birgðavörslu og verkstjórn og er
vanur akstri stórra bifreiða. Hef rútu- og meira-
próf. Góð meðmæli fyrri atvinnurekenda.
Óskirðu frekari upplýsinga, þá leggðu inn
nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl.,
merkt: „A - 14086“.
Sálfræðingur
Samtök áhugafólks um alnæmisvandann vilja
ráða sálfræðing í hálft starf.
Verksvið: Handleiðsla HIV jákvæðra, umsjón
með hópstarfi, kynningarstarf o.fl.
Vinnutími eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist í pósthólf 5238,
125 Reykjavík, fyrir 1. apríl nk.
Sölumaður
Heildsölufyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu auglýsir eftir sölumanni. Um er að ræða
sölumann til að sinna sölu á iðnaðarvöru
bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Við erum að leita að mjög duglegum og
hressum aðila sem hefur reynslu annað hvort
í iðnaðarvöru eða sem sölumanni.
Þarf hefja störf í apríl eða sem fyrst.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
19. mars merktar: „AV - 32“.
Leikskólar Reykjavikurborgar
Dagvist barna auglýsir hér með nýtt síma-
númer innritunardeildar 627115.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
R AÐ AUGL YSINGAR
Stór íbúð - raðhús - einbýli
5 herb. íbúð, raðhús eða einbýlishús óskast
til leigu í a.m.k. 2-3 ár frá 1. júní nk.
Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „X - 13822“ eða í síma 623540.
Húsnæði fýrir félagasamtök
Fjársterk félagasamtök óska eftir húsnæði
til kaups fyrir starfsemi sína.
Leitað er eftir 1200 fm húsnæði miðsvæðis
í Reykjavík. í húsnæðinu þarf að vera hægt
að koma fyrir samkomusal sem tekur um
120 manns í sæti, 2 kennslustofum auk skrif-
stofuaðstöðu, kaffi- og hreinlætisaðstöðu.
Upplýsingar gefur Sigurður Guðmundsson í
síma 679757.
Sigurður Guðmundsson hdl.,
Síðumúla 12,
108 Reykjavík.
Húsráðendur
Tek að mér viðgerðir á gömlum húsum -
klæðningar - gluggaskifti - gluggasmíði og
endurbætur innanhúss o.fl., auk nýsmíði.
Vönduð vinna á viðráðanlegu verði.
Upplýsingar í síma 870141 og símboði 984-
50010. Geymið auglýsinguna.
Jósef Ásmundsson,
húsasmíðameistari.
Krókaleyfisbátur
Til sölu 7,3 brúttótonna krókaleyfisbátur,
9,5 m langur. Vel útbúinn á handfæri og línu.
5 tölvurúllur og góð tæki.
Upplýsingar í símum 93-12294 og 93-11528.
Bátar
Óska eftir sambandi við kvótalausa báta.
Upplýsingar, með nafni og símanúmeri, legg-
ist inn á auglýsingadeild Mbl., merktar:
„F - 5544“, fyrir 21. mars.
Sjávarlóð á Arnarnesi
Höfum fengið til sölu 1500 fm sjávarlóð sunn-
anmegin á Arnarnesi í endagötu. Teikningar
af einlyftu einbýlishúsi fylgja. Lóðinni var
úthlutað 1962. Þetta er ein allra besta lóðin
á Reykjavíkursvæðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og 21700,
Bakarar
til sölu bakarí
Til sölu bakarí á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hentar vel fyrir 1-2 samhenta bakara. Er
með 4 verslanir og fjölda annarra góðra við-
skiptavina. Góð kjör.
Þeir, sem hafa áhuga, sendi nafn og síma-
númer til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
„B - 1010“.
Tölvunettil sölu
Til sölu notað tölvu-netkerfi: HTM 386, 25
MHz netstjóri með nettengi fyrir fimm út-
stöðvar, ein Unisys 286 tölva með 40MB
hörðum diski og litaskjá, tvær Unisys 286
útstövar, Novell net og Seikosha listaprent-
ari. TOK bókhaldskerfi getur fylgt (fjárhags-,
viðskipta-, sölu- og birgðakerfi).
Upplýsingar gefur Ármann Guðmundsson,
Hagráði hf., Iðnbúð 8, 210 Garðabæ,
sími 91-658833, fax 658835.
Heildverslun
Heildverslun, með mikla þenslu á síðustu
árum, óskar eftir samningum um sölu á einni
deild fyrirtækisins. Lítill, nýlegur og seljanleg-
ur vörulager. Tilvalið til að skapa sér
skemmtilega og sjálfstæða atvinnu.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
20. mars, merkt: „Sanngarnt - 3520“.
Jarðýtur
Til sölu Liebherr PR732L og Liebherr PR722
jarðýtur, báðar árgerð 1991. Einnig Interen-
ational jarðýta árgerð 1982 í ágætu standi.
Á sama stað er til sölu Peiner City byggingar-
krani með kranahúsi og Doka byggingarmót
lítið notuð.
Allar nánari upplýsingar veitir Pétur Gunn-
arsson í síma 91-627040 eða Vörubílasalan
sf. í síma 91-652727.
iii
Bflvog óskast
Óska eftir að kaupa notaða bílvog.
Upplýsingar í síma 651229.
Sumarbústaður
Starfsmannafélag Hótel Sögu óskar eftir að
kaupa eða leigja sumarbústað. Æskileg stað-
setning innan 300 km frá Reykjavík.
Áhugasamir aðilar eru vinsamlegast beðnir
um að senda tilboð með upplýsingum um
staðsetningu og staðhætti, svo sem fjarlægð
frá verslunum, sundlaug og veiðisvæðum og
svo frv.
Tilboð merkt: „S - 14089" sendist fyrir 25.
mars 1993 til auglýsingadeildar Mbl.
Frekari upplýsingar gefa Kristín Pálsdóttir,
starfsmannastjóri, og Úlfar Þór Marinósson,
tæknistjóri Hóteis Sögu, í síma 91-29900
alla virka daga milli kl. 9.00-17.00.