Morgunblaðið - 14.03.1993, Side 41

Morgunblaðið - 14.03.1993, Side 41
£GGt SJLAM ,H aUOAOUKWU8 GIUAJaHUOÍtOM Ofc MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. MARZ 1993 41 Eigendur stofunnar Sigríður Dóra Jóhannsdóttir og Olga Björg Másdóttir eigendur hár- greiðslustofunnar Hárhönnunar. Ný hárgreiðslu- stofa, Hárhönnun Hárgreiðslumeistararnir Sig- ríður Dóra Jóhannsdóttir og Olga Björg Másdóttir hafa opnað nýja stofu á Skólavörðustíg 6b, Hárhönnun. Sigríður Dóra rak áður hár- greiðslustofuna Perlu, Vitastíg 18a, og Olga Björg starfaði einnig á þeirri hárgreiðslustofu. Hárgreiðslustofan er opin kl. 9-18 virka daga og 10-13 á laug- ardögum. (Fréttatilkynning) Grafarvogssókn Ekkert tap vegna gjaldþrots GRAFARVOGSSÓKN mun ekki bera skaða af því, að SH-verktakar urðu gjald- þrota og urðu að hætta við byggingu kirkjunnar, en þeir áttu á sínum tíma lægsta til- boð í uppsteypu kirkjunnar. Nú hefur ÍSTAK tekið að sér framkvæmdirnar efir að SH- verktakar féllu frá, en sam- kvæmt fréttatilkynningu frá sókninni voru skil SH-verk- taka góð, en þeir höfðu verk- tryggingu hjá Sjóvá almenn- um hf. Grafarvogssókn hyggst flytja starfsemi sína á fyrstu hæð kirkj- unnar næsta vetur, en það er orð- ið mjög aðkallandi, því að íbúar í sókninni eru nú yfir átta þúsund og fer fjölgandi. Fermingarböm era hátt á annað hundrað, enda sóknin með stærstu sóknum lands- HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - simi 17800 Leikbrúöugeró L . Kennari: Helga Arnalds. 25. mars - 29. apríl. Fimmtudaga kl. 19.30- 22.30. Skráning fer fram á skrifstofu skólans mánudaga -fimmtudaga kl. 14-16 í síma 17800. i * ms. Menning þjóða á trnium al- þjóðlegrar fjölmiðlunar NÁMSKEIÐ um menningu þjóða á tímum alþjóðlegrar fjölmiðlunar verður haldið 17. mars nk. í Háskóla íslands á vegum Endurmenntunarstofnunar og hagnýtrar fjölmiðl- unar. Leiðbeinandi verður bandarískur gistiprófessor dr. Kenneth Starek prófessor og forstöðumaður fjölmiðladeild- ar Iowa-háskóla. Dr. Starck er tálinn í röð fremstu fræðimanna og kennara á sviði blaðamennsku og íjölmiðlunar í Bandaríkjunum og kemur hingað með stuðningi bandarísku menning- armálaskrifstofunnar á íslandi. Þetta námskeið er fyrst og fremst sniðið fyrir starfandi blaðamenn en er opið öllum er áhuga hafa. Dr. Starck mun á námskeiðinu fjalla um þær breytingar sem hafa orðið í blaðamennsku í kjölfar nýrrar og Hugleiðsluvika hjá Sri Chinmoy RÖÐ námskeiða í hugleiðslu og jóga er haldin þessa dagana á veg- um Sri Chinmoy setursins. Fara námskeiðin fram á ýmsum stöðum í Reykjavik, Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ og er aðgangur ókeypis. sífellt fullkomnari og hraðvirkari boðskiptatækni. Hvaða áhrif hefur hin nýja tækni haft á fréttaflutn- ing, á vitund almennings um at- burði líðandi stundar og síðast en ekki síst, hvaða áhrif hefur alþjóð- leg fjölmiðlun á menningu þjóða. Umsjónarmaður heimsóknar dr. Starcks er dr. Sigrún Stefánsdóttir, lektor í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla íslands. Þátttökugjald er 2.200 kr. og fer skráning fram á skrifstofu Endurmenntunarstofn- unar Háskóla íslands. (Fréttatilkynning) ISLANDSMOTIÐ í ÞOLFIMI SUZUKI W®RLD CUP 93 Sunnudaginn 14.mars ó Hótel íslandi klukknn 20:00 , Stfcf’ssts/iJ/aJs'f*)/. ■ «.// ÞRIR ERLENDIR DOAAARAR KEPPENDUR FRA OLLUM HELSTU STOÐVUNUM Gódan dagirm! Að Sri Chinmoy setrinu stendur um 20 manna hópur og hefur það starfað um 7 ára skeið. „Sri Chinmoy er jógameistari búsettur í Bandaríkjunum," sagði Eymundur Matthíasson einn aðstandenda Sri Chinmoy setrusins í samtali við Morgunblaðið. „Jógaheimspeki er mjög víðfem og hið sama má segja um hugleiðsluaðferðir Sri Chimmo- ys. Það einkennir hins vegar aðferð hans að mikil áhersla er lögð á ieið hjartans, kærleikann." Eymundur sagði að með aðferð Sri Chinmoys væri hægt að öðlast meiri lífsfyll- ingu og innri frið. Námskeiðin sem boðið er uppá era átta talsins og að mestu leyti óháð hvert öðra. Þessi námskeið eru í boði: Inngangur að hugleiðslu I og II, jógaheimspeki, Hugleiðsla og tónlist, Hugleiðsla, sköpun og listir, Hugleiðsla og hugleiðsluæfingar, Hugleiðsla og íþróttir, Framhalds- iðkun hugleiðslu. Upplýsingar um stað og tímasetningu einstakra námskeiða eru veittar hjá Sri Chinmoy setrinu. H NÆSTI fræðslufundur Fugla- vemdunarfélagsins verður hald- inn mánudaginn 15. mars í stofu 101 í Odda, húsi hugvísindadeildar Háskólans og hefst klukkan 20.30. Þar mun Amór Þórir Sigfússon fuglafræðingur halda erindi um sílamáfa. Arnór hefur stundað rannsóknir á sílamáfum á Suðvest- urlandi undanfarin ár, á vegum veiðistjóraembættisins og er manna fróðastur um hætti þessa ástsæla vorboða. Meðal annars hafa Amór og samstarfsmenn hans radíómerkt sílamáfa og fylgt þeim eftir á ferð- um þeirra, metið stærð og út- breiðslu varpa, svo nokkuð sé nefnt. Aðgangur er öllum heimill. Aðal- fundur félagsins verður haldinn laugardaginn 20. mars klukkan 16 í fundarherbergi Norræna hússins. Dagskrá: Stjórnarkjör, lagabreyt- ingar, önnur mál. (Fréttatilkynning) ■ KRISTILEGT félag heil- brigðisstétta heldur fund mánu- daginn 15. mars nk. í safnaðar- heimili Laugarneskirkju klukkan 20. Efni fundarins er kynferðisleg misnotkun. Hvað hefur kristin trú til málanna að leggja? Það er Rósa Ólöf Svavars, hjúkranarfræðingur, sem flallar um þetta viðkvæma efni. Hún hefur kynnt sér þessi mál bæði hér á landi og í Danmörku. Mun hún koma inn á umfjöllun Biblíunnar og úrlausnir og bera saman við umfjöllun þessara mála í samtímanum. Fundurinn hefst klukkan 20 og era allir velkomnir. Auglýsing um nýjar reglur um makalífeyri Hinn 1. júlí 1993 koma til framkvæmda hjá Lífeyrissjóði Dagsbrúnar og Framskóknar nýjar reglur um makalífeyri. Helstu breytingar frá núverandi reglugerð: 1. Ekkjurog ekklar munu njóta sama réttar til makalífeyris. 2. Lágmarksaldur eftirlifandi maka við fráfall sem skilyrði fyrir ævi- löngum lífeyri hækkar úr 35 árum Í42 ár. Sé hinn eftirlifandi á aldrin- um 42-54 ára við fráfallið, er líf- eyrir skertur. Lægsta greiðsla nemur 22% af óskertum lífeyri. 3. Barn á framfæri veitir rétt til makalífeyris fram að 19 ára aldri barnsins í stað ævilangs lífeyris. 4. Núgildandi ákvæðum um greiðslu makalífeyris, ef hinn eftirlifandi hefur skerta starfsorku, er breytt í heimild í áframhaldandi greiðslu að 24 mánaða tímabilinu loknu. 5. Margföldunarstuðull stiga við út- reikning makalífeyris lækkar úr 1,0 í 0,9. 6. Framreikningur stiga miðast við 67 ára aldur í stað 70 ára. Til grundvallar framreikningi við út- reikning makalífeyris skal reikna þriggja ára meðaltal, þótt engin iðgjöld hafi verið greidd í eitt eða fleiri þessara ára. 7. Stofni eftirlifandi maki til sambúð- ar, mun makalífeyrir falla niður, eins og um hjúskap væri að ræða. Þar sem reglugerðarbreyting þessi getur í einstökum tilfellum haft í för með sér veruleg áhrif á heildarrétt eftirlifandi maka til lífeyris, þykir rétt að til- kynna með hæfilegum fyrirvara hinar nýju reglur. Breytingar þessar voru samþykktar á fulltrúafundi Verkamannafélagsins Dags- brúnar og Verkakvennafélagsins Framsóknar þann 10. nóvember 1992. Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar Suðurlandasbraut 30, 108 Reykjavík Sími 814399

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.