Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 23

Morgunblaðið - 24.03.1993, Síða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVUKUDAGUR 24. MARZ 1993 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 110 kr. eintakið. Umskipti í París er ekki hægt að segja að úrslit fyrri umferðar frönsku pmgkosninganna um síðustu helgi hafí komið á óvart. Skoðanakannan- ir mánuðina fyrir kosningar höfðu ítrekað spáð því að Sósíalistaflokk- urinn myndi bíða mikinn ósigur. Sú varð einnig raunin. Sósíalistar, sem nú sitja í ríkis- stjóm, fengu einungis 17,59% at- kvæða og ef marka má spár geta þeir hrósað happi takist þeim að tryggja sér 80 þingsæti í síðari umferð kosninganna í næstu viku. í síðustu kosningum, sem fram fóm árið 1988, fengu þeir 246 þingmenn kjörna. Stærstu hægri flokkamir, Rassemblement de la Republique, RPR, sem er flokkur gauliista, og Union de la Democratie Fran?aise, UDF, fengu hins vegar 39,5% at- kvæða. Tókst þeim að tryggja sér 80 þingsæti strax í fyrstu umferð- inni og er búist við að þeir muni alls fá 460-480 þingmenn kjörna. Það jafngiidir um 80% þingsæta í franska þinginu og hefðu hægri- menn þar með öfiugasta þingmeiri- hluta í sögu fímmta lýðveldisins. Þessar tölur segja hins vegar ekki alla söguna. Afhroð sósíalista er ótvírætt. Þeim hefur verið úthýst af frönskum kjósendum og óvíst hvort flokkurinn muni nokkurn tím- ann eiga sér viðreisnar von á ný. Hins vegar er hæpið að halda því fram að sigur hægri flokkanna sé tákn þess að þeim hafí tekist að sannfæra Frakka um ágæti sitt. Mun nær væri að segja að kjósend- ur hafi í þessum kosningum refsað sósíalistum með því að kjósa eina raunhæfa valkostinn. Um þriðjung- ur kjósenda mætti ekki á kjörstað á sunnudag og er heildarfjöldi at- kvæða, sem féll í skaut UDF og RPR, i raun lítið meiri en í kosning- unum árið 1988. Ef fer sem horfír næsta sunnudag er ákveðið skeið í stjómmálasögu Frakklands að líða undir lok. Þegar Francois Mitterrand sigraði Valéry Giscard d’Estaing í forsetakosning- unum árið 1981 komust vinstrimenn til valda í Frakklandi í fyrsta skipti frá því Charles de Gaulle hershöfð- ingi stofnaði fímmta lýðveldið á sjötta áratugnum. Áformin sem sós- íalistar lögðu af stað með í upphafi vom háleit. Það átti að stokka franskt samfélag upp. Lofað var að efla siðgæði í frönskum stjórnmál- um. Þessi áform runnu fljótlega út í sandinn. Hinar sósíalísku kenni- setningar í efnahagsmálum reynd- ust eiga jafn illa við í Frakklandi og annars staðar þar sem á þær hefur verið látið reyna. Forsetinn varð að söðla um og taka upp að- haldssamari stefnu í efnahagsmál- um. Kjósendur refsuðu samt sósíal- istum þegar næst var kosið til þings, árið 1986, og við tók samsteypu- stjórn UDF og RPR undir forsæti Jacques Chiracs, leiðtoga RPR. Sú stjóm -sat einungis við völd í tvö ár. Mitterrand náði endurkjöri sem for- seti árið 1988 og boðaði til þing- kosninga í kjölfarið. Þó að sósíalist- ar næðu ekki hreinum meirihluta í kosningunum tókst þeim að mynda minnihlutastjóm sem notið hefur stuðnings kommúnista og nokkurra miðjumanna. Þau fimm ár sem síðan eru liðin hafa ekki verið sósíalistum auðveld. Ástandið í efnahagsmálum hefur farið ört versnandi og atvinnuleysi er nú rúmlega tíu prósent. Jafnvel enn þungbærari hafa fjölmörg spill- ingarmál reynst sósíalistum. Það hefur varla liðið sá mánuður að ekki hafí borist fregnir af nýjum málum, þar sem stjórnmálamenn úr röðum sósíalista hafa komið við sögu. Það hefur fjarað hratt undan trausti Sósíalistaflokksins síðustu ár. Flokkurinn sem lofaði siðbótum gerði stjórnkerfíð að spillingarbæli. Þetta leiddi til þess að almenning- ur í Frakklandi missti fyrst traustið á stjórnmálamönnum almennt og síðan áhugann líkt og hin dræma kosningaþátttaka um helgina ber vott um. Innan skamms mun ný hægri- stjórn taka við völdum í Frakk- landi. Líkt og árið 1986 verður hún hins vegar að bíta í það súra epli að Mitterrand ræður enn ríkjum í Elysée-höll. Þrátt fyrir niðurlæg- ingu sósíalista í kosningunum ætlar hann að sitja áfram þar til síðara sjö ára kjörtímabili hans lýkur árið 1995. Staðan er hins vegar ekki að öllu leyti sambærileg við stöðuna á árunum 1986-1988. Þá hafði Mitt- errand enn öflugan bakhjarl í Sósíal- istaflokknum og gat gert stjórn Chiracs lífið leitt á flestum sviðum. Nú er hann einn og yfírgefinn og verulegar líkur á að flokkurinn, sem hann stofnaði fyrir tveimur áratug- um, muni klofna í frumeindir sínar vegna innbyrðis ágreinings. Næstu ríkisstjórn ætti því að reynast auð- veldara að koma stefnu sinni í fram- kvæmd en stjórn Chiracs á sínum tíma. Það á hins vegar enn eftir að koma í ljós hversu miklu stjórnar- skiptin munu í raun breyta í Frakk- landi. Næstu stjórn er sniðinn mjög þröngur stakkur efnahagslega og gefur staða mála ekki mikið svigrúm til athafna. Ef lætur að líkum mun stjómin líka fylgja áþekkri stefnu í peningamálum og sú fráfarandi sem kennd hefur verið við „sterkan franka“ eða franc fort. Það myndi hins vegar þýða að þær ákvarðanir sem mestu máli skipta verða áfram teknar í Frankfurt, þar sem þýski seðlabankinn hefur höfuðstöðvar sínar, en ekki í ráðuneytum Parísar. Utan Frakklands er þess beðið með mestri eftirvæntingu hvaða póll verður tekinn í hæðina í við- skiptamálum. Hin veika staða frönsku ríkisstjórnarinnar síðastlið- ið ár hefur gert það að verkum að erfiðlega hefur gengið að ná sam- komulagi um landbúnaðarþátt GATT-viðræðnanna. Ef marka má yfirlýsingar leiðtoga RPR og UDF í kosningabaráttunni er því miður ekki góðs að vænta í þeim efnum. Ef Frakkar reyna að stöðva GATT innan EB með því að beita neitunar- valdi myndi það leiða til öngþveitis á sviði alþjóðaviðskipta. Það myndi einnig stefna öllum áformum um nánara samstarf EB-ríkjanna í tví- sýnu og valda þar með pólitísku uppnámi um gjörvalla Evrópu. Það hefur þó margsinnis komið í ljós að orð sem falla í kosningabar- áttu og síðari stjómvaldsaðgerðir eiga oft mjög fátt sameiginlegt. Vonandi verður sú einnig raunin varðandi viðskiptastefnu næstu rík- isstjórnar Frakklands. VALDABARATTAN I RUSSLANDI Stuðningur Vest- urlanda gæti veikt stöðu Borís Jeltsíns Moskvu. The Daily Telegraph. VESTURLÖND hafa skapað sér óvild á meðal áhrifamikilla manna í Rússlandi með stuðningi sínum við Borís Jeltsín for- seta. Þessi stuðningur gæti jafnvel orðið til þess að veikja forsetann. Stuðning- ur vekur andúð Sjö helstu iðnríki heims, eða G-7 ríkin svonefndu, geta lítið gert til að öðlast traust harð- Eldri kona 1 Pétursborg línnman- veifar mynd af Lenín ‘ Iiiiunid.li mótmælaskyni gcgn Jelts- nanna í ín Moskvu, þjóðernis- sinna og kommúnista. Einarður stuðningur iðnveldanna sjö við Jeltsín undanfama daga hefur hins vegar vakið andúð hjá mönnum í Moskvu sem gætu haft veruleg áhrif í rússneskum stjómmálum í framtíðinni. Útlendingahatur hefur alltaf ver- ið áberandi á meðal rússneskra þjóðernissinna og þeir hafa líka verið veikir fyrir samsæriskenning- um. Nú þegar stjórnkerfið er lamað og mikil efnahagskreppa skollin á er auðvelt fyrir lýðskrumara að skella skuldinni á útlendinga. Stuðningur Vesturlanda kann að auka Jeltsín kjark og er betri en miðvituð viðleitni af hálfu vest- rænna leiðtoga til að halda rúss- neska forsetanum’í hæfilegri fjar- lægð af ótta við að honum verði steypt af stóli innan skamms. Fáir telja þó að stuðningurinn eigi eftir að skipta sköpum fyrir Jeltsín í valdabaráttunni. Þvert á móti gæti hann orðið til þess að veikja forset- ann heima fyrir. Erlenda auðvaldið Útlendingahatrið kom berlega í ljós þegar fylgst var með fundi rússneska þingsins eftir að Jeltsín tilkynnti að hann hefði tekið sér sérstakt vald til að stjórna landinu með tilskipunum. Þingmennirnir fjölluðu um hvemig orða ætti álykt- un um ákvörðun forsetans og í drögunum var vísað til „glæpsam- legra kaupmanna sem njóta stuðn- ings Vesturlanda". Einum þing- mannanna þótti þetta of langt gengið og lagði til að orðin „alþjóð- lega mafían og pólitískir ævintýra- menn“ yrðu notuð í staðinn. Að lokum náðist samkomulag um málamiðlun og setningin hljómaði svo: „Eina fólkið í Rússlandi sem býr við góð kjör eru fjársvikarar og þeir sem í grægði sinni láta greipar sópa um auðlindir Rúss- lands í hagnaðarskyni fyrir sjálfa sig og erlenda auðvaldið." Andúð á gyðingum og frímúrurum Lítill munur virtist á vígorðum margra þingmanna og „föðurlands- vinanna" sem söfnuðust saman fyr- ir utan þinghúsið, nema hvað hatur í garð gyðinga og frímúrararegl- unnar var meira áberandi á meðal fólksins á götunni. Á mótmæla- spjöldum þjóðernissinnanna mátti lesa vígorð eins og: „CIA, NATO og Sameinuðu þjóðimar eru öfl Djöfulsins og leiða tortýmingu yfir mannkynið" og „Clinton - hugsaðu um hommana, Mitterrand - hugs- aðu um frímúrarana, en látið Rúss- land í friði“. Þjóðernissinnunum þótti það líka staðfesta grun þeirra um alþjóðlegt samsæri gegn Rússlandi þegar þeir fréttu af því Jeltsín hefði skýrt vestrænum sendiherrum frá áform- um sínum um að taka sér sérstakt forsetavald áður en hann flutti ávarp sitt til þjóðarinnar á laugar- dagskvöld. Til stuðnings Jeltsín Rúmlega þijú þúsund stuðningsmenn Borís Jeltsín Rússlandsforseta komu í gær saman fyrir framan stjórn- arráðið í Moskvu til að styðja við bakið á forsetanum í baráttu hans við þingið. Stefna Bandaríkj astj órnar í málefnum Rússlands gagnrýnd Agreiningur um réttmæti stuðnings við Borís Jeltsín Washington. Reuter. STJÓRN Bills Clintons forseta í Bandaríkjunum vill að aðstoð verði aukin við umbótaöfl í Rússalndi, meðal annars verði þeir styrktir með beinum og óbeinum lánum. Enn sem komið er hefur forsetinn þó ekki lagt fram nákvæma áætlun í þessum efnum en hefur gefið í skyn að það hyggist hann gera á fundi með Jeltsín sem fyrirhugað- ur hefur verið í Vancouver dagana 3. og 4. apríl. Sumir gagnrýnendur Clintons draga í efa skynsemina í því að leggja Jeltsín lið með svo ótvíræðum hætti sem Clinton hefur gert. Bent er á að tilskipunarvald Jelts- íns og aðferðin við að koma því á gangi í sjálfu sér í berhögg við al- mennar lýðræðishugmyndir. Fullyrt er að dyggur stuðningur George Bush, þáverandi Bandaríkjaforseta, við Míkhaíl Gorbatsjov hafi á sínum tíma gert Bush ókleift að styðja um- bótasinna á borð við Jeltsín þegar ljóst var orðið að valdahlutföli höfðu breyst, Gorbatsjov í óhag. Lee Hamil- ton, fulltrúadeildarþingmaður úr röð- um demókrata, sagði að meginmark- mið Bandaríkjanna hlyti að vera að styðja umbætur, ekki að ákveðinn einstaklingur héldi völdum. Bandaríska blaðið The Washington Post segir á hinn bóginn að þótt Clint- on taki áhættu með stuðningi við Borís Jeltsín í valdabaráttunni við harðlínuöfl sé svo mikið í húfi að áhættan sé þess virði að taka hana. „Með því að lýsa opinberlega yfir stuðningi við Jeltsín verður hann [Clinton] háður rússneskum leiðtoga sem hefur sýnt að hann hneigist jafnt til valdbeitingar sem lýðræðis," sagði blaðið í forystugrein. „En jafnframt styrkir hann stöðu Jeltsíns og tryggir að hann verði að taka tillit til krafna Bandaríkjamanna um að ekki verði horfíð af Iýðræðisbrautinni". Hvatt til þolinmæði Það er með öllu óvíst að þingið samþykki auknar fjárveitingar til að- stoðar Rússum en bandarískir ráða- menn eru nú byijaðir að undirbúa þjóðina fyrir aukin fjárútlát vegna ástandsins í Rússlandi. Bent er á að vegna gríðarlegs vopnabúnaðar Rússa verði ekki hægt að skera niður íjárveitingar til landvarna jafn mikið og nú er fyrirhugað ef harðlínumenn nái völdum í Moskvu. Warren Chri- stopher, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hvetur landa sína ákaft til að veita Rússum fjárhagslegan stuðning sem að gagni komi til að tryggja að umbótastefnan verði ekki aflögð í Kreml. Hann gagnrýnir Vesturveldin fyrir að hafa heitið Rússum milljörð- um dollara en aðeins staðið við lítinn hluta loforðanna. „Varðstaða okkar í kalda stríðinu bar ekki árangur fyrr en eftir meira en fjóra áratugi, á sama hátt verður stuðningur okkar við rúss- neska lýðræðisþróun að vera til lang- frama,“ sagði ráðherrann nýlega. Á undanförnum árum, einkum eft- ir hrun Sovétríkjanna, hafa banda- rískir embættismenn og sérfræðingar haft tilhneigingu til að líta svo á að þróun í átt til lýðræðis og markaðs- stefnu í Rússlandi væri komin svo langt á veg að ekki yrði snúið við. Atburðir síðustu mánaða og aukinn styrkur harðlínuafla í Moskvu hafa breytt þessum viðhorfum. Warren Christopher segir nú að þótt ekki verði horfíð aftur til tíma og stefnu Sovétstjórnarinnar gæti svo farið að Bandaríkin yrðu að fást við mun erfíð- ara ástand. Langtímamarkmið Clinton hefur sagt að hann vilji auka beina fjárhagsaðstoð við Rússa úr 400 milljónum dollara á þessu ári í 700 milljónir næsta ár. Einnig er ætlunin að nota 800 milljónir til að aðstoða Rússa við að eyða kjarnorku- vopnum. Christopher lagði áherslu á að ekki dygði að yfírvöld hlypu undir bagga með Rússum með því að ausa í þá bandarísku skattfé. Fyrirtæki yrðu einnig að hjálpa til við umskipt- in í Rússlandi með því að auka við- skipti við landið, fjárfesta þar og þjálfa starfsmenn. Margir benda á að einhvern tíma muni Rússar rísa upp á ný, svo auð- ugt sem landið sé að ýmsum náttúru- auðlindum. Þá muni skipta miklu hverja þeir líti á sem aldavini og hveija sem fjendur. íhuga beitingu neyðarákvæða Alþjóðabankans Washington. Reuter. UTANRÍKIS- og fjármálaráðherrar sjö helstu iðnríkja heims munu sennilega hittast í næsta mánuði. Þá verður reynt að ná samkomu- lagi um áætlun um aðstoð við umbótastefnu Jeltsíns áður en fyrirhug- uð þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram í Rússlandi 25. apríl um það hvor skuli ráða mestu, forsetinn eða þingið. Heimildarmenn segja að Rúss- ar gætu þurft um 14 milljarða Bandaríkjadollara á þessu ári til kaupa á brýnum vörum frá útlöndum og komast hjá algeru hruni innan- lands. Vegna almennrar efnahagskreppu liggur slíkt fé ekki á Iausu hjá iðnríkjunum. Ráðamenn Bandaríkjanna og annarra iðnvelda íhuga nú að beita lítt þekktu neyðarákvæði í lögum Alþjóðabankans til að flýta fyrir aðstoð við Rússland en heimilt er að veita um 23 milljarða dollara Samkvæmt þessu ákvæði. Einnig er verið að huga að lausn á deilu um rúmlega 80 milljarða dollara erlend- ar skuldir sem Sovétríkin gömlu skildu eftir sig. Vanskil hafa hlaðist upp, m.a. vegna þess að Rússar og Úkraínumenn hafa ekki náð sam- komulagi um skiptingu skuldanna. Þetta hefur valdið því að Bandaríkja- stjórn mun eiga mjög erfitt með að veita ríkisábyrgð fyrir auknum korn- kaupum Rússa í Bandaríkjunum. Stjómvöld verða samkvæmt lögum að geta sýnt kjósendum fram á að einhveijar líkur séu á því að greitt verði fyrir vöruna. Japanir eiga í deilum við Rússa vegna nokkurra smáeyja sem Rúss- ar tóku af þeim í stríðslok og hafa verið ófúsir að lofa mikilli aðstoð fyrr en deilan leysist. „Við verðum að gera okkur ljóst að Japanir eru helsti þröskuldurinn," sagði Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýska- lands, fyrir skömmu. Warren Chri- stopher, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði á fundi í Chicago að aðstoð við Rússa yrði þungur baggi en ekki yrði hjá henni komist. „Hér er um að ræða mikilvægasta lang- tíma verkefni samtímans," sagði ráðherrann. Vilja 20 milljarða dala aðstoð Washington. Reuter, The Daily Tele- graph. STJORN Rússlands hefur beð- ið sjö helstu iðnríki heims um 20 milljarða dala aðstoð og lagt fram áætlun sem miðar að því að koma á stöðugleika í efnahagslífinu og stemma stigu við verðbólgunni. Heimildarmenn í Washington sögðu í gær að Borís Fjodorov, aðstoðarforsætisráðherra Rúss- lands, hefði lagt áætlunina fram á fundi með háttsettum embætt- ismönnum iðnveldanna sjö í Hong Kong fyrr í mánuðinum. Samkvæmt áætluninni er stefnt að því að takmarka lán- veitingar og draga úr ríkisút- gjöldum í því skyni að minnka verðbólguna í 5% á mánuði en hún er nú 25% á mánuði. Að sögn heimildarmannanna hefur rúsneska stjórnin beðið iðnveldin um 20 milljarða dala aðstoð., þar af 6 milljarða til að styrkja rúbl- una i sessi og allt að 7 milljarða til að byggja upp iðnfyrirtæki. A Akaft deilt um túlkun á stjórnarskrá Rússlands Færir ákvæði gegn öfgaöflum Rútskoj forsetaembættíð? RÚSLAN Khasbúlatov, þingforseti, lýsti yfir því í gær að úrskurður stjórnlagadómstóls þess efnis að Borís Jeltsín, forseti Rússlands, hefði gerst sekur um stjórnarskrárbrot er hann tók sér tímabundið alræðisvald á laugardag, gæfi tilefni til þess að Jeltsín yrði form- lega ákærður. Líklegt má telja að Æðsta ráðið, starfandi þing lands- ins, ákveði á fundi sínum í dag að kalla saman fulltrúaþingið en þar sitja rúmlega 1.000 menn. Fulltrúaþingið eitt getur tekið ákvörð- un um hvort lögð verður fram kæra á hendur forseta Rússlands og munu andstæðingar hans þá krefjast þess, með vísan til stjórnar- skrárinnar, að Alexander Rútskoj varaforseti taki við af Jeltsín. Búist hafði verið við því að niður- staða stjórnlagadómstólsins myndi tæpast liggja fýrir á næstu vikum og raunar hafði því verið haldið fram að úrskurðarins væri tæpast að vænta fyrir þjóðaratkvæða- greiðslu þá er Jeltsín hefur boðað til 25. næsta mánaðar. Var talið að það myndi reynast tímafrekt verk að safna saman nauðsynlegum gögnum í málinu. Nú liggur fyrir að þeim gögnum var ekki safnað saman og virðist því sem niðurstaða dómsins sé grundvölluð á yfirlýs- ingum þeim sem Jeltsín lét frá sér fara í sjónvarpsræðu sinni á laugar- dagskvöld! Því er við að bæta að mjög er á reiki hvaða plögg voru undirrituð er forsetinn lýsti yfir því að hann hefði tekið sér tilskipana- vald til 25. apríl. Jafnframt er vert að geta þess að niðurstaða stjórn- lagadómstólsins en í honum sitja 13 menn hafði ekki verið birt með formlegum hætti er Khasbúlatov lét þau orð falla að ákæra bæri forsetann fyrir stjórnarskrárbrot. Eftir því sem fréttir hermdu í gær var þess ekki getið í úrskurði stjórn- lagadómstólsins að meint brot Bor- ís Jeltsíns réttlættu að ákæra yrði borin fram á hendur honum. Fulltrúaþingið kallað saman? Láti andstæðingar Jeltsíns sverfa til stáls bendir allt til þess að það gerist í dag. Æðsta ráðið mun trúlega boða til fundar full- trúaþingsins, sem samkvæmt skiln- ingi Khasbúlatovs og stuðnings- manna hans, fer með æðstu stjórn málefna Rússlands. Verulegar líkur eru á að fulltrúaþingið krefjist þess að málsókn verði hafín á hendur Jeltsín og að völd hans verði færð í hendur Alexander Rútskoj vara- forseta. Fari svo verður trúlega vísað til 11. undirgreinar 121. greinar stjórnarskrár Rússlands er kveður á um skilyrði þess að völdin verði fengin varaforsetanum. í grein þessari segir að varaforsetinn taki við falli starfandi forseti frá, verði hann óvinnufær sökum veik- inda eða ef lögð er fram ákæra á hendur honum fyrir stjórnarskrár- brot. Þessari grein var, að sögn sérfróðra, bætt við stjórnarskrána eftir valdaránstilraun harðlínu- kommúnista í Moskvu í ágústmán- uði 1991. Starfandi varaforseti Gorbatsjovs, Gennadíj Janajev, var sagður leiðtogi „neyðarstjórnarinn- ar“ sem þá tók völdin í Sovétríkjun- um. Því kann svo að fara að lögð verði fram kæra á hendur Jeltsín, lýðræðislega kjörnum forseta Rúss- lands, vegna brota gegn ákvæðum stjórnarskrár sem leidd var í lög í tíð Leoníds Brezhnevs og að vísað verði til ákvæðis sem bætt var við eftir tilraun til að ræna annan leið- toga kommúnista, Míkhaíl Gorb- atsjov, völdunum. Borís Jeltsín hefur þegar gert heyrinkunnugt að hann hyggist í einu og öllu hundsa ákvarðanir fulltrúaþingsins og raunar mun það heyra sögunni til hljóti tillögur for- setans um breytingar á stjórnar- skránni náð fyrir augum rússnesku þjóðarinnar. Undirsátar forsetans hafa á undanförnum dögum haldið því fram að ekki sé unnt að ákæra Jeltsín með tilvísun til stjórnar- skrárinnar þar eð umrædd undir- grein 121. greinar geti ekki talist hafa lagalegt gildi fyrr en niður- staða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um völd þings og forseta og nýja stjórnarskrá liggur fyrir. Sjálfstæði og veikt miðstjórnarvald Verði Jeltsín ekki ákærður hefur hann unnið orrustu en stríðinu mun ekki ljúka. í kjölfarið mun fylgja lokauppgjör við forréttindastéttina gömlu, versnandi efnahagsástand með ótrúlegum atvinnuleysistölum og viðvarandi barátta við hreyfing- ar öfgafullra rússneskra þjóðernis- sinna. Þess hefur þegar orðið vart að leiðtogar nokkurra sjálfstjórnar- svæða og lýðvelda innan Rússlands telji að nú sé lag að brjótast undan yfirráðum Moskvu-valdsins. Líkt og í tíð Gorbatsjovs er Sovétlýð- veldin nýttu sér veika stöðu mið- stjórnarvaldsins til að tryggja sér sjálfstæði kunna leiðtogar rúss- neskra sjálfsstjórnarsvæða nú að bregðast við með sama hætti. Það er. með tilliti til þessa sem skilja ber yfirlýsingar Rúslans Khasbúl- atovs og stuðningsmanna hans um að eining Rússlands kunni að vera í hættu. Leiðtogum margra sjálf- stjórnarsvæða stendur því ógn af endurnýjun miðstjórnarvaldsins og auknum völdum forsetans. Leiðtog- ar Sovétlýðveldanna fyrrverandi óttast það hins vegar að sigur Khasbúlatovs og manna hans í valdabaráttunni 'í Moskvu muni verða til þess að styrkja þau öfl í sessi er haldið hafa því fram að tryggja beri með öllum nauðsynleg- um ráðum öryggi og hagsmuni rússneskra minnihlutahópa í ríkjum þessum. Yfirlýsingar öfgafullra þjóðernissinna í þessa veru skilja flestir sem hótun um beitingu her- valds. Hljóti Jeltsín sömu örlög og Gorbatsjov, reynist stuðningurinn erlendis frá að engu gagni koma, munu margir vafalaust freista þess að skýra hvaða pólitíska stöðumat olli því að Jeltsín ákvað að leysa ekki fulltrúaþingið upp og efna til nýrra kosninga strax eftir valda- ránið og hrun Sovétríkjanna um áramótin 1992-1993. Talsmenn forsetans vísuðu á sínum tíma til þess að lýðræðisvitund væri enn mjög vanþróuð í landinu, þess vegna myndu fjölmargir fulltrúar sovétkerfisins ná kjöri á fölskum forsendum. ÁSv. Lykilmenn í valdatafl- inu í Moskvu Moskvu. Daily Telegraph. AUK Borís Jeltsíns eru fjórir menn í lykilhlutverkum í þeim pólitiska hildarleik sem nú er háður í Moskvu. Það eru þeir Alexander Rútskoj varaforseti, Rúslan Khasb- úlatov forseti fulltrúaþingsins, Valerí Zorkín forseti stjórnlaga- dómstólsins og Pavel Gratsjev varnarmálaráðherra. Alexander Rútskoj varaforseti er fyrrum orrustuflugmaður og stríðshetja úr Afgan- istanstríðinu. Vara- forsetaefni Jeltsíns forsetakosningunum og bandamaður í valdaránstilraun Aicxander harðlínumanna í ág- Rntsk°j úst 1991. Tekur við af Jeltsín ef for- setinn verður sóttur til saka fyrir embættisafglöp. Líklegur til að segja að hollusta sín sé meiri gagnvart þjóð en forseta. Beitti sér fyrir sáttum milli þings og forseta og lagðist gegn því að Jeltsín sneri sér til þjóðarinn- ar. Telur að nánustu samstarfsmenn Jeltsín séu á góðri leið með að fara með Rússland í hundana. Rútskoj ec lýst sem hreinskilnum þjóðemissinna en þeir Jeltsín hafa fjarlægst hvorn annan og því hefur hann vingast við andstæðinga forsetans. Rúslan Khasbúlatov þingforseti er óút- reiknanlegur og skapstór en þykir naskur stjórnmála- maður og með gott pólitískt innsæi. Stýr- ir aðgerðum and- stæðinga Jeltsíns. Rúsian Samkvæmt rússn- Khasbúiatov esku stjórnarskránni er rússneska fulltrúaþingið æðsta valdastofnun landsins. Gæti Khasbúlatov því látist vera sérstakur vörður lýðræðis og laga og beitt þinginu í þágu þess, svo sem hann hefur þegar gert. Ekki alls fyrir löngu spáði hann fyrir um að forsetinn myndi beita „ólöglegum brögðum“ og „fóma lýðræðinu" til þess að knýja óvinsælar umbætur sín- ar í gegn. Valerí Zorkín, for- seti stjórnlagadóm- stólsins, er þegar einn af valdamestu mönnunum í Moskvu þó stjórniagadóm- stóllinn hafi ekki komið til sögunnar fyrr en 1991. Hann Vaierí Zorkín hefur verið sakaður um að taka afstöðu í valdabaráttu Jeltsíns og þingsins og þannig grafa undan trúverðugleika dómstólsins. Hugsanlegt er að Zorkín og félagar hans 12 í stjómlagadómstólnum verði á næstu dögum falið að kveða upp úr um hvort Jeltsín, fyrsti lýðræðis- lega kjörni leiðtogi Rússlands, skuli sóttur til saka fyrir embættisafglöp. Miðað við viðbrögð Zorkíns við nýj- ustu gjörð forsetans er hann þeirrar skoðunar. „Forsetinn leikur nú ein- ræðisherra. Boðskapur ávarpsins jafngildir valdaráni," sagði Zorkín á laugardagskvöld. Stjórnlagadóm- stólnum er ætlað að vera óháð eftir- litsstofnun. Dómararnir hafa hins vegar orðið berir að því að láta stjóm- ast af pólitískum tilfinningum og hafa þannig ógilt ýmsar tilskipanir Jeltsíns. Pavel Gratsjev varnarmálaráðherra er kominn til valda fyrir tilstuðlan Jelts- íns. Hefur hvað eftir annað sagt opinber- lega að herinn muni ekki hafa afskipti af stjómmálum. Við Pavel Gratsjev sama tækifæri hefur hann gefið til kynna að herinn styðji forsetann. Það kann fljótlega að verða óveijandi afstaða. Gratsjev er fyrrum yfirmaður sovésku fallhlífahersveit- anna. Hann er óvinsæll meðal lægra settra foringja og kembir ekki hær- urnar í starfi, komist harðlínuöflin til valda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.