Morgunblaðið - 24.03.1993, Page 1

Morgunblaðið - 24.03.1993, Page 1
56 SIÐUR B/C 69. tbl. 81. árg. MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins embætti París. Reuter. JACQUES Chirac, leiðtogi gaull- ista í Frakklandi, skoraði í gær á sósíalistann Francois Mitterr- and forseta að segja af sér eða láta ella hægriflokkana, sigur- vegara kosninganna á sunnudag, í friði við landsstjórnina. Chirac, sem stefnir að forseta- framboði eftir tvö ár, sagði í gær eftir mikinn sigur hægriflokkanna í fyrri umferð þingkosninganna á sunnudag, að það væri Mitterrand sjálfum fyrir bestu að segja af sér í stað þess að verða þröskuldur í vegi nýrrar stjómar. Mitterrand, sem er 76 ára að aldri, hefur hins vegar lýst yfir, að hann ætli að sitja út kjörtímabilið eða til 1995. í kosningunum á sunnudag fengu hægriflokkamir 39,5% atkvæða og er spáð 450-476 þingsætum af alls 577. Er það mesti kosningasigur í franskri sögu en ósigur stjómar- flokks sósíalista var að sama skapi auðmýkjandi. Fékk hann um 17,6% atkvæða, tapaði 16-17 prósentu- stigum og er spáð allt niður í 54 þingsæti. Michel Rocard, fyrrum forsætis- ráðherra sósíalista, sem stefnir að forsetaframboði fýrir flokkinn, sagði í gær, að ósigur flokksins stafaði af efnahagserfiðleikum, hroka sós- íalista og hneykslismálum. Hægriflokkunum tókst í gær að jafna með sér þann ágreining, sem verið hefur með þeim, og náðu sam- komulagi um alla frambjóðendur í síðari kosningaumferðinni um næstu helgi. Talið er líklegast, að samflokksmaður Chiracs, Edouard Balladur verði forsætisráðherra. Reuter Hinsta kveðjan BORÍS Jeltsín kveður hér móður sína, Klavdíju, hinstu kveðju en hún lést á sunnudag 84 ára að aldri. Athygli vakti, að Alexander Rútskoj varaforseti, sem harðlínumenn vilja í forsetaembættið, var við útförina. með fisk í Noregi STÓRKOSTLEGT svindl með fisk á sér stað í Noregi. Fiskvinnslu- stöðvar eiga á lager stimpluð og undirrituð upprunavottorð til að villa um fyrir yfirvöldum í Evrópubandalaginu, EB, og sleppa við tolla; ólöglegur afli í einni tegund er kerfisbundið fluttur yfir í aðra og sérstök aðferð gildir við að kaupa ólöglegan afla af rússneskum skipum án þess, að hans sé getið í opinberum skýrslum. Kemur þetta fram í norska blaðinu Verdens Gang í dag og er árangur viða- mikilla rannsókna fimm blaðamanna þess. Segja þeir, að norsk yfir- völd hafi vitað um lögleysuna allt frá miðju ári 1991. Blaðamennimir hafa unnið að rannsóknum sínum í marga mánuði og í mörgum löndum og segja, að niðurstaðan sé sú, að norskur sjávar- útvegur og fiskvinnsla séu gegnum- sýrð af lögbrotum. Segir Verdens Gang, að vissulega séu til heiðarleg- ar undantekningar en þijótamir hafi hins vegar grætt vel. Blaðið nefnir dæmi um skip, sem landað hafi fiski af ýmsum tegundum þótt allur aflinn hafi verið þorskur og þeir segja, að Alaskaþorskur og rússneskur þorskur, sem Norðmenn hafi keypt fýrir milljarða króna, gufi upp í norskum skýrslum og sé síðan seldur sem norskur í EB-ríkjunum og annars staðar. Þannig hafi fiskút- flytjendur svikið út gífurlegar fjár- hæðir, sem þeir hefðu annars orðið að gfreiða í tolla. Þá komust blaða- mennimir yfir 120 upprunavottorð, stimpluð og undirrituð, hjá stórri fiskvinnslustöð og var ekki annað eftir en skrifa á þau „þjóðernið". Álitshnekkir Þessar upplýsingar birtast á sama tíma og Norðmenn eru að hefja samninga um aðild að EB og segir Verdens Gang, að Jan Henry T. 01- sen sjávarútvegsráðherra sé á nálum vegna þess, sem rannsókn blaðsins hafi leitt í ljós. Yfirvöld í EB-ríkjun- um hafi verið farin að ókyrrast vegna framferðis Norðmanna en nú megi telja víst, að uppljóstrunin virki eins og sprengja meðal þeirra. Þá sé þetta mál gífurlegt áfall fyrir álit Norð- manna út á við, ekki síst Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra, sem litið sé á sem eins konar alþjóðlegan umhverfísvemdarráðherra. Eindreginn stuðning- ur Clintons við Jeitsín Kasparov sviptur titlinum ZUrich. Reuter. FIDE, Alþjóðaskáksam- bandið, hefur í raun svipt Garrí Kasparov heimsmeist- aratitlinum í skák. FIDE úr- skurðaði, að Kasparov og Nigel Short hefur fyrir- gert rétti til að tefla um titilinn en með þessu er FIDE _________ að svara þeirri Kasparov ákvörðun Ka- sparovs og Shorts að heyja ein- vígið án afskipta skáksam- bandsins, sem þeir hafa sakað um að virða að vettugi hags- muni skákmannanna sjálfra. Verður farið fram á það við Hollendinginn Jan Timman og Rússann Anatolí Karpov, að þeir heyi einvígið í staðinn. ViII Mitt- eirandúr Tilbúin vottorð, tollsvik og rányrkja Gífurlegt svindl Moskvu, Washington. Reuter. ■ „RÚSSLAND er lýðræðisríki og verður að vera það áfram,“ sagði Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, á fyrsta formlega blaðamannafundi sínum í gær og lýsti yfir afdráttarlausum stuðningi við Borís Jeltsín, forseta Rússlands, í baráttunni um völdin í Kreml. Rúslan Khasbúlatov, helsti andstæðingur Jeltsíns, frestaði í gær fundi fastaþingsins þar sem ræða átti ákæru á hendur forsetanum fyrir stjórnarskrárbrot og bar því við, að verið væri bera móður Jeltsíns til grafar á sama tíma. Miklar vangaveltur eru þó um þessa ákvörðun Khasbúlatovs. Clinton hóf blaðamannafundinn með því að segja, að Bandaríkja- stjórn gæti litlu ráðið um atburða- rásina í Rússlandi en „við erum ekki bara óvirkir áhorfendur. Jeltsín er kjörinn leiðtogi Rússa og hann hefur sýnt mikið hugrekki við að veija lýðræðið, borgaraleg réttindi og umbætur í efnahagsmálum og hann styðjum við.“ Clinton kvað enga formlega beiðni hafa borist um, að fundur þeirra Jeltsíns yrði í Moskvu en ekki í Vancouver en Borís Fjod- orov, aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, sagði í gær, að betra væri, að hann færi fram í .Moskvu eins og ástatt væri. Andrei Kozyrev, utanríkiráðherra Rússlands, sem nú er í Washington, ítrekaði svo í gær, að fundurinn yrði í Vancouver. Stj órnar skr árbr ot Rússneski stjórnlagadómstóllinn kvað upp þann úrskurð í gærmorg- un, að Jeltsín hefði brotið gegn stjórnarskránni með því að taka sér tilskipunarvald en taldi þó ekki vera grundvöll fyrir ákæru. Khasbúlatov hvatti hins vegar strax til, að Jeltsín yrði ákærður og Alexander Rútskoj varaforseti tæki við af honum. Kvaddi hann til fundar fastaþingsins til að ræða hvenær fulltrúaþingið kæmi saman til að fjalla um ákær- una en frestaði fundi eftir rúman stundarfjórðung gegn háværum mótmælum margra harðlínumanna. Sagði hann ekki viðeigandi að fjalla um málið á sama tíma og útför móður Jeltsíns færi fram. Jeltsín varaði í gær ráðamenn í rússnesku sjálfstjórnarlýðveldunum og embættismenn ríkisins við að óhlýðnast fyrirmælum sínum og sagði, að þeir yrðu umsvifalaust dregnir til ábyrgðar á gerðum sínum. Þjóðarleiðtogar á Vesturlöndum ít- rekuðu einnig stuðning sinn við for- seta Rússlands og hvöttu til viðamik- illar fjárhagsaðstoðar við landið. Sjá fréttir á miðopnu Mannfalli mótmælt AÐSTANDENDUR þeirra, sem slasast hafa eða látist í umferðarslysum, efndu til fjölmennra mótmæla í Taipei, höfuðborg Tævans, í gær og kröfð- ust þess, að viðurlög við vítaverðum akstri yrðu stórhert. Bar fólkið kist- ur og var með mynd af látnum ástvinum sínum til að leggja áherslu á þann harmleik, sem daglega á sér stað í umferðinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.