Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 4
VEÐUR
1
4-----------------------------*--- MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 ---:--------------- |
VEÐURHORFUR I DAG, 27. APRIL
YFIRLIT: Við norðurströnd landsins er allvíðáttumikil 980 mb lægð, sem
þokast norðaustur og fyrir vestan Grænland er önnur lægð, vaxandi og
mun hún þokast austur og mynda lægðardrag á Grænlandshafi þegar
líður á morguninn.
SPÁ: Fremur hæg suðvestanátt á landinu. Skýjað, en að mestu úrkomu-
laust suðvestan- og vestanlands, en víða bjartviðri í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Sunnan- og suðvestan-
átt, víða strekkingur. Rigning eða skúrir sunnanlands og vestan en þurrt
að mestu og víða léttskýjað norðaustan til. Á miövikudag verður hitinn
á bilinu 4-14 stig en á fimmtudaginn 1-7 stig. Hlýjast verður norðaust-
anlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestiæg eða breytileg átt. Slydduél sunn-
an- og vestanlands en úrkomulaust norðaustantil. Hiti 1-5 stig að degin-
um en vfða næturfrost.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Q & A Q
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
v $ ý
Skúrir Slydduél Él
r r r * f *
f f * f
r f f r * r
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vmdstig._
10° Hitastig
v súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 f gær)
Vegir á Suður- og Vesturlandi eru flestir greiðfærir og fært er vestur í
Reykhólasveit i Austur-Barðastrandarsýslu. Nokkur hálka er þó um
Hellisheiöi og Bröttubrekku. Ófært er um Kleifarheiði og Hálfdán og
sömuleiðis um Steingrímsfjarðarheiði. Vfða um land e; hvassviðri og
mikill sandstormur á Mýrdalssandi, og vonskuveður er á Holtavörðu-
heiði og Öxnadalsheiði og vart ferðaveður. Vegir á Norður- og Norðaust-
urlandi eru flestir færir en ófært er um Möðrudalsöræfi. Víða hefur
öxulþungi verið takmarkaður vegna aurbleytu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl veður
Akureyri 7 lettskýjað
Reykjavík 2 snjóél
Bergen 18 heiðskfrt
Helsinki 20 skýjað
Kaupmannahöfn 23 léttskýjað
Narasarsáuaq +8 skýjaö
Nuuk +12 snjókoma
Osló 18 heiöskírt
Stokkhólmur 24 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 14 skýjað
Amsterdam 18 mistur
Barcelona 16 skýjað
Berlín 26 léttskýjað
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 20 léttskýjað
Frankfurt 21 hálfskýjað
Glasgow 10 mistur
Hamborg 23 skýjað
London 10 rigning
Los Angeles 16 heiðskírt
Lúxemborg 18 hálfskýjað
Madrid 12 skýjað
Malaga 15 úrkoma
Mallorca 13 rigning
Montreal 4 skýjað
NewYork 15 alskýjað
Orlando 21 þokumóða
Parls 18 hálfskýjað
Madeira 14 skur
Róm 20 skýjað
Vín 20 skýjað
Washingtort 17 alskýjað
Winnipeg 1 skýjað
Grænlandsleiðangnr íslendinganna
Jökulganga leið-
angursmanna hafín
AÆTLAÐ var að íslenski Grænlandsleiðangurinn héldi af stað yfir
Grænlandsjökul sl. sunnudag, en leiðangursmenn eru feðgarnir Ólaf-
ur Örn Haraldsson og Haraldur Ólafsson, og Ingþór Bjarnason.
Þeir munu ganga 600 km leið vestur yfir jökulinn og ráðgert er að
gangan taki um einn mánuð.
og var ráðgert að hann skildi við
þá er þeir legðu á jökulinn. _
Næstu dagar verða leiðangurs-
mönnunum erfíðir því talsvert er á
brattann að sækja og byrðarnar
þungar. Búnaður hvers þeirra vegur
94 kg og er honum skipt í bakpoka
og á sleða, sem hver maður dreg-
ur. Framundan er 600 km ganga
þvert yfir Grænlandsjökul til Syðri-
Straumfjarðar.
Leiðangurinn flaug með þyrlu sl.
laugardag frá Ammassalik til
Isertoq. Reiknað var með að hann
legði af stað með hundasleðum inn
að jökulröndinni annaðhvort seinni-
partinn á laugardag eða á sunnu-
dag.
Erfiðir dagar framundan
Með þeim í för var Ingimundur
Stefánsson kvikmyndagerðarmaður
Bíll sex ferðalanga brann til kaldra kola í einni svipan á bensínstöð á Hólmavík
„VIÐ vorum heppin að þetta skyldi ekki hafa gerst uppi á heiði.
Þetta gerðist svo snöggt að ekki náðist annað út en fólkið og hætt
er við því að okkur hefði orðið kalt,“ sagði Gísli Hermannsson
eigandi bíls sem brann snögglega á bensínstöð á Hólmavík í fyrra-
kvöld. Sex manns voru í bílnum, þar af tvö sofandi börn, og sluppu
allir ómeiddir, en bíllinn gjöreyðilagðist og allt sem í honum var.
Gísli og ferðafélagar hans voru
um helgina í fermingarveislu í Bol-
ungarvík og voru á sunnudagskvöldi
á leið til Reykjavíkur í Ford Econol-
ine-ferðabíl. Þegar Gísli ók bílnum
inn á bensínstöðina á Hólmavík eftir
miðnættið varð hann var við reyk.
Hann sagðist ekki hafa fundið neina
reykjarlykt og taldi í fyrstu að þetta
væri ryk af malarveginum. Þegar
hann síðan fór fram fyrir bílinn og
opnaðj vélarhlífma gaus upp eldur.
Hann sagðist hafa farið til að vekja
bömin, taka slökkvitæki og gera
ráðstafanir til að færa bílinn frá
bensíndælunum. Fólkinu tókst að
ýta bílnum frá á meðan Gísli reyndi
/ DAG kl. 12.00
að slökkva eldinn með eigin slökkvi-
tæki og tæki frá bensínstöðinni, en
það dugði ekki til að kæfa eldinn.
Bíllinn varð fljótlega alelda og brann
hann ásamt öllu sem í honum var
um það bil 5-7 metrum frá dælunum
Slökkviliðið á Hólmavík kom á
staðinn og kom í veg fyrir að bens-
íntankur bílsins spryngi með því að
kæla hann og dæla á hann kvoðu.
Bíllinn var vandaður ferðabíll, útbú-
inn dýrum tækjum og fullur af við-
legubúnaði og fatnaði. Ekki tókst
að bjarga neinu úr honum og sagði
Gísli að tjónið væri mikið. Síðdegis
í gær sagðist hann ekki vera búinn
að kanna tryggingamálin.
Morgunblaðið/Margrét Guðjónsdóttir
Bálið
FÓLKIÐ slapp naumlega úr bílnum. Hann
varð fljótt alelda skammt frá bensíndælun-
um á Hólmavík og eldtungurnar stóðu út
úr gluggunum.
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
Samræmdu prófunum lýkur í dag
Lögreglan kemur
í veg fyrir dansleiki
á vínveitingastöðum
TVEIR skemmtistaðir í miðborginni auglýstu dansleiki í kvöld
fyrir nemendur sem í dag ljúka samræmdum prófum í grunnskól-
um. Auglýsingar þessa efnis voru hengdar upp í nokkrum skól-
um. Vínveitingastöðum er óheimilt að skipuleggja svona samkom-
ur og eftir að foreldrar og skólasljórar höfðu látið lögregluna í
Reykjavík vita tilkynnti hún forráðamönnum skemmtistaðanna í
gær að lögreglan myndi fylgjast sérstaklega með því að bann
þetta yrði virt.
Um 3.900 böm í 10. bekk
grunnskóla ljúka í dag samræmdu
prófi í dönsku og er það fjórða
og síðasta samræmda prófið í
vor. Undanfarin ár hafa börnin
haldið upp á það með mismunandi
hætti. Vínveitingastaðirnir Berlín
og Tunglið hengdu upp auglýsing-
ar í nokkrum grunnskólum þar
sem börnunum var boðið upp á
dansleiki í kvöld. Áfengi átti ekki
að vera á boðstólum en önnur
þjónusta á stöðunum sú sama og
önnur kvöld. Nú er Ijóst að ekk-
ert verður úr þessum dansleikjum.
Báru við ókunnugleika
Ómar Smári Ármannsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í lögregl-
unni í Reykjavík, sagði í gær að
foreldrar og skólastjórar hefðu
haft samband við lögregluna
vegna auglýsinga um þessa dans-
leiki í skólunum. Hann sagði að
í nýlegum lögum um vernd barna
og unglinga væri skýrt tekið fram
að unglingum innan 16 ára aldurs
væri óheimill aðgangur að dans-
leikum öðrum en þeim sem skipu-
lagðir væru sérstaklega fyrir þá
af skólum eða æskulýðsfélögum.
Þá væri unglingum innan 18 ára
aldurs óheimill aðgangur að vín-
veitingastöðum. Ekki hefði verið
sótt um undanþágur frá þessum
bönnum, enda hefði ekki verið
hægt að verða við þeim. Hann
sagði að forráðamenn staðanna
hefðu borið við ókunnugleika um
reglurnar, þegar haft var sam-
band við þá. Sagði Ómar Smári
að börnin gætu sparað sér sporin
því ekkert yrði úr dansleikjahaldi
fyrir grunnskólabörn á þessum
skemmtistöðum í kvöld.
Þá sagði Ómar Smári að
ástæða væri til að benda foreldr-
um að hafa vara á sér gagnvart
áfengisneyslu, sem reynslan sýndi
að fylgdi próflokum grunnskóla.
Fólkið slapp allt
ómeitt úr eldinum