Morgunblaðið - 27.04.1993, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 27.04.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRIL 1993 5 Metþátttaka á Andrésar- leikunum ÁTJÁNDU Andrésar-Andarleik- unum lauk í Hlíðarfjalli við Ak- ureyri á laugardag og lék veðrið við keppendur alla þijá keppnis- dagana. Metþátttaka var að þessu sinni, 738 keppendur frá 16 héruðum á aldrinum 6 til 12 ára. Það ríkti sannkölluð skíða- stemmnig í Hlíðarfjalli þessa daga. Á myndinni er Þórdís Linda Dúadóttir frá Dalvík, í keppni í svigi 8 ára stúlkna. 2000 sím- ar tengdir TVÖ ÞÚSUND símnotendur í Reykjavík hafa verið tengdir nýrri stafrænni símstöð. Núm- erin sem byrja á 12 eða 13 hald- ast óbreytt en þau voru áður tengd stöð í Landssímahúsinu frá árinu 1932. Að sögn Ágústs Geirssonar, umdæmisstjóra Pósts og síma, hefur til þessa þurft að breyta númerum úr fimm í sex stafa númer með tengingu við stafræna stöð, en þess gerist ekki þörf leng- ur. Vonast er til að með breyting- unni batni símasamband á þessu svæði auk þess sem notendur fá ^ðgang að sérþjónustu sem býðst í stafræna kerfinu. Hagvirki-Klettur Kröfulýs- ingarfrestur útrunninn FRESTUR kröfuhafa til að lýsa kröfum í bú Hagvirkis-Kletts hf. og öðlast þannig rétt til að fjalla um nauðasamninga sem fclaginu hefur verið heimilað að leita eft- ir, rann út síðustu viku. Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar lögfræð- ings Hagvirkis-Kletts er þessa dagana verið að fara yfir og stað- reyna þær kröfur sem lýst var í búið, og sagði hann að í lok vik- unnar yrði ljóst hvort heimild tilskilins meirhluta kröfuhafa til nauðasamninga væri fyrir hendi. Hagvirki-Klettur lagði þann 10. mars síðastliðinn fram beiðni hjá Héraðsdómi Reykjaness um heimild til nauðasamninga við kröfuhafa, en forsvarsmenn félagsins höfðu þá aflað tilskilinna meðmæla kröfu- hafa til að láta reyna á vilja þeirra um nauðasamninga. Boðin var greiðsla á 40% almennra krafna sem þýðir að farið er fram á niður- fellingu á tæplega 300 milljónum af rúmlega 900 milljóna skuldum félagsins. Atkvæði greidd Frumvarp til nauðasamninga verð- ur borið undir atkvæði 4. maí næst- komandi, og hafa forsvarsmenn Hagvirkis-Kletts lýst því yfir að náist samningar séu nýir hluthafar tilbúnir til að leggja fram 100 til 120 milljónir kr. til að standa við þá. --------........ Atta fengu úthlutunúr Húsvemd- arsjóði ÁTTA einstaklingum, félagasam- tökum og fyrirtækjum hefur verið úthlutað lánum úr Húsverndar- sjóði árið 1993. Úthlutað var 12 milljónum samtals, lægsta upp- hæðin var 500 þús. kr., hæsta 2,5 milljónir. Veitt er 2,5 milljón króna lán til Angulus hf. og Hverhamars hf. vegna Lækjargötu 2 og Einar G. Guðjónsson og Kristín Axelsdóttir fá sömu upphæð vegna Lækjargötu 10. Róbert Árni Hreiðarsson fær 2 millj. vegna Tjarnargötu 18, Helga Jónsdóttir fær 1,5 millj. vegna Bræðraborgarstígs 8, Sævar Karl Ólason fær millj. vegna Hverfisgötu 12, Heimir Þorleifsson f.h. Sögufé- lagsins fær milljón vegna Fischer- sunds 3 og Guðmundur Árnason fær milljón vegna Þingholtsstrætis 11. Þá fá þau Tómas Jónsson, Sig- urbjörn Svavarsson, Jón G. Gylfason og Kristín Þóra Harðardóttir, 500 þúsund krónur vegna Miðstrætis 10. ACO kynnir ódýrasta lita-leysisprentamnn d markaðnum ÍÉÍll wSgP einu upum pinum PrimercC Það ótrúlega c o l o r printer hefur gerst. Kominn er á markaðinn lita- leysisprentari fyrir PC- tölvur á verði sem er tugum þúsunda lægra en áður hefur þekkst eða aðeins 79.900 krónur. Primera prentarinn prentar allt að fjórum sinnum hraðar / j en bleksprautuprentari og j|| með honum fylgir Microsoft Windows3.1 rekill (driver). wL bitirnir eru skírir og gæði prentunar hin bestu enda er hér um að ræða hitaprentara, Og nú þegar verðið er orðið jafn ótrúlega gott og raun ber vihú er vissara að höndla hratt því birgðir eru takmarkaðar. aco

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.