Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Umhverfismálari í aðalsölum Hafnarborgar sýnir Gunnar Ágúst Hjaltason nær hálft annað hundrað myndverka. Myndlist Bragi Ásgeirsson í aðalsölum Hafnarborgar, og þar með er talinn Sverrissalur, sýnir fram til 2. maí Gunnar Ág- úst Hjaltason nær hálft annað hundrað myndverka. Eru þetta olíumálverk, vatnslita- og pastel- myndir, teikningar og grafík, og hefur sýningin nokkurn svip yfir- litssýningar, þótt frekar megi tala um samtíning. Gunnar er einn af þeim mönn- um, sem hafa ævintýralega gam- an af að mála og draga upp mynd- ir, en hugsar minna um innri lög- mál og lífæðar myndflatarins. Þessi háttur myndrænna athafna einkennir oft fólk sem hefur ekki mikinn menntunarlegan bak- grunn, en Gunnar nam ungur í teikniskóla Björns Björnssonar og Marteins Guðmundssonar, auk þess að nema tréristu hjá Hans Alexander Muller, sem kenndi á námskeiði í Handíða- og Myndlist- arskólanum í byrjun sjötta ára- tugarins. Meira varð myndlist- amámið ekki, en hins vegar nam hann gullsmíði hjá Guðmundi Guðnasyni og Leifi Kaldal og varð það hans lifibrauð. Málverkið hefur þannig verið hliðargeiri brauðstritsins og ekki verður annað sagt en að maðurinn hafi verið með ólíkindum afkasta- mikill á listasviðinu um dagana. Auðsjáanlega á GurtTlar mjög létt með að draga upp myndir, kannski of létt, þannig að ekki verður mikið um átök við mynd- efnið né efniviðinn milli handanna hveiju sinni. Þó merkilega megi virðast eru listrænar athafnir mörgum dijúg- ur sársauki og púl, en hins vegar einnig mikil nautn. Við vitum t.d. að Marchel Proust var þrisvar sinnum lengur að setja saman setningu en venjulegt fólk, en hún varð líka þrisvar sinnum betri én hjá öðrum, og raunar endumýjaði hann franska tungu með skáld- skap sínum. Og sumir málarar eins og t.d. Jón okkar Stefánsson voru sáróánægðir með allt sem þeir létu frá sér fara, því þeim fannst sem hægt væri að gera svo miklu betur. Þegar litið er á eldri myndir Gunnars í Sverrissal, sem allar em í einkaeign, sér maður dijúg átök í sjálfsmynd hans frá 1938, sem er nr. 107 á skrá, og einnig koma myndir eins og „Bráðræðis- holt“ (105), sem er frá 1951 og tréristan eða dúkskurðurinn „Hús“ (143) frá 1960 mjög á óvart. I nýrri verkum eins og t.d. pa- stelmyndinni „Skötutjörn" (26) kemur fram römm haustlitasin- fónía og hún vakti öðrum fremur athygli mína af þeirri gerð mynda. En einnig myndir eins og Hafnar- fjörður I, II og III, sem allar eru hreinar og tærar í útfærslu, það er nefnilega með tærleikann að Gunnar getur náð að höndla hann á mjög sérstæðan hátt og gott dæmi eru myndirnar „Hvallátur" (48) og „Þingvallavatn“ (50). Er það trúa mín að hann muni lifa lengst í slíkum myndum, því að hér hittir hann á tón sem er hans eigin. Aðrar myndir sem vöktu einkum athygli mína voru mynd- irnar Grænt vor og Gult haust (58 og 59), en þær einkennir skreyti- kenndur ríkidómur, sem ekki á sér stað í öðrum myndum hans. Sverrir Ólafsson sýnir nú í Listhúsinu Borg. Fjarræn viðhorf Álykta má strax varðandi sýn- ingu Sverris Ólafssonar í Listhús- inu Borg, sem stendur til 27. apríl, að hana einkenni helst áhrif komin langt að. Sé í ætt við hið fjarræna eða „eksotíska" eins og útlendingurinn orðar það og meinar frá heitum fjarlægum löndum. Sverrir hefur líka verið með annan fótinn í Mexíkó hin síðari ár, allt í senn varðandi listahátíð- ir, einkasýningar, samsýningar og vinnu við útfærslu eigin verka. Hann hefur þar verið innan um listamenn frá öllum heimshornum og kynnst ótal nýjum viðhorfum í skúlptúrlist. Allt þetta hófst á alþjóðlegri skúlptúrsýningu í Harnösand í Svíþjóð árið 1989 þar sem Sverr- ir kynntist fjölda listamanna og var boðið á fleiri listahátíðir og þá aðallega í Mexíkó. Svo mjög sem Sverrir hefur verið á kafi í félagsmálum á und- anförnum árum og á þeytingi út um allar trissur, er merkilegt hve hann hefur komið miklu í verk svo sem þessi sýning í Listhúsinu Borg er til vitnis um. Sýninguna einkennir stór og voldug verk í fremri sal, en uppi eru nokkur minni. Það vekur strax athygli hve listamaðurinn hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma og á það helst við hve útfærsla verk- anna er orðin miklu vandaðri og fullkomnari. Sverrir var nefnilega á timabili lítið að hugsa um ná- kvæmnisvinnu og verk hans voru í senn hrá og stórskorin. Fræðilega má segja að þessi verk sveiji sig í ætt við guðleg tákn í Mið- og Suður-Ameríku og trúarathafnir azteka og maya- indíána. Heimspekina sækir Sverrir í hina ævafornu og.dular- fullu stallapíramída, en kímnin, sem aldrei er langt undan í verk- um hans, er sótt í nútímann. Þannig gætir jafnvel súrrealískra áhrifa, því að listamaðurinn hefur einnig tekið fáránleikann í þjón- ustu sína. í stað þess að skír- skota til hinna helgu fórnarat- hafna, guðunum til dýrðar, þar sem sóminn og heiðurinn mesti virðist hafa verið að vera sjálft fórnardýrið, býr Sverrir til hæg- indi efst uppi á stöllunum og set- ur undir þau firnarlanga stólfæt- ur svo minnir á skúlptúra Albert- os Giacometti. Og bak viðamikils græns hægindastóls, sem er frí- standandi, eins og nýkominn nið- ur úr víddum háaloftsins, prýða jafnvel fjórar stórar skúffur, sem að sjálfsögðu er ekki samkvæmt almennum leikreglum um þæg- indi. Þrátt fyrir allt er ekki gott að átta sig á því hvernig þetta tíma- bil í list Sverris muni skoðast í listrænu samhengi er upp verður staðið, en eigum við ekki að spá í að það muni skoðast í listrænu samhengi er upp verður staðið, en eigum við ekki að spá í að það muni teljast markandi áfangi og jafnvel kaflaskil á listferli hans. Konumyndir í gangi og kaffistofu Hafnar- borgar sýnir Berglind Sigurðar- dóttir 19 konumyndir, sem flest- ar snúast um nekt, umbúðalausa og ögrandi. Berglind lauk námi frá MHÍ vorið 1990 og er þetta fyrsta sýning hennar, nema hvað hún hengdi einhverntímann upp nokkrar myndir sínar i húsa- kynnum menntamálaráðuneytis- ins. Berglind er einn þeirra mörgu myndlistarmanna er útskrifast hafa úr skólanum en sem lítið ber á þótt þeir vinni stöðugt að list_ sinni. Á sýningunni í Hafnarborg eru myndir unnar í olíu og pa- stel og eru sem fyrr segir allar af konum. Ábúðarmiklum nökt- um konum, sem eru eins og ein- ar í heiminum, þungbúnar og áhyggjufullar um hlutskipti sitt, en þó öllu öðru fremur sjálfstæð- ar og svipmiklar kynverur. Þessar myndir eru mjög í ætt við nýbylgjumálverkið svo- nefnda, sem svo aftur var skylt úthverfu innsæi eins og það birt- ist í myndum Schmidt Rottluff, Eric Heckel, Ernst Ludvig Kirc- hner og mörgum fleiri fyrir og eftir fyrri heimsstyijöldina. Myndirnar afhjúpa vissa bar- áttu og átök sem eiga sér stað hjá listamanninum og hér er meira lagt í tjáninguna en yfir- vegaða tækni. Þær eins og tjá ófreska dulremmu og sálarháska ásamt langri leit konunnar að Berglind Sigurðardóttir sýnir konumyndir í Hafnarborg. fótfestu í mannheimi, óræðum og miskunnarlausum. Kona í hvítum kjól í Listhúsinu Úmbru sýnir fram til 28. apríl Höskuldur Harrý Gylfason tug myndverka. Höskuldur hefur áður haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í einhveijum samsýningum, en annars hefur hann ekki verið mjög virkur á sýningarvettvangi, það eru líka aðeins fá ár síðan hann lauk námi _við Myndlista- og handíðaskóla íslands, en þar var hann bæði í grafík og málun. Af þessari sýningu að dæma hefur brauðstriðið setið í fyrir- rúmi frá námslokum því að hún veldur manni nokkrum vonbrigð- um, og er líkast sem sá sem hélt á pentskúfnum hafi verið í tímahraki. Að vísu má segja að málverk- in séu máluð undir áhrifum frá nýbylgjumálverkinu, sem ein- kenndist af miklum hraða, og þau eru í góðu lagi gædd út- hverfu innsæi, en hins vegar virka þau ekki nægilega kraft- mikil, og víst er að gerandinn getur mun betur. En þijár myndir á sýningunni skera sig úr, sem eru „Knúsar- inn“ ,(2), „Kona í hvítum kjól“ (4) og Sjálfsmynd (10). Allt eru þetta kraftmiklar myndir, eink- um Kona í hvítum kjól en þær njóta sín einfaldlega ekki á þes- um stað, það væri hins vegar fróðlegt að sjá þessar myndir innan um aðrar á samsýningu og það er vissulega til vansæmd- ar hve fáar viðamiklar samsýn- ingar eru haldnar hér í borg. En eitt vekur athygli í sam- Eitt verka Höskuldar Harrýs, sem sýnir nú í Listhúsinu Úmbru. bandi við sýninguna og það er hið einfalda en vel hannaða boðs- kort og skilst mér að það sé út- fært í tölvu af listamanninum sjálfum. Koma hér fram ótvíræð- ir hæfileikar í grafískri hönnun og kannski hefur Höskuldur tek- ið skakkan pól í hæðina. Hins vegar er myndlistarnám einnig ágætur undirbúningur fyrir tölvugrafík og grafíska hönnun að því leyti, að það skapar víð- ari yfirsýn og einnig sérstakt næmi, sem hönnunamám veitir síður. En kannski liggur svið Hös- kuldar helst í tölvulist, en þar fyrir þarf hann ekki að yfirgefa málverkið og á ei heldur að gera það og megi hann mála sem flestar myndir í ætt við Konu í hvítum kjól.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.