Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 17

Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 17 er miklu nær sanni að orð hans megi heimfæra uppá íslam, sem trú- arafl og trúarstofnun. Það er um- hugsunarvert að meðal háskóla- menntaðra múslíma eru að meðaltali hundrað lögfræðingar móti hveijum lækni, sem segir mikla sögu um þann hugsunarhátt lögkróka og klækja sem gagnsýrir heimssýn íslams. Bók- stafstrú múslíma er samfara mikið ofstæki og fullkomin lítilsvirðing á mannslífínu, samanber fjöldaaftökur í Iran og írak fyrir litlar sem engar sakir, svosem samkynhneigð eða lauslæti í ástum. Dauðadómurinn yfir rithöfundinum Salman Rushdie er annað skelfilegt dæmi um þetta hugarfar, og það er ekki bundið við Iran, Irak eða önnur helstu lönd ísl- ams, heldur hefur þessi ófögnuður dreifst til byggða víða um Vesturlönd þarsem múslímar hafa tekið sér ból- festu. Atökin í Líbanon og gíslatök- urnar þar eru annað hrollvekjandi dæmi um áhrif trúarofstækis á póli- tíska framvindu. Auðvitað læt ég mér ekki sjást yfir, að áþekkt of- stæki hefur hijáð Irland áratugum saman og er nú að rífa í tætlur Júgó- slavíu sem áður var, að ógleymdri hryllilegri meðferð ísraela á Palest- ínumönnum sem er einhver naprasta kaldhæðni í sögu aldarinnar. Ben Húr og Rambó Hvað vakir nú fyrir mér með þess- um yfirborðslega samanburði á ólík- um trúarbrögðum og margvíslegri menningu? Meðal annars það, að þráttfyrir stórmerkilegt framtak Sameinuðu þjóðanna og afarbrýna mannrétt- indalöggjöf, sem felst í sáttmálunum tveimur frá 1976, að ógleymdu frum- kvæði Amnesty International og margra annarra mannúðarsamtaka, þá eiga mannréttindi mjög undir högg að sækja víðasthvar í heiminum og þá ekki síst á svæðum þarsem aðrir menningarstraumar en við þekkjum af eigin raun leika um mannfólkið. Að vísu er auðsætt að í fjarskipta- og ijölmiðlaheimi samtímans berast hugmyndir ört og í stórum stíl milli menningarsvæða, þannig að vest- rænar hugmyndir fljúga til Asíu og Afríku, en austræn viðhorf skjóta rótum á Vesturlöndum. Um það er ekkert nema gott að segja þegar umræddar hugmyndir eru fijósamar og heilladijúgar, en á því vill verða talsverður misbrestur. Þetta hug- myndastreymi er semsé einungis á yfirborðinu og tekur sjaldan eða aidr- ei til grundvallarviðhorfa - þeirra viðhorfa sem mörkuð eru af alda- langri mótun trúarbragðanna á hveiju svæði. Þó kristin trú hafi lítt eða ekki mótað dagfar vestrænna manna í seinni tíð, þá hafa ýmsir veigamiklir þættir í lífssýn hennar fest rætur í hugskoti flestra þenkj- andi manna, og þá ekki síst mannúð- ar- og miskunnarhugsjónin sem er ýmsum öðrum trúarbrögðum fram- andi. Á sama hátt eru menn annarra menningarsvæða mótaðir af grunn- hugmyndum sinna trúarbragða, jafn- vel þó þeir beri vestrænt yfirbragð og kannski líka vestrænan klæðnað. Eg vil ekki gerast spámaður og síst af öllu Jeremías, en vissulega hlýt ég að vera uggandi um framtíð mannúðar, mannhelgi og mannrétt- inda í veröld sem verður stöðugt of- beldishneigðari og æ betur búin margháttuðum og síendurbættum gereyðingarvopnum. Ekki hjálpar það heldur uppá sakirnar að horfa uppá hvernig tröllveldið í vestri ein- okar alþjóðlegan vitundariðnað með kvikmyndum í bíóum og sjónvörpum, sem eru mestanpart hástemmt lof um ójöfnuð, ofbeldi, gerræði og yfir- gang hinna stæltu og tilfinning- asljóu. Fyrir þvílíkum óhroða virðast íslensk kvikmyndahús upptil hópa liggja marflöt, þó völ sé á miklu skárra efni úr öðrum áttum, og sömu sögu er í stórum dráttum að segja af sjónvarpsstöðvunum, og þá sér- staklega einkastöðvunum sem eru naumast annað en útibú fyrir þriðja flokks bandarískar myndbandaleigur. Fyrir eina tíð var Ben Húr hetja og átrúnaðargoð okkar kögursveina sem sóttum kvikmyndahús. Nú ku Rambó vera hetja allra stæltra stráka og segir kannski sína sögu um framtíðarhorfur mannúðar og mannréttinda í heimi hér - nema svo giftusamlega takist til, að kvenþjóðin seilist til aukinna valda í samfélaginu og snúi hugum okkar og hjörtum til þeirra mjúku gilda sem Kristur lagði svo ríka áherslu á, bæði í lífi sínu og prédikun. Höfundur er ríthöfundur og fyrrum formaður íslandsdeildar Amnesty Intcrnatwnal. I TILEFNI AF REYKLAUSUM DEGI 29. APRIL 1992 Lýst er eftir frum- varpi um tóbaksvamir eftir Þorstein Blöndal Með lögum um tóbaksvarnir frá 1985 varð mikil viðhorfsbreyting til tóbaksreykinga á stuttum tíma. Árið 1985 reyktu 40% fullorðinna íslendinga daglega og næsta ár á eftir gat að líta ótrúlegt fall niður í 36% en síðan hefur algengistalan hnigið um tæplega 1% á ári þannig að 1992 reyktu 31% daglega. Laga- setningin frá 1985 var upphaflega umdeild en undir forystu þáverandi heilbrigðisráðherra tók Alþingi rögg á sig og samþykkti frumvarp- ið. Þar með var í höfn heilladrýgsta lagasetning þingsins í heilbrigðis- málum síðasta áratug. Þessi atburð- ir eru þó langt að baki og vegna aukinnar þekkingar á skaðsemi reykinga hafa kröfur fólks um ómengað loft innanhúss aukist og ný lqg eru aftur nauðsynleg. Minna má á að tóbak er ásamt matarvenj- um og áfengi oft afgerandi þáttur til góðs eða ills fyrir heilsu manna. Nýtt frumvarp til tóbaksvarnalaga Á annað ár er liðið síðan tóbaks- varnanefnd skilaði tillögum sínum um nýtt frumvarp til tóbaksvarna- laga. í þingsályktun um íslenska heilbrigðisáætlun frá 1991 segir: „Draga skal ■ úr og helst útrýma neyslu tóbaks með því að fá fólk til að byija ekki að reykja og þá sem reykja til að hætta.“ Nýja tób- aksvarnafrumvarpið markar leið- irnar til að svo megi verða. Fyrst heyrðust þær fréttir að ríkisstjórnin eða heilbrigðisráðherra myndi ekki leggja frumvarpið fram í sínu nafni. Hinn 16. febrúar 1993 var sagt frá því í fréttum að frumvarpið væri til athugunar hjá heilbrigðisnefnd Þorsteinn Blöndal „Tóbak er engin venju- leg vara vegna þess að það inniheldur eitur- efni og efni sem veldur ávana og fíkn.“ þingsins en síðan hefur ekkert heyrst og það er ekki meðal þeirra frumvarpa sem vænst er að af- greidd verði fyrir þinglok. Frumvarp um afnám einkasölu ríkisins á tóbaki Á hinn bóginn er fullur skriður á frumvarpi um afnám einkasölu ríkisins á tóbaki, en stefnt er að því að ákvæði þess gætu tekið gildi um mitt sumar 1993. Varðandi það frumvarp verður að gæta þess að samþykkja ekki ákvæði sem gætu verið söluhvetjandi fyrir_ tóbak. Nú byija um 1.000 ungir íslendingar að reykja árlega sem er allt of mik- ið. Að meðaltali á hvert þessara ungmenna eftir að eyða milljónum króna í tóbak áður en ævin er öll. Fijáls samkeppnismarkaður er æskilegur um venjulega vöru því þá lækkar oft verð hennar neytend- um til hagsbóta. Tóbak er engin venjuleg vara vegna þess að það inniheldur eiturefni og efni sem veldur ávana og fíkn. Neytendur tóbaks verða háðir nikótíni og tapa fé og heilsu á reykingunum. Sér- stakar vörureglur eiga því að gilda um tóbak. Ef það er vilji Alþingis, þrátt fyrir það sem sagt er að ofan, að breyta fyrirkomulagi tóbakssölunn- ar ætti að fjalla um bæði frumvörp- in saman þar eð efni þeirra fléttast mjög. Til að svo megi verða þarf að fresta gildistöku frumvarpsins um afnám tóbakseinkasölu fram til næstu áramóta og leggja tóbaks- varnafrumvarpið fram á fyrstu starfsdögum þingsins í haust svo að það geti líka tekið gildi um næstu áramót. Er þess farið á leit við þingmenn að þeir axli ábyrgð og fjalli um og samþykki tóbaks- vamafrumvarpið. Það er vel undir- búið og þolir opinbera umíjöllun. Af samþykkt þess mun leiða að færra ungt fólk byijar að reykja og fleiri sem reykja nú munu hætta. Höfundur er yfirlæknir lungna■ og berklavarnadeildar HeUsuvemdarstöðvar Reykjavíkur og sérfræðingur í Iungnasjúkdómum. Reimaðir sportskór Barna sportskór.. Leður sportskór ••• Baðtöfflur............. Herra inniskór...... Dömu hælaskór... Sportsokkai^^pk kr.875,- kr.300,- kr.995f- kr. 195,- kr.500,- kr.695f- kr 1 50'' Barna buxur............kr.445f” Barna peysur........ kr.500,■ Barno bolir........kr.395," College iakkar.......kr.995," Barna jogginggollor kr.995," Barnanóttf öt......kr.495,■ Barnaregngallar •••• kr.595 L Jogginggallor st. s-xl kr. 1000,; Hvítar gallabuxur..kr.995,a Herra buxur.......... kr.995,- Dömu peysur.........kr.500fa Gallajakkar.............kr.599,- H jólabuxur........kr.500f■ Stuttbuxur.............kr.295f^ OPINN VIRKA DAGA FRÁ KL 12.00 Tll 18.00 LAUGARDAGA FRÁ KL. 10.00 TIL 14.00 SPRENGIMARKAÐURINN, SNORRABRAUT 56,2. HÆÐ. SÍMI 16132.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.