Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 18

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Evrópska vinnuverndarárið Vöðvabólgurnar stafa af samsöfnun smámeiðsla sem menn verða fyrir í vinnunni eftir Vilhjálm Rafnsson Sjúkdómar sem stafa af sam- söfnun meiðsla vegna þess að gerðar eru sömu endurteknu hreyfingarnar nema meira en helmingi af vinnutengdum sjúk- dómum í Bandaríkjunum í dag og kemur það vel heim við reynslu manna á Norðurlöndum. Starfs- menn sem haldnir eru þessum kvillum eru með stöðuga verki og hreyfingahindranir sem geta leitt til þess að menn verði að skipta um störf. Fyrir vinnuveitendur þýða þessir sjúkdómar minnkaða framleiðslu og aukinn kostnað vegna hærri útgjalda til heilsu- gæslu og hærri örorkubóta til veikra starfsmanna. Árangur meðferðar á þessum vinnutengdu sífelldu vefjameiðslum byggist á skjótri greiningu og réttri lækn- •ingu. Forvörn byggist á því að fínna þær aðstæður og þau vinnu- brögð þar sem hætta er á meiðsl- um og stuðla að þróun öruggara starfsumhverfis. Hér verður sagt nokkuð frá stoðkerfasjúkdómum í efri útlimum. Stoðkerfasjúkdómar í efri út- limum, svo sem sinaskeiðabólga og þegar taugar komast í klemmu, geta orsakast af því að við viss störf eru gerðar endurteknar átakahreyfingar með höndum eða handleggjum. Til dæmis geta raf- virkjar fengið sinafestubólgu við olnboga ef þeir nota skrúfjárnið og afeinangrunartöngina linnu- laust. Meðal kjötiðnðarmanna í Bandaríkjunum hefur miðtauga- þvingun fundist hjá um 15% starfsmanna og er talið að þetta sé vegna endurtekinna réttu- og beygjuhreyfinga um úlnliðinn auk stunguátaka, sem vinna með hníf- um krefst þegar verið er að skera hálffrosið kjöt. Meiðsli eins og þessi orsakast af örsmáum en sí- endurteknum vefjaskemmdum sem leggjast á eitt og er stöðugt viðhaldið vegna endurtekinna handbragða og kallast á ensku „cumulative traumatic disorders" sem mætti þýða safnmeiðslasjúk- dómar. Á íslensku er þetta stund- um kallað ýmsum nöfnum svo sem: Álagseinkenni, álagssjúk- dómar, vöðvabólga, eða talað er um sjúkdóma í hreyfi- og stoðkerf- inu svo fáeinar tillögur séu nefnd- ar. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálstofnun Bandaríkjanna hefur tíðni þessara sjúkdóma auk- ist mjög á síðustu árum. Frá 1989 hefur þeim fjölgað svo að þeir nema nú helming allra vinnu- tengdra sjúkdóma í Bandaríkjun- um. Þessi aukning kemur til af mörgum ástæðum, meðal annars af meiri nákvæmni í tilkynningum; bæði starfsmenn og vinnuveitend- ur eru betur á verði fyrir þessu en áður. Það hafa orðið framfarir í greiningu þessara sjúkdóma og það er stöðugt aukinn hraði við vinnu, sem stuðlar að því að menn fá þetta. Vegna þess að enn eru aðeins til takmarkaðar rannsóknir á safnmeiðslasjúkdómum eru margir læknar og aðrir heilbrigðis- starfsmenn vanbúnir að átta sig á vinnu sjúklinga í áhættustörfum og ef til vill hikandi að meðhöndla þá sem einungis virðast hafa ein- kenni um sjúkleika. Hér verður aðeins drepið á tilurð og faralds- fræði þessara sjúkdóma almenn- ingi til fróðleiks. Þegar krafti er beitt aftur og aftur um langan tíma af sama vöðvaknippi, á lið eða sin, geta samanlagðir kraftarnir valdið ör- litlum rifum eða meiðslum í mjúku vefjunum. Þau meiðsli sem af þessu verða og bólgusvarið sem þau vekja geta leitt til sjúkdóma í sinum eða sinaslíðrum, slits á vöðvum, liðbandasjúkleika, hrörn- unarsjúkdóma í liðum, belgbólgu eða að taugar komast í klemmu. Miðtaugarþvingun (carpal tunn- el syndrome) er ágætt dæmi til skýringar á safnmeiðslasjúkdóm- um, sem koma á löngum tíma sem Vilhjálmur Rafnsson afleiðing endurtekinna hand- bragða með átökum. Þrýstingur á úlnliðsgöngum (carpal tunnel), þar sem saman liggja geygisinar fingranna og miðtaugin á leið fram í lófann um úlnliðinn, getur aukist tífalt þegar rétt er eða beygt að ystu hreyfimörkum um úlnliðinn. Sama getur gerst þegar mikil átök eru lögð á beigisinarnar. Endur- teknar úlnliðs- og handahreyfing- ar geta einnig leitt til langvarandi þrýstingshækkunar í úlnliðs- göngunum, en það getur hindrað blóðflæði til taugarinnar og valdið taugarofi. Ef taugin starfar ekki eðlilega og skynjun truflast getur starfsmaður brugðist við með því að taka fastar á, herða takið, skekkja stöðu í liðum eða reyna að halda í horfinu með einhverjum öðrum ráðum sem leiða oftast til frekari meiðsla. Sýnt hefur verið fram á að þegar menn nota hand- Andvari 1992 Guðmundur Amlaugsson um Sig- Tómstundaskólinn: SiimaÉD '93 Maí - Júní Hraðnámskeiö í tungumálum - 12 stundir. - góð æfing fyrir sumarið. íslenska fyrir útlendinga - 21 st. í júní Vorverkin í garöinum - 5 st. Garöaskipulagning - 20 st. Ljósmyndanámskeiö -15 st. Hattagerö - 30 st. í júní Framhaldsnámskeiö 15 st. Viltu læra aö teikna og mála? Vélritun -24st. Fatasaumur Bútasaumur - 20 st. Viltu iæra aö þekkja fuglana? Villtar jurtir og grasasöfnun Vídeótaka á eigin vélar - 20 st. Glerskuröur - 24 st. Skráning stendur yfir 1ÖM5TUNDA SKOLINN Grensásvegi 16a Sími 67 72 22 urð Guðmundsson skólameistara eftir Egil Sigurðsson Andvari hefir að geyma all-langa grein eftir Guðmund Arnlaugsson um Sigurð Guðmundsson skóla- meistara. Er hún um leið saga norð- lenzka skólans,— Möðruvallaskóla, sem í raun tók við af Hólaskóla, þróaðist í Gagnfræðaskólann og síðar í Menntaskólann á Akureyri. Allt er það fróðleg og gagnleg upp- rifjun. Guðmundur Amlaugsson hafði nokkru áður birt snjalla rit- gerð í Lesbók um konu Sigurðar Guðmundssonar, frú Halldóru Ól- afsdóttur. Ekki tekst honum að öllu leyti eins vel í þessu seinna verki um skólameistarann sjálfan. Eða svo sýnist mér, gömlum nemanda í MA. Áherzlur eru ekki réttar, en hins vegar slæðst eftir smáatriðum, sem orka tvímælis. Sum að minnsta kosti eiga ekki heima í æviþætti. Mun ég reyna að gera grein fyrir skoðun minni í stuttu máli, enda þótt ég sé óvanur skrifum af þessu tagi. Sigurður Guðmundsson vakti snemma athygli fyrir kunnáttu sína í norrænum fræðum. Hún birtist bæði í ritum hans og kennslustund- um, sem voru magnþrungnar. Hann kom með ný viðhorf í túlkun forn- bókmenntanna, sem hlotið hafa við- urkenningu. Var hann brautryðj- andi á því sviði, og framlag hans verðskuldar fyllstu umfjöllun. Guð- mundur Amlaugsson ræðir þann þátt aðeins stuttlega í grein sinni (bls. 22 og 23). Skólameistarinn varð skyndilega í sviðsljósinu árið 1930, þegar hann setti tveim nemendum úrslitakosti: Annaðhvort hættu þeir stjórn- málaáróðri ellegar vikju úr skólan- um. Kennarar stóðu að þessari ákvörðun líka. Sömu aðferð hafði áður verið beitt gagnvart óreglu- mönnum í skóla. Þessi tiltekt skólameistarans olli talsverðu fjaðrafoki á Akureyri. nemendurnir, sem í hiut áttu, voru úr armi róttækra jafnaðarmanna, er nokkru seinna stofnuðu komm- únistaflokkinn. Blaðið Verkamað- urinn brást hið versta við og veitt- ist að Sigurði, sem svaraði í Degi. Guðmundur Arnlaugsson tekur málstað nemendanna og telur við- brögð skólameistarans bera vott um „taugaóstyrk og skammsýni“. Þar fer hann villur vega. Sigurður Guð- mundsson var enginn veifiskati. Hann var í eðli sínu bardagamaður, fylginn sér og gerhugull. Og hann studdist við lífsskoðun sína, sem beindist eindregið gegn hvers konar öfgastefnum. Þess hefir verið getið, að hann gaf sér góðan tíma til náms í háskóla og koma víða við. Vitað er, að hann las feiknin öll í heim- speki og uppeldisfræði, en hann kynnti sér líka samfélagsvísindi, svo sem skólaslitaræða hans pm Adam Smith ber vott um. Hann lét ekki deigan síga og hóf von bráðar sókn í ræðu og riti gegn „ismunum“. Má þakka honum öðrum fremur, að kommúnismi, fasismi og nasismi náðu aldrei að festa rætur á íslandi að neinu ráði. Áhrif hans á þeim vettvangi ganga næst umbylting- unni, sem hann olli í túlkun fombók- menntanna. Guðmundur Amlaugsson segir yfirvöld Menntaskólans í Reykjavík hafa leitt hjá sér pólitísk átök og æsingar, sem vart varð nokkru síð- ar. Ástæðan kann að vera sú, að rauðliðar nutu samúðar Pálma Hannessonar. Framtak Sigurðar kom Pálma þó til góða, og deilur hjöðnuðu í báðum skólum. Kennslu- málaráðherra hafði stutt við bakið á skólameistaranum með reglugerð, sem beinlínis bannaði stjórnmálaf- skipti og áfengisneyzlu í skólum. MA óx að virðingu, og foreldrar treystu honum fyrir börnum sinum. Guðmundur Arnlaugsson vill enn kenna Sigurð við einhvers konar taugaóstyrk. Þannig greinir hann ögn frá foreldrum hans, en segir svo: „Líklegt er, að hann hafi þegið þá hlýju og ástríki, er einkenndi hann, úr móðurætt sinni, en mála- fylgju og þrautseigju úr föðurætt. Og þaðan hafi honum einnig komið ofurviðkvæmni og geðsveiflur, er stundum sóttu á hann, þótt honum tækist löngum að dylja þær ókunn- ugum.“ Síðasta setningin er fjarri lagi. Maðurinn var bersögull og hreinskilinn svo að af bar. „Ávallt fannst á, hvort honum líkaði betur eða verr,“ er hermt eftir nánasta vini hans og eftirmanni, Þórarni Björnssyni. Ekki veit ég, hvað greinarhöfundi gengur til, þegar verkfæri beita þeir meira afli með fíngrum þegar skynjun er minnk- uð, svo sem vegna þess að mönn- um er kalt, þeir eru með vettlinga eða unnið er með titrandi verkfæri. Þrátt fyrir að þekking okkar sé enn takmörkuð hafa vísindamenn byijað að greina algenga safn- meiðslasjúkdóma og hvaða störf tengjast helst hveijum sjúkleika. Fyrstu athuganir hafa einnig bent á ákveðna áhættuþætti sem stuðla að þróun þessara sjúkdóma. Atriði í vinnunni sem skipta máli í sam- bandi við safnmeiðslasjúkdóma eru meðal annars: 1) endurteknar hreyfingar, 2) aflbeiting, 3) óvenjulegar stöður í liðamótum, 4) beinn þrýstingur, 5) titringur (frá vélknúnum handverkfærum) og 6) ef þarf að vera lengi í þvin- guðum stellingum. Svona aðstæð- ur koma til dæmis fyrir í fisk- vinnslunni. Ef fleiri áhættuþættir koma fyrir á sama tíma mun samverkun áhættuþáttanna auka líkurnar á tilurð stoðkerfasjúkleika. Flestir sjúklingar hafa fengið safn- meiðslasjúkdóma smám saman, hægt og hægt á löngum tíma svo sem vikum eða mánuðum. Þeir sem telja sig vera með ein- hver sjúkdómseinkenni sem benda til safnmeiðslasjúkdóma og hafa hugsað sér að leita úrlausna í heil- brigðiskerfinu þurfa að biðja lækn- inn eða sjúkarþjalfarann eða hvern þann sem þeir leita til að skoða hvort óþægindin sem þeir eru haldnir eigi hugsanleg tengsl við vinnuna. Ef hlutirnir eru ekki at- hugaðir í þessu samhengi en óþægindin má engu að síður tekja til vinnunnar er alls óvíst að varan- leg úrlausn fáist. Höfundur er yfirlæknir atvinnusjúkdómadeildar Vinnueftirlits ríkisins Egill Sigurðsson hann rifjar upp veikindi Sigurðar í bernsku og telur suma hafa óttazt, að hann væri vangefinn. Brátt sner- ist almenningsálitið við, og „margir héldu hann ofvita“. Gallinn við þessa Andvara-grein er helzt sá, að höfundi hættir til að slá úr og í. Hann segir á bls. 42, að heilsteyptur skólabragur, sem greip nemendur sterkum tök- um, hafi verið mesta afrek Sigurðar sem skólamanns, en í sömu máls- grein, að hann hafi lítinn áhuga haft á skipulagsmálum. Þetta tvennt fer varla saman. Vissulega er margt góðra gjalda vert í grein- inni og þess virði, að hún sé lesin. Vitna ætti meira í Sigurð Guð- mundsson sjálfan, ræður hans og rit, minna í ummæli um hann. Greinin er gott fyrsta uppkast að stærra verki, - bók um skólameist- arann, sem hann verðskuldar og þjóð hans líka. Höfundur vann við endurskoðun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.