Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 27.04.1993, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Eiðfaxabikarinn sem veittur er fyrir besta hirðingu hlaut Jón Sveinsson og afhend- ir fulltrúi Eiðfaxa Sigurður Sigmundsson hér verðlaunin en hesti Jóns honum Leira virðist ekkert um þessa athöfn gefið. Elvar E. Einarsson lengst til vinstri varð í fimmta sæti í keppninni um Morgun- blaðsskeifuna, Ása Úlfsdóttir fjórða, Elísabet Jansen þriðja og Svanhildur Hall önnur og Kristín Lárusdóttir í fyrsta sæti. Skeifukeppnin á Hólum Stúlkur vermdu fjögur efstu sætin Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Kristín Lárusdóttir rak smiðshöggið á yftrburðasigur sinn í skeifu- keppninni með því að verða efst í fjórgangi á Skugga frá Hærings- stöðum og hampar hún hér Morgunblaðsskeifunni. Verðlaun Félags Tamningamanna hlaut Vilhjálmur P. Einarsson en hann keppti á hestinum Þrymi frá Brjánslæk. ________Hestar____________ Valdimar Kristinsson Loftið var lævi blandið þegar byrjað var að telja upp fimm efstu í keppninni um Morgun- blaðsskeifuna á Hólum á laug- ardag. Fyrstur var nefndur í fimmta sæti Elvar Eylert Ein- arsson með 8,28 í einkunn, næst kom í fjórða sæti sænska stúlkan Ása Úlfsdóttir með 8,34 og norska stúlkan Elísa- bet Jansen þriðja með 8,37 og Svanhildur Hall önnur með 8,45 og þar sem Kristín Lárus- dóttir hafði ekki verið nefnd til sögunnar mátti á skóla- systkinum hennar skilja að hún hlyti að fá skeifuna sem og varð raunin en hún var lang efst og hlaut 8,79 í einkunn. Áður höfðu nemendur þreytt próf í frumtamningu, járningum, grunnreiðmennsku, fimiæfingum B og síðasti áfanginn sem þau þreyttu á skeifudaginn var gang- tegundaverkefni. Sextán nem- endur kepptu í fjórgangi en fimm í fímmgangi. Einkunnir í for- keppni giltu til einkunnar en til gamans var boðið upp á úrslita- keppni. Hlutskarpastur í fjór- gangi varð tvítugur Fljótamaður, Þórarinn Amarsson, sem keppti á hesti sínum Gýgjari frá Viðvík undan Byl frá Kolkuósi og Gýgju frá Viðvík. Þórarinn vann sig upp úr þriðja sæti. í öðru sæti varð sú sænska Ása Úlfsdóttir sem er 23 ára, á hesti sínum Kveik frá Hofí sem er undan Fáki frá Sauðárkróki og Röst frá Hofí. Ása var í fjórða til fimmta sæti í forkeppninni ásamt Sólveigu K. Káradóttur 22 ára sem hafn- aði í þriðja sæti í úrslitakeppn- inni. Hún keppti á hesti sínum Daða frá Köldukinn undan Straumi frá Keldulandi og Blesu frá Þverlæk. í fjórða sæti varð svo Vilhjálmur P. Einarsson 25 ára sem keppti á hesti sínum Þrymi frá Brjánslæk undan Erpi frá Erpsstöðum og Brúnku frá Bijánslæk. Vilhjálmur varð í öðru sæti í forkeppninni en hann hlaut viðurkenningu Félags Tamninga- manna fyrir góða ásetu og virka reiðmennsku. Skeifuhafinn Kristín Lárusdóttir sem er 21 árs gömul frá Kirkjubæjarklaustri hafnaði í fimmta sæti í úrslita- keppninni en var í fyrsta sæti eftir fórkeppnina. Með þeim árangri innsiglaði hún öruggan sigur í keppninni um Morg- unblaðsskeifuna sem veitt er fyr- ir bestan samanlagðan árangur í ofangreindum námsgreinum. Kristín keppti á hesti sínum Skugga frá Hæringsstöðum und- an Heði frá Hvoli og Grímu frá Kolkuósi. í fímmgangi sigraði Elvar Eylert Einarsson 20 ára á hesti sínum Fjalari frá Syðra-Skörðug- ili undan Sörla 653 frá Sauðár- króki og Kveikju frá Hesti en hann var einnig efstur í for- keppninni. Annar varð Róbert Logi Jóhannsson 22 ára á Hlíðar- Gránu frá Bjarnastaðahlíð í eigu Gísla Jóhannssonar undan Grám- úla frá Holtsmúla og Rauðku frá Bjarnastaðahlíð. Þriðja varð Svanhildur Hall á Hrímni frá Sauðanesi sem er í eigu Hólabús- ins en hann er undan Hamri frá Hólum og Pálínu frá Sauðanesi. Þau Svanhildur og Róbert Logi höfðu sætaskipti í úrslitunum. Eiðfaxabikarinn hlaut Jón Sveinsson 24 ára en hann var með hestinn Leira sem ekkert er vitað um nema það að hann er sex vetra, leirljós. Kynjaskiptingin er svo til jöfn í hestamennskunni á Hólum, 11 piltar og 10 stúlkur. Hins vegar eru stúlkurnar seigari við námið heldur en piltarnir ef marka má úrslitin í keppninni um Morgun- blaðsskeifuna því athygli vekur að í fjórum efstu sætunum eru stúlkur! Af þessúm fjórum stúlk- um eru tvær erlendar en alls stunduðu átta útlendingar nám við skólann í vetur, fimm í fullu námi og þrír í nokkurs konar verknámi eða starfskynningu. Sagði Jón Bjamason skólastjóri að óneitanlega væri kominn al- þjóðlegur blær á skólastarfið og kunni staðarmenn því vel. Gat hann þess einnig að um 20 fyrir- spurnir um skólann hefðu borist erlendis frá. Alls stunduðu 52 nemendur nám við skólann í vet- ur en þar af útskrifast um 25 þeirra í vor. Veður var heldur óhagstætt á skeifudaginn kulda- nepja og snjómugga allan daginn en lygnt. Keppt í meistaraflokki í fyrsta sinn Firmakeppni Fáks var haldin sumardaginn fyrsta þar sem keppt var í fímm flokkum. Var nú boðið í fyrsta skipti upp á sér- stakan meistaraflokk þar sem hin- ir hörðu keppnismenn mættust en áhugamenn og konur kepptu í karla- eða kvennaflokki. En úrslit urðu sem hér segir. BARNAFLOKKUR: 1. Ásgeir Öm Ásgeirsson á Fleyg, keppti fyrir Flugleiðir. 2. Rannveig Kristjánsdóttir á Erli, keppti fyrir Ræsi hf. 3. Jóna Margrét Ragnarsdóttir á Garpi, keppti fyrir Glóbus. 4. Þórdís Erla Gunnarsdóttir á Krákustigi, keppti fvrir Eimskipa- félag íslands. 5. Bjarni Niculaison á Flosa, keppti fyrir Hagkaup. UNGLINGAFLOKKUR: 1. Ásta Friðriksdóttir á Smyrli, keppti fyrir Godda. 2. Únnur Sigurpálsdóttir á Garpi, keppti fyrir Pottinn og pönnuna. 3. Margrét Erla Óskarsdóttir á Gassa, keppti fyrir Marco Polo. 4. Gunnhildur Sveinbjarnardóttir á Funa, keppti fyrir Landsbanka íslands. 5. Ingveldur Oddný Jónsdóttir á Skrúði, keppti fyrir Hinrik og Huldu. KVENNAFLOKKUR: 1. Unnur Steinson á Silfurblesu, keppti fyrir Stúdíó-brauð. 2. Ólöf Guðbrandsdóttir á Kveiki, keppti fyrir Nóa hf. 3. Edda Hinriksdóttir á Rúmi, keppti fyrir Skalla. 4. Guðrún Edda Bragadóttir á Fjölva, keppti fyrir Barka hf. 5. Elín Rós Sveinsdóttir á Assa, keppti fyrir Litaver. KARLAFLOKKUR: 1. Hjörtur Bergstað á Erró, keppti fyrir Radíóbúðina. 2. Haraldur Sigurgeirsson á Há- feta, keppti fyrir Reiðsport. 3. Viðar Halldórsson á Prinsi, keppti fyrir Eiðfaxa. 4. Hörður Á. Haraldsson á Stráki, keppti fyrir Sláturfélag Suður- lands. 5. Agnar Ólafsson á Nökkva, keppti fyrir Securitas. MEISTARAFLOKKUR: 1. Sigurbjörn Bárðarson á Sverði, keppti fyrir DV. 2. Eriing Sigurðsson á Össuri, keppti fyrir Melabúðina. 3. Hulda Gústafsdóttir á Glæði, keppti fyrir Ós-húseiningar. 4. Sigurður Marinusson á Evu, keppti fyrir Evos. 5. Ragnar Ólafsson á Gjafari, keppti fyrir Gassa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.