Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 21

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 Morgunblaðið/Amór Veitt voru verðlaun fyrir fimm efstu sætin í tvímenningnum. Tryggvi Pálsson bankastjóri íslands- banka afhenti verðlaunin. Talið frá vinstri: Tryggvi Pálsson, Sigurður Sverrisson, Valur Sigurðs- son, Bragi Hauksson, Sigurður B. Þorsteinsson, Júlíus Sigurjónsson, Sigtryggur Sigurðsson, Jakob Kristinsson, Isak Orn Sigurðsson, Þorlákur Jónsson og Guðmundur Páll Arnarson. íslandsmótið í tvímenningi Sigtrygg^ur og Bragi Islands- meistarar eftir hörkukeppni Jakob Kristinsson - Júlíus Siguijónsson 222 Guðjón Bragason - Jón Hersir Elíason 157 Sigtryggur Sigurðsson — Bragi Hauksson 144 GuðmundurP. Amarson - Þorlákur Jónsson 127 Sigurður Sverrisson - Valur Sigurðsson 109 I nokkrum umferðum hafði forysta Sigtryggs og Braga horf- ið og nú voru tæplega 80 stig í toppinn. Þá vakti athygli að Guðmundur Páll og Þorlákur voru komnir í efstu röð en þeir byrjuðu mjög illa og voru með mínus 63 eftir 8 umferðir. Lokaspretturinn var hörku- spennandi. Bragi og Sigtiyggur skoruðu mikið á meðan Jakob og Júlíus héldu sjó. Sigtryggur Brids Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með mótinu. Jakob Kristinsson og Júlíus Siguijónsson fengu það erfiða hlutskipti að spila í pottinum í síðustu umferðunum. Hér spila þeir gegn Hrólfi Hjaltasyni og Sigurði Vilhjálmssyni. Frá vinstri: Júlíus, Sigurður, Jakob og Hrólfur. og Bragi áttu 15 fyrir lokaum- ferðina. Þeir skoruðu 9 í lokaum- ferðinni en Jakob og Júlíus fengu 16 og sigurinn var Sigtryggs og Braga. Lokastaða efstu para Sigtryggur Sigurðsson - Bragi Hauksson 229 Jakob Kristinsson—Júlíus Siguijónsson 221 Sigurður Sverrisson - Valur Sigurðsson 182 ísak Ö. Sigurðsson - Sigurður B. Þorsteinss. 142 Guðmundur P. Amarson - Þorlákur Jónsson 109 Aðalsteinn Jörgensen - Bjöm Eysteinsson 106 Hjördis Eyþórsdóttir - Ásmundur Pálsson 88 Guðm. Sv. Hermannsson - Helgi Jóhannsson 83 Jón Þorvarðarson - Friðjón Þórhallsson 69 Kristján Már Gunnarsson - Helgi Helgason 55 Sveinn Rúnar Eiríksson - Hrannar Erlingsson54 Að venju voru nokkur pör sem ekki komust í gegnum undan- keppnina en eiga heima í út- slitunum. Matthías Þorvaldsson og Sverrir Ármannsson urðu í 29. sæti í undankeppninni, feðg- arnir Hjalti Elíasson og Páll Hjaltason í 31.—32. sæti og Páll Valdimarsson og Símon Símon- arson í 40. sæti, en 26 pör kom- ust í úrslitin. Tryggvi Pálsson bankastjóri Íslandsbanka afhenti verðlaun í mótslok en íslandsbanki hefir verið helsti styrktaraðili Brids- sambandsins í vetur. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með mótinu. Keppnisstjóri og reiknimeistari var Kristján Hauksson. Mótsstjóri var Elín Bjarnadóttir framkvæmdastjóri BSÍ. Arnór Ragnarsson Sigtryggur Sigurðsson og Bragi Hauksson urðu ís- landsmeistarar í tvímenn- ingi en þeir sigruðu í 32 spila úrslitakeppni sem lauk sl. sunnudagskvöld. Þeir háðu harða keppni um titil- inn við Jakob Kristinsson og Júlíus Sigurjónsson í lokaumferðunum en Sig- tryggur og Bragi höfðu ör- lítið betur, hlutu 229 stig yfir meðalskor á meðan Jak- ob og Júlíus fengu 221 stig. Þetta er fyrsti íslands- meistaratitill Braga í tví- menningi en Sigtryggur vann þetta mót fyrir nokkr- um árum með Páli Valdi- marssyni. Sigtryggur og Bragi tóku fljótt forystu í mótinu. Eftir 8 umferðir voru þeir komnir með 91 stig yfir meðalskor. Hjördís Eyþórsdóttir og Ásmundur Páls- son voru í öðru sæti með 75 stig. Jakob og Júlíus voru með 73 stig og Guðjón Bragason og Jón Hersir Elíasson fjórðu með 57 stig. Þegar lokið var liðlega 20 umferðum voru Sigtryggur og Bragi rfieð góða forystu höfðu liðlega 50 stig á næsta par en fljótt skipast veður í lofti. Lítum á stöðuna eftir 26 umferðir: Guðjón Bragason og Jón Hersir Elíasson voru meðal efstu para allt mótið. A myndinni spila þeir gegn Vestfjarðameisturunum, Arnari Geir Hinrikssyni og Einari Val Kristjánssyni. Frá vinstri: Arnar Geir, Jón Hersir, Einar Valur og Guðjón. NOTAÐIR BÍLAR ÍRA VOLVO 6 MÁNAÐA ÁBYRGÐ LÁN TIL ALLTAÐ36MÁNAÐA TÖKUMNOTAÐA UPPÍNOTAÐA VOLVO 740 FÓLKSBÍLAR OG 740 STATION o 0 1!olvo740GL I/olvo740GL 4 dyra, sjáltsk. 4 dyra, sjálfsk. Árgerð 1988 Árgerð 1988 Ekinn: 89.000 km Ekinn:61.000km Verð: 1090.000 kr. Verð: 1150.000 kr. 0 o Volvo 740 GLE Ifolvo 740 GLE Station 4 tiyra. sjálfsk. 5 dyra, sjálfsk. Árgerö1987 Árgerö 1987 Ekinn: 100.000 km Ekinn: 75.000 km Verð: 1050.000 kr. Verö: 1250.000 kr. VOLVO 240 FÓLKSBÍLAROG 240 STATION 0 0 I/olvo240GL Volvo 240 GL station 4 dyra, sjálfsk. 5 dyra, 5 gíra Árgetð1988 Árgerð 1987 Ekinn: 43.000 km Ekinn: 100.000 km Verð: 890.000 kr. Verö: 780.000 kr. o 0 I/OIVO240GL Volvo 240 DL 4 dyra, sjálfsk. 4 dyra, sjálfsk. Árgerð1987 Árgerð1988 Ekinn: 60.000 km Ekinn: 75.000 km Verö: 790.0CMJ kr. Verö: 790.000 kr. VOLVO FAXAFENI 8 • SÍMI 91- 685870

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.