Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
23
Syntu 500 m í sjónum eftir að plastbátur sökk við við Geldinga nes
Morgunblaðið/Ingvar
Heimtir úr helju
Siguijóni hjálpað í sjúkrakörfu eftir slysið. Aftar sést Steingrírnur. Hann segir að ef ekki hafi
verið fyrir svamppúðann hafi þeir Sófus eflaust farið niður.
Svamppúðinn bjarg-
aði tveimur mönnum
FJÓRIR menn um tvítugt voru hætt komnir þegar sexmanna plast-
bátur þeirra af Shetlander gerð sökk um hálfan kílómeter norðan
við Geldinganes á Kollafirði um kvöldmatarleytið á laugardag.
Vatn komst inn um gat fyrir leiðslur í bátinn með þeim afleiðingum
að hann sökk á örskammri stund og stukku fjórmenningarnir í sjó-
inn. Aðeins tveir þeirra voru í björgunarvestum en hinum vildi til
happs að annar þeirra náði taki á svamppúða úr bátnum. Þegar
komið var í land á nesinu eftir um hálftíma sund varð einn mann-
anna viðskila við liina og óð í land á eiði milli ness og fastalands.
Hann gerði þar viðvart um þá þrjá sem eftir voru á nesinu og var
bátur sendur eftir þeim.
Flokkssljórnarfund-
ur Alþýðuflokks
Tillögur
Tvíhöfða
um smábáta
gagnrýndar
GAGNRÝNI kom fram á nefnd-
arálit Tvíhöfðanefndarinnar um
nýja sjávarútvegsstefnu, er það
var kynnt fyrir flokksstjórn Al-
þýðuflokksins á fundi á Akranesi
um helgina. Gagnrýni flokks-
sljórnarmanna beindist einkum
að tillögum nefndarinnar varð-
andi smábáta, en Tvíhöfðanefnd-
in hefur lagt til að kvóti verði
settur á báta, sem nú hafa króka-
leyfi, og að tvöföldun línuafla
verði afnumin. Össur Skarphéð-
insson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins, segir að tillögur
IVíhöfðanefndarinnar hljóti ekki
samþykki á Alþingi óbreyttar.
„Eg tel að ekki sé þingmeirihluti
fyrir tillögum Tvíhöfða um króka-
leyfin. Ef menn ætla sér að láta
obbann af tillögum nefndarinnar
ná fram að ganga, verður það alger-
lega ókleift nema málamiðlun verði
gerð um krókaleyfin,“ sagði Össur
í samtali við Morgunblaðið.
Fleiri flokksstjórnarmenn gagn-
rýndu kafla nefndarálitsins, sem
snýr að veiðum smábáta, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins. Einnig töluðu fulltrúar úr hópi
sjómanna gegn fijálsu framsali á
kvóta, sem þeir telja rýra sinn hlut.
----4--------
Loðskinnauppboð
í Kaupmannahöfn
43% hækkun
á verði blá-
refaskinna
TÆPLEGA 43% hærra verð
fékkst fyrir blárefaskinnn á loð-
skinnauppboði sem nú stendur
yfir í Kaupmannahöfn miðað við
skinnaverð á uppboði þar í febr-
úar síðastliðnum. Þá fékkst 36%
hærra verð fyrir silfurrefaskinn
og fyrir skinn af skuggaref
“fékkst sama verð og á febrúar-
uppboðinu.
Meðalverð á blárefaskinnum á
uppboðinu í Kaupmannahöfn var
309 DKR, eða 3.180 ÍSK. Meðal-
verð á silfurref var 327 DKR, eða
3.370 ÍSK, og meðalverð á skugga-
ref var 299 DKR, eða 3.080 ISK.
Á uppboðinu var einnig lítið magn
af hvítrefsskinnum og fóru þau á
13% lægra verði en í febrúar. Með-
alverð á þeim var 310 DKR, eða
3.190 ÍSK.
Að sögn Arvids Kro hjá Sam-
bandi íslenskra loðdýraræktenda
voru boðin upp tæplega fimm þús-
und refaskinn frá Islandi á uppboð-
inu og á bilinu 20-30 þúsund minka-
skinn, en uppboð á þeim hefst í dag
og lýkur því á föstudaginn.
Mennirnir voru allir fluttir á slysa-
deild eftir atburðinn. Tveir fengu
að fara heim eftir að hafa náð eðli-
legum líkamshita, einn gisti nótt á
spítalanum vegna hættu á lungna-
bólgu en sá fjórði var fluttur á
gjörgæsludeild.
A svartfuglsveiðar
Steingrímur Óli Einarsson, einn
ijói-menninganna, sagði að þeir
Hlynur Vagn Atlason, Sófus Sig-
þórsson og Siguijón Gunnlaugsson
hefðu farið út á sexmanna Shet-
lander hraðbát og ætlað að ná
svartfugli fyrir utan Gróttu um
fimmleytið. „Við hættum svo við
.og stöðvuðum bátinn við norðan-
vert Geldingarnesið. Þar ætluðum
við að snúa við og fara aftur heim
en mótorinn fór ekki aftur í gang
og á leiðinni hefur handdælan lík-
lega brotnað og þess vegna var
ekki hægt að pumba vatni frá borði
þegar það fór að seytla hægt og
rólega inn í gegnum gat við skúff-
una hjá utanborðsmótornum þar
sem slöngurnar frá bensíngjöf og
að mótor ganga í gegn. Báturinn
þyngdist smám saman þangað til
hann var orðinn svo þungur að
hann stakkst snögglega niður og
við köstuðum okkur allir í sjóinn,
Siguijón og Hlynur í vestum en
við Sófus vestislausir," sagði Stein-
grímur.
Tveir á pullu
Hann segist hafa bjargað þeim
Sófusi með því að ná til sín pullu
úr káetunni, setja undir bijóstkass-
ann og svamla þannig áfram með
fótunum. „Sófus synti fyrst með
höndum og fótum en kallaði svo í
mig og ég synti til hans og hann
náði að grípa í mig,“ sagði Stein-
grímur. „Svo nær Hlynur fyrstur
í land á Geldinganesi og hleypur
yfir sandeyrina og rekst þar á
menn hjá laxeldisstöðinni sem gátu
gert viðvart. Við stóðum hins vegar
út á nesinu og vorum svo kaldir
og þreyttir að við höfðum aðeins
þrek til að veifa bátum og flugvél-
um sem flugum yfir og vissum
ekkert um Hlyn. Hann vissi ekkert
af okkur þegar hann kom að landi
og ákvað að hlaupa og halda áfram
meðan hann átti eitthvað eftir því
við vorum allir búnir, gjörsamlega
að gefast upp og dofnir af kuldan-
um.“
Hræddir
Fjórmenningarnir voru um hálf-
tíma í sjónum og á eftir biðu þeir
þrír sem eftir voru á nesinu annan
hálftíma eftir hjálp. „Við vissum
ekki í byijun að hjálp var í nánd.
Svo sáum við sjúkrabíl og lögreglu-
bíl koma hinum megin frá og viss-
um ekki hvort þeir voru að koma
til okkar. Við vorum líka hræddir
um Hlyn, svona álíka hræddir um
hann og hann um okkur,“ sagði
Steingrímur en stuttu seinna sóttu
sjúkraliðar slökkviliðsins þremen-
ingana á bát út á nesið og fór með
þá á slysadeild. „Siguijón og Sófus
útskrifuðust eftir að þeir náðu rétt-
um líkamshita en Hlynur var flutt-
ur á gjörgæslu og ég þurfti að gista
nóttina vegna hugsanlegrar
lungnabólgu," sagði Steingrímur
en hann sagðist vera búinn að jafna
sig ágætlega fyrir utan að hann
fyndi til í fótunum eftir að hafa
gengið berfættur á gijótinu.
Óskýranlegt
Steingrímur sagði að enginn
ijórmenninganna hefði í raun hug-
mynd um af hveiju báturinn hefði
sokkið. „Við vorum svo langt frá
ströndinni og rákumst ekki á neitt.
Það slettist upp og náði að leka inn
í gegnum götin. Svo þegar hann
hafði þyngst fór hann að síga niður
og vatnið að streyma örar inn og
um leið og jafnstraumur komst inn
í þetta gat hvarf hann á nokkrum
sekúndum," sagði hann en báturinn
fór alveg á kaf og er ófundinn.
Aðspurður sagði Steingrímur að
það hefðu komið upp augnablik á
sundinu þegar þeir hefðu verið við
að gefast upp en eitt af því sem
haldið hefði viljanum í sumum
þeirra hefði verið tilhugsunin um
að Guðlaugur Friðþórsson Vést-
mannaeyingur hefði getað synt sex
kílómetra í vondu veðri. „Við hugs-
uðum þá með okkur að ættum að
geta geta synt hálfan í þokkalegu
veðri,“ sagði Steingrímur, bætti við
að félagarnir væri allir í ágætu iík-
amlegu formi og þeir þökkuðu
Valborgu sundkennara fyrir þá
þjálfun sem þeir hefðu fengið hjá
henni.
„Klikkuðum“ á
öryggisatriðum
Hann sagði að það hefðu verið
mikil mistök að hafa ekki öll örygg-
isatriði í lagi.„Við klikkuðum á því
þ.e. að hafa’ ekki ijarskiptatæki,
neyðarblys og björgunarvesti fyrir
alla,“ sagði Steingrímur. Hann
sagði að fjórmenningarnir hefðu
reynt að gera viðvart með hagla-
skotum úr bátunum en ekkert.hefði
heyrst í þeim.
Tæring í
sjóinntaki
líkleg
skýring
ALGENGT er að tæring í sjó-
inntökum myndi göt á smærri
báta að sögn Páls Guðmunds-
sonar deildarstjóra eftirlits-
deildar Siglingamálastofnunar.
Hann segist ekki geta staðhæft
að tæring af þessu tagi hafi
orðið til þess að Shetlander
bátur fjórmenninganna hafi
sokkið. Hins vegar sé það ekki
ólíklegt eftir Iýsingu þeirra að
dæma.
Páll sagði að lög um eftirlit
með skipum næðu aðeins til sex
metra eða lengri báta og flestir
Shetlander bátanna væru tals-
vert undir þeirri lengd. „Þess
vegna hafa þeir ekki verið skoð-
aðir nema þegar þeir komu tii
landsins og öryggisbúnaður um
borð í bátunum er algjörlega á
ábyrgð þeirra sem í þeim eru.
Við komum hins vegar í þessa
báta óski fólk eftir því,“ sagði
Páll og minnti á að ætlast væri
til að í öllum bátum væru björg-
unarvesti fyrir alla og ijarskipta-
tæki. „Og í minnstu bátunum
sem við skoðum er verið með
talsstöð og neyðarblys," sagði
hann.
Oft skipt um inntök
Hann kvað lýsingu Ijórmenn-
inganna af slysinu ekki ósann-
færandi. „Hún er ekkert ólíkleg
því á bátunum sem við skoðum,
stærri bátunum, er mjög algengt
að skipta þurfi um slöngur og
sjóinntök vegna þess að málmur-
inn í þeim hefur tærst eftir viss-
an tíma og myndað gat þar sem
ekki á að vera gat,“ sagði Páll.
Hann sagði að bátarnir hefðu
verið fluttir inn af Vélum og
tækjum á sínum tíma en innflutn-
ingi á þeim hefði verið hætt.
Fræ og áburður
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GRÓÐURRÆKT
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
GRÓÐURVÖRUR SF. SMIDJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 4321 1
I hentugum umbúðum
;i N 2118-8