Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Clinton með gosanef
HOMMAR og lesbíur í Bandaríkjunum efndu til fjölmennrar göngu í
Washington á sunnudag til að krefjast fulls jafnréttis á við aðra og tók
um ein milljón manna þátt í henni að þeirra eigin sögn. Lögreglan heldur
því hins vegar fram, að þátttakendur hafi verið 300.000. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti neitaði að vera með í göngunni en sendi skeyti þar sem
hann kvaðst styðja jafnréttisbaráttu allra þegna landsins. Eru hommar
og lesbíur misánægð með afstöðu Clintons eins og sjá má á þessum
myndum, sem bomar voru, en þar er forsetinn kominn með gosanef.
45 lifðu af brotlend-
ingu indverskrar þotu
NjÁju Dehlí. Reuter.
FJORUTÍU og einn farþegi og fjórir úr áhöfn Boeing 737-200
þotu indverska flugfélagsins Indian Airlines komust lífs af er flug-
vélin fórst skömmu eftir flugtak frá borginni Aurangabad í gær.
Flugvélinni hafði verið flogið í 43.887 flugstundir og átti 50.554
flugtök og lendingar að baki.
Hörð gagnrýni á aðalfundi EBRD
Bankinn lofar
bót og betrun
Lundúnum. Reuter.
REKSTUR Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu (EBRD) var
harðlega gagnrýndur af mörgum fulltrúum á aðalfundi bankans, sem
hófst í Lundúnum í gær, en bankinn hefur sætt harðri gagnrýni á
undanförnum vikum eftir að upplýst var að til þessa hefur hann
varið tvöfalt meira fé í nýjar höfuðstöðvar og rekstur en til útlána
handa ríkjum Austur-Evrópu. John Major, forsætisráðherra Bret-
lands, og Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, lögðu báðir
mesta áherslu á að nú bæri Evrópubankanum að einbeita sér að
hinu raunverulega hlutverki sínu og gera það á hagkvæman hátt.
Isakson
fjármála-
ráðherra
Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus
Mag^iussen, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
FYRSTI starfsdagur nýrrar
samsteypustjómar jafnaðar-
manna, Sjálfstýrisflokksins og
Þjóðveldisflokksins í Færeyj-
um var í gær. Jafnaðarmenn
hafa þijá ráðherra, Þjóðveldis-
menn tvo og Sjálfstýrismenn
einn. Formaður Þjóðveldis-
flokksins, Finnbogi Isakson,
er fjármálaráðherra en jafnað-
armaðurinn Marita Petersen
er sem fyrr lögmaður. Nýja
stjórnin heitir því að halda sig
við ramma fjárlaga. Samband-
ið við Dani verður tekið til
endurskoðunar með aukna
sjálfstjórn Færeyinga í huga.
Hugöust
myrða Bush
YFIRVÖLD í Kúveit sögðu í
gær a.ð þau hefðu handtekið
hóp íraka sem haft hefði und-
ir höndum skotvopn og
sprengiefni. Að sögn dagblaða
í Kúveit var um að ræða átta
flugumenn íraksstjórnar sem
áttu að myrða George Bush,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta,
er sótti Kúveita heim í síðasta
mánuði.
Kinnock með
eigin sjón-
varpsþátt
NEIL Kinnock, fyrrverandi
leiðtogi breska Verkamanna-
flokksins, var þekktur fyrir að
vera kröftugur en nokkuð orð-
margur ræðumaður er hann
var leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar á þingi. Hann mun á
næstunni taka að sér að stjóm
á þætti í sjónvarpsstöð breska
útvarpsins, BBC, í Wales á
næstunni þar sem frægt fólk
er tekið á beinið. „Það verður
ný reynsla fyrir mig að spyija
í stað þess að svara,“ sagði
Kinnock.
Geimferð fyr-
ir Þjóðverja
BANDARÍSKA geimferjan
Columbia hóf sig á loft frá
Kanaveral-höfða í gær og eru
fimm Bandaríkjamenn og tveir
Þjóðveijar um borð. Þjóðveijar
leigðu feijuna til að stunda
ýmsar rannsóknir í geimnum
og á ferðin að taka níu daga.
Mannskæð
flóð
ÓTTAST er að allt að 100
manns hafi farist í aurflóði
sem varð í norðvesturhluta
Kólumbíu í gær er bakkar
Taparto-fljóts rofnuðu eftir
gríðarlega úrkomu. Héraðið er
afskekkt og mjög fjöllótt.
SÞ-vél nauð-
lendir
FLUGVÉL með hjálpargögn á
vegum Sameinuðu þjóðanna
neyddist til að lenda í austur-
hluta Angóla í gær eftir að
skotið hafði verið á hana. Tveir
úr áhöfninni særðust. Vélin
var í flugtaki í borginni Luena,
sem skæruliðar UNITA her-
sitja, er skotið var á hana eld-
flaug sem sennilega kom úr
vopnabúri skæraliða.
Vörubifreið var ekið inn á flug-
brautina er þotan var í flugtaks-
bruni. Tókst flugmönnunum að hefja
hana til flugs án þess að hún rækist
á bílinn. En ekki náði hún betur flug-
inu en svo að hún rakst á háspennuv-
íra með þeim afleiðingum að kvikn-
aði í öðrum hreyflinum. Börðust
flugmennirnir við að halda stjórn á
vélinni en á endanum magalenti hún
7 km frá flugvellinum.
Þotan brotnaði í þrennt í lending-
unni og eldur kviknaði í henni. Þeir
sem komust lífs af sátu fremst í flug-
vélinni. Óttast var að 61 hefði farist
en meðal þeirra sem komust lífs af
var aðstoðarflugmaðurinn sem er
kona.
Hrósuðu Waigel og Major bank-
anum fyrir það sem hann hefði
gert í austurhluta Evrópu og Sovét-
ríkjunum fyrrverandi til þessa.
Sagði Waigel umræðuna um bruðl
í rekstri „heyra sögunni til“ og að
bankastjórnin hefði dregið nauð-
synlegan lærdóm af henni.
Jacques Attali, formaður banka-
stjórnarinnar, tók í sama streng og
sagði að héðan í frá yrði strangasta
aðhalds gætt í rekstri. „Sú gagn-
rýni sem komið hefur fram á síð-
ustu vikum mun reynast mér og
bankanum gott vegar-
nesti . . . [og] þeim ákvörðunum,
sem teknar hafa verið verður
stranglega framfylgt," sagði Attali.
Krafist breytinga
Fimmtíu og sex ríki og alþjóða-
stofnanir eiga aðild að bankanum
og sitja um 3.000 manns aðalfund-
inn. Vora margir þeirra enn mjög
reiðir þrátt fyrir loforð um að í
framtíðinni yrði betur staðið að
málum en til þessa. Robert Altman,
aðstoðarfjármálaráðherra Banda-
ríkjanna, sagði Bandaríkjastjórn
hafa miklar áhyggjur af fregnum
um óhóflega eyðslu bankans til eig-
in þarfa. „Við krefjumst þess af
opinberum stofnunum, sem treyst
er til að fara með almannafé, að
fjármunirnir séu nýttir á skynsam-
legan hát.t og höfum því tekið und-
ir kröfur annarra aðildarríkja um
að endurskoðun fari fram á útgjöld-
um og að eftirlit með því að fjár-
hagsáætlun sé fylgt verði hert. Við
förum fram á breytingar," sagði
Altman.
Vilja upplýsingaskyldu
Fulltrúi Dana í bankaráðinu,
Helle Degn, sagði að von væri á
skýrslu endurskoðenda um eyðslu
bankans innan skamms og væru
Danir reiðubúnir að grípa til nauð-
synlegra aðgerða er hún liti dagsins
ljós. Fjölmargir aðrir fulltrúar
kröfðust þess að upplýsingaskylda
bankans yrði aukin og að þannig
yrði bundið um hnútana að stjórn-
endur hans væru ábyrgir gjörða
sinna.
Næstu skref Rússlandsforseta eftir sigur í þjóðaratkvæðinu
Jeltsín vill þvinga fram
sti órnarskrárumbætur
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
LJOST þykir að með úrslitunum í þjóðaratkvæðinu á sunnudag
hafi Borís Jeltsín Rússlandsforseti á ný styrkt Iýðræðislegt um-
boð sitt frá þjóðinni. Rúmlega 60% kjósenda mættu á kjörstað
og var það mun hærra hlutfall en svartsýnir umbótasinnar höfðu
gert ráð fyrir. Jeltsín hlaut aukinn siðferðilegan styrk í valdabar-
áttunni við þá sem vilja fara mun hægar í markaðsumbætur eða
jafnvel hverfa til fyrri sljórnhátta en úrslitin nægja samt ekki til
að kveða andstæðinga forsetans í kútinn. Er tölur sýndu hvert
stefndi sagði helsti leiðtogi þeirra, Rúslan Khasbúlatov þingfor-
seti, að úrslitin væru jafntefli en nokkurt ráðleysi virtist ríkja
hjá andstæðingum Jeltsíns fyrst í stað. Talið er að Jeltsín muni
á næstu mánuðum leggja megináhersluna á að treysta pólitísk
völd sín, fyrst og fremst með því að reyna að hrinda af stokkun-
um róttækum stjórnarskrárbreytingum sem hann kynnti rétt fyr-
ir þjóðaratkvæðið. Heimildarmenn álíta að hann láti á næstunni
efnahagsmálin fremur silja á hakanum og dragi jafnvel eitthvað
í land í markaðsumbótum.
Khasbúlatov sakaði í gær ríkis-
fjölmiðla um að reka ósvífinn
„Goebbels-lygaáróður" fyrir Jelts-
ín. Alexander Rútskoj varaforseti,
sem einnig er andstæðingur um-
bótastefnu forsetans, taldi um-
bótasinna hafa reynt að sverta
Khasbúlatov með því að benda á
að hann væri Tsjetsjeni. Margir
glæpaflokkar í Rússlandi eru und-
ir stjórn Tsjetsjena. Rútskoj sagði
að mikill meirihluti kjósenda hefði
annaðhvort greitt atkvæði gegn
Jeltsín eða setið héima; brejda
yrði stjórnarstefnunni þegar í
stað.
Athyglisvert er að stuðningur
við Jeltsín virðist vera mikill um
nær allt Rússland þótt hann sé
meiri í borgum en í sveitum. Um
100 erlendir eftirlitsmenn fyigd-
ust með framkvæmd kosning-
anna, einum þeirra var stungið í
steininn í hér-
aðinu Údm-
úrtíu vegna
misskilnings
er yfirvöld
töldu pappíra
hans ekki
vera í lagi.
Aðeins í sjálf-
stjómarlýð-
veldinu
Tsjetsjeníu
var þjóðarat-
kvæðið með
öllu hundsað en þátttaka var auk
þess lítil í Tatarstan, um 20%, þar
er sterk sjálfstæðishreyfing eins
og í Tsjetsjeníu.
A allmörgum stöðum voru
bornar fram ásakanir um kosn-
ingasvindl og er talið að sums
staðar verði að kjósa á ný. Þetta
þarf vart að koma á óvart; ráða-
Borís Jeltsín
./Spurningarnar f
“ þjóðaratkvæðinu
Bráðabirgðatölur þegar talið
hafði verið í 79 kjördæmum
af 88.
BH Spuming samþykkt
Q Treystir þú
forsetanum?
i ms
59,2% 40,8%
0 Styður þú WSM 8TI?M
efnahags-
stefnu hans?53,6% 46,4%
gvntuað 1531 Eja
forseta-
kosningum 31,3% 31,9%
verði flýtt?
□ Viltuaðþing-aai E3
kosningum
verði flýtt 43,4% 20,4%
Spumíngar 3 og 4 voru ekki samþykkt-
ar þar sem þærtengu ekki meirihluta-
stuðning þeirra sem voru á kjörskrá.
Heimild: AP
maður í afskekktu héraði tjáði
fyrir kosingarnar erlendum
fréttamanni að Stalín hefði haft
rétt fyrir sér í einu: Raunveralegu
völdin í kosningum væru hjá taln-
ingamönnum.
Stjórnarskráin í brennidepli
Samkvæmt stjórnarskrárhug-
myndum Jeltsíns fengi forsetinn
stóraukin völd á kostnað þingsins,
þ. á m. í efnahagsmálum. Líklegt
er að hann reyni að nota ákveðið
frumkvæði sem hann hefur nú til
að hrifsa til sín völdin yfir seðla-
bankanum. Þar fer fram seðla-
prentunin sem heldur við verð-
bólgubálinu en bankinn lýtur nú
þinginu. Ekki er vitað hvernig
Jeltsín hyggst reyna að fá stjórn-
arskrárbreytingarnar í gegn en
talið að hann hyggist fá héraða-
leiðtoga og ráðamenn sjálfstjórn-
arlýðvelda til að samþykkja þær,
þannig muni forsetinn reyna að
sniðganga þingið.
„Hann drekkur“
Víðast hvar gekk allt vel fyrir
sig á sunnudag, vorsólin skein í
Moskvu og heilu fjölskyldurnar
héldu á kjörstað þar sem litlar
stúlkur með borða í hárinu fengu
að gömlum „sovét“-sið að hjálpa
foreldrum sínum og stinga kjör-
seðlinum í kassann. Sums staðar
var beitt nútímalegum markaðs-
fræðum til að fá fólk á kjörstað,
boðið upp á vodka, gosdrykki og
samlokur. í borginni Saratov voru
seldar pylsur á niðursettu verði.
Margir kjósendur sögðust styðja
Jeltsín í von um að afdráttarlaus
niðurstaða fengist í valdabarátt-
unni, aðrir voru tortryggnir. Gam-
all bóndi sagði Jeltsín að vísu
vera sannan Rússa en forsetinn
fengi samt ekki atkvæðið sitt „af
því að hann drekkur“.