Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 31

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 31
I MORGUNBLAÐIÐ VlDSÐPn/AMNNUIÍF iíwwivrerwnofflif ÞRIÐJUDAGUR 27. APRIL 1993 31 Auðæfi Tvísýnt verkefni að finna hér olíu í vinnanlegu magni - segir yfirmaður jarðfræðideildar Shell í Hollandi Jarðfræðafélag íslands gekkst fyrir vorráðstefnu í Nor- ræna húsinu nýlega, og voru þar flutt erindi um auðæfi á hafsbotni. Meðal þeirra sem fluttu érindi var David L. Loft- us, yfirmaður jarðfræðideildar Shell í Hollandi, en hann fjall- aði um náttúruauðlindir í Norður-Atlantshafi. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að hann teldi það ákaflega tvísýnt verkefni að finna olíu eða jarðgas í vinnanlegu magni hér á landi, þar sem miðatlantshafshryggurinn væri úr þykku gos- bergi frá ungum eldstöðvum, og engir möguleikar á því að vatnskolefni geti myndast við slíkar aðstæður. Aðspurður sagði hann að Shell hefði ekki gert neinar rannsóknir á haf- svæðinu umhverfis ísland og engin áform væru uppi á.vegum fyrirtækisins um að leita að olíu eða jarðgasi á því svæði. Loftus sagði að enn væru þess engin dæmi að leit að vatnskolefn- um á sjávarhryggjum hefði borið árangur, og horfurnar á að áranjg- ur í þessum efnum næðist á Is- landi væru því að öllum líkindum ákaflega litlar. Hvað sem því liði gætu hins vegar leynst nægjanlega þykk setlög á miklu dýpi á land- grunninu þar sem vatnskolefni gætu hafa náð að myndast. „Það hafa hins vegar engir slík- ir lífrænir sjávarhryggir fundist, en það eru nokkur dæmi þess að fundist hafi vatnskolefni sem þró- ast hafa úr botnfalli í stöðuvötnum. Slík vatnakerfi er til dæmis að finna í Kína, Tælandi og í S-Amer- íku, og þar hafa sum þessara vatnakerfa gefið af sér vatnskol- efni í einhvetju magni,“ sagði hann. Vinnsla mangans dýr Manganríkar útfellingar hafa sem kunnugt er fundist á jarðhita- svæði á Reykjaneshrygg um 100 km undan Reykjanesi, og aðspurð- ur sagði Loftus að í setlögum utan í neðansjávarhryggjum væri stund- um möguleiki á því að finna sjald- gæfa málma. Uppsprettan væri hins vegar takmörkuð og þegar efnið hefði verið skafið upp af botninum á þessum svæðum væri um mjög hægfara endurnýjun þess á svæðinu að ræða. „Þetta er því hægt að nýta í eitt skipti og síðan ekki söguna meir, en þetta er dýrt að vinna þar sem yfirleitt er þetta á meira en þúsund metra sjávardýpi. Vinnslu af þessu tagi tel ég þó skynsam- lega ef fyrirsjáanlegt er að hún borgar sig, en eitt af vandamálun- um í jarðfræðiverkefnum af þessu tagi er að vinnslan getur verið dýr og kostnaðurinn skili sér ekki í hráefnissölunni. Ég held því að íslendingar muni því einungis gera þetta ef sannanlega kemur eitt- hvað á móti kostnaðinum.“ Frekari rannsókna þörf í Oxarfirði Guðmundur Ómar Friðleifsson jarðfræðingur á Orkustofnun flutti erindi á ráðstefnunni um óvæntan fund á lífrænu gasi í Öxarfirði í tengslum við fiskeldisrannsóknir á jarðhitasvæðinu við Skógalón, en eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu hafa rannsóknir á svæðinu staðið yfir undanfarin ár til að fá mat á því hvort um hugs- anlega orkulind gæti þarna verið að ræða. í máli Guðmundar kom fram að frekari rannsókna væri þörf, og eðlilegt væri að leita skýringa á þessu lífræna gasi með öllum til- David L. Loftus <SPSeagate Seagate’er skrásett vörumerki Seagate Technology Inc. Hágæðadiskar á betra verði SKIPHOLTI 17 ■ 105 REYKJAVlK —. StMI: 91-627333 - FAX: 91-628622 Cjt_A___) Erlent Símreikningar lækka á Italíu VAXANDI samkeppni frá AT&T, British Telecom og öðrum er- lendum símafélögum mun verða til þess að símataxtar á Italíu munu lækka verulega frá miðjum maí næstkomandi. Símgjöld hafa verið mjög há á Ítalíu og því eiga æ fleiri fyrirtæki sín símviðskipti utan Italcable, sem sér um utanlandssímtöl og Iritel, sem sér um innanlandssímtöl, og nýta sér -í staðinn erlend fyrirtæki á þessu sviði. Verðið kemur til með að lækka um 30% til Ameríku og 28% til Japan, til Englands og Norð- urlanda um 20%. Peugeot vonast eftir söluaukningu HAGNAÐUR franska bílafram- leiðandans PSA Peugeot Citroen dróst saman um 39% á síðasta ári vegna minnkandi sölu og harðnandi samkeppni. Þrátt fyr- ir spár um almennan samdrátt í bílasölu í Evrópu á þessu ári sagðist formaður Peugeot vonast eftir að söluaukning í löndum utan Evrópu leiddi til aukinnar heildarsölu. Á fréttafundi þar sem Peugeot UNDIRVAGNS RYDVORN FRÍR ÞV0TTUR kynnti afkomu síðasta árs kom fram að hagnaður sl. árs nam um 39 milljörðum íslenskra króna sam- anborið við 65 milljarða árið 1991. Samdráttur í bílasölu í Evrópu leiddi til þess að heildarsala Peugeot dróst saman um 3,1% á síðasta ári. Alls voru þá seldir 2,01 milljón bílar á meðan framleiðslan var stöðug í 2,05 milljón bílum. Markaðshlutdeild Peugeot var 12,2% í Evrópu á síðasta ári og er stefnan sett á 13% á þessu ári. tækum ráðum. Sagði hann að til stæði að kanna hvort fyrir hendi væri áhugi erlendra olíufélaga á umræddu hafsvæði, og hefði skýrsla um könnun á jarðgasinu í Öxarfirði meðal annars verið þýdd í þeim tilgangi. Missif rssSjssu sem peir segja u LADDI & VIMIR þ e g a r aðrir f g r q a 6 s o f a pantanir í síma 91 -29900 -lofar góðu! *®K) KTW Skjótvirkur stíflueyðir Eyðir stíflum fljótt • Tuskur • Feiti • Lífræn efni • Hár • Dömubindi • Sótthreinsar einnig lagnir One Shot fer fljótt að stíflunni af því að það er tvisvar sinnum þyngra en vatn. Útsölustaðir: Shell- og Esso -stöðvar og helstu byggingavöru- verslanir. Dreifing: Hringás hf., sími 677878 - fax 677022 Tilbúinn stíflu eyðir SUZUKISWIFT ARGERÐ 1993 ★ Aflmikil, 58 hestafla vél með beinni innspýtingu. ★ Ódýr í rekstri - eyðsla frá 4,0 1. á hundraðið. ★ Framdrif. ★ 5 gíra, sjálfskipting fáanleg. S SlJZIJiCI ir Suzuki Swift kostar frá kr. 795.000.- stgr. (3ja dyra GA) *W .......—...... SUZUKI BÍLAR HF SKEIFUNNI 17 SlMI 68 61 00 LIPUR OG SKEMMTILEGUR 5 MANNA BÍLL Svalakassar Veggpottar Útiker Útipottar FRJÓ HF HEILDVERSLUN Fosshálsi 13-15. Sími: 67 78 60 Fax: 67 78 63

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.