Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRIL 1993
Skíðagönguferð Ferðafélags Akureyrar inn í Glerárdal
Snjóbíll létti
undir með
gimgiifólki
HÓPUR áhugasamra skíðagöngumanna lagði leið sína
inn í Lamba, skála Ferðafélags Akureyrar í Glerárdal,
á laugardaginn, en þá efndi félagið til skíðagönguferðar
þangað.
Lagt var af stað frá Fálkafelli
á laugardagsmorgun í blíð-
skaparveðri, sem hélst til hádeg-
is, en þá fór að snjóa lítillega.
Reiptog
Með í för var snjóbíll sem fé-
lagið fékk hjá Flugbjörgunar-
sveitinni á Akureyri, en honum
stýrði Haukur ívarsson með að-
stoð Ara Jökulssonar. Aftan úr
bílnum voru tvö sérútbúin reipi
sem göngufólkið gat gripið í og
látið bílinn draga sig upp erfið-
ustu brekkurnar.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Á leið í Lamba
FERÐAFÉLAGSFÓLK á Ieið inn í
Lamba, en það er skáli sem Ferðafélag
Akureyrar á í Glerárdal. í ferðinni
bauðst skíðagöngufólki að hanga aftan
í snjóbíl og nýtti sér það óspart þegar
kom að erfiðustu brekkunum.
Fjármagnskostnaður KEA í fyrra var 333 miUjónir króna
Lækkun skulda eina lausnin
• •
Oryggis-
þjónusta
Varakynnt
Öryggisþjónustan Vari
kynnir þá vöru og þjónustu
sem fyrirtækið býður á Hót-
el KEA í dag, þriðjudaginn
27. apríl frá kl. 16 til 19.
Vari hefur frá stofnun, árið
1969, veitt alhliða þjónustu á sviði
öryggismála fyrirtækja, stofnana
og heimila. Fyrir nokkru tók Tóm-
as Sæmundsson á Raflagnaverk-
stæði Tómasar við umboði fyrir
Vara á Akureyri.
Lásar og gler
Á kynningunni getur fólk
fræðst um brunaviðvörunarkerfi,
lása og lyklakerfi, peningaskápa
og innsigli, þjóvavarnakerfi, sjálf-
virk slökkvikerfi, skotheld gler,
myndavélakerfi og öryggishurðir.
(Fréttatilkynning.)
-----♦ ♦ ♦
Glerárkirkja
Tónleikar
Passíukórs
V ORTÓNLEIK AR Passíu-
kórsins á Akureyri verða
haldnir í Glerárkirkju mið-
vikudaginn 28. apríl kl.
20.80. Stjórnandi er Roar
Kvam.
SKULDIR Kaupfélags Eyfirðinga lækkuðu um 50 milljónir króna
milli ára, úr 4.806 milljónum árið 1991 í 4.757 milljónir árið 1992.
Þrátt fyrir að skuldir lækkuðu hækkuðu fjármagnsgjöld umfram fjár-
magnstekjur um 19% á milli ára, en á liðnu ári greiddi félagið 333
milljónir króna í fjármagnsgjöld. Eina lausnin á háum fjármagnskostn-
aði er að lækka skuldir félagsins. Þetta kom fram í skýrsiu Magnúsar
Gauta Gautasonar kaupfélagsstjóra og Jóhannesar Sigvaldasonar for-
manns stjórnar KEA á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær.
Rekstur Kaupfélags Eyfirðinga .. fangsefnið á sviði rekstrar var að
einkenndist af samdrætti á flestum draga saman kostnað. Niðurstaða
sviðum á síðasta ári og meginvið- af rekstrinum var hagnaður að upp-
~F\ Frá Sjavarutvegsdeild
^ inni á Dalvík — VMA
Fiuniisiiiuin
IILVil
mm
Skólaárið 1993-94 vantar framhaldsskóla-
kennara í eftirtaldar greinar:
Ensku, dönsku, tölvufræði, stærðfræði og fag-
greinar stýrimannanáms og fiskvinnslunáms.
Umsóknarfrestur til 10. maí.
Upplýsingar hjá skólastjóra í símum 96-61380
og 96-61162.
hæð um 12 milljónir króna. „Þessi
afkoma rétt kringum núllið er til
lengri tíma algjörlega óviðunandi,
en ef til vill má segja að hún sé
ásættanleg með tilliti til hve rekstr-
arskilyrði atvinnuveganna voru
slæm á síðasta ári,“ segir í skýrslu
stjórnar og kaupfélagsstjóra.
Frambúðarlausn
Það jákvæða við rekstur liðins árs
var að fjármunamyndum í rekstri
jókst úr 196 milljónum árið 1991 í
319 milljónir í fyrra og eins tókst
að lækka skuldir félagsins á árinu.
„Þessir þættir skipta mjög miklu
máli í sambandi við framtíðarhorfur
félagsins, þessi aukna fjármuna-
myndum í rekstri auðveldar félaginu
að halda áfram að lækka skuldir,"
sagði kaupfélagsstjóri á aðalfundin-
um, en lækkun skulda félagsins er
eina frambúðarlausnin á háum fjár-
magnskostnaði.
Sjóðir og eigið fé voru 2.564 millj-
ónir króna og höfðu lækkað um 10%
á árinu. Lækkun á eigin fé Kaupfé-
lags Eyfirðinga skýrist aðallega af
þrennu, í fyrsta lagi af því að í fyrri
reikningum var ekki tekið tillit til
eftirlaunaskuldbindinga, í öðru lagi
af breyttum aðferðum við mat á
eignarhlutum í dótturfyrirtækjum
og í þriðja lagi hefur tap dótturfyrir-
tækja félagsins rýrt verðmæti þeirra,
en þau töpuðu liðlega 230 milljónum
króna á síðasta ári.
Erfitt áfram
„Aðstæður þær sem atvinnu-
vegirnir búa við eru afar erfiðar en
umhverfi atvinnurekstrar á eftir að
batna, hvenær er erfitt að segja til
um, en það kemur að því,“ sagði
Magnús Gauti og bætti við að rekst-
ur KEA yrði áfram erfiður á þessu
ári bg ekki að vænta snöggra um-
skipta í þeim efnum. Til að örva
atvinnulífið væri það mikilvægast
að lækka vexti, sem myndi létta á
fyrirtækjúm og heimilum, en þar til
aðstæður batna yrði áfram að gæta
mikils aðhalds í fjárfestingum og
rekstri og einnig væri mikilvægt að
áfram tækist að lækka skuidir fé-
lagsins.
Á efnisskránni eru tvö verk,
Stabat Mater eftir ítalska tón-
skáldið G.B. Pergolesi og Messa í
A-dúr fyrir þijár raddir opus 12
eftir César Franck. Texti fyrra
verksins er latneskur sálmur frá
13. öld og lýsir þjáningum Maríu
Guðsmóður við kross Krists á
Golgata. Messa í A-dúr var frum-
flutt árið 1861, en síðan bætti
höfundur inn kaflanum Panis Ang-
elicus, sem er vel þekktur og oft
fluttur sem sjálfstætt verk.
Jón einsöngvari
Passíukórinn hefur einu sinni
áður flutt A-dúr messuna, árið
1987. Einsöngvari á tónleikunum
er Jón Þorsteinsson tenórsöngvari,
sem m.a. flytur kaflann Panis
Angelicus, Guðrún Jónsdóttir,
sópran, Þuríður Baldursdóttir, alt
og Michael J. Clarke, bariton. Lít-
il strengjasveit ásamt hörpuleik-
ara, sembal- og orgelleikara taka
þátt í flutningi þessara verka.
(Fréttatilkynning)
Nú er blásið til samkomu!
Árgangur ’49 á Akureyri athugið
Takió frá helgina 14.-15.(16.) maí, því þá höldum við
hátíðleg 30 ARA fermingarafmæli okkar. Hafíð sam-
band sem fyrst eða í síðasta lagi 7. maí og fáið nán-
ari upplýsingar um okkar stórskemmtilegu dagskrá.
Hs. Vs.
Svenni Bjarna 91-54651 91-683800
Anna Maja 91-71600 91-686677
Gurra Bergs 96-22179 96-27600
Gunni Aust 96-22313 96-30415
Haddi Júl. 96-11149
Helga Haralds 96-23961 Sjáumst! Nefndin.
Viðar leikhússtjóri
VIÐAR Eggertsson hefur verið ráðinn til að gegna stöðu leikhús-
sljóra Leikfélags Akureyrar til næstu þriggja ára, en hann var
valinn úr hópi átta umsækjenda. Fráfarandi leikhússtjóri, Signý
Pálsdóttir, lætur af störfum í júní.
Viðar Eggertsson er fæddur
18. júní árið 1954, en hann steig
sín fyrstu spor á leiklistarsviðinu
með Leikfélagi Akureyrar fyrir
24 árum. Hann útskrifaðist frá
Leiklistarskóla íslands árið
1976, en hann hefur leikið fjöl-
mörg hlutverk með LA og leik-
stýrt nokkrum leikritum.
Viðar á fjölskrúðugan feril að
baki í leikhús-
heiminum.
Hann var fast-
ráðinn leikari
hjá LA 1978 til
1980 og hjá
Þjóðleikhúsinu
1986 til 1987,
en auk þess
hefur hann starfað sem lausráð-
inn leikari hjá öllum atvinnuleik-
húsunum og ýmsum atvinnuleik-
hópum.
Hann stofnaði Egg-leikhúsið
árið 1981, en það hefur staðið
fyrir nýstárlegum sýningum og
vakið athygli jafnt innan iands
sem utan. Viðar hefur gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum í þágu
leiklistar og var Formaður ís-
lenskra leikstjóra 1991 til 1992.
Þá hefur hann sótt ýmis erlend
leiklistarnámskeið og tekið þátt
í nokkrum erlendum leiklistarhá-
tíðum sem leikari og leikstjóri.