Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 43

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 43 Nokkrar af þekktustu vínfjölskyldum heims komu saman á heimili Miguel Torres í Vilafranca del Péne- des á Spáni fyrir skömmu til að stofna með sér samtök. Fjölbreytt hreyfinám i uppeldi barna Fimmtudaginn 29. apríl verður fyrirlestur á vegum For- eldrasamtakanna. Janus Guðlaugsson, námsstjóri í íþróttum, fjallar um hreyfinám barna í skólum og hjá íþróttafélögum. Fyrirlesturinn verður í Hinu húsinu (áð- ur Þórskaffi), Brautarholti 20, 3. hæð, og hefst kl. 20.30. Aðgangseyrir er 200 kr. Ókeypis aðgangur fyrir hand- hafa greiðakorts FST. VESTMANNAEYJAR Þorsteinn Hallgrímsson íþróttamaður ársins Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Þorsteinn Hallgrímsson kylfing- ur var kjörinn íþróttamaður ársins í Vestmanneyjum á ársþingi IBV. Þorsteinn hefur verið besti kylfingur Eyjamanna undanfarin ár og í fremstu röð á landsvísu enda hefur hann spilað með lands- liðinu. Þorsteinn var á síðasta ári í landsliði íslands sem vann Norðurlandameistaratitilinn í golfi. Sérstök valnefnd á vegum íþróttabandalags Vestmannaeyja velur íþróttamann ársins á árs- þingi bandalagsins._ Ómar Garð- arsson, formaður IBV, tilkynnti niðurstöður nefndarinnar og af- henti Þorsteini farandgrip sem fylgir sæmdarheitinu. - Grímur Þorsteinn Hallgrímsson, nýkjör- inn íþróttamaður Vestmanneyja. MANNAMÓT Söfnuðu orku fyrir próflestur Yfir bænadagana kom hundrað manna hópur úr Kristilegum skólasamtök- um saman í Vatnaskógi til þess að taka þátt í árlegu vorskólamóti. Yfirskrift mótsins var „Bæn er máttur" og voru samverustsundir og uppfræðsla tengd bæninni. Að sögn ungmennanna fannst þeim gott að komast burt úr bænum til þess að hvílast frá argi og þvargi borgarlífsins og vera í kyrrl- átu umhverfi Vatnaskógar. Þá þótti mörgum einnig dýr- mætt að geta safnað orku í sveitinni til þess að vera betur undirbúin fyrir prófin, sem nú eru komin vel á skrið. Morgunblaðið/pþ Vel vlðraði á þátttakendur í Vatnaskógi eins og sjá má á andlitum Ragnheiðar, (t.v.), Bryndísar, Ella, Markúsar og Oddu. Verð frá kr. Flugsæti til Alicante Verð frá kr. Verð f. manninn, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 14. júlí. Beint leiguflug í sumar í samvinnu viðTuravia, eina stærstu ferðaskrifstofu Spánar. Glæsilegur aðbúnaður í nýjum íbúðarhótelum á Benidorm og íslensk fararstjórn. Flugvallarskattar: Flugvallarskattar og forfallatrygging eru kr. 3.510,- fyrir fullorðinn og 2.285 fyrir börn yngri en 12 ára. i TURAUIA air europa HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 Sölubásarnir kosta þá aðeins kr. 2.450.- og 3.150.- Drífið í vorhreingerningunum og búið til tugþúsundir króna úr gamla kompudótinu! . KOLAPORTIÐ MARKAÐSTORG Sími 62 50 50 Sunnudagar eru Kompudagar íKolaportinu! Okkar vantar alltafmeira afþessu sívinsæla kompudóti og nú bjóðum við 50% afslátt á leiguverði slíkra sölubása.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.