Morgunblaðið - 27.04.1993, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
að finna fyrir öryggi
TM Reg. U.S Pat Off — all rights reserved
® 1993 Los Angeles Times Syndicate
PtoriðiiiTOÍtfeSjoií*
BRÉF TEL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 681811
Hvemig hefði Jóni
Þorlákssyni litist á?
Frá Jóni Aðalsteini Jónssyni:
Umræður síðustu vikna um
brottrekstur manns úr embætti og
svo aftur innsetningu hins sama í
enn veigameira embætti við sömu
stofnun hefur ekki getað farið
fram hjá nokkrum manni í þessu
landi. Ekki verður hér fjallað um
það mál, en heldur virðist fara lít-
ið fyrir reisn manna í þessu máli
og víða farið geyst á báða bóga.
Að undanförnu hef ég verið að
lesa ævisögu Jóns Þorlákssonar,
fyrsta formanns Sjálfstæðis-
flokksins. Er áhugavert að kynn-
ast honum og stefnumálum hans
við lestur þeirrar bókar. En ekki
held ég það hefði verið í anda
Jóns Þorlákssonar, sem nú er al-
mælt, að ýmsar stofnanir almenn-
ings, svo sem Hitaveita Reykjavík-
ur, hafi hlaupið undir bagga við
samningu ævisögu hans og út-
gáfu.
Þeim arftökum Jóns Þorláks-
sonar í Sjálfstæðisflokknum, sem
hér hafa átt hlut að í þessum
tveimur málum, hefði verið hollt
að minnast eftirfarandi orða hins
frábæra flokksforingja, áður en
þeir völdu þá leið að hygla flokks-
mönnum sínum með heldur óvið-
felldnum hætti. Þessi ummæli við-
hafði Jón, þegar Jónas Jónsson frá
Hriflu svarfaðist um innan emb-
ættismannakerfis ríkisins um og
fyrir 1930 og skipaði einungis
flokksmenn sína eða skoðana-
bræður í embætti.
Þá skrifaði Jón Þorláksson grein
í Vörð 21. júlí 1928, sem hann
gaf heitið „Spilling“. Þar kemst'
hann svo að orði, eftir því sem
segir í ævisögu hans (338. bls.):
„Hvað er stjórnmálspilling? í
hveiju er hún fólgin? Þegar það
mál er skoðað niður í kjölinn, mun
það sjást, að nú á tímum þekkist
hún naumast í neinni annarri
mynd en þeirri, að réttir valdhafar
nota almannafé til þess að kaupa
sér fylgi eða launa fylgi. Óspillt
siðferðistilfinning almennings
finnur það fullvel, að sífelld hlut-
drægni við skipun manna til opin-
berra starfa er ein af þeim mynd-
um, sem þessi spilling tekur á sig.
Það er gott að vera vinur vina
sinna, ekki nema loflegt, að skóla-
stjóri sýni lærisveinum sínum
rausn eða floksforingi fylgismönn-
um, eftir sinni getu. En takmörk
eru dregin milli hins leyfilega og
óleyfilega í þessu sem öðru. Af
eigin efnum eða með fijálsu
fengnu fé verður rausnin að ljúk-
ast, svo að leyfilegt sé. Lyklar að
ríkisféhirslunni eru engum fengnir
til þess að sækja þangað vinargjaf-
ir eða fylgdarlaun."
Þetta voru orð Jóns Þorláksson-
ar árið 1928. Hvað hefði hann
sagt um það, sem nú hefur gerzt,
maetti hann mæla?
Eg held, að stjómmálamenn
okkar mættu íhuga þessi orð hins
mæta stjórnmálaforingja og gera
að sínum í verkum sínum.
JÓN AÐALSTEINN JÓNSSON,
fv. Orðabókarstjóri.
SLYSAVARNAFÉLAG ÍSLANDS
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
Víkverji skrifar
HÖGNI HREKKVlSI
HÆ-rTV AB BJÓBA UAGRbNNUAlUM i
/yitÐNÆTURSNAfZL/"
*
Aþeim samdráttartímum í efna-
hags- og atvinnumálum, sem
gengið hafa yfir Vesturlönd á und-
anförnum árum hafa mörg stór
fyrirtæki og fyrirtækjasamsteypur
riðað til falls. Þetta eru fyrirtæki,
sem hafa verið byggð upp með
miklum lántökum, sem þau hafa
svo ekki getað staðið undir vegna
minnkandi umsvifa í kjölfar krepp-
unnar. Eitt þekktasta fyrirtækið
af þessu tagi var fyrirtækjasam-
steypa Alan Bonds, Ástralíu-
manns, sem varð heimskunnur fyr-
ir að vinna Ameríkubikarinn í
skútusiglingum fyrir nokkrum
árum.
Annað þekkt fyrirtæki, sem rið-
aði á barmi gjaldþrots en bjargað-
ist var fjölmiðlaveldi Rupert
Murdochs, sem blómstrar nú á
nýjan leik. Meðal þeirra fyrirtækja,
sem hafa riðað til falls eða fallið
á þessum samdráttartímum eru
fasteignaveldi á borð við fyrirtæki
bandaríska viðskiptajöfursins Don-
ald Trumps og kanadíska fast-
eignafyrirtækið Olympia og York,
sem var í eigu svonefndra Reic-
hmannsbræðra.
í stórum dráttum féllu þessi
fasteignafyrirtæki vegna þess, að
þau fjármögnuðu stórbyggingar
víða um heim með miklum lántök-
um. Þegar samdráttarskeiðið
hófst, misstu fyrirtækin leigjendur
í stórum stíl, sem varð til þess, að
heilu skýjakljúfarnir í New York
stóðu auðir, eða þau urðu að lækka
leiguna til þess að halda leigutök-
um í byggingunum. Þetta leiddi
svo til þess, að ijárstreymið dugði
ekki lengur fyrir vöxtum og af-
borgunum af lánunum.
Til viðbótar kom svo, að fast-
eignir hrundu í verði og fasteignir,
sem byggðar höfðu verið upp með
miklum lánum stóðu ekki lengur
undir veðunum, sem á þeim hvíldu.
x x x
Við höfum séð anga af þessari
þróun hérlendis. Bankarnir
hafa staðið frammi fyrir því, að
lánveitingar, sem fóru fram með
eðlilegum hætti og örugg veð voru
fyrir, eru ekki lengur taldar örugg-
ar vegna þess, að fasteignir hafa
lækkað verulega í verði. Þetta á
ekki sízt við um atvinnuhúsnæði,
sem í nokkur ár hefur ýmist verið
óseljanlegt eða illseljanlegt og
verulegt verðfall orðið á því.
Þeir erfiðleikar, sem eigendur
Borgarkringlunnar hf. standa
frammi fyrir eru í grundvallar-
atriðum af sama toga spunnar.
Samdráttur í atvinnulífi verður
stöðugt meiri og verzlun minnkar.
Áætlanir, sem gerðar voru fyrir
nokkrum árum standast ekki.
Verzlunareigendur knýja á um
lækkun á leigu vegna minnkandi
verzlunar o.sv. frv. í þessu ljósi
verður að skoða ákvörðun lánar-
drottna Borgarkringlunnar hf. að
ganga að fyrirtækinu. Þetta mál
er vísbending um, að fasteigna-
kreppan, sem hefur gengið yfír
Vesturlönd, ekki sízt Bandaríkin,
Bretland og Norðurlönd og þá sér-
staklega Noreg og Svíþjóð, sé að
hefja innreið sína hér.
xxx
að er svo önnur saga, að í
upphafi var þeim húsum, sem
nú hefur verið steypt saman í
verzlunarmiðstöð ætlað annað
hlutverk og hefur það auðvitað
ekki auðveldað núverandi eigend-
um þessarar fasteignar að skapa
henni eðlilegan rekstrargrundvöll.