Morgunblaðið - 27.04.1993, Síða 49
MORÓUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
49
Opið bréf til mennta-
málaráðherra
Frá Gunnari Markússyni: sett er í Vancouver. Okkur hálf
Hr. Ólafur G. Einarsson,
menntamálaráðherra.
I gærkvöldi var ég að horfa á
fréttir á Stöð 2.
Þar var m.a. sýnt frá umræðum
á Alþingi um mál Hrafns Gunn-
laugssonar. Ég heyrði ekki betur
en að þú segðir: „Hafi Hrafn
Gunnlaugsson haft fé af Ríkisút-
' varpinu með lagalega eða siðferð-
islega vafasömum hætti, þá er það
að sjálfsögðu sök útvarpsins.“
Þetta gladdi mig mjög - ekki
vegna Hrafns því mér er nákvæm-
I lega sama í hvorri Keflavíkinni
hann rær.
Hér á bæ stendur hinsvegar svo
á að kona mín á systur, sem bú-
langar til að heimsækja hana, en
það kostar þónokkuð meira fé en
við höfum handbært í augnablik-
inu.
Ef ég skryppi nú eitthvert föstu-
dagskvöldið hérna niður í Kaupfé-
lag og næði þar „með lagalega eða
siðferðislega vafasömum hætti“ í
það fé sem á vantar, heldurðu að
þú mundir ekki hringja fyrir mig
í kaupfélagsstjórann og sannfæra
hann um að „sökin“ væri hans en
ekki mín?
Með bestu kveðju.
GUNNAR MARKÚSSON,
Egilsbraut 9,
Þoriákshöfn.
VELVAKANDI
ÞAKKIRTIL
MAGNÚSAR
1 ÉG VARÐ fyrir því óhappi
fyrir nokkru að ekið var á bíl-
inn minn við Staldrið í Breið-
holti. Kom þar að ókunnugur
maður og rétti mér nafnspjald-
, ið sitt og sagði að ég mætti
' hafa samband ,við sig ef ég
þyrfti vitni að árekstrinum.
Maðurinn heitir Magnús Guð-
jónsson og nafnspjaldið er
merkt Mjólkursamsölunni.
Núna er ég búin að fá tjónið
bætt, en mig langaði að þakka
honum þessa hugulsemi.
Jónína B. Andrésdóttir
LEIÐRÉTTING
í ÞÆTTI okkar Halldórs
Kjartanssonar um Veiðivötn í
Sjónvarpinu 18. apríl sl. var
farið rangt með nafn mánns
sem bjó um hríð þarna innfrá.
I Hann er sagður heita Arin-
björn Guðmundsson í þættin-
um en rétt nafn hans var Arin-
| björn Guðbrandsson (oft
nefndur Ampi), fæddur 1816,
dáinn 1885.
{ Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Ari Trausti Guðmundsson
GÆLUDÝR
Kettlingar
FJÓRIR sex vikna kettlingar
óska eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 40043.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hjólkoppur tapaðist
GRÁR hjólkoppur undan Volvo
tapaðist frá Birkigrund í Kópa-
vogi á leiðinni inn í Voga eða
niður í bæ. Finnandi vinsam-
lega hafí samband í síma
43446.
Týnt hjól
GRÁTT Kalkoff reiðhjól með
svörtum barnastól aftan á
hvarf frá Rjúpufelli fyrir u.þ.b.
viku. Hafí einhver orðið hjólsins
var er hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 72041.
Hjól í óskilum
TVÖ svört reiðhjól eru í óskilum
í miðbænum, annað er tvílitt.
Upplýsingar í síma 697302.
Bíllykill fannst
VOLVO-bíllykill fannst við
Austurver fyrir u.þ.b. mánuði.
Upplýsingar í síma 35169.
LEIÐRÉTTIN G AR
Lína féll niður
í minningargrein um Jóhönnu
Guðríði Ellertsdóttur í Morgun-
blaðinu á laugardag féll niður lína
og raskaði það verulega innihaldi
einnar efnisgreinarinnar. Rétt er
hún á þessa leið: „Hinn 8. maí
1953* giftist frænka eftirlifandi
manni sínum, Finnboga Ólafssyni,
sem ættaður er frá Hvammstanga.
Frænka og Bogi eignuðust fjögur
börn. Þau eru: Helga Ólöf, gift
Reyni Gísla Hjaltasyni, þau eiga
þrjú börn; Björg Kristín, gift Andr-
ési Kristjánssyni, þau eiga þijú
börn; Ellert Rúnar, kvæntur Sig-
urlínu Ragúels, þau eiga tvo syni,
auk þess átti Sigurlína tvö börn
áður; Anna, sambýlismaður henn-
ar er Smári Steinarsson." Vegna
misritunar skal þess einnig getið,
að Jóhanna Guðríður fæddist í
Lambanesi í Saurbæ 14. septem-
ber 1931. Hlutaðeigandi eru inni-
lega beðnir velvirðingar á mistök-
um þessum.
Rangt föðurnafn
í tilkynningu í Morgunblaðinu þar
sem skýrt var frá nöfnum ferming-
arbarna í Hallgrímskirkju, Kirkju
heyrnarlausra, sem fermdust
sumardaginn fyrsta var rangt far-
ið með föðurnafn eins fermingar-
barnsins, en hún heitir Sólrún
Birna Snæbjörnsdóttir en ekki
Björnsdóttir eins og kom fram.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Nemendasamband
Verzlunarskóla
íslands
heldur fagnað fyrir gamla nemendur, sem eiga útskriftar-
afmæli Verzlunarskólaprófs, 30. apríl ó Hótel Sögu.
Miðar verða seldir hjó VR, Húsi verslunarinnar, dagana
28' 09 29' °pril' Nefndin.
Konur og reykingar
Opin ráðstefna
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
Ráðstefnan er haldin á Hótel Borg fímmtudaginn
29. apríl - reyklausa daginn - kl. 14:00-17:00.
Dagskrá:
Kl. 14:00 Afhending gagna.
Kl. 14:15 Ráðstefnan sett.
Hvernig konum er haldið reykjandi.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, alþingiskona.
Hafa reykingar áhrif á starfsemi húðar og slímhúðar?
Rannveig Pálsdóttir, húð-og kynsjúkdómalæknir.
Áhrif reykinga á húðina.
Guðrún Þorbjarnardóttir, snyrtisérfræðingur.
Reykingar á leiksviði.
Valgerður Dan, leikkona.
Leikarar og reykingar.
Súsanna Svavarsdóttir, leiklistargagnrýnandi.
Kl. 15:20-15:50 Kaffihlé.
Reykingar og fatastfll.
Anna Gunnarsdóttir, lista- og fatastílfræðingur.
Reykingar og tannheilsa.
Einar Ragnarsson, tannlæknir.
Hvað getum við gert?
Ingileif Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Kl. 17:00 Ráðstefnuslit.
Skráning fer fram hjá
Krabbameinsfélagi Reykjavíkur
ísíma 621414.
Ráðstefnugjald er 900 kr.
og greiðist við innganginn.
Innifalin eru
ráðstefnugögn og veitingar.
Krabbameinsfélagið