Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 50
50
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Frá kirkjuathöfninni
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Afmælishátíð á Breiðabólstað
Hvammstanga.
Á PÁLMASUNNUDAG, 4.
apríl, var hátíðarmessa í
Breiðabólsstaðarkirkju í
Vesturhópi í tilefni 100 ára
vígsluafmælis kirkjunnar.
Við messuna voru viðstaddir
fimm prestar, þrír kórar og
kvintett. Að lokinni messu var
kirkjugestum boðið í hátíðar-
kaffi.
Messan fór fram í blíðskapar-
veðri og virtist sem vor væri í
nánd. Fyrir altari þjónuðu vígslu-
biskup, herra Bolli Gústafsson, og
sóknarpresturinn Kristján Björns-
son. Sr. Árni Sigurðsson, sr. Egill
Hallgrímsson og Sr. Ágúst Sig-
urðsson lásu ritningarlestra. Há-
tíðarræðuna flutti herra Bolli Gú-
stafsson. Kór Víðidalstungukirkju
söng, en hann annast söng í kirkj-
unni að staðaldri. Einnig tóku þátt
í messunni í kirkjukór Hvamms-
. tangakirkju og kór Vatnsness- og
’Vesturhópssókna og söngkvintett-
inn Voces Thules.
Breiðabólsstaðarkjirkja var vígð
á pálmasunnudag árið 1839. Hún
Vígslubiskup, herra Bolli Gú-
stafsson.
er byggð úr timbri, eins og aðrar
kirkjur á þeim tíma. Hún hefur
verið endurbætt verulega á liðnum
árum og umhverfi hennar lagfært.
Söfnuður Breiðabólsstaðarsóknar
er aðeins um 30 manns og er at-
hyglisvert, hve miklu svo fámennur
söfnuður hefur komið í verk. Má
þar eflaust þakka stuðningi vel-
unnara hennar á margan hátt, svo
og framlagi úr sjóðum kirkna.
Formaður sóknarnefndar er Hjalti
Júlíusson.
Breiðabólsstaður er merkur
staður frá upphafi íslandsbyggðar.
Þar bjó m.a. Hafliði Másson, sem
fyrstur lét færa lög í letur á Is-
landi. Lögmannafélag Islands hef-
ur látið reisa minnisvarða á staðn-
um. Staðinn sátu í gegnum aldir
merkir prestar, sem sumir urðu
síðar biskupar að Hólum. Kunnast-
ur er Guðbrandur Þorláksson, sem
vann það stórvirki að þýða Biblíuna
á íslensku og gefa hana út. Einnig
var starfrækt á Breiðabólsstað
fyrsta prentsmiðja á íslandi.
Sænskættaður prestur, Jón Matt-
híasson, kom með hana frá Þýska-
landi og voru þar prentaðar bæk-
ur, m.a. fyrir Hólabiskup. Sr. Ág-
úst Sigurðsson flutti erindi um
sögu Breiðabólsstaðar við hátíðar-
veislu í Vesturhópsskóla að lokinni
messu.
Sauðárkrókur
Kiwanismenn gefa Yist-
heimili fatlaðra gjafir
Sauðárkróki.
í VIKUNNI eftir páska afhentu félagar úr Kiwanisklúbbnum
Drangey á Sauðárkróki Vistheimili fatlaðra að Dalatúni 6 á
Sauðárkróki veglegar gjafir sem koma munu starfsemi heimil-
isins mjög til góða.
Um er að ræða hillusamstæðu,
vinnuborð, fimm náttborð, mynd-
bandstæki og leikjatölvu með úrvali
leikja, samtals að verðmæti rúmlega
þijúhundruð þúsund króna.
Stefán Stefánsson afhenti gjöfina
fyrir hönd Kiwanismanna en Aðal-
heiður Reynisdóttir starfsmaður vist-
heimilisins veitti henni viðtöku og
þakkaði þessar góðu gjafír sem hún
sagði að kæmu sér mjög vel.
Vistheimili fatlaðra að Dalatúni 6
var stofnað sl. haust og starfar út
maímánuð í tengslum við Sérdeild
fatlaðra sem starfrækt er við Gagn-
fræðaskólann á Sauðárkróki. Ibúar
á vistheimilinu eru fimm, úr Skaga-
firði og frá Siglufirði, og dvelja þeir
þar og sækja_ þaðan skóla, en fara
heim um helgar.
Að sögn Aðalheiðar er aðstaða á
vistheimilinu ágæt en ekki er enn
Ijóst hvert framhald verður á þessari
starfsemi þar sem hér er um einbýlis-
hús að ræða sem tekið var á leigu
sl. haust og aðeins til mánaðamóta
maí/júní nk. eða á meðan skólinn
starfar. Sagði Aðalheiður að þegar
skóla lyki, tækju við sumarbúðir á
Hólum, eins og undanfarin sumur,
en síðan sumarleyfi og væntanlega
yrði svo þráðurinn tekinn upp að
nýju næsta haust. Enn væri þó ekki
búið að finng, hentugt húsnæði fyrir
starfsemi vistheimilisins fyrir næsta
vetur en það yrði þó örugglega gert
þar sem starf sérdeildarinnar hefði
reynst þessum nemendum sérstak-
lega vel.
Fram kom einnig að fleiri félaga-
samtök á Sauðárkróki hefðu stutt
við bakið á starfsemi vistheimilisins
þannig hefði Lionessuklúbburinn
Björk, í byijun mars, fært heimilinu
fimmtíu þúsund króna gjöf sem not-
uð yrði til kaupa á leikföngum fyrir
heimilismenn.
- BB.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
/ ;
pí
IL m
Afhending gjafabréfs
Stefán Stefánsson afhenti Aðalheiði Reynisdóttur gjafabréf yfir
húsbúnað, myndband og tölvu frá Kiwanisfélögum á Sauðárkróki.
Nýr björgunarbát-
ur til Grindavíkur
Grindavík.
NÝR björgunarbátur bættist í flota Grindvíkinga á skírdag.
Hann mun bera nafn Odds V. Gíslasonar en hét áður Kristinn
Sigurðsson í eigu Björgunarfélags Vestmannaeyja.
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Nýr björgunarbátur
Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir flytur blessunarorð við hinn nýja
Odd V. Gíslason.
Slysavarnadeildin Þorbjörn
keypti þennan bát frá Vestmanna-
eyjum og var kaupverðið 12 milljón-
ir króna. Deildin setti eldri bátinn,
Odd V. Gíslason, upp í kaupverðið.
Nýi báturinn mun taka upp nafn
eldri bátsins og mun á þann hátt
halda uppi merki frumkvöðuls
slysavarna hér á landi, sr. Odds
V. Gíslasonar sem var prestur í
Grindavík á árunum 1879-1894.
Hann var upphafsmaður að ýmsum
slysavarnamálum og stofnaði bjarg-
ráðanefndir í mörgum sjávarþorp-
um sem voru forverar slysavarna-
deilda sem seinna voru stofnaðar.
Hinn nýi Oddur er um 10 m lang-
ur og 3,2 m á breidd, búinn tveim-
ur 180 hestafla vélum. Hann rúmar
átta manns sitjandi og standandi í
stýrishúsi eða tvær sjúkrabörur og
fjóra menn sitjandi og standandi.
Gamli Oddur rúmaði hins vegar
ekki nema 3-4 í stýrishúsi og
þurftu menn að vera útivið meðan
á siglingu stóð.
Mikil breyting
Ólafur Þór Þorgeirsson, formað-
ur slysavarnadeildarinnar Þor-
bjöms, tók á móti bátnum að við-
stöddu fjölmenni og afhenti björg-
unarsveitinni hann síðan. „Nýi bát-
urinn mun breyta talsverðu fyrir
deildina og gera hana betur í stakk
búna við björgunar- og þjónustu-
störf við sjómenn," sagði Sigmar
Eðvarðsson, formaður björgunar-
deildarinnar, við Morgunblaðið.
„Nýi Oddur er allur stærri og kraft-
meiri en sá eldri og það munar
mikið um að hann er búinn stærra
stýrishúsi og rúmar mannskapinn
mikið betur.“
Að lokinni móttökuathöfn bless-
aði sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir
sóknarprestur björgunarbátinn og
boðið var til kaffisamsætis þar sem
bæjarbúum og öðrum gestum gafst
tækifæri á að fagna komu nýja
bátsins. Ester Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri SVFÍ, fagnaði
komu bátsins og sagði að það væri
til marks um dugnað og kraft Suð-
umesjamanna að vart liði vika á
milli komu björgunarbáta á svæðið
og því bæri að fagna. Þá fagnaði
Hannes Þ. Hafstein, fyrrverandi
framkvæmdarstjóri SVFÍ, komu
bátsins til Grindavíkur og minntist
góðs samstarfs sem hann hefur átt
með ýmsum frumkvöðlum björgun-
arstarfs á íslandi frá Grindavík.
FÓ
Vinafélag
Blindrabóka-
safns stofnað
BLINDRABÓKASAFN ís-
lands tók til starfa á vordög-
um 1983 samkvæmt lögum
samþyktum þar um á Alþingi
1982. Á tíu ára starfsafmæli
safnsins taka ýmir velunnar-
ar þess höndum saman um
stofnun vinafélags Blindra-
bókasafns til eflingarstarf-
semi þess. Slík félög eru
starfandi víða um lönd og
hafa gefið góða raun.
Hlutverk Blindrabókasafns er að
sjá blindum og sjónskertum og öðr-
um þeim sem ekki geta fært sér í
nyt prentletur fyrir alhliða bóka-
safnsþjónustu. Svo og námsmönn-
um í framhaldsskólum er verða að
byggja nám sitt á gögnum sem
framleidd eru í safninu.
Stofnfundur Vinafélags Blindra-
bókasafns íslands verður haldinn
miðvikudagskövldið 28. apríl í
Gyllta salnum á Hótel Borg kl.
20.30 og allt áhugafólk er velkomið.
(Fréttatilkynning)
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
<
i
CAP
Fjallahjólabúðin
G. Á. Pétursson hf. Faxafeni 14, Sími 685580
w w w
LEIÐANDIILAGU VERÐIA FJALLAHJOLUM
USA - Japan - Hátækni - Gæði - Gott verð
<
<
i