Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 51

Morgunblaðið - 27.04.1993, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993 51 Tæki til heimahlynningar Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ afhendingu Lionsklúbbsins Baldurs á tælqunum, sem klúbburinn gaf Heimahlynningu krabba- meinssjúkra. Frá vinstri: Ólafur Johnson, Friðrik Bertelsen, Njáll Símonarson, Ragnar Borg, Finn- bop Eyjólfsson, Sveinn Sæmundsson, Hermann Ragnar Stefánsson, Othar Örn Petersen, Guðrún Agnarsdóttir, Bryndís Konráðsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir og Sigrún Magnús- dóttir. Heimahlynning krabba- meinssjúkra fær búnað LIONSKLÚBBURINN Baldur afhenti Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins ís.l. föstudag tæki, sem auðvelda eiga krabbameinssjúku fólki að dvelja heima lengur en ella. Er hér um að ræða tvo fullkomna lyfjaskammtara, sem eru stöðugt tengdir sjúklingi, færanlegan súrefnis- gjafa og fullkomin kalltæki fyrir starfsfólk. Verð tækj- anna eru um 620 þúsund krónur. í fréttatilkynningu frá Baldri samræmi við markmið Lions- kemur fram, að klúbburinn er 40 hreyfingarinnar, með því að ára um þessar mundir. Hann hef- leggja þeim lið sem á hafa þurft ur lagt sig fram um að starfa í að halda og lagt gott til góðra mála. Á sjöunda áratugnum skar Baldur upp herör til eflingar land- græðslu og hefur m.a. haft land við Hvítárvatn undir Langjökli og sýnt þar að græða má landið. Þá hefur Baldur lagt fjármuni eða tæki til Styrktarfélags vangef- inna, Skálatúnsheimilisins, Barn- aspítala Hringsins, Kumbara- vogsheimilisins, Hrafnistu og nú síðast Heimahlynningar krabba- meinssjúkra. Gautaborgarvika í Norræna húsinu Fyrirlestur og kynning á háskólanámi í Gautaborg FYRIRLESTUR verður í Norræna húsinu í dag kl. 17 í tengslum við Gautaborgarviku sem nú stendur yfir í Norræna húsinu. Það er Bo Ralph prófessor í norrænum málum við háskólann í Gautaborg sem heldur fyrirlestur og nefnir „Nordiskt sprák - en bro över Atlanten." Jazzkvartett Reykjavíkur Shorter í Signr- jónssafni TÓNLIST eftir bandaríska saxófónleikarann og tón- skáldið Wayne Shorter hljómar annað kvöld í Sigur- jónsafni í flutningi Jazz- kvartetts Reykjavíkur. Flutt verða verk eftir Shorter frá 1961 til 1969. Wayne Shorter hefur komið víða við i jazztónlist og var m.a. einn af stofnefndum bræðingshljóm- sveitarinnar Weather Report. Tón- listin sem flutt verður í Siguijóns- safni var hins vegar öll samin fyr- ir þann tíma, meðan Shorter starf- aði í hljómsveit Art Blakey og með kvintett Miles Davis. Shorter er eitt frumiegasta og afkastamesta tónskáld jazzsögunnar og hefur tónlist hans ekki heyrst mikið hér á landi. Sigurður Flosason saxófónleik- ari hefur tekið dagskrána saman og auk hans koma fram félagar hans í Jazzkvartett Reykjavíkur, þeir Eyþór Gunnarsson píanóleik- ari, Tómas R. Einarsson bassaleik- ari og Einar Scheving trommuleik- ari. Sérstakur gestur verður hinn ungi og efnilegi trompetleikari Veigar Margeirsson. Shorter VERK eftir Wayne Shorter frá 1961-’69 verða flutt í Siguijóns- safni. Ennfremur verður í dag kl. 10-17 kynning í Háskóla íslands með námsráðgjöf og upplýsingum fýrir námsfólk sem hefur áhuga á námi við Gautaborgarháskóla. Það er Barbro Ryden Liljegren skrif- stofustjóri sem annast kynninguna. Þessi kynning verður endurtekin í Norræna húsinu á miðvikudag kl. Háskóla íslands var veittur styrkur, 10.000 sænskar kr. frá háskólanum í Gautaborg. Þessi styrkur er ætlaður námsmanni sem hyggur á framhaldsnám við Gauta- borgarháskóla. Það var Kjell A. Mattsson, landshöfðingi í Gauta- borgar- og Bóhúsléni, sem afhenti styrkinn fulltrúa Háskóla íslands, Gunnlaugi Jónssyni, háskólaritara. (Fréttatilkynning) Tölvusýn- ing á Hót- el Islandi APPLE-umboðið heldur sýningu dagana 28. til 30. apríl í ráð- stefnusal Hótels íslands á ann- arri hæð. Sýningin verður opin alla dagana frá kl. 13-17. Yfirskrift sýningarinnar er: Mac- intosh í blönduðu umhverfi og verð- ur sýndur ýmis tölvubúnaður þar sem aðaláherslan verður lögð á tengingu Macintosh-tölva við mis- munandi tölvukerfi. Má þar nefna tengingu við Novell og LanManag- er-netkerfi, AS/400, Vax og UNIX auk ýmissa fjarvinnslutenginga. Sýningunni er ætlað að höfða til umsjónarmanna tölvumála fyrir- tækja með tilliti til þess að nota Macintosh-tölvur samhliða öðrum tölvum fyrirtækjanna. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. (Fréttatilkynning) Itwrjum (Lyi' 13-17. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 23.-26. apríl Talsverð ölvun var-um helgina. Lögreglan þurfti 50 sinnum að hafa afskipti af ölvuðum einstakl- ingum, sem ekki kunnu fótum sínum forráð. Auk þeirra þurfti að hafa afskipti af 8 ökumönnum grunuðum um ölvun við akstur. Fjórir þeirra höfðu lent í umferð- aróhöppum áður en til þeirra náð- ist. Líkamsmeiðsl voru í lágmarki, eða fjögur talsins. Innbrotin voru hins vegar í há- marki. Alls var tilkynnt um 16 innbrot, 9 þjófnaði og 19 rúðubrot. Tilkynnt var um 4 umferðarslys. Um miðjan dag á föstudag skuilu saman tvær bifreiðir á Suðurlands- vegi við Litlu kaffistofuna. Öku- maður annarrar bifreiðarinnar missti stjórn á bifreiðinni í krapa með þeim afleiðingum að hún rann yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem ekið var úr gagnstæðri átt. Aðili í annarri bif- reiðinni festist inni í henni og varð að kalla á tækjabifreið slökkviliðs- ins. Flytja varð þrennt á slysa- deild. Talið var að annar ökumann- anna hefði rifbeinsbrotnað, hinn hlotið hálsmeiðsli svo og farþegi. Um kvöldið var tilkynnt um að 13 ára gamall piltur hefði hlaupið út á götu frá verslunarmiðstöðinni við Fjallkonuveg og í veg fyrir bif- reið, sem ekið var um götuna. Meiðsli hans reyndust vera minni- háttar. Um svipað leyti var tilkynnt um að bifreið hefði oltið á Suðurlands- vegi við Sandskeið. Ökumaðurinn hlaut minniháttar meiðsli. Mikil hálka var á veginum þegar óhapp- ið varð. Undir miðnætti varð árekstur með strætisvagni og fólksbifreið í harðaþrengingu á Kleppsvegi. Við áreksturinn kastaðist fólksbifreið- in yfir breiða graseyju og út á Sæbraut þar sem hún lenti á bif- reið, sem ekið var um götuna. Flytja þurfti ökumann þeirrar bif- reiðar á slysadeild. Um miðjan dag á föstudag var tilkynnt um lausan eld í sumarbú- stað við Meðalfellsveg. Þegar lög- reglan kom á staðinn hafði slökkvi- lið Kjalarness þegar slökkt eldinn. Hann hafði kviknað út frá kamínu og síðan komist í loftstokk. Skemmdir urðu litlar. Aðfaranótt sunnudags var bif- reið ekið á vegg á þvottaplani við Skógarhlíð. Fimm unglingar sáust hlaupa frá bifreiðinni, en þau voru handtekin á hlaupum um Hlíðar- hverfið skömmu síðar. Flytja þurfti einn þeirra á slysadeild vegna meiðsla sem hann hafði hlotið við áreksturinn. Ökumaðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Önnur hinna þriggja óhappa þar sem ökumenn eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum áfengis urðu þegar þeir óku á hluti eða veggi. Lögreglunni bárust fyrir helgi upplýsingar um að dómsmálaráð- herra hefði breytt reglugerð um sölu og veitingar áfengis daginn áður. Breytingin er m.a. fólgin í því að nú er vínveitingaleyfishöfum heimilt að veita áfengi á tímabilinu frá kl. 14.30 til kl. 18, en það hafði verið óheimilt að veita áfengi á þeim tímum dagsins. Breytingin skiptir kannski ekki öllu máli held- ur hitt að ráðherra hafði ekki talið þörf á að leita umsagnar eða til- kynna breytinguna þeim, sem dags daglega fara með eftirlit með að reglunum sé framfylgt. —ef þú spilar til að vinna! | 16.lelkvlka.24. aprfl 1993 | Nr. Leikur:_________________Röóin: 1. Bragc - Halmstad - X - 2. Dcgerfoss - AIK - - 2 3. HScken - Trelleborg - X - 4. Malmö - Goteborg - - 2 5. Norrkoplng - Frolunda 1 - - 6. örgryte - Helsingborg - - 2 7. öster - örebro 1 - - 8. Birmingham - Tranmere - X - 9. Bristol City - Cambridge - X - 10. MillwaU - Chariton 1 - - 11. Notts County - Swindon - X - 12. Peterborough - Leiccster 13. Portsmouth - Wolves 1 1 ~ - HeUdarvinningsupphæðin: 135 milljón krónur 13 réttir: 508.980 kr. 12 réttír: 12.460 kr. 11 réttír: [_ 990 kr. 10 réttir: 310 kr. Bílamarkadurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, sími 671800 ^ MMC GALANT GLSI 4X4 '90, ek. 61 þ., rafm. i öllu o.fl. V. 1200 þús. \ ' T~ Toyota Hi-Lux Extra Cab '91, ek. 54 þ., 35“ dekk, álfelaur, 5.71 hlutf. o.fl. V. 1790 þús. Mazda E-2000 ’89, m/skjólborðum, ek 83 þ., ber 2 tonn, MVSK-bíll“. V. 640 þús. Toyota Corolla XL '89, 5 dyra, 5 g.t sjálfsk., ek. 10 þ. á vél. V. 650 þús. Daihatsu Feroza EL II EFI '90, steingrár, 5 g., ek. 48 þ., 33“ dekk, brettakantar o.fl. V. 1070 þús., sk. á ód. Daihatsu Charade TX '91, rauður, 5 g ek. aðeins 9 þ. V. 620 þús. M. Benz 190 ’85, blár, sjálfsk., ek. 102 þ., álfelgur, sóllúga o.fl. V. 1090 þús., sk. á ód. M. Benz 190E ’88, hvitur, sjálfsk., ek. 85 þ., álfelgur, sóllúga o.fl. Toppeintak. V. 1890 þús., sk. á ód. Ford Bronco XL ’87, 5 g., ek. 70 þ. V. 1050 þús., sk. á ód. Subaru 1800 GL station ’86, 5 g., mjog gott eitnak. V. 580 þús. Nissan Sunny SLX 1.6 Sedan, brúnsans, sjálfsk., ek. 16 þ. rafm. i öllu o.fl. V. 890 þ. Subaru 1800 GL Coupé 87, 5 g., ek. 100 þ. V. 590 þús. stgr. Nissan KingCap 4x4 m/húsi '91 grár/svartur, 5 g., ek. 34 þ. Toppeintak (vsk. bíll). V. 1290 þ. stgr. Ódýrir bílar: V.W. Golf '84, 5 g., ek. 98 þ. Gott eintak. V. 280 þús. Skoda 130 GL '87, uppt. vél o.fl. V. 95 þús Austin Allegro station '78, óvenju gott eintak. V. 95 þús. Fiat Duna 70 Berlina '88, 5 g., ek. aöeins 39 þ. V. 290 þús. Ford Escort CL ’86, ný skoð. (94), gott ástand. V. 240 þús. stgr. Ford Sierra 1,6 GL ’84,5 dyra. V. 270 þús

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.