Morgunblaðið - 30.05.1993, Side 15
, WN^PAGQRiap.; WAL J99&,
ust tæpast kröfur þær sem forset-
inn hafði gert til að koma í veg
fyrir hagsmunaárekstra.
Skelfing og skattar
Þingmenn í Bandaríkjunum
halda jafnan í þá átt sem pólitískur
áttaviti þeirra vísar og fyrir alln-
okkru tóku viðvörunarbjöllurnar að
hringja bæði í Washington og á
skrifstofum þeirra heima í héraði.
Að undanförnu hefur forsetinn
staðið frammi fyrir uppreisn þeirra
þingmanna sem teljastíil miðjunnar
og hægri vængsins innan Demó-
krataflokksins og andmælt hafa
skattaáformum ríkisstjórnarinnar,
sem eru einn mikilvægast liðurinn
í glímunni við fjárlagahallann ógur-
lega. Áætlun forsetans kveður nú
á um að aflað verði 246 milljarða
Bandaríkjadala í formi skatthækk-
ana en á hinn bóginn er gert ráð
fyrir að niðurskurður skili aðeins
97 milljarða dala sparnaði. Fjand-
menn Clintons segja staðreyndir
þessar til marks um að hann sé á
engan hátt „ný-demókrati“, hann
sé líkt og bandarískir demókratar
hafi ætíð verið, vinstrimaður sem
boði aukin útgjöld á vegum hins
opinbera og aukna skattheimtu (í
stjórnmálaumræðum í Bandaríkj-
unum nefna andstæðingar Demó-
krataflokksins slíka menn „tax and
spend liberals"). Ýmsir þingmenn
demókrata hafa barist fyrir auknum
niðurskurði, aðrir eru á móti orku-
skattinum nýja. Á fimmtudagskvöld
fékkst áætlun Clintons naumlega
samþykkt í fulltrúadeildinni og
vænta má mikillar fyrirstöðu er öld-
ungadeildin tekur hana til meðferð-
ar.
Hvað forsetann og stöðu hans
varðar skiptir mestu að sú mynd
er að skapast af honum að hann
sé maður skattahækkana, ekki
maður niðurskurðar og óvinur fjár-
lagahallans númer eitt. Ekki kemur
því á óvart að skoðanakannanir
sýna að stuðningur við efnahags-
stefnu Clintons fer óðum minnk-
andi. í ljósi deilunnar um efnahags-
stefnuna blasir því við eftirfarandi
vandi í herbúðum forsetans; hvernig
á að tryggja stuðning við öll hin
stóru málin, umbyltinguna í heil-
brigðis- og menntakerfmu sem svo
brýnt er að verði að veruleika og
er kjarni þeirrar hugmyndafræði
sem Clinton boðaði í kosningabar-
áttunni?
í körfubolta og kringlunum
Viðbrögð Clintons við þessum
vanda hafa fram til þessa ekki ver-
í huga almennings
er óðum að mótast
mynd af forseta,
sem að sönnu er
haldinn þokkalegri
vinnusýki en veit
ekki i hvaða farveg
hann á að beina
kröftum sínum
Ráðamenn íWash-
ington mátu það
einfaldlega sem svo
að hið nýja bandalag
Rússlands og
Bandaríkjanna væri
mikilvægara en svo
að fórna bæri því
vegna landvinninga-
hernaðar Serba í
Bosníu. Mótsögnin
er á hinn bóginn
fólgin í því að þessi
viðbrögð munu aft-
ur kalla á að enn
frekar reyni á þetta
samband, sem sagt
er að grundvallað sé
á virðingu fyrir lýð-
ræði og mannrétt-
indum
ið sannfærandi. Hann hefur „leitað
til fólksins" eins og slíkt er nefnt
vestra. Kunnuglegum aðferðum
hefur verið beitt. Boðað hefur verið
til funda með óbreyttum borgurum,
forsetinn hefur spilað körfubolta
með blökkumönnum þar sem því
verður viðkomið, heilsað upp á al-
menning í sérhverri kringlu sem á
vegi hans verður og börn og ung-
menni hafa hvergi getað talist ör-
ugg fyrir alltumlykjandi faðmi
hans. Allt er þetta viðtekið í ímynd-
arherferðum vestra og hermt er að
ráðgjafar forsetans vilji meira.
„Frambjóðandinn Clinton" sé horf-
inn og „Clinton forseti" hafí misst
það góða samband sem honum tókst
að mynda við alþýðu manna í
Bandaríkjunum í kosningabarátt-
unni.
Forsetar í Bandaríkjunum hafa
vitanlega oft leitað eftir stuðningi
almennings þegar á móti hefur blás-
ið, það gerði Ronald Reagan nokkr-
um sinnum og fræg er ræða Ric-
hards Nixons um „þögla meirihlut-
ann“ á tímum Víetnam-stríðsins.
Clinton er hins vegar í annarri
stöðu. Hann hefur í upphafí forset-
atíðar sinnar í raun gefíst upp á
að nota þau stjórntæki sem hann
hefur. í stað þess að freista þess
að laða þingheim til fylgis við sig
og stefnu sína hefur hann reynt að
skapa ný stjórntæki með tilvísun
til vilja almennings. Vilji forsetinn
snúa við blaðinu er trúlega hyggi-
legast fyrir hann að halda sig í
Washington.
Landvinningar Serba
samþykktir
Erlendis hefur ringlureiðin í
Hvíta húsinu, meint stefnuleysi for-
setans og skortur á röggsemi eink-
um þótt birtast í því hvernig tekið
hefur verið á málefnum Bosníu-
Herzegovinu. Til þess að skapa sér
sérstöðu og til þess að draga fram
þá mynd að hann vaéri maður
ákveðinn, sem treysta mætti fyrir
forystuhlutverki á vettvangi utan-
ríkismála, boðaði Clinton í kosn-
ingabaráttunni að lýðræðisríkjun-
um bæri að aflétta banni við sölu
á vopnum til Bosníu-múslima. Rík-
isstjórnin tók síðar að þrýsta á
bandamenn Bandaríkjanna í Evr-
ópu um að staðið yrði fyrir loftárás-
um á hernaðarlega mikilvæg skot-
mörk til að stöðva landvinningastríð
Serba. Bandaríkjamenn vildu á hinn
bóginn ekki ljá máls á því að land-
sveitir yrðu sendar til Bosníu og
innan ríkisstjórnarinnar tóku menn
líkt og áður að deila um réttmæti
afskipta af borgarstyijöldinni.
Varnarmálaráðuneytið vildi að fyrir
lægi nákvæm áætlun þar sem hvert
stig aukinna afskipta yrði skil-
greint. Þar leitaði Les Aspin varnar-
málaráðherra trúlega í smiðju til
Caspars Weinbergers, sem fór með
landvarnir í forsetatíð Reagans, og
lagði þá fram þekkta slíka skilgrein-
ingu. Þá deildu menn eðlilega um
hvert ætti að vera pólitískt mark-
mið hemaðarafskipta í Bosníu.
Ýmsir gerðu þau mistök að jafna
stöðu Clintons í þessu efni við frum-
kvæði það er George Bush tók er
hann náði að skapa fjölþjóðlega
samstöðu um að hrekja hersveitir
Saddams Husseins Íraksforseta úr
Kúveit.
„Diplómatísk" skyndiárás
í Bandaríkjunum lögðu menn
rangt mat á stöðu mála í Evrópu
og þá upplausn sem ríkir á stjórn-
málasviðinu eftir hrun kommúnis-
mans, endalok kalda stríðsins og
misheppnaðar samrunahugmyndir,
sem kenndar em við Maastricht. í
Evrópu svífa menn um í hugmynda-
fræðilegu tómarúmi nú um stundir
en mestu skiptir þó að í Rússlandi
hafa stjómvöld fullan hug á því að
láta til sín taka á ný á þeirri sögu-
legu forsendu að Rússar séu öflugt
landveldi í Evrópu. Þegar tilraunir
Clintons til að ná samkomulagi við
Evrópuríkin fóru út um þúfur eftir
að Warren Christopher utanríkis-
ráðherra hafði snúið aftur úr öld-
ungis misheppnaðri heimsókn til
helstu höfuðborga á meginlandinu
tóku Rússar frumkvæðið og hófu
„diplómatíska" stórsókn í Evrópu.
Þrátt fyrir bærilega herskáar yfír-
lýsingar stjórnvalda í Moskvu lá í
raun ávallt fyrir að Rússar myndu
tæpast samþykkja herför á hendur
Serbum. Bandaríkjamenn neyddust'
til að skipta enn á ný um stefnu
og samþykktu að lokum að mynduð
yrðu griðasvæði múslima í Bosníu,
sem Clinton hafði tveimur dögum
áður hafnað opinberlega, og að frið-
argæsla yrði efld. I raun lögðu
Evrópuríkin, Bandaríkin og Rúss-
land með þessu blessun sína yfír
landvinninga Serba. Enda stóð ekki
á viðbrögðunum. Leiðtogi Bosníu-
Serba lýsti snimhendis yfir því að
áætlunin yrði virt en talsmenn
múslima vændu fyrrum stuðnings-
menn sína um svik. Hringferð
Bandaríkjamanna í kringum Bos-
níu-vandann var því lokið, í bili að
minnsta kosti, og drög voru lögð
að því að mynda vemduð svæði
múslima, sem eiga eftir að reynast
risastórar flóttamannabúðir, í Aust-
ur-Evrópu.
„Lýðræðisbandalaginu"
bjargað
Lákt og á fyrsta kjörtímabilinu í
Arkansas hafa þær raddir heyrst
að framganga forsetans á þessum
vettvangi sé til marks um að ungir,
reynslulausir „strákar" hafí tekið
völdin í Hvíta húsinu. Clinton og
undirsátar hans misskildu að sönnu
hina pólitísku stöðu í Evrópu en á
endanum varð köld skynsemi til-
finningaseminni yfirsterkari. Ráða-
menn í Washington mátu það ein-
faldlega sem svo að hið nýja banda-
lag Rússlands og Bandaríkjanna
væri mikilvægara en svo að fórna
bæri því vegna landvinningahernað-
ar Serba í Bosníu. Mótsögnin er á
hinn bóginn fólgin í því að þessi
viðbrögð munu aftur kalla á að enn
frekar reyni á þetta samband, sem
sagt er að grundvallað sé á virðingu
fyrir lýðræði og mannréttindum.
Fráleitt er að ætla annað en að fleiri
slík svæðisbundin átök blossi upp á
næstu árum. Og hvernig ætla lýð-
ræðisríkin að móta afdráttarlausa
og sannfærandi stefnu gagnvart
útþensluhugmyndum öfgafullra
þjóðernissinna fari svo að lýðræðið
reynist ekki langvinnt í Rússlandi?
Bill Clinton er tæpast niðursokk-
inn í slíkan „geo-pólítískan“ þanka-
gang nú um stundir. Hann þarf að
bjarga andlitinu á heimavelli. Verk-
efni hans á næstunni verður að
sannfæra þingheim um ágæti þeirra
tillagna sem tryggðu sigur hans í
kosningunum og ná samkomulagi
um útfærslu þeirra með tilheyrandi
hrossakaupum. Þingheimur mun
hins vegar gerast enn tregari í
taumi takist forsetanum ekki að
öðlast traust á ný og koma fram
sem ábyrgur, raunsær og röggsam-
ur leiðtogi. Samþykktin í fulltrúa-
deildinni á fímmtudagskvöldið mun
vafalaust verða Bill Clinton forseta
mikil hvatning en ekki má mikið
út af bregða til þess að öll hug-
myndafræði hans og áætlanirnar
stórbrotnu hrynji til grunna.
í viðtali eftir ósigurinn í Arkans-
as 1980 sagði Clinton m.a. „Ég tel
að ef til vill hafí menn fengið af
mér þá mynd að ég vildi fást við
of mörg mál á sama tíma.“ Bill
Clinton fékk tækifæri til að bæta
fyrir þessi mistök í Arkansas en
því er ekki fyrir að fara þegar um
er að ræða embætti forseta Banda-
ríkjanna.
BMW 3 LINAN
Fullkominn fiölskyldubíll
TEKUR
ÖÐRUM FRAM
Á ÖLLUM
SVIÐUM
M
AS
6982
VerÖ á BMW-3 línunni er frá kr. 1.969.000,- (Bíll á mynd er búinn ýmsum aukabúnaöi sem fáanlegur er í 3-línunni).
BMW ráöleggur: Akiö varlega.
Framleiðendur BMW hafa lagt mikla áherslu á rannsóknir og þróunarvinnu
með hliösjón af hámarks öryggi og fullkomnustu tækni og hönnun á hverjum tíma.
Með þessum áherslum og hugviti færustu sérfræðinga hefur með BMW-3 linunni
tekist að framleiða fólksbíla sem marka brautir sem aðrir framleiðendur fylgja.
Árangur í bílaframleiðslu felst í því aö framleiða gæðabíla sem stööugt
vinna á og verða vinsælli með árunum. Raunveruleg gæði felast í lágri bilanatíðni,
hámarks öryggi og þægilegum og ánægjulegum akstri við öll skilyrði.
Bílar í BMW-3 línunni eru meðal annars búnir glæsilegri innréttingu, kraftmiklum
vélum, samlæsingu með þjófavörn, lituðu gleri, rafdrifnum útisþeglum, þjónustutölvu,
hraðatengdu aflstýri, hæðarstillanlegum framljósum, 6 hátalara BMW
hljómkerfi og Blaupunkt útvarpstæki með þjófavörn. Hægt er að velja
um mikið úrval af öðrum búnaöi.
Söludeildin er opin alla virka daga Bíl3UÍTlbOðÍð hf
kl. 8-18 Og á laugardögum kl. 13-17. Krókhálsi1,Reykjavík, sími 686633
Engum
líkur