Morgunblaðið - 30.05.1993, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.05.1993, Qupperneq 16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. MAI 1993 Isattvíð iiiiilm‘i'1 m> ognattunma Texti og myndir: Valdimar Kristinsson „UPPHAFLEGA stóð til að gera gamla bæinn á Leirubakka upp, en þar hafði verið rekin ferðaþjónusta um ára- bil sem við ætluðum að halda áfram með. En þegar til átti að taka reyndist það ekki ger- legt. Því var ekki um annað að ræða en að leggja út í byggingar- framkvæmdirsegir framkvæmdamaðurinn Sveinn R. Eyjólfsson, en hann og Auður Eyd- al eiginkona hans hafa byggt upp áhugaverða gistiþjónustu að Leiru- bakka í Landsveit, sem líklega á ekki sína líka hérlendis. au Sveinn og Auður keyptu jörðina fyrir fjórum árum og gerðu upphaflegar áætlanir ráð fyrir að þarna yrði griðastaður fyrir fjölskylduna og hestana, auk þess sem staðurinn var tilvalinn til að veita útrás þeirri athafnaþrá sem þeim hjónum er í blóð borin. Skemmst er frá því að segja að allt fór þetta öðruvísi en ætlað var. A Leirubakka hafði sem fyrr segir verið rekin ferðaþjónusta og þegar Sveinn og Auður tóku við jörðinni höfðu þegar borist pantan- ir um gistingu fyrir komandi sumar svo að ekki var um annað að ræða en að halda starfseminni áfram. Af þessu leiddi að Sveinn og Auður voru óbeint komin í rekstur ferða- þjónustu. „Á bænum voru tvö íbúðarhús, gamli bærinn þar sem ferðamenn höfðu gist og tiltölulega nýtt hús, svo við ákváðum að gera gamla bæinn upp og byggja við hann, en þegar til átti að taka reyndist það ekki gerlegt þannig að ákvörðun var tekin um að byggja nýtt hús, sem upphaflega átti ekki að verða stórt,“ segir Sveinn. í upphafi skyldi endirinn skoða „Þegar hér var komið sögu fór- um við Auður að liggja yfir þessu og upphaflega var hugmyndin að geta tekið á móti stórum hópi hestamanna, svona um 20 manns. Við nánari umhugsun komumst við Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Með úrvals aðstöðu og óþrjótandi starfsorku eru þau tilbúin í slaginn sumar. Frá vinstri: Gísli og Ásta Begga staðarhaldarar og eigendurnir Auður og Sveinn. að þeirri niðurstöðu að ekki væri skynsamlegt að einskorða sig við hestamenn og í framhaldi af því kom sú hugmynd að sérhanna kjall- arann með þarfír hestamanna og annarra útivistarhópa í huga. Allt- af stóð til að hafa ábúendur á jörð- inni sem myndu sjá um ferðaþjón- ustuna og ætluðum við nýja íbúðar- húsið fyrir þá, en þar með vantaði aðstöðu fyrir okkur eigenduma. Þriðja hæðin er reyndar að hálfu okkar prívat og að hálfu gistiher- bergi,“ segir Sveinn. Gott samband við málarann Þrílyft glæsilegt timburhús sem einna helst mætti líkja við svissn- eskt fjallahótel setur því mikinn svip á sveitina. Byggingarsaga hússins er afar merkileg. Enginn arkitekt kom þar við sögu, því Sveinn og Auður hönnuðu húsið í samvinnu við Karl Jónsson húsa- smíðameistara, sem er með gamla prófið og má því teikna hús. „í upphafi rissuðum við upp grunn- hugmyndir sem voru skýrðar í morgunkaffmu á laugardags- morgnum og Karl fór með heim til sín á brettið, eins og hann kallaði það. Kom hann svo aftur daginn eftir og spurði: „Var það ekki svona sem þið vilduð hafa þetta“ og þar með fór hann austur og smíðaði eftir því sem við lögðum fyrir og hann hafði teiknað. Þannig gekk þetta viku eftir viku. Húsið var svo til, allt byggt á staðnum og segir Auður að margir byggingarþætt- Fjárhúsunum gömlu sem eru í góðri fjarlægð frá gistihúsinu vill Sveinn breyta í söngstofu fyrir nátthrafna þar sem komið verður upp langborðum og jafnvel langeldi. imir hafi nánast verið leiknir af fmgrurn fram. Herbergin eru hvert með sínum lit og var litblærinn oft á tíðum ákveðinn í gegnum síma. „Það var mjög gott samband milli mín og málarans þannig að við gátum vel rætt þetta símleiðis og það brást ekki að þegar ég kom austur og sá litinn sem hann hafði blandað samkvæmt minni forskrift var það nákvæmlega það sem ég hafði hugsað mér,“ segir hún til frekari skýringar. Húsið er byggt úr timbri og því þurftu brunavarnir að vera í góðu lagi og segir Sveinn að þar hafi verið farið nákvæmlega eftir því sem krafist var í einu og öllu. Brunastigar á báðum göflum, slökkvitæki og brunaslöngur víða um húsið og sjálflokandi eldvarnar- hurðir, svo eitthvað sé nefnt. Verk- ið lofar meistarann segir máltækið og á það sannarlega við um gisti- húsið á Leirubakka. Veggir, loft og gólf í matsal og setustofu er klætt með furu og húsgögnin úr furu. Gluggar á efstu hæðinni setja mikinn svip á herbergin og útsýnið hreint frábært, sama í hvaða átt er litið. Eldhúsið uppfyllir allar kröfur veitingahúss. Sveinn segir: „Hér vilja þeir fá vask, ég reyndar Heimsókn til athafnahjónanna Sveins R. Eyjólfsson- ar og Auðar Eydal, sem hafa byggt upp glæsilega ferðaþjón- ustu að Leirubakka í Landsveit, í næsta nógrenni Heklu skil ekki af hveiju, en þeir skulu samt fá vask hér.“ Húsið sameinar sjarma fjalla- skálans og þægindi byggðanna, enda segir Sveinn að það hafi ver- ið grundvallarhugmyndin þegar ráðist var í framkvæmdirnar. Ut- andyra eru tveir hitanuddpottar og sagði Sveinn ekki annað hægt en bjóða upp á slíkt og nefndi sem dæmi hversu notalegt það væri fyrir hestamenn sem verið hafa á ferð daglangt að geta látið líða úr sér í heitum potti. Hann tók reynd- ar fram að það færi óheyrileg orka í að hita vatn í pottana, en það stæði allt til bóta. „Uppi í Stóra- Klofa er borhola sem ég hyggst fá aðgang að, en þetta eru um þrír og hálfur kílómetri og óhemju dýrt, en ég held að það borgi sig,“ segir framkvæmdamaðurinn geislandi af athafnaþrá og einnig minnist hann á gamla vatnsaflsvirkjun á Leiru- bakka sem athugandi væri að koma í gagnið aftur. Söngstofa og reiðskemma V H Mikið hefur verið framkvæmt á Leirubakka síðastliðin tvö ár, en eftir að hafa gengið með þeim hjón- um um gistihúsið og næsta ná- grenni má á þeim heyra að þau séu rétt að byija. Skammt sunnan við gistihúsið eru gömul fjárhús þar sem hugmyndin er að koma upp aðstöðu fyrir þá sem vilja sitja fram eftir nóttu að spjalli og jafnvel söng án þess að raska ró þeirra sem vilja ganga snemma til náða. Það er vel þekkt að óskir margra íslend-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.