Morgunblaðið - 30.05.1993, Qupperneq 45
MPRGUNBLAQIÐ ÍÞBQ^¥frðfHWAqiJg
Æ
HVATNIISIG
Hávaði á hand-
LA PRJMAVERA
R I S T O R A N-T E
<r
bohaleikjum yfir
sársaukamörkum
Það er ekki hægt að fá sigg gegn hávaða, segir
Gylfi Baldursson hjá Heymar- og talmeinastöð Islands
SAMKVÆMT mælingum
Morgunblaðsins getur verið
hættulegt að fylgjast með
handboltaleikjum. Hávaða-
mælingar í nokkrum íþrótta-
húsum á leikjum í úrslita:
keppni 1. deildar karla á ís-
landsmótinu, sýndu að hávaði
á spennandi leik getur farið
yfir það sem talið er sársauka-
mörk, sem samkvæmt skil-
greiningu heilbrigðisyfirvalda
er á milli 110 og 120 desibel
en það er sérstök mælieining
fyrir hljóðstyrk.
Mikið hefur verið rætt um
hvað stuðningsmenn hinna
ýmsu handboltaliða séu öflugir.
Til dæmis fylgir Selfossliðinu á
^^^1 alla leiki öflug
Stefán trommusveit og
Stefánsson Vestmannaeyingar
skrifar hafa hljómsveit
sem hvert verka-
lýðsfélag mætti vera hreykið af.
En hvernig styðja „hljómsveit-
irnar“ sín lið? Með ákveðnu
mynstri til að hafa áhrif á leik
andstæðingana og byggja upp sína
menn eða skapa sem mestan há-
vaða, óháð því hvað gerist inná
vellinum?
Morgunblaðið tók sig til og
mældi hávaðann á handboltaleikj-
um i 1. deild karla í vetur með
sérstökum viðurkenndum hávaða-
styrks-mæli, sem Radíóstofan var
svo vinsamlega að lána, og sýnir
desibel. Það skal tekið fram að
útreikningar á desibelum hækka
hlutfallslega þannig að munurinn
á 100 og 110 desibelum er mun
meiri en á milli 60 og 70 því kvarð-
inn er lógaritmiskur. Fræðibækur
segja að hávaðastyrkur miðað við
orku hljóðsins tvöfaldist við hver
þijú desibel. Mælirinn var einnig
stilltur þannig að hann næmi
hljóðin svipað og mannseyrað
greinir þau og ekki voru teknar
inní dæmið skyndilegar sveiflur
eins og smellir. Að sjálfsögðu var
ekki hægt að mæla á öllum leikj-
unum, heldur reynt að fá meðaltal
og taka fyrir nokkra punkta.
Yfir hættumörkum
Það má segja að meðalstyrkur
hafi verið um 90 desibel en fór
oft upp fyrir 100 þegar leið að
úrslitakeppninni. Þegar mælirinn
var settur inní miðjan hóp stuðn-
ingsmanna í úrslitakeppninni fór
styrkurinn uppí allt að 120, sem
er talið aðeins yfir hættu- og sárs-
aukamörkunum. Það vakti einnig
athygli að þar höfðu nokkrir
krakkar komið sér fyrir, líklega
til að fá leikinn „beint í æð“ eða
eins og einum varð að orði: „ýktan
fíling.“ Reglur Vinnueftirlits Rík-
isins segja að ekki megi vinna í
meira en 85 desibelum í samfelld-
ar 8 vinnustundir og ef unnið er
í 110 desibelum skuli nota heyrn-
arhlífar.
Selfyssingar eru þekktir fyrir
trommusveit sína sem fylgir þeim
fast eftir og styður mjög takt-
visst. í leik gegn Val í Laugardals-
höllinni voru um 114 til 116 desi-
bel þegar leikurinn var í fullum
gangi en mælirinn rauk uppí 122
desibel þegar uppáhald stuðnings-
manna Selfossliðsins, Sigurður
Sveinsson, skoraði fallegt og mik-
ilvægt mark. Haukar náðu upp í
120 desibel í miklum fagnaðarlát-
um gegn Stjörnunni og í Selja-
skóla náðu ÍR-ingar og Selfyssing-
ar sama styrk en hávaðinn í Selja-
skóla mældist alltaf mjög mikill.
Líklega spilar form hússins þar
mikið inní en stuðningsmenn láta
heldur ekki sitt eftir liggja.
Baulað í 104 desibelum
í leik ÍR og FH í úrslitakeppn-
inni voru ekki allir sáttir við suma
dóma þeirra svartklæddu. Þegar
ÍR-ingar létu álit sitt í ljós með
miklu bauli mældist það 104 desi-
bel og skoðanir Hafnfirðinga voru
settar fram af sama styrk. Sá leik-
ur fór fram í íþróttahúsinu við
Austurberg, sem er mun meiri
gímald en Seljaskóli, svo styrkur-
inn hefði líklega verið mun meiri
þar.
„Þetta er alltof mikill hávaði og
undanfarið hefur keyrt um þver-
bak,“ segir Kjartan Steinbach for-
maður dómaranefndar HSÍ og
dómari, sem oft er eftirlitsdómari.
„Það er oft á mörkunum að hægt
sé að tala saman, eða öllu heldur
kalla saman. Að vísu getur skap-
ast góð stemmning en hljómhurður
er mismunandi eftir íþróttahús-
um.“ Kjartan sagði ennfremur að
háþrýstilúðrar, svokallaðir gasl-
úðrar, hefðu verið bannaðir í fyrra
og ekkert borið á þeim nú, en
formlega hefði ekkert verið rætt
um trommumar.
Sorgleg þróun
Gylfi Baldursson heyrnarfræð-
ingur hjá Heyrnar- og talmeina-
stöð íslands telur tromrnuleikinn
sorglega þróun: „Það er eins og
ætlast sé til að menn ærist. Það
er ekki óhugsandi að af þessu
geti hlotist varanlegur skaði því
hávaðinn kemur í toppum og getur
verið hættulegur. Sérstaklega á
þetta við um sneriltrommur því frá
þeim kemur meiri hátíðnihljóð. Við
skulum hafa í huga að það er
ekki hægt að fá sigg gegn há-
vaða.“
Að sögn Gylfa hefur mikill há-
vaði mjög truflandi áhrif og hægt
er að færa gild rök með sönnunum
fyrir því að því meiri sem hávaðinn
er, því meiri hætta er á mistökum
og í handboltanum gildi það lík-
lega jafnt um dómara sem leik-
menn.
Til eru þekkt dæmi erlendis frá
um áhrif áhorfenda með hljóð-
styrk. Hafnaboltaliðið Minnesota
Twins í Bandaríkjunum leikur hei-
maleiki sína í hinni gríðarstóru
Metrodom höll þar sem hægt er
að loka fyrir himininn með hvolf-
þaki. Þegar liðið lék gegn and-
stæðingum, sem ekki voru vanir
miklum hávaða á leikjum, gerðu
stuðningsmenn Minnesotaliðsins
sitt til að skapa sem mestan há-
vaða og tókst að ná 126 desibelum.
Minnesota vann leikinn og var
ástæðan eingöngu talin sú að leik-
menn aðkomuliðsins gátu alls ekki
einbeitt sér.
Hvernig mælist havaðinn?
140—
Farþegaþota i flugtaki
Selfoss-Valur, Sigurður
Sveinsson skorar
fallegt mark (122)
SÁRSAUKAMÖRK 120'
Haukar-Stjarnan, fagnaðarlæti
og Haukar-KA við trommur
KA-manna (120)
Dansgólf á diskóteki ^ ^ «
Valur Selfoss, dynur ' ‘u
ileik (108)
FH-ÍR: Baulað á
dómara (104) inn.
Grátandí smábarn 1 '
ÍR-Selfoss (110)
Sinfóníuhljómsveit frá 1 .bekk
VíkingurFH (100)
Haukar-Víkingur (90) 90 -
íþróttaleikvangur þegar
mark er skorað
Trammuslátturí 10 metra fjarlægð
—---------- ÞvocUivél
l®ur i verjlufi'imiiðsiud yfj -
50
Kliður á vaitirigaaíað
Heilsdags skóli
Hver er reynslan? Hver er framtíðin?
Málþing 3. júní kl. 20.00 í Hinu húsinu,
Brautarholti 20 - 3. hæð
Ýmsar spurningar vakna þegar talið berst að leng-
ingu skóladagsins hjá börnunum okkar. Hvað felst
í þessari lengingu? Hvert er innihald kennslunnar?
Hver er staðan í dag? Hverju er verið að stefna að?
Hver er ávinningurinn og hver er kostnaðurinn?
Hvernig er mataræði skólabarnanna háttað? Verður
heilsdags skóli að veruleika í nánustu framtíð, t.d.
næsta vetur?
Reynt verur að leita svara við spurningum er tengj-
ast lengingu skóladagsins á málþingi Foreldrasam-
takanna fimmtudaginn 3. júní nk.
Frummælendur:
Áslaug Brynjólfsdóttir, fræðslustjóri í Reykjavík
Páll Guðmundsson, skólastjóri Mýrarhúsaskóla
Gunnhildur Arnardóttir, foreldri í Laugarnesskóla
Kári Arnórsson, skólastjóri Forssvogsskóla
Fundarstjóri:
Katrín Baldursdóttir, blaðamaður
Allir velkomnir - Aðgangur ókeypis
Foreldrasamtökin
SUMAR-MAKE-UP
Sumarið er væntanlegt svo nú
er rétti tíminn til að endur-
skoða hvemig þú snyrtir þig.
Þá notum við náttúrulegt
make-up. Lengjum augnhár
með No7 vatnsheldum mask-
ara. Kinnar glansa meö kinna-
litastiftí. Augu líta rétt út með
möttum augnskuggum í nátt-
úrulegum tónum. Varir þurfa
No7 næringarvaralití. Og fyrir
neglur er frábært að nota
Franska handsnyrtíngu.
Litið húðina með No7 Ultra
Glimmer-púðri. Það gefur
heilbrigt, perlugljáandi útlit,
eins og þú hafir verið að koma
úr sólarlandaferð (en miklu
ódýrara).
Til að fá löng, þykk augnhár,
sem smita ekki, notið No7
Long Lash Waterproof mask-
ara, einstakan maskara sem
bæði lengir augnhár og helst
vel á.
Fyrir eðlilegt, frískt sumar-
útlit notið No7 Blush Stick,
krem-kinnalit sem gefur rétta
áferð án þess að vera mattur.
Sumarlitir fyrir augu eiga
að vera náttúrulegir og mattir.
Notið No7 Aqua Shadow Duo
sem eru vatnsheldir. Berið
ljósari litinn yfir allt augna-
lokið en dekkri til að skyggja.
Mótið augabrúnir með brúna
skugganum.
N æringarvaralitir henta
best yfir sumartímann - þeir
koma í veg fyrir varaþurrk.
No7 Moisture Actíve Lip Colo-
ur drekkir vörunum í nær-
ingu. Fáanlegir í 6 litum frá
Golden Spice-sólarlitnum til
Platinum Pink-rósarlitarins.
AÐ lokum fullkomnum við
svo snyrtinguna með Franskri
handsnyrtíngu. No7 handsn-
yrtingin gæti ekki verið auð-
veldari:
1. Þrífum hendur og tökum
af naglalakk.
2. Berið á 2 umferðir af No7
Petal naglalakki einungis á
hvíta naglabogann. Látið
þorna.
3. Berið að síðustu á tvær
umferðir af No7 Colour
Lock Top Coat, glæra
yfirlakkinu.
Gleðilegt sumar með No7-snyrtívörum.
■
;i_________________________________________
Klippiö út og geymiö. 1
______________________________I