Morgunblaðið - 07.07.1993, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993
3
Hafnarstjórn í Vestmannaeyjum lækkar gjöld á sjávarútvegsfyrirtæki
Afla- og vörugjöld lækka
MEIRIHLUTI hafnarstjórnar Vestmannaeyja
ákvað á fundi hafnarstjórnar sl. mánudag að
Iækka aflagjöld og vörugjöld af sjávarafurð-
um um 10% frá 23. júlí næstkomandi. Guðjón
Hjörleifsson, bæjarstjóri, segir þetta framlag
hafnarinnar stuðla að eflingu atvinnulífsins í
Eyjum og Arnar Sigurmundsson, formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva, segist fagna þess-
ari ákvörðun hafnarsljórnar sem dragi úr
kostnaði útgerðar og fiskvinnslu.
í tillögunni, sem meirihluti hafnarstjórnar bar
fram, kemur fram að hún sé borin fram í fram-
haldi af nýgerðum kjarasamningum og bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar frá 28. maí síðast-
liðnum. í bráðabirgðalögunum komi fram að
styrkir til nýframkvæmda á vegum hafnanna
verði ekki skertir þó hafnirnar lækki gjaldskrár
sínar til að draga úr þeim gífurlegu erfiðleikum
sem útgerð og fiskvinnsla búi við um þessar
mundir. I tillögunni kemur fram að þessi lækkun
hafi í för með sér 6 milljóna króna tekjulækkun
hjá hafnarsjóði á ári en mikil hagræðing í rekstri
undanfarin ár hafi gert kleift að lækka gjöid
hafnarinnar á útgerð og fiskvinnslu. Þrír hafnar-
stjórnarmenn greiddu tillögunni atkvæði en tveir
sátu hjá við afgreiðslu hennar.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, sagði að
grunnurinn að þessari lækkun fælist í bráða-
birgðalögum ríkisstjórnarinnar, þar sem fram
kæmi að styrkir til nýframkvæmda hjá höfnunum
yrðu ekki skertir þó þær lækkuðu gjaldskrána.
„Þetta er framlag hafnarsjóðs til eflingar atvinnu-
lífsins í Eyjum. Við höfum haft þá gæ'fu til að
bera að útgerð og fiskvinnsla hér eru ekki rekin
með bæjarábyrgð heldur af einstaklingum og við
getum því stuðlað að eflingu þessara atvinnu-
greina á erfiðum tímum á þennan hátt. Það hef-
ur verið unnið að endurskipulagninu á rekstri
hafnarinnar undanfarin ár. Höfnin er mjög vel
rekin nú og þolir því þessa lækkun," sagði Guðjón.
Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fisk-
vinnslustöðva, sagðist fagna samþykkt hafnar-
stjórnar Vestmannaeyja, sem væri skref í átt til
að draga úr kostnaði hjá útgerð og fiskvinnslu.
Þá sagðist hann telja að þetta gæti leitt til sam-
keppni milli hafnanna í gjaldskrám sem væri af
hinu góða. „Samtök fiskvinnslustöðva og Land-
samband íslenskra útvegsmanna sendu öllum
hafnarstjórnum landsins bréf fyrir skömmu þar
sem farið var fram á lækkun á afla- og vörugjöld-
um. Þessi samþykkt hafnarstjórnar Vestmanna-
eyja eru fyrstu viðbrögðin sem við fáum og ég
fagna því að hafnarstjórn Vestmannaeyja skuli
fyrst hafnarstjórna á landinu hafa ákveðið lækk-
un og gengið þannig á undan með góðu fordæmi
til þátttöku í efiingu atvinnulífsins með kostnaðar-
lækkun á útgerð og vinnslu.“
Smyglmál
sent ríkis-
saksóknara
RANNSÓKNARLÖGREGLA
ríkisins hefur nú lokið rann-
sókn á meintum lögbrotum
sýslumannsins og yfirlög-
regluþjónsins á Siglufirði.
Embætti ríkissaksóknara hef-
ur fengið málið til athugunar.
Sem kunnugt er af fréttum
snérist rannsókn málsins m.a.
að meintum ólöglegum innflutn-
ingi á reiðtygjum til landsins frá
Þýskalandi.
Hallvarður Einvarðsson ríkis-
saksóknari segir að málið muni
fá eins fljóta afgreiðslu og hægt
er hjá embættinu, en vill að öðru
leyti ekki tjá sig um niðurstöður
rannsóknarinnar.
wmMBmmamaammmmammmmMtmmmammmamBmnmmmmBmmmmmmmmammmmm
Það besta í Suðaustur-Asíu:
Töírar Malaysiu og Thailands
Kuala Lumpur - Penang - Singapore - Bangkok - Jomtien- 7. okt. 23 dagar
*. :ÍSSBmmBSr. -:08 |
HVÍLÍKIR GISTISTAÐIR
AÐ HÆTTI HÖFÐINGJA:
KUALA LUMPUR
ISTANA MANDARIN,
- NÝTT 5 STJÖRNU HÓTEL
- FEGURÐ ALLT í GEGN.
PENANG
MUTLARA - PERLAN
- HEIMSFRÆGUR STAÐUR
- EITT BESTA HÓTEL HEIMSINS.
SINGAPORE
ANA í HJARTA BORGARINNAR
- NÝTT LÚXUSHÓTEL.
BANGKOK
- Á BÖKKUM FUÓTSINS - ROYAL
GARDEN RTVERSIDE - NÝJASTA
LÚXUSHÓTELIÐ - ALGJÖR DRAUMUR
OG BORGIN SEM NÝ.
JOMTIEN THAILAND
AMBASSADOR CITY - 5 STJÖRNU
HVÍLDARSTAÐUR í FERÐALOK
TIL VIÐBÓTAR CHIANG MAI - „RÓS
NORÐURSINS" DRAUMILÍKUST.
FYRIR ADEINf RÓML
10 ÞUSUND A DAG
að meðaltali að meðtöldu flugi, ferðum, lúxusgistingu,
fullum morgunverði og fararstjórn. Msundir Islendlnga
eyða meiru í ferðum sínum innan Evrópu árlega.
Hvers vegna ekki að breyta til og fara í hið
fullkomna sumarleyfi?
KUALA LUMPUB
HVAÐ HEFUR FERÐIN AÐ BJOÐA?
Hótel og þjónustu í hæsta gæðaflokki.
Lágt verðlag, vandaðan, fallegan iðnvarning,
silki, batik, skrautmuni á lægra verði en
annars staðar.
Fagran, litríkan hitabeltisgróður, gnótt
ávaxta, gómsætan mat á lágu verði.
BANGKOK
SINGAPORE
AÐRAR FERÐIR HEIMSKLUBBSINS:
TÖFRAR ÍTALÍU
- 13. ÁGÚST- 2 forfallasæti.
KÍNA - HONG KONG OG THAILAND
- 9. SEPT. - UPPPÖNTUÐ.
HNATTREISAN MIKLA
- 2. NÓV. - UPPPÖNTUÐ
ÁLIT FARÞEGA:
„Við tókum þátt í heimsreisu Ingólfs til
Malaysiu í fyrra okkur til óblandinnar
ánægju. Allt skipulag ferðarinnar var tíl
fyrirmyndar og hver dagur öðrum
ánægjulegri, enda komum við endurnærð til
baka. Þrátt fyrir ferðir víða um heiminn kom
okkur á óvart, hve þessi heimshlutí hefur
margt að bjóða. Við þökkum fyrir frábæra
ferð og þá lífsnautn sem henni fylgdi."
FERÐASKRIFSTOFAN
PR|MA"
HEIMSKLUBBUR INGOLFS
AUSTURSTRÆTI17,4. hæð 101 REYKJAVIK-SIMI 620400«FAX 626564