Morgunblaðið - 07.07.1993, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 1993
11
Draugar eru lang-
þreyttir drykkjumenn
Békmenntir
Jón Stefánsson_
Geirlaugur Magnússon: Safn-
borg. Ljóð. Mál og menning.
1992.
Fyrir rúmu ári var ég í stuttri
heimsókn á Sauðárkróki. Þetta var
að vetri til, snjóþungt og andaði
bitrum kulda að norðan. Ég var
svo heppinn að fyrsta kvöldið mitt
í bænum stóð Fjölbrautaskóli
Sauðárkróks fyrir ljóðaupplestri.
Eitt skáldanna var Geirlaugur
Magnússon, kennari í skólanum.
„Næst les Geirlaugur nokkur ljóð,“
sagði brosleitur kynnirinn. Salur-
inn þéttsetinn ungu fólki sem lært
hafði að beygja franskar sagnir
hjá skáldinu. Geirlaugur var í
stuttermabol. Hann hallaði sér upp
að púltinu, strauk snöggt yfir
ógreitt hárið, fangaði umhverfið
með augnaráðinu og byrjaði að
lesa:.
félagsvera
Daginn eftir að pabbi dó var ég miðpunktur
frímínútnanna líkt og ég hefði fengið nýtt
leikfang frá
ameríku eða farið með flugvél til akureyrar
mér fannst athyglin ljúf þó ég skammaðist
mín innst
inni þar sem einsemdin býr þvi fann ég til
snöggrar
gleði þegar pabbi vinar míns fyrir
vestan fórst í bílslysi
Geirlaugur er persónulegt skáld.
Yrkisefnin eru, eða virðast vera,
sótt í hans eigið líf, tilfinningar
og reynslu. Ljóðin hafa því mjög
sterkan og persónulegan tón og
maður finnur fyrir skáldinu við
lesturinn. Svo samvaxinn er Geir-
laugur ljóðum sínum að þegar ég
opnaði Safnborg, rúmi ári eftir
upplesturinn, reis hann á fætur í
minningunni, gekk að púltinu í
stuttennabolnum og byijaði að
lesa.
Safnborg er tíunda bók Geir-
laugs, en nítján ár eru liðin frá
útkomu fyrstu bókarinnar, Annað-
hvort — eða. Ljóð hans hafa auðvit-
að tekið miklum breytingum á
þeim tíma. Hann kom fram sem
frekar mælskt skáld sem orti
stundum pólitísk kvæði. Safnborg
er hins vegar eðlilegt framhald af
síðustu bókum, þar sem Geirlaugur
er sparari á orðin, hnitmiðaðri. En
kaldhæðnin hefur fylgt honum allt
frá fyrstu bók, nema í dag er hún
beittari og sett fram á snjallari
hátt.
í Safnborg eru 57 kvæði og öll
frekar stutt. Yrkisefnin; þau eru
skáldið sjálft, síðan veröldin og
mannskepnan — þessa heims eða
annars. Þannig er til dæmis ort
um drauga sem „ráfa milli tveggja
heima/ einsog langþreyttir
drykkjumenn/ milli bara“. Geir-
laugur muldrar „máttvana bölbæn-
ir/ í holtaþokunni“ þegar honum
verður hugsað til mannlífsins, og
verður seint talinn til bjartsýnustu
skálda þessa lands. ísmeygileg
fyndni, kaldhæðni, alvöruþungi,
gáski, einlægni og svolítil bölsýni.
011 þessi orð lýsa á sinn hátt skáld-
skap Geirlaugs. Og yfirleitt eru
hæfilegir skammtar af þeim í
hveiju ljóði; alvaran verður aldrei
FLÍSAR
fTT i i i i I i I I l .l i i
i I I I I □ qn
11L □
wznnmnw 1 \u fetf ÍJLLU ■■■■:
i ; ŒE
Stórhöi'ða 17, við GuIUnbrú,
sími 67 48 44
hátíðleg, kaldhæðnin ekki yfir-
borðsleg og fyndnin aldrei ódýr.
Þess vegna verður bölsýni hans eða
hnýfilyrði út í lífið sjaldan eða aldr-
ei þreytandi svartsýnistuð. Þrátt
fyrir óteljandi vonbrigði, svik og
myrkar stundir, þá skín væntum-
þykjan gagnvart lífinu í gegn hjá
Geirlaugi. Hranaleg væntumþykja.
Trú á lífið, trú sem hann játar á
sinn sérstaka hátt, eins og í ljóðinu
máttleysi þar sem hann talar um
að „löðrunga þessa síbrosandi/ til-
veru sem aldrei hættir að vora“.
Orðfæri Geirlaugs sveiflast milli
þess að vera skáldlegt og hryss-
ingslega hversdagslegt. Oft hefst
ljóð eða erindi á línu sem gæti
þess vegna verið ort af umbúðam-
iklu og dramatísku skáldi, en áður
en lesandinn veit af er hversdags-
leikanum í sinni óskáldlegustu
mynd skvett framan í hann:
þó rísi hver dagur af öðrum
að klæðast
gatslitnum sokkum
úða sig falsilmi
nýrri tíma fegurri sýn
Myndmálið er tilþrifamikið en um
leið óhátíðlegt. I erindi er þeim
„sem náttlangt glíma við orðið“,
líkt við vinda er „þjóta sem
ískrandi/ ökuníðingar". í öðru
kvæði bylta svefndrukknar stjörn-
ur sér „meðan vindarnir ólmast/ á
néðri hæðinni".
Geirlaugur á það til að fara full
sparlega með smáorð og tengiorð
þannig að ljóðin geta orðið svolítið
höst: „inn ryðst/ brynvarin þögnin/
krefst þjónkunar/ orða tóna/ blíðu
blúsraulandi nætur“. Og svo eru
alltaf eitt og eitt ljóð í bókum hans
sem ég næ ekki sambandi við.
Ekki veit ég hvorum má kenna um;
skáldinu eða mér:
skíma
söngvana smáfygli
gamna sér
við sakleysi skor
kvikendanna
í djúpi aupa
þinna.glitra
raf hákarlstennur
Af bókum Geirlaugs hef ég
mest haldið upp á ítrekað, frá ár-
inu 1988. í Sannstæðum, sem kom
út tveimur árum síðar, var einhver
spenningur sem fékk ekki útrás;
eins og skáldið hafi haldið aftur
af einhveiju en ekki vitað hvað það
var. í Safnborg losnar um spenn-
una og bókin er eins og beint fram-
hald af ítrekað. Hér er þó ekki um
neina framhaldseríu að ræða þar
sem ekkert kemur á óvart; Geir-
laugur hefur vaxið sem skáld. Það
hefur nýr tónn bæst við hjá hon-
um. Tónn eins og í ljóðinu félags-
vera, þar sem æskan og undur
Geirlaugur Magnússon
hennar er yrkisefnið. Safnborg er
besta og einlægasta bók Geirlaugs
til þessa og þar sem hann er í
hópi okkar bestu skálda, þá erum
við að tala um mjög sterka ljóða-
bók. Þetta eru stór orð, en ljóð á
borð við félagsvera, nýtt líf, draug-
ar, morgunverkin, nöfn, íminningu
teiknara, sweet chariot og stund-
vísi réttlæta þau. Já, ljóð eins og
stundvísi:
stundum
er þögnin aðeins fyrir lengra komna
og við nýliðarnir
tyggjum blýanta köstum strokleðrum
flissum stundarhátt
stundum
er þöpin allt sem segja skal
um þessi vísindi
að horfa í augu þér hallast að
bijósti þér snerta varir þínar
stundum
Myndlistar-
sýning í
Hólminum
Stykkishólmi.
FRU Lára Gunnarsdóttir,
myndlistarkona í Stykkis-
hólmi, hefir í júnímánuði hald-
ið sýningar á myndum sínum
sem hún hefir unnið tvö síð-
ustu árin. Sýningin hefir verið
í Norska húsinu hér, en þar
er einnig byggðasafnið tii
húsa.
A þessari sýningu voru milli 20
og 30 myndir og segir Lára að
sýningin hafí verið sér mjög upp-
örvandi og gefið sér efni og örvun
til að halda áfram að mála.
Lára stundaði nám í Myndlista-
og handíðaskóla íslands um fímm
ára skeið og lauk prófi í grafík-
deild. Hún hefir áður haldið tvær
einkasýningar í Gallery Slunkaríki
á ísafirði og einnig tekið þátt í
samsýningum í Reykjavík, á Egils-
stöðum, í Neskaupstað og Finn-
landi.
Öll verkin á sýningunni hér voru
unnin með olíukrít. Fjöldi manns
hefir sótt sýningu þessa, bæði inn-
lendir og erlendir. Margar mynd-
anna hafa selst á sýningunni.
Lára kvaðst í alla staði vera
ánægð með sýninguna, bæði góð
ummæli og þá ekki síst fyrir þann
fjölda sem sýninguna sótti.
Árni.
20-60%
20-60%
20-60%
Lœklcun d döntuvörum úr vor- og
^unuirlidtanuni.
Allar Ljerravörur á bálfvirdi.
ÚUöluvörur úr eldri l'utum jeldar nieð
50% auka aftilælti
á meðan útvalan vtendur yfir.
Opið mánudaga - föstudaga
frá kl. 10-18
Pöntunarsími 91-673718
A Blússa 3314-30 rósótt
^ áður 4.020,- nú 2.100,-
Stuttbuxur 3316-30 rósóttar
áður 2.970,- nú 1.300,-
£% Bolurl 566-30 drappl.
^ áður 3,720,- nú 1.900,-
Leggjur 1568-50 grábláar
áður 2.970,- nú 1.700,-
Jakki 7043-33 drappl. Jakkapeysa 4235-08 drappl.
áður 11.520,- nú 7.900,- áður 5.520,- nú 3.300,-
Blússa 3314-13 svört/drappl.
áður 4.020,- nú 2.100,-
Hnébuxur 7046-33 drappl.
áður 6.070,- nú 3.500,-
Bolur 4233-08 drappl.
áður 2.520,- nú 1.500,-
Pils 4241 -08 drappl.
áður 4.470,- nú 2.500,-
SVANNI
Stangarhyl 5
Pósthólf 10210 ■ 130 Reykjavík
Simi 91-67 37 18 ■ Telefax 67 37 32