Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 2

Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993 Blautt og kalt veður hefur verið á hálendinu það sem af er sumri Ottast áhrif á bókanir næsta ár ÓVENJU leiðinlegt veður á hálendinu i sumar hefur ekki einungis valdið því að hálendis- vegir hafa opnast seint heldur hafa ferðamenn lent í vandræð- um. Dæmi er um hóp í tjaldferð á hálendinu sem lenti í rigningu og roki ellefu daga af tólf daga ferðalagi. Nú er farið að bera á áhyggjum yfir því að þetta veður hafi áhrif á sölu hálendis- ferða næsta sumar en ekki hef- ur borið á afpöntunum í sumar. Um helgina snjóaði við Detti- foss og á Hveravöllum og í sam- tölum Morgunblaðsins við leið- sögumenn með hópa víðs vegar á hálendinu kom fram að ferða- mennirnir væru þreyttir á veðr- inu þótt þeir væru yfirleitt já- kvæðir. Andrea Burgherr var leiðsögu- maður 30 manna hóps sem fór fyrstur yfir Sprengisand í sumar sl. miðvikudag á leið suður. Sá hópur þurfti að gista í Nýjadal í stað þess að haida áfram og hóp- urinn eyddi næstum öllum fimmtu- deginum þar að sögn Andreu. Á þennan hóp rigndi líka ellefu af tólf dögum ferðarinnar. „Það er erfitt að vera í tjaldferð í svona veðri því tjöldin verða blaut og hitinn fór oft undir frostmark," sagði Andrea. Áhyggjur af næsta sumri Signý Guðmundsdóttir hjá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jón- Ljósmynd/Andrea Burgherr assonar hf. sagði að ekki hefðu orðið nein sérstök vandræði vegna veðursins og almennt væru farþeg- ar mjög jákvæðir. „Það háfa ekki komið afpantanir út af þessu en um hvort það hefur aftur áhrif á næsta sumar þori ég ekki að segja. Við erum nú svolítið hrædd um að það spyijist út hvað þetta er búið að vera einstaklega leiðin- legt,“ sagði Signý. Ari Halldórsson leiðsögumaður sagði að borið hefði á tvennskonar viðbrögðum í breskum hóp, sem hann var með við Dettifoss þegar byrjaði að snjóa og jörð varð al- hvít. „Annars vegar er fólk sem vill helst hafa sól og finnst þetta hryllingur og svo er fólk sem veit að það er allra veðra von og finnst þetta bara viðeigandi," sagði Ari. Ari sagði að hann hefði verið með þennan hóp í viku og sólin hefði skinið einn dag en annars hefði verið skýjað og stundum rigning og mjög lítið skyggni. Rigning og rok og kalt „Við vorum á Hvammstanga, þar váí- rok og kalt. Svo vorum við á Húsabrekku við Eyjafjörð, þar var rigning og rok, og svo vorum við í Ásbyrgi og þar var rigning og rok og kalt,“ sagði Martina Putzsch leiðsögumaður og bætti við að þýskir farþegar með henni væru ótrúlega hressir miðað við hvemig þetta hefði verið. Hóp- urinn hennar kom að Herðubreið- arlindum í gærkvöldi og sagði Martina að rútan hefði ekki kom- ist upp á bílastæðið þar og ekki yrði hægt að ganga upp að Óskju- vatni í dag eins og skipulagt hefði verið. Fyrst yfir Sprengisand HÓPUR frá Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónas- sonar hf. varð fyrstur til að fara yfir Sprengi- sand í sumar en ferðin yfir Sprengisand tók sólar-- hring lengur en áætlað var. Siyór féll á ferða- menn víðs vegar um landið um helgina. Meðal annars varð jörð alhvít við Dettifoss meðan bresk- ir ferðamenn voru að dást að honum. Minni mynd- in var tekin á Hveravöllum um helgina. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Samið við Ommeren um flutninga fyrir varnarliðið Skipafélagið ætlar í auknum mæli að sækja inn á markað fyrir almenna vöruflutninga FLUTNINGADEILD bandaríska sjóhersins hefur samið við hoilenska skipafélagið Van Ommeren um 35% flutninga fyrir varnarliðið, sem eru 1.300 gámaeiningar. Áður hafði verið samið við Eimskip um 65% flutninganna. Samningurínn felur í sér að fyrsta árið fær Van Ommeren greiddar um 270 millj- ónir íslenskra króna en rúmlega 280 milljónir fyrir flutninga seinna áríð. Tvö önnur bandarísk skipafélög buðu í flutning- ana. Samningur Eimskips við vam- arliðið hljóðar upp á 230 milljónir króna og flutningsmagnið er áætl- að 2.500 gámaeiningar. Áður hef- ur komið fram sú skýring frá Van Ommeren að bandarísku tilboðin væru hærri samanborið við hin íslensku þar sem útgerðarkostnað- ur í Bandaríkjunum væri hærri en hér á landi. í auknum mæli í almenna flutninga Skip Van Ommeren, „Stong Ice- lander“, kemur til landsins í næstu viku. Van Ommeren hóf almenna vöruflutninga samhliða vamarliðs- flutningunum á síðastliðnu ári og sagði Guðmundur Kjæmested hjá Van Ommeren flutningana hafa gengið mjög vel. „Nú era einungis þijú skipafélög á Islandi sem sigla til Bandaríkjanna þannig að sam- keppnin virðist vera að minnka. Við viljum gjaman koma í auknum mæli inn í almenna flutninga á milli íslands og Bandaríkjanna. í fyrra kom í ljós að skipið sem Samskip notuðu í flutningana fyr- ir varnarliðið var of lítið og félag- ið gat ekki annað öllum flutning- unum. Því var okkar skip nánast alltaf fullt. Nú hefur þetta breyst þar sem Eimskip er með tvö skip á þessari leið og ætti félagið að geta annað öllu flutningsmagninu. Auk þess hafa flutningar fyrir vamarliðið dregist saman um 10%,“ sagði Guðmundur Kjær- nested. Maður lést í eldsvoða ALDRAÐUR maður lést er kviknaði í húsi í Mosfellsbæ sl. sunnudagskvöld. Mikill reykur var í húsinu en eldur hafði lít- ið náð að breiðast út. Talið er að kviknað hafi í út frá frysti- kistu. Um kl. 19.20 barst Slökkviliðinu í Reykjavík tilkynning um að reyk legði frá húsi í Mosfellsbæ og fóra þrír slökkvibílar ásamt sjúkrabíl á staðinn. Mikill reykur Húsið var læst en nágranni hafði lykil að því og opnaði hann fyrir reykköfuram. Mikill reykur var í húsinu en siökkviliðsmenn fundu strax mann liggjandi við stofudyr. Var hann borinn út úr húsinu en læknir úrskurðaði manninn látinn er út var komið. Álitið er að kvikn- í dag Verkefni fyrir 30 millj. Slippstöðin Oddi smíðar fyrir Nýsjálendinga 18 Alnæmisveira___________________ Merkilegur árangur hefur náðst í tilraunum með bóluefni 21 Ólafsvíkurvakq_________________ Margt gesta og góð þátttaka 32 Leiöari Kvikmyndagerð og meðferð al- mannafjár 32 Mmm Jfí •rgtttiÞÍab tb ' SrnmrnímK g ,,'ír Sigutjón ætiar út Fasteignir ► Bflastæðahús - Rafmagns- reikningurinn lækkaður - Lagna- fréttir - Permafonníbúðirnar seljast vel íþróttir ► Sögulegt heimsmet í 10 km hlaupi - Stigamót í golfi -1. deild kvenna í knattspymu - Heims- meistarakeppnin í kappakstri Tveir fjár- hundar hlupu fyr- ir björg SÁ ATBURÐUR átti sér stað í byijun mánaðarins að tveir hreinræktaðir íslenskir fjár- hundar hlupu fram af Látra- bjargi og hröpuðu um 40 metra. Að sögn Stefaníu Sigurðardótt- ur, annars tveggja eigenda hund- anna, gerðist þetta þegar hún og eiginmaður hennar Torbjöm Andersen vom í skoðunarferð ásamt fleirum á Látrabjargi. Stefanía og Torbjöm dvelja á Patreksfirði í sumar þar sem Tor- björn starfar á heilsugæslustöðinni. „Við voram að skoða héraðið ásamt foreldrum mínum og bróður, sem komu að sunnan til að halda með okkur upp á eins árs afmæli sonar okkar. Við fórum út á Látrabjarg og hundarnir fóra út úr bílnum eins og aðrir í fjölskyldunni," segir Stef- anía. „Við töldum okkur þekkja hundana okkar mjög vel enda höf- um við ferðast með þá víða í ís- lenskri náttúru, meðal annars verið með þá á fjöllum," segir hún. Eng- in þörf var því talin vera á að binda hundana. Hurfu fyrír bjargið „Ég athugaði sérstaklega hvort hundamir væra nokkuð í bandi því okkur datt ekki í hug annað en að hafa þá lausa. Þegar þeir komu út úr bílnum voru þeir hins vegar mjög ólíkir sjálfum sér, byijuðu ekki að þefa til að átta sig á staðnum held- ur hlupu um,“ segir Stefanía. „Pabbi kallaði á Kol og hann svar- aði strax, kom til hans og horfði í augun á honum. Héla kom þá hlaup- andi og skyndilega hlupu þau af stað hlið við hlið og beint fram af bjarginu. Eitt augnablik áttuðum við okkur ekki á því sem gerst hafði. Við sáum þá aldrei detta heldur hlupu þeir og hurfu skyndilega. Maðurinn minn leit svo fram fyrir bjargið og sá þá liggja báða um 40 metrum neðar,“ segir Stefanía. „Þetta var allt mjög dularfullt og það er erfítt að lýsa þessu. Að vísu var eitthvað af lunda sem sat spakur á brúninni en það er ólíklegt að þeir hafí hlaupið fram af þess vegna. Þetta var I raun eins og athöfn. Það var eins og við ættum öll að vera þama. Eldri hundurinn tilheyrði líka foreldram mínum og öllum í þessum hópi þótti afar vænt um hundana," segir hún. Hræin hafa verið sótt og hugð- ust Stefanía og Torbjöm fara með þau að Reykhólum í gærkvöldi. Þar verða þau grafín í sumarbústaða- landi foreldra Stefaníu. r innbogi Helgason að hafi í út frá frystikistu í kjallara en lítill eldur var í húsinu. Hinn látni var nýkominn heim af sjúkrahúsi og var í göngugrind. Rannsoknarlögreglan vinnur að nánari rannsókn málsins. Maðurinn sem Iést hét Finnbogi Helgason, fæddur 7. maí 1901. Hann lætur eftir sig þijár uppkomn- ar dætur og stjúpson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.