Morgunblaðið - 13.07.1993, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
AF INNLENDUM
VETTVANGI
EFTIR BIRGI ÁRMANNSSON
Peningaleg staða borgarsjóðs Reykjavíkur hefur versnað til muna
Erfitt efnahagsástand dreg-
ur úi’ tekjum en útgjöld aukast
Borgarstjóri segir skyldu borgarinnar að draga ekki úr framkvæmdum
FJÁRHAGUR Reykjavíkurborgar hefur versnað á undan-
förnum árum. Erfiðar aðstæður í efnahagslífinu hafa leitt
til þess að tekjur hafa dregist saman en á sama tíma hafa
útgjöld í einstökum málaflokkum ýmist staðið í stað eða
aukist. Markús Örn Antonsson, borgarstjóri, segir að fjár-
hagsstaða borgarinnar sé þrátt fyrir þetta traust og í ljósi
þess hafi meirihluti sjálfstæðismanna í borgarstjórn talið
það skyldu borgarinnar, að halda uppi óbreyttu fram-
kvæmdastigi og leggja þannig sitt af mörkum í baráttunni
við atvinnuleysið. Þá hafi sjálfstæðismenn hafnað því að
bregðast við auknum útgjöldum með skattahækkunum, en
litið svo á að nokkur skuldasöfnun væri réttlætanleg með-
an á mestu erfiðleikunum stæði. Talsmenn minnihlutaflokk-
anna eru hins vegar þeirrar skoðunar að ástandið í fjármál-
um borgarinnar stafi ekki síður af lélegri fjármálastjórn
sjálfstæðismanna en almennum þrengingum í þjóðfélaginu.
Þeir segja, að áætlanir hafi hvað eftir annað brugðist, og
ástandið nú sé erfiðara en ella vegna þess að góðærið á
síðasta áratug hafi ekki verið nýtt nægilega vel til að
treysta stöðuna, heldur hafi verið farið út í afar dýrar
framkvæmdir svo sem byggingu Ráðhússins.
Samstæðureikningur
Reykjavíkurborgar 1990-1992
Miðað er við stöðu borgarsjóðs
og borgarfyrirtækja
1990 1991 1992
Veltufjárhlutfall .1,79 1,72 1,76
Peningaleg staða 2.689 m.kr 2.262 m.kr 652 m.kr
Á hvern íbúa 28,0 þús. 22,7 þús. 6,5 þús.
3.174 m.kr. Borgarsjóður Reykjavíkur
-1992 Byggt er á upplýsingum
úr ársreikningum borgar-
sjóðs framreiknuðum
ti! verðlags ársins1992
1.252,9
Peningaleg
staða
1991 1992
Skuldir sem hlutfall af 1988 1989 1990
skatttekjum 32,0% 41,0% 45,0% 49,8% 68,3%
Veltufjárhlutfall 1,85 1,39 1,16 0,90 0,86
-2.627,1
Auknar skuldir
Ýmsar leiðir eru til að átta sig
á stöðu borgarsjóðs og bera hana
saman milli ára. Þannig má til
dæmis skoða skuldir, bæði
skammtíma- og langtímaskuldir,
sem hlutfall af skatttekjum. Það
hlutfall var um 32% árið 1988
og hefur hækkað verulega síðan.
Þannig var það til dæmis 41%
1989, 45% 1990, 49,8% 1991 og
í fyrra var það orðið, samkvæmt
ársreikningi, 68,3%.
Einnig er hægt að líta á pen-
ingalega stöðu borgarsjóðs, en
hún er fundin með því að draga
heildarskuldir frá samanlögðum
veltufjármunum og langtímakr-
öfum. Árið 1988 var þessi staða
um 3.174 milljónir króna (á verð-
lagi ársins 1992 skv. breytingum
á framfærsluvísitölu), en var árið
1990 orðin um 1.253 milljónir. í
fyrra var staðan hins vegar orð-
in neikvæð um 2.627 milljónir
króna. Þess má geta að sam-
kvæmt upplýsingum frá borgar-
hagfræðingi var peningaleg
staða borgarsjóðs um síðustu
mánaðamót áætluð neikvæð um
3.100 milljónir króna.
Þriðja leiðin er að skoða veltu-
fjárhlutfall, en það er hlutfall
milli veltufjármuna og skamm-
tímalána. Það var 1,85 árið
1988, varð 1,39 1989,1,16 1990,
0,90 1991 og 0,86 árið 1992.
Mesta breytingin varð milli ár-
anna 1988 og 1989 og skýrist
hún að miklum hluta af því, að
þá var breytt uppfærslu eftir-
stöðva opinberra gjalda. Tölurn-
ar eftir það eru hins vegar sam-
bærilegar og sýna þær, svo ekki
verður um villst, erfíðari stöðu.
Hagstæðari samanburður ef
fyrirtækin eru tekin með
Myndin breytist dálítið, ef at-
hugaður er svokallaður sam-
stæðureikningur Reykjavíkur-
borgar, en þar eru dregnar sam-
an tölur úr reikningum borgar-
sjóðs og borgarfyrirtækja, sem
skila reikningum sjálfstætt.
Samkvæmt þessum reikningi var
veltufjárhlutfallið árið 1990
1,79, 1,72 árið 1991 og 1,76
árið 1992. Peningaleg staða var
2.689 milljónir króna 1990 (ekki
er tekið tillit til verðlagsbreyt-
inga), 2.262 milljónir 1991 og
652 milljónir árið 1992. Peninga-
leg staða á hvern íbúa var sam-
kvæmt samstæðureikningi 28
þúsund krónur 1990, 22,7 þús-
und 1991 og 6,5 þúsund árið
1992. Mismunurinn á samstæðu-
reikningnum og reikningum
borgarsjóðs stafar af útkomunni
hjá einstökum borgarfyrirtækj-
um.
Tekjur dragast saman
Ef leitað er skýringa á því
hvers vegna staðan hjá borgar-
sjóði hefur versnað með þessum
hætti, blasir það við að tekjur
hafa dregist saman vegna efna-
hagsörðugleika í þjóðfélaginu.
Þannig reyndust tekjur ársins
1992 vera rúmlega 700 milljón-
um króna lægri en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun. 400 millj-
ónir voru afskrifaðar vegna
gjaldþrota fyrirtækja og ein-
staklinga og 300 milljónir skil-
uðu sér ekki vegna lægri tekna
skattborgaranna. Á sama tíma
og þetta gerist hafa útgjöld til
hinna einstöku málaflokka ýmist
staðið í stað eða aukist. Einkum
er um að ræða aukin útgjöld til
ýmiss konar framkvæmda og
má sem dæmi nefna, að sam-
kvæmt fjárhagsáætlun fyrir
1993 aukast framlög til gatna-
og holræsamála um 9% frá síð-
asta ári. Þá má nefna til dæmis,
að milli áranna 1991 og 1992
hækkaði gjaldaliðurinn á rekstr-
ar- og framkvæmdayfirliti borg-
arinnar um u.þ.b. 11,5% en
skatttekjurnar jukust á sama
tíma aðeins um 7,5%.
Mismuninum milli tekna og
gjalda hefur borgin mætt með
lántöku. Þar ber hæst lán hjá
Westdeutsche Landesbank að
upphæð um 2,5 milljarðar króna.
Fyrri hluti lánsins var tekinn síð-
asta haust en síðari hlutinn í
febrúar á þessu ári. Þá má nefna
lán að upphæð um 450 milljónir
króna, sem tekið var hjá Nor-
ræna fjárfestingabankanum
vegna framkvæmda í frárennsl-
ismálum.
Minnihlutinn telur slaka
fjármálastjórn hluta
skýringarinnar
í umræðum um ársreikning
borgarsjóðs 1992 í borgarráði
og borgarstjórn kom fram, að
borgarfulltrúar minnihlutans
telja að stór hluti skýringarinnar
á hinni versn^indi stöðu borgar-
sjóðs sé slök fjármálastjórn
meirihluta sjálfstæðismanna.
Þannig eigi borgin í meiri erfið-
leikum með að mæta erfiðleikum
nú, vegna þess að góðærið á síð-
asta áratug hafi ekki verið nýtt
nægilega vel til að treysta stöð-
una. Þess í stað hafi verið ráðist
út.í fjárfrekar framkvæmdir eins
og byggingu Ráðhússins og Perl-
unnar, en kostnaður við þær
hafi farið úr böndunum.
Fulltrúar minnihlutans hafa
verið ómyrkir í máli varðandi
stöðuna, þeir hafa talað um koll-
steypu á fjárhag bsorgarsjóðs,
uggvænlega stöðu og að skulda-
söfnun nálgist hættumörk. Sig-
uijón Pétursson, Alþýðubanda-
lagi, sagði til dæmis á borgar-
stjómarfundi fýrir skömmu, að
fjármálalegt aðhald væri í algjör-
um molum og augljóst-væri að
mikilla umskipta væri þörf í fjár-
málastjórn Reykjavíkurborgar.
Núverandi meirihluti væri greini-
lega ekki þeim vanda vaxinn að
stjórna fjármálum hennar. Borg-
arfulltrúar Nýs vettvangs tóku í
sama streng í bókun á fundinum
og sögðu meðal annars að það
væri hart til þess að vita að
óábyrg fjármálastjórn sjálfstæð-
ismanna á síðasta áratug hefði
sett borgarsjóð í þá þröngu
stöðu, sem blasi nú við á sam-
dráttartímum.
Skylda okkar að draga ekki
úr framkvæmdum
Markús Örn Antonsson, borg-
arstjóri, segir 'að skýringin á
auknum skuldum borgarinnar
séu fýrst og fremst þeir erfiðleik-
ar, sem við sé að glíma í efna-
hags- og atvinnulífi þjóðarinnar
um þessar mundir. Bæði hafi
skatttekjur ekki skilað sér eins
og vænst hafi verið og atvinnu-
leysi hafi valdið auknum útgjöld-
um. Meirihluti sjálfstæðismanna
í borgarstjórn hafi hins vegar
talið, að þrátt fyrir minni tekjur
ætti borgin að halda uppi
óbreyttu framkvæmdastigi, ein-
mitt til þess að leggja sitt af
mörkum í baráttunni við at-
vinnuleysið. Til dæmis megi
nefna, að í sumar veiti borgin
samtals um 5.000 ungmennum
sumarstörf, bæði í Vinnuskólan-
um og öðrum verkefnum, svo
sem garðyrkju, malbikun og
skógrækt.
Markús segir að sjálfstæðis-
menn hafi ekki viljað hækka
skatta til að mæta hinni erfiðu
stöðu. Hins vegar teldu þeir rétt-
lætanlegt að taka lán í því skyni,
enda væri fjárhagsstaða borgar-
innar það traust, að hún þyldi
að skuldir væru auknar um hríð.
Einnig yrði að athuga, að þau
lán, sem borgin hefði tekið að
undanförnu, hefðu ekki runnið í
einhveija rekstrarhít, heldur ver-
ið varið til framkvæmda. Hann
bendir á í því sambandi, að í
skýrslu á vegum félagsmála-
ráðuneytisins um fjárhag sveit-
arfélaga frá árinu 1990 sé talað
um, að æskileg sé að sveitarfélög
veiji til framkvæmda ekki minna
en 25% af skatttekjum og hjá
Reykjavíkurborg hafi sú fram-
legð verið 43,8% á síðasta ári.
Borgarstjóri segir stöðu
borgarsjóðs í raun mjög
sterka
Borgarstjóri segir að það séu
grófar ýkjur að halda því fram,
að skuldastaða borgarinnar
nálgist hættumörk. í fyrrnefndri
skýrslu félagsmálaráðuneytisins
sé rætt um, að nettóskuldir sveit-
arfélaga eigi helst ekki að vera
hærri en 50% af nettótekjum og
hættumörkin séu á bilinu 80 til
90%. Hjá Reykjavíkurborg hafi
þetta hlutfall um síðustu áramót
verið 24,9%.
Hann segir rétt í þessu sam-
bandi að bera saman stöðu borg-
arinnar og annarra stórra sveit-
arfélaga í landinu. Þannig séu
nettóskuldir bæjarsjóðs Garða-
bæjar í hlutfalli af skatttekjum
lítið eitt minni en borgarinnar,
eða 24%. í Mosfellsbæ sé hlut-
fallið 35%, 42% á Akureyri, 49%
í Hafnarfirði, 70% á Seltjarnar-
nesi og 104% í Kópavogi. Einnig
megi bera saman eignir þessara
sveitarfélaga umfram skuldir.
Þá komi í ljós, að eignir Reykja-
víkurborgar á hvern íbúa séu 596
þúsund krónur umfram skuldir,
201 milljón á Seltjarnarnesi, 160
milljónir í Hafnarfirði, 117 millj-
ónir á Akureyri, 103 milljónir í
Mosfellsbæ, 95 milljónir í
Garðabæ og 25 milljónir í Kópa-
vogi. Borgarstjóri segir að það
sé fráleitt að tala um að fjárhag-
ur borgarinnar nálgist hættu-
mörk þegar staðan sé með þess-
um hætti.
Þung greiðslubyrði
á næstu árum
Ljóst er, að hveijar sem skýr-
ingamar á aukinni skuldasöfnun
borgarinnar eru, mun greiðslu-
byrðin verða þung á næstu árum.
Fram kemur í svari frá borgar-
hagfræðingi við fyrirspurn frá
Kristínu Á. Ólafsdóttur, borgar-
fulltrúa Nýs vettvangs, í borgar-
ráði fyrir sköftimu, að um síð-
ustu mánaðamót hefðu lang-
tímaskuldir borgarinnar verið
um 5,2 milljarðar króna. Þar kom
einnig fram, að árið 1994 þurfi
borgin, samkvæmt áætlun, að
greiða í afborganir og vexti af
langtímalánum um 730 milljónir
króna. Þessar greiðslur verða
1.050 milljónir árið 1995, 1.000
milljónir 1996, 970 milljónir
1997 og 910 milljónir 1998. Við
þetta bætast svo afborganir og
vextir af skammtímalánum, sem
voru um síðustu mánaðamót um
1.700 milljónir króna.
Borgarstjóri segir, að ekki sé
í vændum frekari lántaka erlend-
is en borgaryfirvöld eigi í viðræð-
um við Landsbanka um breytt
fyrirkomulag á innlendri lán-
töku. Þannig standi til að breyta
yfirdrætti í bankanum í annars
konar lán og hugsanlega verði
farið út í útgáfu skuldabréfa
innanlands. Þá leið hafi ýmis
önnur sveitarfélög farið og
reynslan af því virðist vera góð.