Morgunblaðið - 13.07.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
Morgunblaðið/Golli
Tvær kaldar
ÞÆR Guðrún Kristjánsdóttir og
Pat Jónsson reyna að halda á sér
hita.
Kylfingar
í kuldatíð
UM 150 kylfingar munu hafa
tekið þátt í Opna Mitsubishi-mót-
inu í golfi á Akureyri um helg-
ina. Synd væri að segja að veðr-
ið hefði leikið við kylfingana.
Þær eru ekki beint sumarlegar,
Guðrún Kristjánsdóttir og Pat Jóns-
son þar sem þær berja í sig kjark
til að halda af stað hringinn í norð-
an næðingi og þriggja stiga hita á
laugardag. En brosandi bjartsýnis-
menn segja að brátt komi sumar á
Norðurlandi.
AKuréyri
LISTASUMAR
Á AKUREYRI
■Þriðjudagur 13. júlí.
Dans- og tónlistarspuninn
Höfuðverk í Deiglunni klukk-
an 20.30. Fram koma Anna
Richardsdóttir Karl Peder-
sen ásamt höfuðskúlptúrum
eftir Brynhildi Kristinsdótt-
ur.
■Miðvikudagur 14. júlí.
I Deiglunni verður opnuð
sýning á myndlistarverkum
eldri borgara.
Ljóða- og tónlistarkvöld í
Deiglunni klukkan 20.30. Lesin
verða ljóð, sýnt myndbands-
verkið H-sagnorð eftir Hlyn
Hallsson. Klassískir tónleikar
Halldórs Más Stefánssonar
gítarleikara og Sigríðar Bald-
vinsdóttur fiðluleikara.
Slippstöðin Oddi hf. smíðar kælitækjasamstæðu fyrir Nýsjálendinga
Verkefni fyrir
30 milljónir kr.
SLIPPSTÖÐIN ODDI hf. á Akureyri hefur lokið smíði kælitækja-
samstæðu sem smíðuð er fyrir togara á Nýja Sjálandi. Samstæð-
an og annar búnaður sem Slippstöðin Oddi framleiðir fyrir Nýsjá-
lendingana er alls að verðamæti um 30 milljónir króna. Þess er
vænst að framhald geti orðið á framleiðslu kælitækja til útflutn-
ings hjá fyrirtækinu.
í gær var í Slippstöðinni Odda
hf á Akureyri unnið að því að
ganga frá í gám til útflutnings
glycol- og sjókælisamstöðu sem
framleidd hefur verið hjá fyrirtæk-
inu fyrir útgerðarfyrirtæki á Nýja
Sjálandi. Slippstöðin Oddi hreppti
þetta verkefni en tilboð í það
munu einnig hafa borist frá ýms-
um norskum, dönskum og þýskum
fyrirtækjum.
Nýjung í framleiðslu
fyrirtækisins
Elías Þorsteinsson hjá kæli-
tækjadeild Slippstöðvarinnar Odda
sagði að hér væri um að ræða
nýjung í framleiðslu fyrirtækisins,
en þessi kælilína væri byggð á
reynslu sem fengist hefði af smíði
kælitækja fyrir mjólkuriðnað.
Hann sagði ætlun fyrirtækisins
að reyna að fylgja þessu verkefni
eftir og freista þess að framleiða
og selja meira af þessum tækjum
á erlendum markaði. Þessi kælilína
ein væri að verðmæti um 15 millj-
ónir króna en ásamt ýmsum öðrum
búnaði væri það sem í þessu verk-
efni fælist upp á alls 30 milljónir.
Sjálfur sagðist Elías fara til Nýja
Sjálands til þess að koma sam-
stæðunni fyrir og setja hana af
stað. Þar um slóðir mætti vænta
þess að markaður væri nokkur
fyrir kælivörur.
Að sögn Elíasar er hér nánar
til tekið um að ræða glycol-sam-
stæðu og sjókælisamstæðu fyrir
togara, en vegna hitans á þessum
slóðum þarf að kæla sjóinn fyrir
vinnsluna, kæla íbúðir skipveija,
lestir og ísgeymslu. Auk þessarar
samstæðu yrðu tengdar ísvélar,
sem hér væru framleiddar.
Atvinnuskapandi útflutningur
Elías sagði að við framleiðslu á
þessum kælitækjum fyrir Nýsjá-
lendinga hefðu um 10 manns haft
fullt starf í heilan mánuð og fleiri
hliðstæð verkefni væru því at-
vinnuskapandi. Hann sagði að á
Nýja Sjálandi væri til dæmis ekk-
ert fyrirtæki sem sérhæfði sig í
kælitækjagerð af þessu tagi og
möguleikar væru á markaðssetn-
ingu þeirra til dæmis fyrir mjólk-
uriðnað og sláturhús auk útgerð-
ar. Slippstöðin Oddi keypti frá
Morgunblaðið/Golli
íslensk kæling til Nýja Sjálands
STARFSMENN Slippstöðvarinnar Odda leggja síðustu hönd á kæli-
tæki sem fyrirtækið hefur framleitt fyrir Nýsjálendinga. Tækin voru
sett í gám til útflutnings í gær.
útlöndum ýmis tæki sem nauðsyn-
leg væru fyrir þessa framleiðslu,
meðal annars framleiddi Alfa Lav-
al varmaskipta sérstaklega fyrir
fyrirtækið. Hér væri tekið við
þessum hlutum eins hráum og
mögulegt væri og verkefnið væri
í því fólgið að smíða samstæðurn-
ar, setja saman og ganga frá.
Kvaðst hann vongóður um að hér
væru í boði góðir möguleikar fyrir
fyrirtækið til framtíðar.
I
I
I
I
í
I
I
I
Morgunblaðið/Golli
Tryggingamiðstöðin
opnar nýja skrifstofu
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN opnaði í gær nýja skrifstofu í gamla Gránufélags-
húsinu við Strandgötu á Akureyri. Alfreð Gíslason, handboltamaðurinn kunni,
sem ásamt fleirum hefur spýtt nýju lífi í hin gömlu Gránufélagshús, veitir
nýrri skrifstofu Tryggingamiðstöðvarinnar forstöðu. Hann sagði að verið
væri að endurskipuleggja starfsemi Tryggingamiðstöðvarinnar í bænum og
liður í því væri að opna þessa umboðsskrifstofu. Fyrst um sinn mun hann
verða eini starfsmaður skrifstofunnar. Hann sagði að Tryggingamiðstöðin
væri sterk á Akureyri á sviði skipatrygginga og sjávarútvegs en hygðist
færa út kvíarnar á öðrum tryggingamarkaði á svæðinu.
Breytmgar á sundlaugimii
STARFSHÓPUR hefur að undanförnu unnið að hugmyndum um
breytingar og bætur á svæði Sundlaugar Akureyrar. Þess er vænst
að fyrstu skref verði tekin í átt til breytinga strax á þessu ári en
framkvæmdir við nýskipan svæðisins hefjist á næsta ári.
Að sögn Sigríðar Stefánsdóttur, samstarfs við höfunda tveggja af
formanns bæjaráðs, sem á sæti í tillögunum um að vinna saman að
„sundlaugarhópnum", fór fram skipulagi svæðisins með hliðsjón af
samkeppni milli nokkurra arki- tillögum þeirra. Þar er um að ræða
tektastofa um skipulag sundlaugar- teiknistofuna Form hvað húsnæði
svæðisins. Öllum tillögunum sem áhrærir og Teiknistofu Halldórs
bárust var hafnað. Sundlaugarhóp- Jóhannssonar varðandi lóð og um-
urinn ákvað hins vegar að leita hverfí.
Ut í veröld bjarta
Undirbúningur fyrir Landsmót skáta
LANDSMÓT skáta verður hald-
ið í Kjarnaskógi við Akureyri
25. júlí til 1. ágúst. Undirbún-
ingur mótsins stendur nú sem
hæst en þess er vænst að móts-
gestir verði um 1.200, þar af
250 erlendir skátar frá 16 Iönd-
um. Landsmót skáta hefur áður
verið haldið í Kjarnaskógi, fyrir
tólf árum.
Tíu manna mótsstjórn og fjöl-
margar undirbúningsnefndir hafa
unnið að Landsmóti skáta í
Kjarnaskógi en undirbúningur
hefur nú staðið í hálft annað ár.
Að sögn Ásgeirs Hreiðarssonar,
sem sér um kynningu mótsins inn-
anlands, er búist við að íslenskir
skátar á mótinu verði um
900-1000 og erlendir gestir 250
frá 16 þjóðum.
Frá Japan og Ástralíu
Þeir sem koma lengst að til að
vera meðal skáta í Kjamaskógi
eru frá Japan og Ástralíu.
Auk þeirra 1.200 mótsgesta
sem nefndir hafa verið verða rúm-
lega 100 skátar 16 ára og eldri í
starfsmannabúðum og vinna við
ýmis þjónustustörf á svæðinu. Auk
þess er búist við að fjölmennt verði
í fjölskyldubúðum og sagði Ásgeir
að ef vel tækist til mætti búast
við að heildarfjöldi þátttakenda
yrði um 2.000-2.500 manns.
Dagur við nótt
Skátar á Akureyri leggja nú
nótt við dag við að undirbúa móts-
svæðið í Kjarnaskógi, en að mörgu
þarf að hyggja þegar komið er upp
KJARNASKOGI - AKUREYRI
25.JULÍ - l.ÁGÚST 1993
Merkið
MERKI Landsmóts skáta 1993
en mótið verður að þessu sinni
haldið í Kjarnaskógi.
vikubúðum fyrir tvö þúsund
manna byggð. Tjaldbúðasvæðinu
er skipt í 8 þorp og hveiju þeirra
þarf að skapa aðstöðu. Þátttak-
endur í Landsmótinu munu ekki
sitja auðum höndum. Flokkar
skáta munu ganga að verkefnum
af ýmsu tagi frá klukkan 10 á
morgnana til klukkan 5 á daginn
og auk þess verða kvölddagskrár
öll mótskvöldin.
Kjörorð Landsmótsins er Út í
veröld bjarta. Mótsstjóri er
Tryggvi Marinósson, Hildigunnur
Svavarsdóttir er dagskrárstjóri og
Ásdís Helgadóttir tjaldbúðastjóri. L