Morgunblaðið - 13.07.1993, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmyndastofan Nærmynd.
HJÓNABAND: Gefin voru saman
í hjónaband þann 19. júní sl. í Víði-
staðakirkju af sr. Ólafi Jóhannssyn,
Anna Magnúsdóttir og Guðmundur
Jóhannsson. Heimili þeirra er á
Hagamel 30.
HJÓNABAND Gefin voru saman
í hjónaband 29. maí í Seljakirkju
af sr. Valgeiri Ástráðssyni Berglind
Pálsdóttir og Luc Leroy. Heimili
þeirra er í Frakklandi.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long
HJÓNABAND Gefin voru saman
í hjónaband 12. júní í Kópavogs-
kirkju af sr. Þorbergi Kristjánssyni
Sjöfn Sigfúsdóttir og Halldór Ei-
ríksson. Heimili þeirra er í Þver-
brekku 6, Kópavogi.
Ljósmyndastofan Nærmynd.
HJÓNABAND: Gefin voru saman
í hjónaband þann 19. júní sl. í Há-
teigskirkju af sr. Hjalta Guðmunds-
syni Kristbjörg Birgisdóttir og
Henry Ragnarsson. Heimili þeirra
er í West Palm Beach, Flórida.
Litli uppfímiingaskól-
inn tekur til starfa
SUMARSKÓLI ungra hugvits-
manna verður starfandi í Ketils-
staðaskóla í Vík í Mýrdal dagana
24.-30. júlí. Þar verður lögð
áhersla á að örva hugvit nem-
enda og aðstoða þá við að útfæra
og vinna með hugmyndir sínar.
Sú skólastefna sem hefur verið
fylgt eftir í Ketilsstaðaskóla hefur
skilað greinilegum árangri í að
styrkja hugvit og þroska nemenda,
en nemendur frá þeim skóla hafa
undanfarin tvö ár sópað að sér verð-
launum í Nýsköpunarkeppni grunn-
skólanemenda.
Á námskeiðinu verður unnið með
uppfinningar og verklegt nám, farið
í skoðunarferðir, stundaðar göngu-
ferðir og sund og haldnar kvöldvök-
ur. Leiðbeinendur eru Gísli Þor-
steinsson kennari, Paul Jóhannsson
tæknifræðingur og Bragi Einarsson
hugvitsmaður. Skólastjóri Ketils-
staðaskóla er Kolbrún Hjörleifsdótt-
ir.
HM-úrtaka
Ungn mennirnir að taka við
Liðsstjórarnir „redduðu“ þeim gömlu inn
REYNIR Aðalsteinsson laut niður með Iokuð augu og hendur
á höfði þegar komið var að því að tilkynna hver yrði sá sjö-
undi og síðasti inn í landsliðið að lokinni þriggja daga úrtöku-
keppni í Víðidalnum um helgina. Þegar svo annar tveggja liðs-
sljóranna Pétur Jökull Hákonarson formaður HÍS nefndi nafn
Reynis braust út mikill fögnuður. Reynir var nú aftur kominn
inn í liðið eftir sex ára fjarveru og greinilegt að þessum „gamla
ref“ létti mjög við þessi tíðindi og spennufall varð þegar til-
kynnt hafði verið um endanlega skipan liðsins sem keppa mun
á heimsmeistaramótinu í Hollandi í sumar.
Einar Öder Magnússon var hinn
ótvíræði sigurvegari á úrtökunni
en hann mætti með stóðhestinn
Funa frá Skálá til leiks, varð hann
stigahæstur í bæði tölti og fimm-
gangi og sjötti í gæðingaskeiði.
Kemur hann inn sem stigahæsti
keppandi í þremur greinum. Fyrir-
fram hafði verið búist við að Sigur-
bjöm Bárðarson sem keppti á
Höfða frá Húsavík myndi hreppa
þetta sæti en þeir Einar og Funi
mættu mjög sterkir til leiks. Var
þá reiknað með að Sigurbjörn
myndi komast inn fyrir árangur í
fimmgangi en eftir fyrri umferð
var hann þar í öðru sæti á eftir
Einari en í seinni umferðinni
skaust Atli Guðmundsson á Reyni
frá Hólum upp í fyrsta sætið í
fimmgangi og yfir Sigurbjörn í
samanlögðum stigum úr báðum
umferðunum í fimmgangi. Þar
með var sá sem talinn var öruggur
fyrirfram kominn út og eina vonin
að liðsstjórarnir veldu hann í liðið.
Svona geta málin þróast í harðri
keppni. Hinsvegar var Atli kominn
inn fyrir hið gullna hlið landsliðs-
ins.
I töltinu urðu úrslit einnig
óvænt því strax í fyrri umferðinni
skaust Sigurður V. Matthíasson á
Þráni frá Gunnarsholti upp í annað
sætið á eftir Einari og Funa. Sig-
urður hafði brugðið sér út á mark-
aðinn skömmu fyrir úrtökuna
keypt þennan hest af Gunnar
Dungal í Dallandi en Atli Guð-
mundsson hafði þjálfað og keppt
á þessum hesti. í seinni umferð-
inni voru þeir félagar Sigurður og
Þráinn öryggið uppmálað, héldu .
sínu sæti í töltinu og landsliðssæt-
ið þar með tryggt. Sigurður er
eini nýliðinn í liðinu en hann verð-
ur sautján ára nú í vikunni. Úrval-
ið af fjórgangshestunum var satt
best að segja ekki mikið í úrtök-
unni nú eins og oft áður og er
þetta enn ein viðvörunin til ís-
lenskra ræktunarmanna um hvort
ekki sé orðið löngu tímabært að
huga meir að þessum þætti
ræktunarinnar. Eftir fyrri umferð-
ina voru þeir jafnir og efstir Bald-
vin Ari Guðlaugsson á Nökkva frá
Þverá og Sveinn Ragnarsson á
Koli frá Vallanesi. Þótt aðeins átta
væru skráðir til leiks í upphafi j
voru aðeins fjórir sem mættu í
seinni umferðina en þá tóku þeir
af skarið Baldvin Ari og Nökkvi j
og tryggðu sér sætið með öruggrí
og góðri sýningu. Á öðrum degi
úrtökunnar tryggði Hinrik Braga- j
son sem mætti með Eitil frá Akur-
eyri í keppnina, sér sæti í 250
metra skeiðinu þegar hann skeið-
aði vegalengdina tvívegis á 23,2
sek. en ekki 22,3 eins og missagt
var í Morgunblaðinu á sunnudag.
Sigurður Matthíasson og Þráinn: Eini nýliðinn
að þessu sinni, aðeins tæplega sautján ára.
Reynir Aðalsteinsson á Skúmi nær ágætis árangri
eftir sex ára fjarveru.
I
(
(
ELFA LVI ofnarnir
eru frameiddir í
Svíþjóð með sama
gæðastaðli og útliti og
• Lágur yfirborðshiti. venjulegir vatnsofnar.
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 S 622901 og 622900
Hinrik Bragason á Eitli átti frekar náðuga daga,
var kominn með allt sitt á þurrt um hádegi ann-
an dag úrtökunnar.
Sigurbjörn Bárðarson á Höfða reyndist ekki eins
öruggur og í upphafi var talið en allt gekk þetta
þó upp hjá þeim félögum.