Morgunblaðið - 13.07.1993, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚLÍ 1993
41
Bílaumferð í kirkjugörðum
Frá Dagnýju Lilliendahl:
FYRIR stuttu fór ég að kvöldi til
með blóm í Fossvogskirkjugarð.
Gróðurinn þar er stórkostlegur og
fuglasöngurinn yndislegur. A þess-
um stað ríkir sérstök kyrrð ... og
þó. Inni í garðinum urðu á vegi
mínum margir bílar, allt frá venju-
legum fólksbílum til stórra jeppa.
Þetta skil ég ekki og fannst satt
að segja hálf óhugnanlegt að þurfa
að gæta mín á bílaumferð á þessum
stað. Við kirkjugarðinn eru mörg
bílastæði. Þar er einnig skilti sem
á stendur: „Umferð vélknúinna öku-
tækja og reiðhjóla bönnuð, nema
með leyfi.“
Ég tel sjálfsagt að látnum sé
sýnd tilhlýðileg virðing, en hún felst
ekki í akstri bifreiða um kirkjugarð-
inn. A göngu minni sá ég skógar-
þröst, liggjandi í götunni. Yfir hann
hafði greinilega verið ekið fyrir
stuttri stundu. Það var átakanleg
sjón. Ekki syngur hann framar fyr-
ir þá sem um garðinn fara.
Mig langar að biðja alla þá, sem
fara í Fossvogskirkjugarð, og ekki
eiga erfitt með að ganga, að leggja
bílum sínum í fyrmefnd stæði.
DAGNÝ LILLIENDAHL
Hjarðarhaga 26,
Reykjavík.
LEIÐRÉTTING
VELVAKANDI
ÞVÍLÍK
ÞJÓÐARSKÖMM!
EKKI veit ég um ykkur en ég á
ekki til eitt aukatekið orð eftir.
að hafa lesið grein móður í Vel-
vakanda laugardaginn 3. júlí. Ég
hélt að játun væri eitt stérkasta
vopnið til að sakfella mann fyrir
glæp, en kannski líta þessir menn
í dómskerfinu ekki á kynferðis-
legt ofbeldi sem glæp. Maður fer
að spyija sjálfan sig ýmissa
spurninga þegar maður les um
svona óhroða. Ég veit af reynslu,
að atburður þessi á eftir að fylgja
litlu súlkunni alla hennar ævi.
Hún á eftir að ásaka sjálfa sig
og ekki er á það bætandi að af-
brotamaðurinn er ekki dæmdur,
þrátt fyrir að játning hans liggi
fyrir. Þarna er verið að réttlæta
gjörðir hans. Ekki get ég trúað
því að menn sem dæma svona
hafi hjarta, tilfinningar eða sam-
visku, hvað þá heldur heilbrigðan
huga til að sinna sínu starfi. Og
hveijum er þá að treysta ef á
manni er brotið? Kannski þá sé
best að skríða inní skel og
gleyma? En þeir sem hafa reynsl-
una vita að það er ekki hægt að
gleyma, maður lærir bara að lifa
með þessu. En hvemig á litla
stúlkan að kæra það þegar henni
er refsað í staðinn fyrir afbrota-
manninn? Slíkir menn taka oft
upp fyrri iðju — þetta er sýki.
Það sér hver heilvita maður að
svona gerir enginn nema sálsjúk-
ur sé — hann hefur játað að
hafa misnotað kynferðislega 4
ára gamalt barn.
Með þessum dómi er réttar-
kerfið að bjóða hættunni heim —
ekki bara fyrir þennan tiltekna
mann heldur alla hina sálsjúku
líka.
Þvílík skömm, þvílík þjóðar-
skömm!
Kona
GÓÐ ÞJÓNUSTA
MIG langaði að þakka fyrirtæk-
inu ísleifur Jónsson, Bolholti 4,
fyrir góða þjónustu. Ég kom
þangað með sturtuhaus án þess
að hafa nokkra kvittun fyrir hon-
um en þeir létu mig samt sem
áður fá nýjan og vom mjög lið-
legir. Það er sjaldgæft nú orðið
að fólki sé treyst.
Ingunn
TAPAÐ/FUNDIÐ
Úr tapaðist
DÖMUÚR tapaðist laugardaginn
26. júní. Þetta var gyllt Karl
Lagerfeld-úr á brúnni leðuról.
Úrið er auðþekkjanlegt og eitt
af u.þ.b. fimm sem til era á land-
inum. Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 72669 eftir
klukkan 17. Fundarlaun. Lísa.
Myndavél tapaðist
í Þjórsárdal
NÝLEG Olympus-myndavél í
hulstri og með filmu í tapaðist í
Þjórsárdal helgina 2.-4. júlí sl.
Finnandi vinsamlega hringi í
síma 813242. Fundarlaun.
Ragnheiður.
GÆLUDÝR
Kettlingar
TVEIR angórablandaðir 10
vikna kettlingar og fjórir átta
vikna kettlingar fást á góð heim-
ili. Upplýsingar í síma 684647.
Síamsköttur í heimilisleit
SJÖ mánaða geldur síamshögni
óskar eftir góðu heimili. Upplýs-
ingar í síma 26844 á daginn en
650295 eftir kl. 17. Lilja.
Þorbjörg elsti
Reykvíkingurinn
Morgunblaðinu hefur borist
ábending um að Þorbjörg Gríms-
dóttir sé ekki elsti núlifandi íslend-
ingurinn eins og hermt sé í blaðinu
á föstudag. Rétt sé hins vegar að
hún sé elsti Reykvíkingurinn. Tvær
konur á sama ári og Þorbjörg eru
fæddar fyrr á árinu. Sú eldri heitir
Rannveig Jónatansdóttir og varð
104 ára í apríl. Hin heitir Valgerð-
ur Friðriksdóttir og átti 104 ára
afmæli í maí. Þorbjörg hélt upp á
þennan áfanga 8. júlí eins og sagt
er frá í blaðinu. Þess má geta að
tvær elstu konur landsins era bú-
settar á Akureyri.
I Vinningstölur laugardaginn (íVÍ) 10. júlí 1993.
'191 (20)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐAHVERN VINNINGSHAFA
1. 5al5 0 5.360.766
i 2. 4a(5Í! m 186.858
i 3. 4af5 125 7.735
! 4. 3af5 4.624 487
Heildarvinningsupphæð þessa viku: 9.140.103 kr.
M ■
'IPPLÝSINGAR:SlMSVARl91 -681511 LUKKULlNA 991002
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
■ m i i ......................................
KÆLI- OG
FBYSTISKÁPAR
Eigum fyrirliggjandi 500 I. kæli- og
frystiskápa með glerhurð og lýsingu.
Taka lítið gólfpláss.
Hentugir fyrir söluskála, verslanir,
hótel og veitingahús.
VERSLUNARTÆKNI HF.
VATNAGÖRÐUM 12, REYKJAVÍK, SÍMI: 91 - 688078, FAX: 91 - 812051
Við vorum 3 ódýrastir í
fyrra og erum það enn
og ætlum að vera það
áfram
Þrátt fyrir gengisfellingar hækkar okkar verð
ekki út júlí og ágústmánuð, ef þú ætlar að fá
myndatöku á gamla verðinu sem nú er orðið
þriggja ára þá þarft þú að panta strax.
3 ódýrastir
LjósmýndastofanMynd sími: 65 42 07
Bama og fjölskylduljósmyndir sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 4 30 20