Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 3

Morgunblaðið - 16.07.1993, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 3 # Morgunblaðið/Einar Falur Handagangur í öskjunm EFLAUST hafa margir beðið eftir sumarútsölunum í von um góð kaup enda var margt um manninn á útsölu í Hagkaupi i Kringlunni í gær og mikið sþáð og skoðað. Kópavogs- o g Hafnarfj ar ðarlög- reglan upprætir bruggverksmiðju Einn brenndist er suðuketill sprakk LÖGREGLAN í Kópavogi og Hafnarfirði upprætti bruggverksmiðju í austurhluta Kópavogs síðdegis í gær. Um er að ræða þriðju brugg- verksmiðjuna sem þessi lögregluembætti uppræta í samvinnu á síð- ustu tæpum þremur mánuðum. Einn bruggari var handtekinn en annar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að suðuketill sprakk í verksmiðjunni á miðvikudag. Hlaut sá annars og þriðja stigs bruna- sár i óhappinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi var hellt niður rúmlega 800 lítrum af gambra og tveimur lítrum af landa í verksmiðjunni. Verk- smiðjan fannst er húsleit var gerð en auk áfengisins var þarna að finna tvo suðukatla með kæli- búnaði og tók hvor þeirra 50 lítra, einnig var þarna einn 50 lítra suðuketill án kælibúnaðar, 50 kg af sykri og ýmis önnur áhöld til framleiðslu á landa. Tekinn fjórum sinnum Að sögn Gissurar Guðmundsson- ar, lögreglumanns í Hafnarfírði, er bruggarinn sem tekinn var vel þekktur hjá Hafnarfjarðarlögregl- unni enda mun þetta í fjórða skipti á sjö mánuðum sem lögreglan tekur hann fýrir bruggstarfsemi. Norðmenn vilja að landanir dóm- íníkanskra togara verði stöðvaðar Styðjum sjónar- miðin en okkur skortir heimild NORSK stjórnvöld hafa krafizt þess af Þorsteini Pálssyni, sjávarútvegs- ráðherra, að hann stöðvi landanir tveggja togara í eigu færeysks fyrir- tækis, sem skráðir eru í Dóminíkanska lýðveldinu. Togararnir, Atl- antic Margaret og Zaandam, hafa veitt þorsk á fiskverndarsvæði, sem Norðmenn hafa lýst yfir við Svalbarða, og landað afla sínum á Þórs- höfn. Sjávarútvegsráðherra segist hafa fyllsta skilning á sjónarmiðum Norðmanna, en lagaheimildir skorti til að banna landanir togaranna hér. Ráðherra segir hins vegar koma til greina að breyta lögum til þess að geta brugðizt við veiðum sem striði gegn fiskverndarstefnu Islendinga. „Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur sent mér bréf með ósk um að við beitum okkur fyrir því að þessi viðskipti fari ekki fram,“ sagði Þor- steinn Pálsson í samtali við Morgun- blaðið. „Norðmenn vísa til þess að þeir hafi reynt að halda uppi stjórn á veiðum við Svalbarða á verndar- svæði, sem þeir hafa reynt að fram- fylgja." Þorsteinn sagði að íslenzk stjórn- völd hefðu mikinn skilning á sjónar- miðum norsku stjórnarinnar. „Það er ekki í samræmi við okkar stefnu í fiskveiðimálum að veiði fari fram stjórnlaust á svæðum eins og þess- um, að menn geti flaggað út skipum Tafir í Ameríkuflugi Fyrri seink- un unnin upp TVÆR flugvélar Flugleiða fóru klukkutíma á eftir áætlun í loftið í gær. Sólveig Þorsteinsdóttir, vaktsljóri, segir ástæðuna felast í því að ekki hafi verið búið að ná upp töfum frá því fyrr í vikunni. Onnur vélin, en þær eru báðar af gerðinni Boeing 757, átti að leggja af stað til New York kl. 16.40 en fór þess í stað í loftið kl. 17.43. Hin átti að leggja upp til Baltimore kl. 16.30 en fresta varð flugtaki til 17.43. Aðrar seinkanir urðu ekki í utanlandsfluginu í gær. og stundað veiðar án eftirlits. Það er því í fullu samræmi við almenn viðhorf okkar að fram fari stjórn á veiðum eins og við Svalbarða," sagði sjávarútvegsráðherra. Lagabreytingar koma til greina Hann sagði að stjórnvöld hefðu ekki lagaheimildir til að banna land- anir hinna dóminíkönsku skipa. Sam- kvæmt lögum um landanir erlendra skipa er einungis heimilt að banna uppskipun á afla, hafi viðkomandi skip veitt úr sameiginlegum fiski- stofnum íslendinga og annarra þjóða, sem ósamið sé um. „Ég tel hins vegar að það komi vel til álita að við skoðum hvort rétt sé að setja í lög ákvæði, sem gera okkur kleift að taka á málum eins og þessu, þeg- ar um er að ræða tilvik sem lúta að því að framfylgja okkar stefnu varð- andi nýtingu auðlindarinnar," sagði Þorsteinn. Ráðherra sagði að í þessu tilliti gætu komið upp fjölmörg álitaefni, eins og þau hvort íslendingar væru aðilar að Svalbarðasamkomulaginu, en eigendur dóminíkönsku togararnir hafa byggt rétt sinn til veiðanna á því. „Ef svo er, höfum við lagaheim- ild til að ganga eftir því að íslenzk skip virði alþjóðasamninga, sem við eruin aðilar að. Að vissu leyti getum við gengið lengra gegn íslenzkum skipum en útlendum," sagði Þor- steinn. Sjá miðopnu: „Réjtarstaða Norðmanna..." Verðbreytingar v. gengislækkunarinnar Maggi Verðið Verðið hækkar blóm- var kr. er nú kr. um kálssúpa í pakka 62 68 9,6% Súpa hækk- ar um 9,6% MAGGI blómkálssúpa í pakka hefur sums staðar hækkað vegna gengisfellingarinnar. Pakki, sem áður kostaði 62 krónur kostar nú 68 krónur og er það um 9,6% hækkun. SMDAfí 885, OPIÐ flLlfl BAGA FRA KL. 10-23 im

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.