Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
11
Bryndís Halla Örn
Gylfadóttir Magnússon
Sigrún Einar
Eðvaidsdóttir Jóhannesson
Kuhmo-listahátíðin í Finnlandi
Islenskir flytjendur
með í fyrsta sinn
BRYNDÍS Halla Gylfadóttir, sellóleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir,
fiðluleikari, Einar Jóhannesson, klarínettuleikari, og Orn Magnús-
son, píanóleikari, verða fulltrúar íslands á tónlistarhátíðinni í
Kuhmo 16. júlí til 1. ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir
flyljendur taka þátt í hátíðinni og einnig hljómar íslensk tónlist
í Kuhmo í fyrsta sinn nú í ár.
Tónlistarhátíðin í Kuhmo, sem
fyrst var haldin fyrir 24 árum, er
helguð kammertónlist frá öllum
tímabilum tónlistarsögunnar. Dag-
lega verða haldnir fimm tónleikar
og hefst dagurinn í kirkjunni í
Kuhmo þar sem m.a. verða fluttir
allir kvintettar Mozarts og Boccher-
ini. Fyrstu kvöldtónleikar á hverjum
degi hefjast allir á píanótríói eftir
Haydn, en síðustu tónleikar dagsins
eru helgaðir tónlist sem samin er
eftir stríð. Rúmlega 70 hljóðfæra-
leikarar og 13 kammerhópar koma
frá Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu
til að taka þátt í hátíðinni.
Maraþontónleikar með franskri
og íslenskri tónlist verða haldnir
laugardaginn 24. júlí. íslensku
verkin sem þar verða flutt eru eftir
tónskáldin Jón Leifs, Atla Heimi
Sveinsson, Hilmar Þórðarsson, Þor-
stein Hauksson, Karólínu Eiríks-
dóttur, Jón Nordal, Þorkel Sigur-
björnsson, Áskel Másson, Þórarinn
Jónsson og Hjálmar H. Ragnarsson.
íslensku flytjendurnir taka þátt
í flutningi íslensku verkanna auk
þess sem þeir samejnast flytjendum
frá öðrum löndum í flutningi tónlist-
ar eftir, Mozart, Boccherini, Poul-
enc, Messiaen og fleiri.
Kuhmo er lítill bær í Norðaustur
Finnlandi, umlukinn vötnum og
tijám. Þær tvær vikur sem hátíðin
stendur koma þangað rúmlega
40.000 tónleikagestir.
Það er íslensk tónverkamiðstöð
sem annast hefur milligöngu um
þátttöku íslendinganna í tónlistar-
hátíðinni í Kuhmo.
Orthulf Prunner, orgelleikari.
Orgeltonleikar í
Hallgrímskir kj u
SUNNUDAGINN 18. júlí mun Orthulf Prunner, organisti við Háteigs-
kirkju í Reykjavík, leika á þriðju orgeltónleikum Hallgrímskirlqu
Sumarkvöld við orgelið og hefjast tónleikarnir kl. 20.30. Orthulf
leikur verk eftir Bach, Bruhns,
Mozart og Franck.
Organistinn þessa helgi, Orthulf
Prunner, fæddist í Vínarborg í
Austurríki árið 1951. Hann stund-
aði orgelnám hjá Peter Planyavsky,
Anton Heiller og André Isoir. Þá
er hann einnig með Ph.D. gráðu í
stærðfræði.
Frá árinu 1979 hefur Orthulf
Prunner starfað sem organisti og
kantor við Háteigskirkju í Reykja-
vík jafnframt sem hann er stofn-
andi og stjórnandi kammersveitar
Háteigskirkju. Árið 1974 vann hann
önnur verðlaun í keppni ungra org-
anista í Haslach og árið 1991 fékk
hann kennsluverðlaunin frá Amer-
ican Biographical Institute. Með
kennslu sinni hefur hann líka staðið
fyrir námskeiðum í orgelleik og
skrifað um orgelleik og orgeltónlist.
Orthulf Prunner hefur gert
Brahms, Mendelssohn Bartholdy,
margar upptökur fyrir útvarp og
sjónvarp og komið fram á fjölda
orgeltónleika bæði á íslandi og í
Evrópu og þá aðallega leikið orgel-
tónlist meistara Bachs. Um efnis-
skrá sína segir Orthulf að hún sé
einskonar ferðalag í gegnum litríkt
landslag orgeltónbókmenntanna.
Ferðin byijar og endar með Jo-
hann Sebastian Bach en á mili er
staldrað við hjá flestöllum orgel-
skólum og hefðum, þ.e.a.s. norður-
þýska orgelskólanum með Nikulaus
Bruhns og rómantísku afsprengi
hans Johannes Brahms. Þýska róm-
antíkin hefur sinn fulltrúa í Mend-
elssohn, suður-þýska orgelhefðin í
Mozart. og loks er farið yfir í franska
orgelskólann með verki César
Francks.
UMFERÐAR
RÁÐ
AFENGISVARNARAÐ