Morgunblaðið - 16.07.1993, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.07.1993, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993 Ríkisendurskoðun stað- festir haffsmunatenffslin eftir Svavar Gestsson Gagnrýnin á Hrafn Gunnlaugs- son hefur frá minni hendi aldrei snúist um kvikmyndir hans né held- ur hvort hann hafi átt rétt á því að fá fjármuni úr Kvikmyndasjóði. Gagnrýnin hefur aðeins snúist um óeðlileg hagsmunatengsl. Sú gagn- rýni er staðfest í einu og öllu í skýrslu Ríkisendurskoðunar — sem að vísu fer silkihönskum um málið í orðalagi skýrslunnar. Það þýðir ekki að hún eigi að fara öðrum handtökum um málið. Til dæmis kannast ég ekki við að hafa lagt til að stofnunin fari járngreipum um Hrafn Gunnlaugsson eins og hann heldur sjálfur. En greinilegt var af viðbrögðum hans við skýrsl- unni að hann er í senn særður og reiður yfir því að nokkur maður skuli láta sér til hugar koma að skipta sér af honum. Vissulega væri þægilegra fyrir alla hlutaðeig- andi ef unnt væri að fjalla um málið án þess að falla um persónu Hrafns í leiðinni. Því verður hér í þessari grein valinn sá kostur að ræða um manninn X. Og til glöggv- unar skal minnt á að þeir peningar sem hér um ræðir eru peningar skattgreiðenda í landinu — og reyndar víðar en í þessu landi. Ástæðan fyrir gagnrýninni á manninn X er ekki sú að menn vilji gagnrýna list hans. Hún er ekki sú að menn vilji gagnrýna framlög til menningarmála. Það er reyndar þvert á móti því sú ríkisstjórn sem maðurinn X styður ákafast hefur í raun ákveðið að afnema öll framlög til menningarmála með því að leggja virðisaukaskatt á bækur og blöð og tímarit. Þannig fær ríkis- sjóður á næsta ári í tekjur af virðis- aukaskattinum af menningu svip- aða upphæð og nemur tíu ára fram- lagi ríkisins til kvikmyndagerðar. Það er ekki sannfærandi þegar listamaður gengur fram og ber lof á slíka ríkisstjóm svo að jaðrar við dónaskap. Gagnrýnin á manninn X stafar af því að hann hafi sjálfur og með hjálp sterkra vina sinna notað sér aðstöðuna til að komast alls staðar milli stafs og hurðar. Og honum hefur tekist það; honum hefur meira að segja tekist að fá peninga úr lánasjóði Færeyja, Grænlands og íslands til þess að byggja kvik- myndaver á Laugamestanga sem er þó friðað svæði. Það er því rangt sem Morgun- blaðið segir í dag, 13. júlí, að stjóm- arandstaðan hafi borið manninum X á brýn sakir sem Ríkisendurskoð- un afsanni. Staðreyndin er sú að Ríkisendurskoðun staðfestir hags- munatengslin alls staðar. Hins veg- ar kemur fram í meðferð Rfkisend- urskoðunar að maðurinn X sé að nokkru leyti í skjóli ófullkomins FA6LEC RAÐOOF Valgerður Mattíasdóttir arkitekt veitir viðskiptavinum okkar faglega ráðgjöf við val á litum og öðrum byggingarefnum dagana fimmtudaginn ómi||i 15. |UII klukkan I 9* I O fostudaginn á milll _ ^ _ o 16. jull klukkan I O- I O iaugaidaginn á milli *■ á 1 7. júlí klukkan I " verið velkomin og nýtið ykkur ráðgjöf Valgerðar Málarinn hsL Skeifunni 8 Sími 91-813500 stjórnkerfís; en það dugir ekki til að hylja niðurstöðuna: Hagsmuna- tengslin em hrópandi í himininn alls staðar. 1. Maðurinn X er dagskrárstjóri Sjónvarpsins 1985 til 1993, þar af var hann í leyfí í fjögur ár, en engu að síður hélt hann starfinu. Á þessu tímabili greiddi ríkissjóður honum rúmlega 25 milljónir króna. Og Rík- isendurskoðun segir: „Hins vegar hljóta svo umfangsmikil viðskipti stofnunarinnar við starfsmann sinn í stjómunaraðstöðu almennt séð að orka tvímælis." 2. Maðurinn X var skipaður for- maður stjómar Menningarsjóðs út- varpsstöðva. Hann úthlutaði meðal annars peningum til Baldurs Her- mannssonar og til Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar. Hann hafði þama sterka stöðu til þess að hafa áhrif á kvikmyndagerð og þátta- gerð og staða hans þarna og hjá sjónvarpinu skapaði honum sterka stöðu gagnvart öðrum kvikmynda- gerðarmönnum og tæknimönnum á vettvangi kvikmyndagerðar. Rfkisendurskoðun segir: „Að mati Ríkisendurskoðunar var óheppilegt að skipa dagskrárstjóra Sjónvarpsins . . . sem fulltrúa menntamálaráðherra í stjóm sjóðs- ins og um leið sem formann. 3. Maðurinn X sótti fast á Nor- ræna kvikmynda- og sjónvarpssjóð- inn. Hann beitti sér fyrir því að ráðuneytisstjórinn í menntamála- ráðuneytinu skrifaði sjóðnum bréf — án þess að láta ráðherrann vita. Þetta athæfi ráðuneytisstjórans gagnrýnir Ríkisendurskoðun sér- staklega. Bendir þetta til þess að maðurinn X hafi haft sérstök tengsl við ráðuneytisstjórann í mennta- málaráðuneytinu — eða hvað? 4. Menntamálaráðuneytið keypti mynd af Hrafni Gunnlaugssyni og borgaði hana út. Það ákvað jafn- framt að kaupa tvær myndir af Hrafni eftir eitt ár. í því skyni var gefin út skuldaviðurkenning af menntamálaráðherra. Heimildin var ekki lögð fýrir alþingi til samþykkt- ar eða synjunar þegar fjárlög vom afgreidd. Það vom mistök sem menntamálaráðherra viðurkennir. Myndimar vom keyptar án samráðs við Námsgagnastofnun. Bendir það til sérstakra tengsla við mennta- málaráðherra? 5. Maðurinn X fékk 5 milljóna króna lán frá Vestnorræna lána- sjóðnum til að kanna gmndvöll að byggingu og rekstri kvikmyndavers í Reykjavík, á Laugarnestanga. Það liggur ekki fyrir að heimilað hafí verið að reisa kvikmyndaver á Laugamestanga — sem er friðlýst svæði. En hvemig stóð á því að forsætisráðherra skipti um stjóm- armenn í Vestnorræna sjóðnum svo að segja strax eftir að hann tók við starfí sem slíkur? Bendir þetta til tengsla mannsins X við forsætisráð- herra? 6. Maðurinn X fékk á umræddu tímabili 91 millj. kr. í styrki frá Kvikmyndasjóði. Fram kemur að Svavar Gestssón „Staðreyndin er sú að Ríkisendurskoðun stað- festir hagsmunatengsl- in alls staðar.“ skilyrði sjóðsins hafa seint, illa eða ekki verið uppfyllt að því er varðar greinargerðir, ijármögnun verkefn- anna eða sýningarrétt sjónvarps- stöðva á myndunum. Hann sat allan þennan tíma í stjórn Kvikmynda- sjóðs. Hann er þar tilnefndur af Samtökum kvikmyndaframleið- enda. Auðvitað hlaut ráðherra að fallast á lögbundna tilnefningu samtakanna. Annað kemur ekki til greina í lýðræðisríki en að ráðherra fylgi lögum. Og deilan hefur aldrei snúist um það að styrkirnir hafi verið háir eða lágir — deilan hefur snúist um það að í gegnum stjórnar- setuna og fleira hafí maðurinn haft óvenjuleg tengsl. Niðurstaðan er því þessi: Sami maður - er dagskrárstjóri Sjónvarps, - er í stjórn Kvikmyndasjóðs, - er formaður Menningarsjóðs út- varpsstöðva, - er í nánum tengslum við ráðu- neytisstjórann í menntamála- ráðuneytinu sem skrifar fyrir hann bréf eftir pöntun, - fær keyptar þijár myndir á sama árinu í menntamálaráðuneytinu þar sem.ráðherrann brýtur í þágu mannsins X allar venjulegar vinnureglur, - er í nánum tengslum við forsætis- ráðherra og fyrrverandi borgar- stjóra, - er í nánum tengslum við borgar- yfirvöld og lofar að byggja kvik- myndaver á Laugarnestanga í skjóli kunningsskapar. (Kannski borgarlögmaður vilji kanna mál- ið?) Quod erat demonstrandum: Hagsmunatengslin eru óvenjuleg og óeðlileg og það var þess vegna sem það var í senn fráleitt og sið- laust að gera sama mann að fram- kvæmdastjóra Sjónvarpsins eftir að útvarpsstjóri hafði vikið honum frá sem dagskrárstjóra. Menntamálanefnd alþingis mun koma saman síðar í sumar og ræða þetta mál. Þá þarf að ræða við alla viðkomandi aðila málsins. Þá verður að reyna að sameinast um reglur sem koma í veg fyrir að aðilar sem eru frekir til fjörsins eins og maður- inn X geti á nýjan leik orðið efni í sumarreyfara Ríkisendurskoðunar. Það er best fyrir alla. Sérstaklega fyrir manninn X. Höfundur er þingmaður fyrir Alþýðubandalagið í Rcykjavíkurkjördæmi og á sæti í menntamálanefnd Alþingis. mumai SKOGRÆKTARFELAG REYKJAVIKUR Fossvogsbletti 1, fyrirneðan Borgarspítalann, sími 641770. Beinn sími söludeildar 641777 Svar. Þessa helgi: Falleg broddfura í pottum, Fjöldi runna á frábæru sumarverði í nýju húsi FORMENN félaganna, Gísli Júlíusson, Helgi Steingrímsson og Ólaf- ur Jónsson, taka við lyklum úr hendi Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Sj álfstæðisfélög'in í Breiðholti kaupa húsnæði Sjálfstæðisflokkurinn hefur fm að stærð og er tilbúið undir fest kaup á husnæði a þriðju hæð tréverk, þ.e. einn salur. við Álfabakka 14a til nota fyrir félög sjálfstæðismanna í Breið- Hinn 29. júní komu stjórnir félag- holtshverfi. Húsnæði þettaer 150 anna og framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins saman til að skrifa undir kaupsamning og fengu félög- in húsnæðið þar með til umráða. Framkvæmdastjóri flokksins ávarp- aði viðstadda og óskaði félögunum til hamingju með þennan áfanga. Formaður fulltrúaráðsins í Reykja- vík óskaði félögunum einnig til hamingju. Formaður félags Skóga- og Seljahverfis þakkaði að síðustu öllum sem unnið höfðu að málinu og bað menn að þakka undirbún- ingsnefnd með lófataki. Sjálfstæðisfélögin í Breiðholts- hverfum hafa verið á hrakhólum með aðstöðu fyrir fundi og aðra nauðsynlega starfsemi og iðulega þurft að leita út fyrir hverfin til funda. Kosin hefur verið nefnd skip- uð gjaldkerum félaganna til fjáröfl- unar til að innrétta húsnæðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.