Morgunblaðið - 16.07.1993, Blaðsíða 44
E).
S).
^ LETTÖL ^
v v*
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVA
LMENNAR
MORGUNBLADID, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FOSTUDAGUR 16. JULI 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Flóðin vestanhafs hækka loðnumjölsverð
Verð hækkar um
iiðlega 5 prósent
VERÐ á loðnumjöli hefur hækkað um rúmlega 5% á dags-
markaði ytra undanfarnar tvær vikur og eftirspurn eftir
mjölinu aukist. Jón Guðlaugsson hjá Fiskafurðum hf. segir
að ástæða þessarar hækkunar séu flóðin í Mið-vesturríkjum
Bandaríkjanna en búist er við að þau eyðileggi stóran hluta
af sojabauna- og maísuppskerunni á þeim slóðum.
Verð á dagsmarkaðinum er nú
komið í 310 pund fyrir tonnið en
það fór lægst niður í 285 pund á
þessum markaði í vor. Jón segir að
verð á loðnumjöli og lýsi hafi verið
mjög lágt undanfarið ár og sé nú
eins og það var lægst fyrir 2 árum.
„Það sem gerist nú er að soja-
mjölsmarkaðurinn er í uppsveiflu
vegna flóðanna og fiskimjölið fylgir
með í þeirri sveiflu enda er það aðal-
samkeppnisafurðin,“ segir Jón. „Eft-
irspum eftir fiskimjöli hefur þó ekki
mikið tekið við sér enn enda eru
kaupendur að bíða og sjá hver fram-
vinda mála verður. Hins vegar bú-
umst við fastlega við því að verðið
fari áfram hækkandi.“
100 þúsund
farþegar í
Saudi-Arabíu
ATLANTA-flugfélagið í Mos-
fellsbæ hefur flutt um 100 þús
farþega fyrir ríkisflugfélag
Saudi-Arabíu á þremur mánuð-
um. Flogið er þrisvar á dag milli
Jedda og Kaíró með kennara og
ýmsa egypska sérfræðinga sem
eru að fara heim í frí.
Sjá 1B: „Atlanta flytur...“
Morgunblaðið/Kristinn
Reykjanesbraut malbikuð
UNNIÐ var í gærkvöldi og nótt við malbikun Reykjanesbrautar við Kúagerði að Vogaafleggjara. Gert er
ráð fyrir að verkið taki þrjár nætur og á meðan er umferð beint um Vatnsleysustrandarveg.
^hrif úrskurðar Mannréttindadómstólsins að mati lögfræðings Verslunarráðs
Skyldugreiðslur í lífeyris-
sjóði þarf að endurskoða
SKYLDUGREIÐSLUR í lífeyrissjóði þarf að endurskoða í
kjölfar úrkurðar Mannréttindadómstóls Evrópu um
skylduaðild að verkalýðsfélögum. Þetta er mat Jónasar Fr.
Jónssonar, lögfræðings Verslunarráðs íslands. Ef greið-
^5ndi í lífeyrissjóð tilheyrir starfsstétt, sem hefur sinn eigin
lífeyrissjóð, er hann skyldugur til að greiða í þann lífeyris-
sjóð og getur ekki valið um neinn annan. Ef greiðandi til-
heyrir hins vegar ekki slíkri starfsstétt getur hann valið
milli sjóða.
Fjármálaráðuneytið þarf einu
sinni til tvisvar á ári að úrskurðum
hvort ákveðinn launþegi sé skyld-
ugur að greiða í einn ákveðinn líf-
eyrissjóð að sögn Áslaugar Guð-
jónsdóttur hjá ráðuneytinu. „Úr-
skurðurinn kveður alltaf á um að
viðkomandi sé skylt að greiða í
einn ákveðinn sjóð eða þá að við-
komandi megi velja sér sjóð,“ seg-
ir Áslaug.
Skyldugreiðslur kannaðar
Jónas Fr. Jónsson hefur verið
að kanna skyldugreiðslur í lífeyris-
sjóði fyrir Verslunarráðið og segir
að lögin þurfí klárlega endurskoð-
unar við í ljósi dóms Mannréttinda-
dómstólsins. „Fyrst Mannréttinda-
dómstóllinn komst að þessari
niðurstöðu í leigubflstjóramálinu
svokallaða þá sé ég ekki rökin
fyrir því að hann ætti ekki að
gera það varðandi lífeyrissjóðina.
Svo er annað, sem menn geta velt
fyrir sér, hvernig það stenst eign-
arréttarákvæði stjórnarskrárinnar
að láta menn hugsanlega borga í
lífeyrissjóði þegar það er ljóst að
iðgjaldaframlögin muni ekki færa
þeim lífeyrisréttindi, sem svara til
andvirði framlaganna," segir
hann.
Tvær hliðar á málinu
Sigurbjörn Sigurbjörnsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri Söfn-
unarsjóðs lífeyrissjóðsréttinda,
segir að líta megi á skyldugreiðsl-
ur í einn ákveðinn sjóð frá tveimur
hliðum. Annars vegar geti verið
hætt við því að ef launþegar gætu
valið milli sjóða þá myndu lífeyris-
sjóðirnir fara að velja sér sjóðfé-
laga og þá yrðu þeir eftirsóknar-
verðastir, sem væru hraustir lík-
amlega því þeir, sem fái svokallað-
an áhættulífeyri, fái almennt
meira greitt úr sjóðunum en þeir
greiði í þá.
Á hinn bóginn segir Sigurbjörn
að sumir sjóðir séu mjög sterkir
og eigi vel fyrir skuldbindingum
sínum á meðan aðrir standi höllum
fæti. Þá mætti spyija sig þeirrar
spurningar hvers vegna sumir
launþegar þyrftu að greiða í sjóð,
sem þeir fengju minna úr en ef
þeir greiddu í einhvem annan bet-
ur stæðan.
„Mér finnst sem fólk sé farið
að velta því meira fyrir sér að
hugsanlega komi það ekki til með
að fá mikið úr lífeyrissjóði þegar
þar að kemur,“ segir Áðalheiður
Óskarsdóttir hjá Almenna lífeyris-
sjóði VÍB.
Fyrsti miðinn
ANDRl Hrólfsson markaðsfull-
trúi lýá Visa límir upp miða í
versluninni Jón og Oskar sem
sýnir að verslunin tekur nú við
debetkortum, sem kallast Visa-
Electron.
Debetkort
tilbúin í
september
GERT er ráð.fyrir að fyrstu deb-
etkortin verði tilbúin fyrir kort-
hafa í september nk. Fram að
þeim tíma munu kreditkortafyr-
irtækin vinna að samningum við
kaupmenn um að þeir taki þá
þjónustu upp. Visa ísland gerði
sinn fyrsta debetkortasamning í
gær við verslunina Jón og Óskar
á Laugavegi en fleiri samningar
eru í burðarliðnum.
Debetkort eru ekki ósvipuð ávís-
anaheftum í notkun en með þeim
geta korthafar greitt út á innstæðu
sem þeir þegar eiga í bönkum. Á
kortunum verða myndir af korthöf-
um þannig að talið er að þau eigi
eftir að verða mjög örugg og mun
öruggari greiðslumáti en ávísanir
eru nú.
Sjá miðopnu: „Fyrsti..."
Töluverðar skemmdir á bryggjunni í Vestmannaeyjum
Gámur fullur af
riski ror 1 sjoinn
FJÖRUTÍU feta gámur féll í sjóinn við bryggjuna í Vest-
mannaeyjum í gær þegar unnið var að því að flytja hann
um borð í skip til útflutnings. Óhappið atvikaðist þannig
að þegar lyftarinn var að aka eftir bryggjunni gaf hún sig
og hjólin á lyftaranum duttu í gegnum bryggjuna. Við það
hentist gámurinn framan af lyftaranum og féll í sjóinn.
Engin slys urðu á fólki en Ijónið er talið nema milljónum.
9 Bjarni Sighvatsson, starfsmaður
Samskipa í Vestmannaeyjum, segir
skýringuna á óhappinu sennilega
vera þá að vatnsleiðsla undir
bryggjugólfinu hafi opnast og hún
hafi skolað burtu efni sem átti að
halda gólfínu uppi. Við það hafi
myndast tómarúm undir bryggju-
gólfinu þar sem lyftarinn fór í gegn.
Milljónatjón
í gámnum voru 22 tonn af sjó-
frystum þorski frá Hornafirði sem
verið var að umskipa í skip sem í
dag átti að sigla til útlanda.
Nokkurt eignatjón varð og sagð-
ist Bjarni telja að um einhvetjar
milljónir væri að ræða. Svo virtist
sem gámurinn væri ónýtur, um-
pakka þyrfti fiskinum sem hefði
sloppið við skemmdir, og gera
þyrfti við lyftarann. Þar fyrir utan
hefðu komið í ljós heilmiklar
skemmdir á bryggjunni.
Sigurgeir Jónasson
Fullur af fiski
Á MYNDINNI sést hvar gámur-
inn marar í hálfu kafi við
bryggjuna í Vestmannaeyjum.
Á bryggjunni er lyftarinn með
hjólin í gegnum bryggjuna.