Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 1

Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 1
72 SIÐUR B 176. tbl. 81. árg. SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS • • Oldungadeild Bandaríkjaþings samþykkir fjárlagafrumvarp Clintons með minnsta mun Getum nú end- urvaMð amer- íska drauminn - sagði forsetinn er hann fagnaði sigri ^Washington. Reuter. ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings samþykkti fjárlagafrumvarp Bills Clintons Bandaríkjaforseta með minnsta mun í fyrrinótt. Þurfti oddaatkvæði Alberts Gore varaforseta til, þannig að at- kvæði féllu 51-50. Sólarhring áður hafði fulltrúadeildin samþykkt frumvarpið naumlega með 218 atkvæðum gegn 216. Forsetinn sagði að þessum sigri sínum loknum að lagður hefði verið horn- steinn að því að endurvekja ameríska drauminn. Þjóð sín hefði nú aftur efnahagsleg örlög sín í eigin höndurn. Aðdragandi atkvæðagreiðslunnar í öldungadeildinni var geysispenn- andi. í báðum deildum greiddi enginn repúblikani frumvarpinu atkvæði sitt en á síðustu fimmtíu árum finnast varla dæmi slíkrar andstöðu þegar um mikilvæg stjórnarfrumvörp er að ræða. Vitað var að a.m.k. sex demó- kratar úr flokki forsetans myndu leggjast gegn frumvarpinu í öld- ungadeildinni. Beittu repúblikanar málþófi og fluttu breytingartillögur við frumvarpið sem m.a. fólu í sér að afturvirkur skattur sem í því felst yrði felldur út vegna þess að hann stangaðist á við stjómarskrána. En allt kom fyrir ekki. Klukkustund fyr- ir atkvæðagreiðsluna tók Bob Kerrey þingmaður demókrata frá Nebraska til máls en allt valt á afstöðu hans. Gagniýndi hann bæði forsetann og repúblikana og sagðist svo hafa dregið of lengi að gera upp hug sinn, hann hefði höfuðverk af öllum vangaveltunum en þegar allt kæmi til alls gæti hann ekki fengið það af sér að greiða atkvæði gegn forset- anum. tækja verður hækkaður um 4,3 sent á gallon —Tekinn verður skattur af öllum launum sem rennur til Medicare-heil- brigðiskerfisins. Hingað til hafa árs- tekjur yfir 135.000 dali verið undan- þegnar. —Skattur á hagnað fyrirtækja verður hækkaður úr 34% í 35%. —Spara á 63 milljarða dala í heil- brigðiskerfinu. —Ríkið tekur beinni þátt í námslána- kerfinu en verið hefur sem á að spara 4,3 milljarða dala en á ennfremur að bæta kjör námsmanna. Reuter Atkvæði varaforsetans réð úrslitum BILL Clinton Bandaríkjaforseti og A1 Gore varaforseti fagna samþykkt fjárlagafrumvarpsins í fyrrinótt. Oddaatkvæði varaforsetans réð úrslitum í öldungadeildinni. Á næstu fimm árum verður hallinn á fjárlögum Bandaríkjanna lækkaður um 500 milljarða dala. EB takmarkar innflutning áJs frá samveldisríkjunum Hallinn minnkaður um 500 milljarða dala I ijárlögunum er stefnt að því að minnka hallann á ríkissjóði um 496 milljarða dala á fimm árum. Skattar eiga að hækka um 241 milljarð dala og útgjöld eiga að dragast saman um 255 milljarða. Meðal ráðstafana í fjárlögunum eru þessar: —Hátekjuskattur hækkar úr 31% í 36%. Þeir sem þurfa að greiðan þenn- an skatt eru einstaklingar sem hafa meira en 115.000 dali í árstekjur og hjón með meira en 140.000 dali. Skattprósentan hækkar í 39% fari tekjumar yfir 250.000 dali á ári. Skatturinn er afturvirkur frá 1. jan- úar 1993. —Skattur á eldsneyti til samgöngu- Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- bandalagsins (EB) tilkynnti í gær að innflutningur áls frá ríkjum Samveldis sjálfstæðra ríkja yrði takmarkaður við 60.000 tonn næstu fjóra mánuði. Ástæð- an væri kvartanir fyrirtækja í EB yfir stórauknum álinnflutningi frá samveld- isríkjunum. Um væri að ræða neyðar- ráðstöfun vegna þess að ekki hefði tek- ist að ná samkomulagi við rússnesk yfirvöld um takmörkun álinnflutnings til EB. í yfirlýsingu framkvæmdastjórnarinnar seg- ir að innflutningstakmörkunin nái til áls frá samveldisríkjunum beint og einnig til þess áls sem kæmi í gegnum þriðja ríki. Þar undir féllu álbirgðir sem nú eru í vöruhúsum málmmark- aðarins í London. Ef ekki næðist samkomulag á næstu mánuðum myndi framkvæmdastjórnin gera tillögur síðar til ráðherraráðs EB um hvað gera skyldi eftir nóvemberlok. Samninga- viðræður hefðu verið erfíðar m.a. vegna þess að ekki fengjust áreiðanlegar upplýsingar um framleiðslu og útflutning frá samveldisríkj- unum. Talsmaður framkvæmdastjómarinnar sagði að árið 1992 hefðu 350.000 tonn af áli frá Rússlandi verið flutt inn til EB, en voru 134.000 tonn árið 1991. Enn hærri tölur hafa verið nefndar. Áliðnaðurinn í EB krafðist þess að framkvæmdastjórnin takmarkaði innflutn- inginn við 82.000 tonn á ári. Veruleg aukning Fram kom í yfirlýsingunni að álinnflutningur frá Rússlandi og öðrum ríkjum samveldisins hefði vaxið „mjög verulega". Sir Leon Brittan, sem fer með erlend viðskiptamál í fram- kvæmdastjórninni, sagði að hann vonaðist til að ákvörðun þessi gæfi svigrúm til að finna lausn í málinu. „Það sem hefur verið að ger- ast er ekki afleiðing af eðlilegum viðskiptum. Þetta er mjög svo óeðlileg staða,“ bætti hann við. Óeðlileg verðmyndun Framkvæmdastjórnin gerði óeðiilega verð- myndun Rússaálsins að umtalsefni. Orkuverð væri tilbúningur og allt of lágt, litlar kröfur gerðar til umhverfísverndar og framleiðendur bæru ekki mikilvægan kostnað við framleiðsl- una sem keppinautar þeirra í Evrópubandalag- inu þyrftu að bera. KAUPAFÓLK Vinnumenn og vinnukonur í sveit segja frá störfum sínum og kjörum Á KAJÖKUM & KONUBÁTI b

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.