Morgunblaðið - 08.08.1993, Side 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993
ERLEIMT
INIMLENT
5% vaxta-
hækkun Is-
landsbanka
sætir ámæli
íslandsbanki hækkaði nafn-
vexti á óverðtryggðum útlánum
um 5 prósentustig fyrir síðustu
helgi, sem þýddi að meðalvextir
skuldabréfa urðu um 19,8%, sem
var 7,6 prósentustigum hærra en
hjá Landsbanka. Valur Valsson,
bankastjóri íslandsbanka, sagði
ástæðuna fyrir vaxtahækkuninni
vera verðbólgutopp vegna gengis-
fellíngarinnar í júní, og einnig
erfíðleika með að samstilla verð-
tryggð og óverðtryggð kjör og
eiifíðleika með eðlilega þróun
skammtímavaxta. Halldór Guð-
bjarnason, bankastjóri Lands-
banka, sagði íslandsbanka fara
nýjar leiðir í vaxtamálum — bank-
amir hefðu venjulega farið þá leið
að jafna verðbólgusveiflur. Jón
Sigurðsson, seðlabankastjóri,
sagði nafnvaxtahækkun íslands-
banka vera raunvaxtahækkun á
flesta mælikvarða, en búist við
skjótri lækkun er verðbólgan
lækkaði. Sighvatur Björgvinsson,
viðskiptaráðherra, sagði hækkun-
ina vera miklu meiri en hann hafí
átt von á, og gangi þvert á það
sem um væri að ræða hjá öðrum
bönkum.
Slippstöðin Oddi í
greiðslustöðvun
Slippstöðinni Odda á Akureyri
var á þriðjudag veitt greiðslu-
stöðvun til þriggja vikna hjá Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra. Fyr-
irtækið fékk inn 105 milljónir í
nýju hlutafé frá ríki og Akur-
eyrarbæ fyrir ári síðan, þegar
Slippstöðin hf. var sameinuð Odda
hf., en samkvæmt sex mánaða
uppgjöri nemur eigið fé nú 15
milljónum.
Hótelræningi náðist
Tæplega þrítugur maður náðist
á þriðjudag, eftir að hann rændi
móttöku Hótels Reykjavíkur á
mánudag. Maðurinn ógnaði
starfsstúlku, sem var ein í móttök-
ERLENT
Gengissam-
starf í hættu
MIKLAR sviptingar urðu í geng-
is- og gjaldeyrismálum Evrópu
um síðustu helgi og var ein af
ástæðunum talin vera að þýski
Bundesbankinn lækkaði vexti
mun minna á fímmtudag en búist
hafði verið við. Á föstudag féll
gengi franska frankans niður fyr-
ir það lágmark sem honum var
sett innan Gengissamstarfs Evr-
ópu, ERM. Ráðamenn Evrópu-
bandalagsins komu saman til
bráðafunda, Frakkar vildu um-
fram allt komast hjá því að fella
gengið umbúðalaust. Niðurstaðan
varð sú að ríki ERM fengu leyfi
til að láta gengið sveiflast mun
meira en áður, leyfilegt frávik
verður nú 15% á hvorn veg. Marg-
ir telja að markmið Maastricht-
samningsins séu að deyja drottni
sínum vegna þessara hræringa er
sýni að sameiginlegur gjaldmiðill
EB sé aðeins draumsýn.
Viðræður enn í hnút
Samningaviðræður deiluaðila í
Bosníu, sem hafnar eru í Genf,
ganga iila og þær væntingar sem
menn höfðu á föstudag og laugar-
dag rættust ekki. Vopnahié í
Sarajevo frá því á föstudag var
þegar brotið daginn eftir og Bos-
níu-Serbar reyna sem fyrr að ná
helstu vígjum múslima við borg-
ina. Alija Izetbegovic, Bosníu-
unni, með hnífí, og hafði hann
um 200 þúsund krónur uppúr
krafsinu. Hann játaði verknaðinn
við yfírheyrslur hjá rannsóknar-
lögreglu daginn eftir að hann
náðist. Hann hefur lítillega komið
við sögu lögreglu áður.
Sala SH í Japan eykst
Útflutningur Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna til Japan hefur
aukist um 37,5% fyrstu sex mán-
uði ársins. Heildarútflutningur
var hins vegar um 45 þúsund
tonn, sem var 12,8% aukning.
Mesta verðmætið fór á Banda-
ríkjamarkað, eða 8.500 tonn, sem
var tæpur þriðjungur af heildar-
sölu SH.
Viðræður um samdrátt í
varnarliðinu
Viðræður stóðu yfír í vikunni
milli fulltrúa íslenskra og banda-
rískra stjómvalda um aðgerðir i
málefnum vamarliðsins í Kefla-
vík. Bandaríkjamenn hafa til-
kynnt að ekki verði aðhafst án
samráðs við íslendinga, en fyrir
liggur að komið geti til niður-
skurðar í starfseminni.
Matvælaútgjöld gætu lækkað
um 40%
Samkvæmt könnun Hagfræði-
stofnunar Háskóla íslands gætu
útgjöld heimilanna til matvæla-
kaupa lækkað um 40%, miðað við
að allur stuðningur og verndarað-
gerðir stjómvalda við landbúnað-
inn yrðu felldar niður. Könnunin
miðast við gögn frá ámnum
1988-1990. Halldór Blöndal,
landbúnaðarráðherra, segir könn-
unina byggjast á úreltum tölum
og undarlegum forsendum. Til
dæmis hefur niðurgreiðsla lækkað
um 34% frá þeim tölum sem
skýrslan byggir á.
íslendingar sakaðir um
tollsvik
í frétt í danska dagblaðinu
Bersen á fímmtudag sagði að
þýsk tollayfirvöld hefðu komist
að raun um að íslenskt innflutn-
ingsfyrirtæki í Bremerhaven og
frystihús á sama stað hafí brotið
gegn ákvörðunum EB um lág-
marksverð og tollareglur. íslensk-
ir innflytjendur og söluaðilar er-
lendis sveija af sér að íslenskir
aðilar eigi hlut í slíkum viðskipta-
háttum.
forseti og múslimi, neitaði að setj-
ast aftur að samningaborðinu fyrr
en Serbar hættu árásum sínum.
Atlantshafsbandalagið ræddi um
mögulegar loftárásir á stöðvar
Serba en ákvörðun var ekki tekin.
Ósigur íhaldsflokksins
Breski íhaldsflokkuimn beið
herfílegan ósigur í aukakosning-
um í Christchurch á sunnudag.
Frambjóðandi Fijálslyndra demó-
krata sigraði með yfírburðum,
vann þingsæti sem íhaldsmenn
höfðu haldið í áratugi.
Hitinn óbreyttur?
Niðurstöður rannsókna með
gervihnöttum undanfarin 14 ár
gefa ekki til kynna að neinar
breytingar hafí orðið á hitastigi í
lofthjúp jarðar, að sögn talsmanna
bandarísku geimvísindastofnun-
arinnar, NASA. Aðrir drága nið-
urstöðurnar í efa, segja að taka
verði tillit til eldgosa á tímabilinu
er valdi kólnun vegna loftmengun-
ar.
Sprengingar í Kína
Um 70 manns fórust í Shenz-
hen í Kína, skammt frá Hong
Kong, á fímmtudag er sprenging
varð í eiturefnabirgðum verk-
smiðju. Vegna hitans kviknaði í
gasi í nágrenninu og varð þar enn
meiri sprenging. Stjómvöld í Pek-
ing báðu um aðstoð frá Hong
Kong, í fyrsta sinn frá því að
kommúnistar tóku völdin.
A Reuter
Utför Baldvins konungs
BALDVIN Belgíukonungur var borinn til grafar í gær. Margt erlendra fyrirmenna var viðstatt útförina, þ. á m.
Elísabet Englandsdrottning, Akihito Japanskeisari og Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands. Hér má sjá kistu
konungs og ættingja hans í bakgrunni, frá vinstri: Josephine Charlotte, Fabiola drottning, Albert prins, sem
tekur við krúnunni, Paola prinsessa og Filippus prins.
Buckinghamhöll verður opin almenningi í átta vikur
Einn líkir höUinni við lestar-
hótel en annar tekur and-
köf andspænis ríkidæminu
London. Reuter og The Daily Telegraph.
ÍBÚARNIR voru fjarri góðu gamni þegar Buckinghamhöll í Lundún-
um var opnuð almenningi í fyrsta sinn í gær. En blaðamenn sem
fengu að skoða höllina á föstudag sögðust skynja að almenn hrifning
og tilfinningahiti yrði það mikill að fara yrði aftur til síðasta konung-
lega brúðkaups til að finna annað eins. Viðbrögð blaðamannanna
sjálfra við því sem sjá mátti innanstokks voru þó misjöfn. Um 800
manna biðröð hafði myndast er hallardyrunum var lokið upp kl. 8.30
á laugardagsmorgun. Ekki voru þar eingöngu aðdáendur drottning-
ar heldur gerðu 20-30 lýðveldissinnar uppsteit en lögregla sagði að
um minniháttar uppákomu hefði verið að ræða og enginn hefði ver-
ið tekinn fastur.
Þótt ekki væru fleiri en hundrað
manns eða svo sem tjölduðu í St.
James Park á föstudagskvöld til að
verða fyrstir inn í dýrðina var ákaf-
inn ekki minni en þegar beðið var
eftir hertogaynjunni af Jórvík árið
1986. Colin Edwards, 52 ára gam-
all bæjarstarfsmaður, segist alltaf
taka svefnpokann með sér kvöldið
fyrir afmæli Elísabetar drottningar-
móður. Og nú þurfti hann ekki að
gera annað en færa sig yfír götuna
því afmælið var fyrr í vikunni.
„Þetta er söguleg stund og ég vil
ekki missa af henni,“ sagði hann.
„Ég hef hitt drottninguna tuttugu
og þrisvar, Díönu 45 sinnum og
drottningarmóðurina — okkar ást-
kæru drottningarmömmu eins og
ég kalla hana — 25 sinnum." Ed-
wards gerði sér grein fyrir að hann
sæi ekki neinn úr konungsfjölskyld-
unni í þetta sinn — drottningin var
í Belgíu við útför Baldvins konungs
— „en ég get ekki beðið eftir að
fá að sjá heimili þeirra“.
Opið til 1. október
Höllin verður til sýnis fram til
1. október. Búist er við átta þúsund
gestum á dag, aðgangseyrir er 8
pund (860 kr.) og á að veija tekjun-
um til viðgerða á Windsor-kastala
sem brann í fyrra. Kostnaður við
viðgerðir er áætlaður 40 milljónir
punda og er vonast til að hagnaður
af komu 400.000 gesta nægi til að
greiða 70% af þeim reikningi. Gest-
imir mega skoða átján herbergi af
sex hundruð.
Að sögn er ekki hægt að sjá
mikil merki þess í herbergjunum
átján að þar búi raunverulegt fólk.
The Daily Telegraph segir að skoð-
unarferð um höllina sé frekar fyrir
listáhugamenn og þá sem eru hrifn-
ir af íburðarmiklum innanhússarkí-
tektúr. Að sögn blaðsins sýndu
blaðamennimir 660 sem fengu að
fara inn á föstudag minjagripabúð-
inni hvað mestan áhuga en hún
hefur verið sett á fót við endann á
gönguleiðinni í gegnum höllina. Þar
er hægt að fá þerridúk á skrifborð
fyrir 25 pund, súkkulaðiöskju á 4
pund og úrval skartgripa. Var það
mál manna að framboðið væri afar
smekklegt og virðulegt, t.d. væru
þar hvorki stuttermabolir né bíl-
rúðulímmiðar.
Líkt við lestarhótel
Viðbrögð blaðamanna sem fengu
Meðalhiti í Tókýó í júlí er 22,5
gráður á selsíus en að þessu sinni
hefur hitinn verið 2,5 gráðum lægri.
Það munar þó ekki mestu um það,
heldur um úrkomuna, sem hefur
slegið öll fyrri met víða og einkum
í vesturhluta landsins. Hefur það
haft mikil áhrif á kaup á alls kyns
varningi, sem á sína mestu sölutíð
á sumrin, til dæmis bjór, ijómaís,
viftur, fatnað og ferðalög og ótal
margt annað. „Það kaupir enginn
léttan sumarfatnað í rigningatíð,"
sagði kaupmaður nokkur og starfs-
menn bjórfyrirtækjanna eru önnum
kafnir við að endurskoða fyrri áætl-
að skoða höllina á föstudag voru
misjöfn. Blaðamaður Independent
sagði að skarlatið og gyllingin
minntu helst á hótel á brautarstöð
sem mætti muna sinn fífil fegri.
Listgagnrýnandi The Daily Te-
legraph sagði að móttökusalirnir
þar sem drottningin hefur ofan af
fyrir tignum erlendum gestum væru
„skelfilegri en orð fá lýst“. Blaða-
maður Daily Mirror var öllu hrifn-
ari: „Þetta tekur öllu því fram sem
maður gat ímyndað sér — maður
tekur andköf andspænis glitrandi
ríkidæmi og auðlegð."
Búist er við að Buckinghamhöll
verði í haust einn aðalferðamanna-
staðurinn í Bretlandi. Töluvert af
útlendum ferðamönnum var í bið-
röðinni i gær. „Við erum vonsvikin
yfir því að drottningin skuli ekki
vera hérna," sagði Ed Laird, verk-
fræðingur frá Kaliforníu. „Þegar
við förum í Disneyland þá er Mikki
mús á staðnum."
anir um afkomuna.
Úrhellið að undanförnu hefur
einnig valdið miklum erfíðleikum og
töfum í byggingariðnaðinum og
lyfjafyrirtækin, sem selja alltaf mik-
ið af skordýraeitri og slíkum efnum
í sumarhitunum, sitja nú uppi með
birgðirnar næstum ósnertar. Fáir
búast við, að úr rætist með sumarið
en þeir eru þó til. „Við búumst við
góðu veðri í ágúst og mikilli sölu,“
sagði verslunareigandi í Tókýó en
japanskir veðurfræðingar eru á öðru
máli. Þeir spá aðeins fáum, góðum
dögum í þessum mánuði.
Miklir rosar og
kuldatíð í Japan
Tókýó. Rcuter.
ÓVANALEGA kalt og votviðrasamt hefur verið í Japan í
júlí og það, sem af er ágúst. Hefur tíðarfarið haft veruleg
áhrif á efnahagslífið og þótti ekki á bætandi samdráttinn,
sem nú hefur staðið í tvö ár. Litlar líkur þylga á betra veðri
á næstunni og september er alla jafna úrkomusamur hvað
sem nú verður.