Morgunblaðið - 08.08.1993, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 08.08.1993, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 VORU VSSULEGA texti Jón Stefónsson myndir Einar Falur Ingólfsson DANSGÓLFIÐ í Ýdölum er grænt íþrótta- gólf með öllum tilheyrandi línum og víta- teigshringjum. Það var hálffullt af dans- andi ungmennum klukkan hálftólf laugar- dagskvöldið 24. júlí. Ljóshærð stúlka sýndi dansfélaga sínum vönduð karatespörk á meðan Red Hot Chili Pepper snerust á segulbandi. Þrír tvítugir piltar dönsuðu kringum tómt glas. Þeir voru allir í stuttermabol. Hreyfingarnar harðar, snöggar og með- vitaðar. Klukkan var að nálgast tólf þegar einn rót- ari og síðan annar, skutust yfir sviðið. Margir hættu að dansa. Það var skrúfað niður í tónlistinni og reyk- ur lagðist yfir hljóðfærin sem voru eins og leikmunir í leiksýningu. Allir horfðu á sviðið — nema strákarnir í stuttermabolunum. Einn þeirra strauk með hægri hendi gegnum hárið, beygði sig hægt niður og tók glasið upp. Meðlimir Pláhnetunnar gengu fram á svið- ið. Söngvarinn, Stefán Hilmarsson, tók um hljóðnem- ann og sagði: Gott kvöld. Síðan fór fyrsta lagið af stað, lag sem allir virtust þekkja. Dansgólfið fylltist og breyttist í hoppandi þvögu, syngjandi: „Yfir tungl og sól,/ yfir óbyggð ból,/ yfir stiörnurnar — og mér stendur ekki á sama.“ Meira að segja strákarnir í stuttermabolunum sungu. Ballið var byrjað. „Églýg ekki“! Pláhnetan, þeir Stefán Hilmarsson, Sigurður Grön- dal, Friðrik Sturluson, Ingólfur Guðjónsson og Ingólf- ur Sigurðsson, höfðu mætt á svæðið upp úr ellefu. Þá voru rótararnir búnir að stilla öllu upp, undir áhyggjufullu augnaráði Sigtryggs húsvarðar sem þótti nóg um tilstandið. „Nennir einhver að skrölta á ball í þessu skítaveðri," spurði ég stúlkurnar í sjoppunni. „Það koma sex eða sjö hundruð manns,“ spáðu þær öruggar og töldu votviðri og norðanvind litla fyrir- stöðu á kvöldi sem þessu. Spá þeirra gekk eftir. Eftir miðnættið var dansgólf- ið eins og fólkshaf yfir að líta, allir dansandi eða hoppandi, syngjandi eða skrækjandi. Nema hópur sem stóð við svíðið og fylgdist náið með hljómsveitinni. Hópurinn samanstóð af ungum stúlkum og piltum, > þó kvenkynið væri í góðum meirihluta. Sumar létu sér nægja að horfa stíft og syngja. Aðrar sátu á svið- inu og teygðu jafnvel hendur í átt til stjarnanna. Þær allra kræfustu og villtustu príluðu upp til þeirra, döns- uðu með hendur á lofti eða tóku ímynduð gítarsóló þangað til dyraverðir í bláum skyrtum með dökk bindi hjálpuðu þeim aftur niður á gólfið. Flestir voru kátir og með fullri meðvitund milli klukkan tólf og eitt. Samræður viku fyrir ópum og fagnaðarfundum. Eða uppgjörum. „í alvöru,“ sagði dökkhærður piltur við vinkonu sína. „Ég lýg ekki.“ „Djöfuls vitleysa," svaraði hún, „ég sá þig kyssa hana á síðasta balli.“ Hann fórnaði höndum og ekki gott að sjá hvort það væri uppgjöf og um leið játning um glæp eða örvænting yfir tortryggni kvenkynsins. Síð- an hurfu þau í fjöldann og ég vissi aldrei hvort ein- hver kyssti annan. En fljótlega fóru hinir fyrstu að missa jafnvægisskynið, augnlokin sigu og þeir vissu ekki af sér fyrr en rúminu heima hjá sér morguninn , ■ PLÁHNETUNNJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.