Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 24

Morgunblaðið - 08.08.1993, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 Guðmundur Bragi Torfason — Minning Fæddur 9. apríl 1943 Dáinn 30. júlí 1993 Elsku pabbi, nú ertu farinn svo snögglega frá okkur, þú sem varst alltaf svo góður og yndislegur. Aldrei hefði manni dottið í hug að þú yrðir næstur. Hugsunin um að fá ekki að hafa þig hjá okkur er óbærileg, en sagt er að tíminn lækni öll sár, en aldrei kemur neinn . eða neitt í staðinn fyrir þig. Minn- ingamar eru margar og góðar sem gleymast aldrei, þær stundir sem við áttum með þér lifa áfram með okkur í minningunni þrátt fyrir að þú sért farinn. Okkar missir er mikill, en missir mömmu og ömmu þó enn meiri og megi góður Guð styrkja þær í sinni sorg. Við vitum að við hittumst aftur og eiga þá eftir að verða fagn- aðarfundir, en þangað til megi blessun Guðs vera með þér elsku pabbi okkar. Hvíl í friði. Björk, Sjöfn, Lísa, Torfi Birgir og Berglind. Stundum er erfitt að skilja til- gang lífsins, og af hveiju sumir lifa skemur en aðrir. Er mér barst sú harmafregn að mágur minn Guð- mundur Bragi Torfason hefði látist af slysförum átti ég erfitt með að skilja og trúa því að hann væri ekki enn á meðal okkar. En slysin gera ekki boð á undan sér og sökn- uðurinn og sorgin verður meiri við slíkar aðstæður. Guðmundur Bragi, eða Bragi eins og hann var kallaður, er fædd- ur og uppalinn á Akranesi, sonur hjónanna Torfa Hjartarsonar og Guðnýjar Guðmundsdóttur. Torfi lést fyrir nokkrum árum, en Guðný sér nú á eftir einkasyni sínum. Bragi gekk í skóla á Akranesi og lauk þaðan Iðnskólaprófí. Hann lærði rafvirkjun og fór síðan í Tækniskóla Islands og útskrifaðist þaðan sem raftæknir. Mestan hluta starfsævi sinnar starfaði hann hjá ísal. Alla tíð var Bragi áhugasamur um að mennta sig. Hann stundaði þýskunám í kvöldskóla og var einn- ig á tölvunámskeiðum. Ekki man ég eftir honum öðruvísi en að hann . væri að grúska eitthvað. Þegar Bragi giftist Sonju systur minni átti hún þrjú ung böm af fyrra hjónabandi. Bragi reyndist þeim sem besti faðir. Síðar eignuð- ust þau tvö börn saman og verð ég að segja að betri heimilisfaðir er vandfundinn. Öllum börnunum þótti afar vænt um hann. Bragi var í hæsta máta dagfars- prúður maður og barngóður, af sinni alkunnu lipurð vildi hann leysa hvers manns vanda. Á góðri stundu var Bragi kátur og hafði næmt auga fyrir spaugi- legum hliðum mannlífsins. Sonja og Bragi hafa lifað mjög góðu og ánægjulegu lífí saman, þau hafa ferðast mikið og fyrr á þessu ári fóm þau til Texas að heimsækja elstu dóttur sína sem býr þar nú. Bragi tók mikið af myndum í þess- um ferðum og gaman var að upp- lifa með honum ferðasöguna í máli og myndum. Á heimili þeirra hjóna hefur alla tíð verið mikill gestagangur, sama var hvort gestimir voru héðan frá Islandi eða komu erlendis frá, þá sóttist fólk eftir því að gista hjá þeim. Þau höfðu einstakt lag á að láta fólki líða vel í návist sinni. Allur þessi gestagangur hefur að sjálfsögðu aukið útgjöld heimilis- ins, en aldrei hefur verið kvartað yfir því í mín eyru. Bragi var ekki maður sem tran- aði sér fram eða lét mikið á sér bera, heldur vann að sínum málum án alls fyrirgangs, og fannst mér sem honum félli það best að vera ekki mikið í sviðsljósinu. Á meðan Bragi stóð í byggingar- framkvæmdum var hann vel birgur af verkfærum og efni. Þá leitaði ég oft til hans um að fá lánað eitt- hvað smálegt. Þá var ekki við það komandi að ég mætti skila því til baka, nei, ég mátti eiga það. Hann naut þess að geta gert öðrum greiða og sagði: „Þú gerir mér bara einhvem tíma greiða í stað- inn.“ Missir nánustu aðstandenda er mikill, og bið ég Guð að vemda þá og styrkja á þessari erfíðu stundu. Engan mann þekki ég hafði horn í síðu Guðmundar Braga og er hann harmamissir öllum þeim sem til hans þekktu og mun ég geyma mynd hans í minningunni, rólegan og yfirvegaðan, en samt alltaf glaðan. Megi minning hans lengi lifa. Jóhann Larsen Knútsson. Mig langar með r.okkrum orðum að minnast samstarfsmanns míns til margra ára, Guðmundar Braga, t Móðursystir mín, SIGRÍÐUR ERLINGSDÓTTIR hjúkrunarkona, Miklubraut 7, lést 6. ágúst. Guðrún S. Möller. t Faðir minn, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR GRETTIR JÓSEPSSON, lést á Hrafnistu Hafnarfirði þann 5. ágúst. Sigtryggur Guðmundsson, Hrefna Ragnarsdóttir, Barbara ósk Ólafsdóttir, Hlynur Páll Sigtryggsson, Kristrún l'ris Sigtryggsdóttir. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afí KRISTJÁN ÁRNASON fyrrverandi lögregluþjónn Skólagerði 57, Kópavogi, er látinn. Jarðarförin auglýst síðar. Laufey Kristjánsdóttir Miljevic,- Stanko Miljevic, Helga Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Sigurhansson, Heiðrún Kristjánsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, og barnabörn. er lést af slysförum hinn 30. júlí síðastliðinn. Samstarf okkar hófst árið 1968 er við unnum sem raf- virkjar hjá Ormsson-bræðrum við uppbyggingu álversins í Straums- vík. Við unnum náið saman í um það bil 1 ár og þá kynntist ég vel mannkostum hans. Eftir það skildu leiðir í nokkur ár. Samstarf okkar hófst aftur 12. mars 1973 er Bragi var fastráðinn til starfa hjá ISAL og þar hefur hann starfað óslitið síðan eða rúm 20 ár. Bragi var yfírlætislaus, prúður og orðvar maður. Heyrði ég hann aldrei hallmæla nokkrum manni. Störf sín vann hann af alúð og þeirri samviskusemi er honum var í blóð borin. Bragi var mikill fag- maður. Hann var sjálfstæður I starfí og lagði metnað sinn í að ljúka hveiju verki óaðfínnanlega. Eftir svo langa dvöl á sama vinnustað fer vart hjá því, að góð tengsl myndast milli manna. Bragi var vinsæll og virtur af vinnufélög- um sínum og sakna þeir hans nú sárt. Bragi var dulur um eigin hagi og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Þó fann maður að fjölskyldan var honum allt og best leið honum með konu sinni og börnum. Nú er við kveðjum góðan dreng sem hverfur héðan langt fyrir aldur fram minnumst við hans með virð- ingu og þökkum samfylgdina. Kæra Sonja. Innilegar samúðar- kveðjur til þín og barna þinna, móður og annarra ástvina Braga. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd rafvirkja ISAL. Rúnar Pálsson. Hún var glöð í bragði, sex ára dóttir mín, fímmtudaginn 29. júlí, enda átti hún að fá að sofa hjá ömmu og afa þá um nóttina. Dag- skráin þá um kvöldið var að venju þaulskipuð og hófst i sjoppunni þar sem keypt var nesti fyrir kvöldbíl- túrinn. Aðalatriðið þetta kvöld var að skoða hús því að amma og afí voru farin að líta í kringum sig eftir framtíðarhúsnæði, húsnæði sem væri mátulega stórt handa þeim tveimur og myndi henta þeim um ókomin ár. Eftir bíltúrinn og þegar heim var komið, fór afi Bragi að gera við uppþvottavélina sína, en Sonja amma og dóttir mín að tygja sig í háttinn. Þegar þær voru tilbúnar að fara að sofa gengu þær saman fylktu liði fram til afa Braga og kysstu hann báðar góða nótt. Morguninn eftir fór Bragi afí í vinn- una sína en þar beið Guð eftir hon- um og leiddi hann til himna. Eftirlifandi eiginkonu, Sonju Knútsdóttur, kynntist Bragi á dansleik síðla árs 1969 og felldu þau þegar hugi saman, á þessum tíma hafði hann nýlokið prófí frá Raungreinadeild Tækniskóla ís- lands og hugði á frekara fram- haldsnám í Svíþjóð. Sonja var þá fráskilin og leigði íbúð í Hlíðartúni í Mosfellssveit ásamt þremur ung- um dætrum sínum af fyrra hjöna- bandi, þeim Björk, f. 24. júní 1965, Sjöfn, f. 14. ágúst 1966 og Elísa- betu, f. 5. mars 1968. Eftir að Bragi hafði fengið vil- yrði fyrir inngöngu í sænskan tækniskóla dreif hann sig út til Svíþjóðar í byijun árs 1970 en skól- inn átti að hefjast þá um haustið, tímann fram að haustinu hugðist hann nota til undirbúnings fyrir námið og komast inn í tungumálið. Bragi og Sonja héldu uppi sam- bandi sín á milli með ötulum bréfa- skriftum, en þó bréfin væru mörg og innihaldið gjöfult gátu bréfin ein á engan hátt haldið ungum hjörtum aðskildum til lengdar, því fór svo að Bragi tók saman föggur sínar, hvarf frá fyrirhuguðu námi og innritaði sig í Tækniskóla ís- lands haustið 1970 þar sem hann lauk námi sem rafiðnfræðingur ári síðar. Allan þennan skólavetur heim- sótti Bragi Sonju og dætur hennar reglulega til Mosfellssveitar. í þá daga voru fastar ferðir milli Reykjavíkur og Mosfellssveitar ekki í eins föstum skorðum og þekkist í dag, skóladagurinn var oft langur og þegar dagurinn var loks á enda runninn, voru rútuferð- irnar oft fallnar niður þann daginn. Hinn 5. mars þennan sama vetur henti slíkt atvik hann. Þennan dag átti yngsta dótti Sonju afmæli og hafði Bragi að loknum skóladegi farið niður í Reykjavík og keypt Signrður Einarson matsveinn - Minning Fæddur 12. september 1930 Dáinn 29. júlí 1993 Það er ekki mín sterkasta hlið að setjast niður og skrifa minning- argrein en það er nú það minnsta sem maður getur gert, þegar slíkur vinur fellur frá. Hann Siggi frændi eða Diddi kokkur eins og hann var oftast kallaður var móðurbróðir minn, næstelstur af fimm systkinum. Ég var nú ekki hár í loftinu þegar Siggi frændi byijaði að sprella með mig og æsa mig upp í allskonar prakk- arastrik og á ég margar góðar minningar frá þeim tíma. Siggi frændi var mestalla ævi sína á sjó og þá sem kokkur og var hann alla tíð vel metinn í starfi. Siggi hafði mikinn áhuga á úti- vist og ferðalögum og naut sín vel í þeim, enda mjög fróður um land og þjóð. Með þessum orðum vil ég kveðja elskulegan frænda minn og vil ég votta vinum hans og ættingjum mína dýpstu samúð. Fel þú guð, í faðminn þinn, fúslega hann frænda minn, ljáðu honum ljósið bjarta, lofaðu hann af öllu hjarta, leggðu yfir hann blessun þína, berðu honum kveðju mína. (L.E.K.) Asgeir Jónsson. handa henni afmælisgjöf, en þegar á rútubiðstöðina var komið var vagninn á bak og burt. Bragi gat ekki þá frekar en nokkru sinni síð- ar hugsað sér að hryggja unga afmælisbamið og hélt því af stað fótgangandi eftir hitaveitustokkun- um til Mosfellssveitar með afmæl- isgjöfína. Þessi ferð var á engan hátt einsdæmi hjá honum því iðu- lega þræddi hann hitaveitustokk- ana að kvöldlagi svo af fundum hans, Sonju og dætra hennar gæti orðið. í júní 1971 hófu Bragi og Sonja búskap og leigðu þau til að byija með í félagsheimli Húnvetninga við Þingholtsstræti. Þarna undu þau sér í eina þijá mánuði er þau keyptu sína fyrstu íbúð saman við Hóf- gerði í Kópavogi. Þau eignuðust sitt fyrsta barn saman 10. október, dreng sem skýrður var Torfí Birgir í höfuðið á föður Braga, Torfa Hjartarsyni, og bróður, Birgi, sem lést á bamsaldri. Árið 1972 brá til tíðinda hjá Sonju og Braga, því að fyrsta dag þess árs gengu þau í hjónaband og hafa því verið hamingjusamlega gift í tæp 22 ár. Yngsta barn þeirra hjóna fædd- ist 15. maí 1974, stúlka sem skírð var Berglind. Fyrstu misserin eftir námið starfaði Bragi hjá Rafmagnsveitu Ríkisins, en árið 1973 réð hann sig til Islenzka álversins þar sem hann starfaði samfleytt síðan og hafði fyrir fáeinum mánuðum síðan mót- tekið viðurkenningu frá álverinu fyrir 20 ára starfstíma og gull- merki rafíðnaðarsambandsins fyrir 25 ára íveru. Til Hafnarfjarðar fluttist fjöl- skyldan 1972 fyrst að Hellisgötu 35. Meðan fjölskyldan bjó enn öll undir sama þaki átti Bragi þann draum að byggja sitt eigið hús, hús þar sem börnin gætu átt sín eigin herbergi, hús sem hann hefði skipu- lagt sjálfur, hús með mörgum slökkvurum og tenglum, hús með bílskúr. Þessi draumur varð að veruleika 1976 þegar byggingar- framkvæmdir að Víðivangi 10 hóf- ust. Tveimur árum síðar fluttist íjölskyldan inn í draumahúsið. Tíu árum eftir þennan innflutningsdag byijaði Bragi á sinni seinni bygg- ingu sem staðsett er að Hraunbrún 4. Inn í þá byggingu var flutt 1989, tæpum þrem árum síðar keyptu þau og fluttu inn að Vallarbarði 1 þar sem þau hafa búið síðan. Ég minnist þín vorsins bláa veldi, er vonir okkar stefndu að sama marki, þær týndust ei í heimsins glaum og harki, og hugann glöddu á björtu sumarkveldi. Þín sál var öll hjá fógrum lit og línum, og ljóðsins töfraglæsta duiarheimi. Þú leiðst burt frá lágum jarðarseimi, í ljóssins dýrð, á hugar-vængjum þínum. Ég sakna þín, og syrgi farinn vin, i sálu þinni fann ég dýpsta hljóminn, er hóf sig yfír heimsins dægur-glys. Á horfna tímans horfí ég endurskin, ég heyri ennþá glaða, þýða róminn, frá hreinni sál með hárra vona ris. Guðmundi Braga kynntist ég að vorlagi fyrir einum níu árum er ástin hreif mig í hans hús að sækja mér kvonfang. Þá strax fann ég hvað þessi maður, mér þá ókunnug- ur, hafði yfír miklum og vönduðum mannkostum að bera. Stúlkan sem ég leit svo hýru auga var yngst dætra Sonju af fyrra hjónabandi, en það að hún væri ekki Guðmunds- dóttir gat ég á engan hátt skynjað og komst reyndar ekki að því fyrr en mér var sagt það að einhverjum vikum og dögum liðnum, svo vel gekk hann inn í föðurhlutverkið. Hugtakið stjúpdóttir var ekki hægt að fínna í hugskoti Braga og leit hann á öll börnin sem sín eigin. Afabörnin sem voru orðin fimm talsins heilluðust af honum og var hann iðinn við að taka af börnunum myndir. Þriggja ára nafna átti hann sem hann hafði á sínum tíma hald- ið undir skírn, saman sátu þeir oft og ræddu málefni sem þeim litla þótti merkileg hveiju sinni og iðu- lega enduðu þessar samræður með dillandi hlátri þeirra beggja og þá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.