Morgunblaðið - 08.08.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.08.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 ATVINNUA UGL YSINGAR Lögmannsstofa vill ráða vanan ritara til almennra skrifstofu- starfa. Reynsla á þessum starfsvettvangi er æskileg. Framtíðarstarf. Fullt starf. Umsóknir sendist fyrir þriðjudagskvöld til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „G - 1085“. Símavarsla Lögmannsstofa í austurborginni vill ráða góðan og reglusaman starfskraft til síma- vörslu allan daginn. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „H - 593“ fyrir kl. 17 nk. þriðjudag. „Au pair“ óskast til að gæta 2ja barna hjá íslenskri fjöl- skyldu í Bandaríkjunum. Þarf að vera um tvítugt með bílpróf og enskukunnáttu. Má ekki reykja. Upplýsingar í símum 20390 og 18672. Grafískir hönnuðir óskast! Auglýsingastofa óskar eftir að ráða grafíska hönnuði til starfa. Leitað er eftir framtaks- sömu, skapandi fólki, sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt. Krafist er leikni í notkun MacintosH tölva og þeirra forrita sem notuð eru í greininni, s.s. Quark Xpress, Photoshop Freehand eða lllustrator. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljót- lega. Næg verkefni framundan. Umsóknum skal skila til auglýsingadeildar Mbl. fyrir fimmtudaginn 12. ágúst, merktum: „Frelsi - 101“. Rikisútvarp-Sjónvarp áuglýsir eftir dagskrár- gerðarmönnum (upptökustjórum) og að- stoðar-dagskrárgerðarmönnum, (skriftum), bæði í fasta vinnu sem og í stök verkefni. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu á sviði sjónvarpsvinnu. Vinsamlegast sendið upplýsingar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum, sem liggja frammi í Útvarpshúsinu, Efstaleiti, og hjá Sjónvarpinu, Laugavegi 176, fyrir 13. ágúst merktar: „IDD“, Sjónvarpið, Laugavegi 176, 105 Reykjavík. ráv RÍKISÚTVARPIÐ Sfmavarsla Stórt þjónustufyrirtæki í borginni vill ráða lipran og samviskusaman starfskrafftil síma- vörslu og upplýsinga. Fullt starf. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir miðvikudag merktar: „L - 856“. Organistar Okkur vantar organista í Háteigskirkju frá 1. október nk. Áhugasamir skrifi til Háteigskirkju, Víðihlíð 29, 105 Reykjavík. Safnaðarstjórn. Ritari Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins óskar að ráða ritara til afleysingastarfa á skrifstofunni frá 1. september 1993 til 31. ágúst 1994. Krafist er góðrar enskukunn- áttu og færni í ritvinnslu og vélritun. Umsóknir, með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf, sendist varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, Skúlagötu 63, 150 Reykjavík, fyrir 15. þ.m. Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins. Frá Háskóla íslands og Ríkisspítölum Prófessorembætti f Iffefnafræði við lækna- deild og yfirlæknisstaða við Landspftala. Ætlast er til að prófessorinn verði í forsvari fyrir lífefnafræði læknadeildar og jafnframt tengist embættið yfirlæknisstöðu við Land- spítalann samkvæmt sérstöku samkomulagi milli Háskóla íslands og Ríkisspítala. Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og stjórnunarstörf, námsferil og önnur störf. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um rannsóknir sem umsækjendur hyggjast stunda, verði þeim veitt staðan. Æskilegt er að umsóknargögn séu á ensku og að rit- gerðum á öðrum tungumálum fylgi útdráttur á ensku. Laun skv. kjarasmaningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 1. október 1993 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu við Suður- götu, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu læknadeildar í síma 694880 og á skrifstofu Ríkisspítala í síma 602300. Myndlistarkona óskar eftir starfi, helst við kennslu. Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma 675749. Barngóð Jcona (amma) óskast í 50% starf við að gæta heimils og barna. Umsóknir, með helstu upplýsingum um við- komandi, óskast sendartil auglýsingadeildar Mbl., merktar: „Hafnarfjörður - 10934“. RIÖLBRAUTASKÚUNN BREIÐHOLTI Kennari Með tilvísun til laga nr. 48 frá 1986 er aug- lýst eftir kennara í sagnfræði. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst 1993. Skóiameistari. ísafjarðarkaupstaður Leikskólastjóri S.O.S. Leikskólastjóra vantar strax á leikskólann Eyrarskjól, ísafirði. 100% starf. í boði er að flutningskostnaður verði greidd- ur, útvegað niðurgreitt húsnæði, leikskóla- pláss og góð laun. Allar nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma 94-3722. Bæjarstjórinn á ísafirði. Móttaka - fullt starf Leitum að hörkuduglegum starfskrafti til starfa í móttöku okkar. Þarf að vera skipulagður og geta unnið sjálfstætt. Umsóknareyðublöð á staðnum. Upplýsingar ekki veittar í síma. AGUSTU OG HRAFNS SKEIFAN 7 108 FSEYKJAVfK S. 68 98 68 RAÐAUGi YSINGAR TIL SÖLU Taptil sölu Sameignarfélag, með töluvert yfirfæranlegt tap, til sölu. Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl., merkt: „L - 900". Saumastofa til sölu Til sölu saumastofa í fullum rekstri sem fram- leiðir aðallega fatnað fyrir Kóra, íþróttafélög og veitingahús. Fyrirtækið hefur góð við- skiptasambönd og góðan tækja- og véla- kost. Efnislager góður. Haustvertíð framund- an. Hagstæð kjör fyrir traustan aðila. Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á auglýsingadeild Mbl. fyrir 13. ágúst, merkt: „Saumastofa - 3840“. 3+1 íVesturbænum 3ja herbergja íbúð með aukaherbergi og út- sýni til leigu frá 1. september. Tilboð merkt: „VVV - 45“ sendist auglýsinga- deild Mbl. fyrir föstudaginn 13. ágúst. Einbýlishústil leigu Glæsilegt 200 fm einbýlishús í Grafarvogi til leigu frá 1. september '93. 4 svefnherbergi. Glæsilegur garður. Stutt í skóla og þjónustu. Tilboð er greini frá leigutíma og verði ósk- ast sent til auglýsingadeildar Mbl., merkt: „Leigjandi - 12806“, fyrir 16. ágúst. Meðmæli óskast. Til leigu á Skagaströnd Á Skagaströnd eru til leigu eða sölu 4 íbúðir í nýju 6 íbúða húsi á 2 hæðum. íbúðirnar eru fullfrágengnar, með vönduðum innrétt- ingum og frágenginni lóð. Stærð: Ein 4ra herbergja, tvær 3ja herbergja og ein 2ja herbergja. Ibúðirnar eru tilbúnar til afhendingar nú þegar. Óskað er eftir tilboðum í leigu þeirra til 1 árs eða kauptilboði. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboðum skal skila til Skagstrendings hf. fyrir 20. ágúst nk. Allar nánari upplýsingar gefa Sveinn og Ósk- ar í síma 95-22690. Skagstrendingur hf., Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.