Morgunblaðið - 08.08.1993, Side 39

Morgunblaðið - 08.08.1993, Side 39
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTlR SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1993 Sigurður þjálfar ungl- ingalið Grasshoppers Sigurður Grétarsson knatt- spyrnumaður og fyrrum fyrirliði íslenska landsliðsins, hef- ur tekið að sér að tyaifa unglingalið Bjamadóttur Grasshoppers 1 íSviss Sviss. „Eg hef áhuga á að reyna fyrir mér sem þjálfari svo að það kemur sér ágætlega að vera með unglingaliðið, 14 til 16 ára, í vet- ur,“ sagði Sigurður. Hann var skorinn upp á hnéi í byijun mars og hefur ekki náð sér enn. „Ég verð einn með liðið til að byrja með en aðstoðarmaður hjálpar mér ef ég verð betri í fætinum og get farið að æfa að fullu.“ Leiksamningur Sigurðar við Grasshoppers rann út 30. júni. Hann er nú á tryggingalaunum og heldur þeim þangað til hann Morgunblaðið/Einar Falur í nýju hlutverki SIGURÐUR Grétarsson hefur sótt þjálfaranámskeið í Sviss og fær að reyna sig á því sviði hjá Grasshoppers í vetur. nær sér í hnénu. Þá er að sjá hvort hann fer til annars liðs eða verður áfram hjá Grasshoppers. Sigurður sótti þjálfaranámskeið hjá svissneska knattspyrnusam- bandinu í fyrra. „Ég tek annað námskeið núna í ágúst en alls þarf að sækja fimm námskeið til að öðlast full þjálfararéttindi í Sviss.“ Fyrstu þijú námskeiðin eru vika í senn en síðustu tvö eru í hálfan mánuð og þrjár vikur. Nám- skeiðin eru haldin einu sinni á ári og það er ætlast til að þeir sem taka þau noti tímann og öðlist starfsreynslu á milli þeirra. At- vinnuleikmenn mega sækja nám- skeiðin án þess að vera með lið, eins og Sigurður gerði í fyrra, en þeir sem eru ekki í liði þurfa að fínna sér knattspyrnulið til að þjálfa eins og Sigurður hefur gert. KAPPAKSTUR Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Bílar Hill og Prost verða bannaðir í núverandi mynd. Williams liðið verður að fjarlæga tölvustýrða fjöðrun bílanna fyrir næstu keppni, sem verður í Ungveijalandi. Bestu keppnis- bflamir bannaðir ÞAÐ er karpað um margt í Formula 1 heiminum þessa dagana, reglubreytingar banna nú Williams sigurbfla ársins með þeim tölvustýrða fjöðrunarbúnaði sem þeir hafa verið búnir. Forráða- menn Williams eru æfir útaf þessari ákvörðun, en hönnun fjöðrunarinnar hefur kostað milljónatugi. En liðið sem hef- ur forystu í heimsmeistara- mótinu verður að beygja sig undir ákvörðun alþjóða bfla- íþróttasambandsins. En það fínna ekki allir til með Williams, yfirmenn stórfyrir- tækjanna Reynolds og Canon eru ósáttir við samning Eftjr sem Williams kapp- Gunntaug akstursliðið gerði Rögnvaldsson fyrir skömmu við Rothmans um aug- lýsingar á næsta ári upp á 13 milljónir sterlingspunda, eða 1,4 milljarða króna. Framkvæmda- stjóri liðsins ýtti þar með fyrir- varalaust frá sér fyrirtækjunum tveimur sem hafa kostað keppnisl- ið hans síðustu ár, en Rothmans borgar tveimur milljónum punda meira en þau gerðu á yfírstand- andi keppnistímabili. Williams liðið hefur verið að reyna að fá heims- meistarann Nigel Mansell til sín fyrir 5 milljónir punda frá amer- ísku Indy kappakstursliði fyrir næsta ár, en Mansell langar að stofna eigin lið vestan hafs. A meðan hefur Brasilíumaðurinn Ayrton Senna skrifað undir samn- ing út þetta ár við McLaren, en hann hefur aðeins viljað semja um eina keppni í einu til þessa. Ástæð- an er sú að hann hefur ekki haft Renault keppnisvél, sem hefur skilað bestum árangri í mótum ársins í bílum Hill og Prost hjá WilUams. Áhrif Senna eru svo mikil að hann hefur haldið Mclaren liðinu í járngreipum og tæknimenn hafa leitað logandi ljósi að leiðum til að Ford vél bílsins næði jafnfætis þeirri frönsku frá Renault. Nokkur keppnislið í Formula 1 eiga nú í deilum við alþjóða bílaíþróttasam- bandið vegna notkunar á elds- neyti, sem skoðunarmenn telja að hafi verið ólöglegt, þannig að það skilaði of miklu, en ákveðnar regl- ur gilda um samsetningu þess í mótunum. Bæði Hill og Prost hafa notað þetta eldsneyti í nokkrum mótum og unnið sigra. En þeir sem fylgjast með Formula 1 benda á að öll deilumálin og karpið sé að setja íþróttina í klemmu, á meðan Mansell og fleiri í Ameríku eru að vinna veg Indy kappakstursins virðingu. Formula 1 ökumenn hafa m.a. svarað þessu með því að aka í fylkingu í opnum sportbílum fyr- ir kappakstursmótin til að áhorf- endur geti hyllt þá og skapað skemmtilega stemmningu. Er það liður í því að svara kröfum áhang- enda um skemmtilegri mót. En öll deilumálin eru að setja allt á ann- an endann í Formula 1, þar sem peningavelta á ársgrundvelli er nærri jafn mikil og á Ólympíuleik- unum. P$í SKIPULAG RÍKISINS Frá Skipulagi rfkisins vegna sumar- bústaða, hjölhýsa ng íbúðarvagna Athygli er vakin á eftirfarandi: 1. Allir sumarbústaðir þurfa byggingarleyfi frá byggingarnefnd. Byggingarleyfi utan skipulags er háð samþykki skipulagsstjórnar ríkisins. 2. Stöðuleyfi hjólhýsa á tjaldstæðum eða lóðum er einn mánuður á tímabilinu 1. maí til 30. september. Þess utan skulu þau vera í geymslu. Byggingarnefndir geta veitt sérstök stöðuleyfi til lengri tíma, sbr. byggingarreglu- gerð nr. 177/1992, gr. 6.10.7.10 og gr. 6.10.8. 3. íbúðarvagnar, sem eru breiðari en 2,5 m eða lengri en 12 m, hafa ekki skilgreinda réttar- stöðu. Þeim verður því að mæta með almenn- um ákvæðum um sumarbústaði. Þar er m.a. gerð krafa um vottorð frá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins um styrkleika, sbr. bygg- ingarreglugerð nr. 177/1992, gr. 3.4.9. Sérstök athygli er vakin á því, að seljandi ber ábyrgð á göllum í verksmiðjuframleiddum húsum. Þetta er áréttað hér vegna þráláts misskilnings innflytjenda og kaupenda um réttarstöðu ofan- greindra vistarvera. FAGOR UC2380 . Tvöfalt HITACHI kælikerfi » Rúmmál 300 Itr . Kælir 200 Itr • Frystir 100 Itr • Hraöfrysting ffCEPl • Sjálfvirk afþíðing á kæli • Frystigeta 12kg/24klst. • Hljóðlátur 37 dB • Umhverfisvænn •MálHxBxD 170x60x57 GERÐ UC2420 ■ STAÐGREITT RR. 59900 KR.65100-MEÐ AFBORGUNUM RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 68

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.