Morgunblaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993
23
+
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. AGUST 1993
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1368 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
SR-mjöl hlutafélag
Aáram fyrri heimsstyrjaldar-
innar, 1914-1918, jókst
síldarútgerð hér á landi mjög
mikið og náði hámarki á fyrstu
áranum eftir stríðið. Mikið verð-
fall varð á saltsíldarframleiðsl-
unni 1919, þar eð framboð varð
mun meira en markaðurinn tók
við, og fjölmargir sjávarútvegs-
aðilar urðu gjaldþrota. Af þess-
um sökum stóð hugur lands-
manna til að vinna lýsi og mél
úr þeim afla, sem saltsíldarmark-
aðurinn tók ekki við. Síldar-
bræðslur vora hins vegar fáar
og í eigu erlendra aðila. Þar ofan
í kaupið var fjárfesting sem þessi
talin ofviða einstaklingum eða
félögum á þeirra vegum á þess-
um tíma, enda þjóðfélagsaðstæð-
ur allt aðrar þá en nú. Þess vegna
var bragðið á það ráð að stofna
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Fyrstu lög um síldarverksmiðj-
ur í eigu ríkisins voru sett árið
1928. Fyrsta verksmiðja Síldar-
verksmiðja ríkisins tók til starfa
norður í Siglufírði árið 1930.
Síðan risu verksmiðjur fyrirtæk-
isins hver af annarri. Arið 1947
starfrækti SR verksmiðjur í fjór-
um sveitarfélögum. A síðasta
starfsári ráku SR verksmiðjur á
fimm stöðum: Siglufirði, Skaga-
strönd, Raufarhöfn, Seyðisfirði
og Reyðarfirði, auk vélaverk-
stæðis á fyrsttalda staðnum. Á
Skagaströnd var þó einungis
unninn fískúrgangur. í hinum
verksmiðjunum fjórum hefur að-
allega verið unnið lýsi og mél
úr loðnu hin síðari árin. Afkasta-
geta þeirra er um 3.500 tonn af
loðnu á sólarhring, sem er tæp-
lega 30% af afkastagetu loðnu-
bræðslna í landinu.
Aðstæður í þjóðarbúskapnum
og á síldarmörkuðum á þriðja
áratug aldarinnar réttlættu það
rekstrarform sem valið var. Nú
er öldin hins vegar önnur. Löngu
var tímabært að endurskoða
þetta rekstrarform með breyt-
ingar í huga — í ljósi reynslunn-
ar og til samræmis við efnahags-
umhverfíð á líðandi stundu, bæði
hér á landi og í helztu viðskipta-
löndum okkar. í greinargerð með
frumvarpi um stofnun hlutafé-
lags um Síldarverksmiðjur ríkis-
ins, sem nú er orðið að lögum,
sagði m.a.:
„Þeirri skoðun vex nú mjög
fylgi bæði hér á landi og erlend-
is, að eðlilegt sé að ríkið dragi
sem mest úr þeirri atvinnustarf-
semi, sem er í beinni samkeppni
við almennan atvinnurekstur.
Jafnframt er talið við hæfi að
þau fyrirtæki, sem þannig háttar
til um, séu rekin í formi hlutafé-
laga. Með því er öllum þeim aðil-
um er standa í atvinnurekstri í
sömu grein búin sambærileg
starfsskilyrði hvort sem fyrir-
tækin era í eigu einstaklings eða
ríkis. Ábyrgð eigenda takmark-
ast auk þess við framlagt hluta-
fé . . .“
Samkvæmt hinum nýju lögum
er SR-mjöl hlutafélag. Almenn
hlutafélagalög gilda um fyrir-
tækið, að því einu breyttu, að
eigandi hluta í félaginu verður
einn fyrst í stað, ríkið. Sjávarút-
vegsráðherra fer með umsýslu
þeirrar eignar. Hann hefur og
heimild til að selja hlutabréf í
SR-mjöl, öll eða að hluta til, og
hefur þegar falið stjórn hins nýja
hlutafélags að kanna slíka sölu-
möguleika. Stefnan að þessu
leyti er skýrt mörkuð í greinar-
gerð með framvarpi ríkisstjórn-
arinnar um málið:
„Enda þótt ríkissjóður verði
eigandi allra hlutabréfa félagsins
við stofnun þess, er fyrirhugað
að selja öðrum hluti og jafnvel
öll hlutabréf í félaginu. Meta
þarf sérstaklega hvenær aðstæð-
ur eru ákjósanlegar til sölu áður
en ákvörðun verður tekin þar um.
Skal við söluna stefnt að dreifðri
hlutafjáreign, þannig, að enginn
einn aðili eignist meirihluta. Frá
þessu má þó víkja ef almennings-
hutafélag á í hlut. Jafnframt
skal við söluna sérstaklega horft
til heimamanna og starfsmanna
á þeim stöðum sem verksmiðjur
era starfræktar. Skal óskað eftir
viðræðum við heimamenn og/eða
samtök þeirra um hugsanleg
kaup á hlutabréfum . ..“.
Ýmis vegamikil rök hníga að
því að nota hlutafélagsformið
fyrir ríkisfyrirtæki. Reksturinn
verður sveigjanlegri. Stjórn og
framkvæmdastjóm geta gert
grein fyrir gerðum sínum og fyr-
irætlunum á aðalfundi og fengið
fram stuðning eða gagnrýni eig-
enda. Ábyrgð og völd stjórnenda
vaxa. Skilvirkara samband
kemst á milli stjórnenda og eig-
enda. Breytt rekstrarform, hluta-
félag í eigu ríkisins í stað hefð-
bundins ríkisrekstrar, getur og
verið eðlilegt fyrsta skref að
einkavæðingu fyrirtækis sem
þessa.
Hið nýja hlutafélag tók við
rekstri síldarverksmiðjanna 1.
ágúst síðastliðinn. Þar með var
stigið mikilvægt skref til einka-
væðingar, sem ríkisstjómin
stefnir að. Það fór vel á því að
framhaldsstofnfundur félagsins,
lokaskrefið að tilurð þess, var
stigið norður á Siglufirði í júlí-
mánuði síðastliðnum, í síldar-
bænum sögufræga, þar sem
starfsemi fyrirtækisins hófst fyr-
ir sextíu og þremur áram. Það
fer einnig vel á því að hið nýja
hlutafélag tekur við rekstri verk-
smiðjanna með allar þrær fullar
af loðnu og verksmiðjumar á
Raufarhöfn, Reyðarfírði, Seyðis-
firði og Siglufirði í fullri vinnslu.
Það var vart hægt að óska hluta-
félaginu betri bytjunar og von-
andi verður þessi fyrsti mánuður
á rekstrarferli þess táknrænn
fyrir framhaldið.
Ríkisstjórnin ver 10 milljónum til úrbóta á Litla-Hrauni
Áhersla á að ljúka
nýrri byggingn 1995
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Þorsteins
Pálssonar dómsmálaráðherra um 10 milljóna króna aukafjárveitingu
sem ráðstafað verði strax til að bæta úr öryggismálum við fangelsið
á Litla-Hrauni. Ráðherrann hyggst skipa nefnd til að endurskoða lög
og reglur um agaviðurlög og refsingar við þvi að stijúka úr refsivist
og kynnti ríkisstjórn að gerð yrði úttekt á starfsháttum og stjórnun
í fangelsinu á Litla-Hrauni. Dómsmálaráðherra sagðist þó í samtali
við Morgunblaðið hafa lagt höfuðáherslu á að framkvæmdaáætlun um
nýtt fangelsi á Litla-Hrauni standist þannig að því verði lokið 1995.
„Það er markmið okkar að halda
þannig á málum að það muni tak-
ast,“ sagði Þorsteinn Pálsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, en 30
milljónum hefur þegar verið ráðstaf-
að á þessu ári til undirbúnings- og
hönnunarvinnu vegna nýs fangelsis
á svæðinu. „Við höfum þegar tryggt
okkur að minnsta kosti 100 milljónir
króna í framkvæmdirnar á næsta
ári,“ sagði Þorsteinn, og þar væri
um að ræða fé sem væntanlega yrði
afgreitt í- fjárlögum næsta árs.
Alþingi og ríkisstjórn ættu eftir
að fjalla um þær fjárveitingar en
dómsmálaráðuneytið teldi sig geta
tryggt það fjárframlag til verkefnis-
ins innan þess ramma sem ráðuneyt-
inu væri settur varðandi fjárfesting-
ar._
í framhaldi af skýrslu fangelsis-
málanefndar og framkvæmdanefnd-
ar um fangelsismál til ráðherra á
síðasta ári var úrbótum í fangelsis-
málum raðað á forgangslista í ráðu-
neytinu og nýbygging á Litla-Hrauni
sett efst á lista yfír úrbætur í mála-
flokknum. Auk þess hefur verið
stefnt að því að nýtt fangelsi fyrir
gæslufanga og styttri afplánun rísi
í Reykjavík innan fjögurra ára og
sagði Þorsteinn þá stefnu óbreytta.
En hveiju breytir sú umræða sem
orðið hefur um fangelsismál eftir
strok af Litla-Hrauni um fram-
kvæmdahraðann við nýbygginguna?
„Ég vona að þessi umræða sem átt
hefur sér stað opni augu manna fyr-
ir því að í þessu efni má ekki hvika
frá settum markmiðum,“ sagði Þor-
steinn. „Það er nánast útilokað að
fá meiri hraða í þessa byggingu en
að hefur verið stefnt. Við vitum ekki
nákvæmlega ennþá hver heildar-
kostnaðurinn verður en það skýrist
betur þegar teikningar liggja fyrir.
Við eigum von á tillögum um þær í
næsta mánuði.“
Þorsteinn Pálsson sagði að Fang-
elsismálastofnun mundi afla sér-
fræðilegrar ráðgjafar varðandi það
hvernig 10 milljóna aukafjárveiting-
unni til öryggismála yrði best varið.
Ráðherrann vildi ekki gefa upp hvort
hann teldi nauðsynlegt að herða við-
urlög við stroki úr fangelsum en
kvaðst mundu skipa starfshóp til að
fara yfir þau mál og hvort nauðsyn-
legt væri að breyta lögum og reglum
um þessi atriði í ljósi reynslunnar.
Fagna viðbrögðum Þorsteins
„Ég hlýt að fagna viðbrögðum
Þorsteins Pálssonar dómsmálaráð-
herra og þeirri niðurstöðu sem feng-
ist hefur í málinu. Fyrir liggur að
tryggt hefur verið að ný fangelsis-
bygging muni rísa á Litla-Hrauni á
næstu árum og að áhersla verði lögð
á að ljúka við fangelsisbyggingu á
höfuðborgarsvæðinu," sagði Harald-
ur Johannessen forstjóri Fangelsis-
málastofnunar ríkisins í samtali við
Morgunblaðið. „Áætlanir hafa verið
uppi um að slíkár fangelsisbyggingar
kosti samtals hátt í 300 milljónir
króna og fyrirsjáanlegt er að.nægj-
anlegt fjármagn hefur þegar fengist
í Litla-Hrauns fangelsið.“
Aðspurður um ráðstöfun 10 millj-
óna fjárveitingarinnar til öryggis-
mála sagði Haraldur að þegar væri
hafin vinna við að leita leiða til úr-
bóta í öryggismálum ríkisfangels-
anna og yrði kannað hvort leitað
verði til innlendra og/eða erlendra
sérfræðinga í því sambandi. Þá sagði
Haraldur að þegar væri hafmn undir-
búningur að því að gerð yrði úttekt
á starfsháttum og stjórnun í fangels-
inu á Litla-Hrauni.
Vextir inn- og útlána hjá bönkum og sparisjóðum
Almenn vixillán
(meðalforvextir)
Yfirdráttarlán
20
20,30%
. 17,50%
15
10
18,70%
19,75%
21,50%
20,50%
; 16,40%
Almenn
skuldabréfalán
(meðalvextir)
Íro%'15'fc%
16,70%
Afurðalán
(meðatvextir)
23,95%
Viðskiptavíxlar
(forvextir)
21,50% :
19:25%
U T
r
LANDSBANKI
ÍSLANDSBANKI
SPARISJÓÐIR
BÚNAÐARBANKI
Almennar spari-
sjóðsbækur
ogsértékka-
reikningar
M i—i
I N N
Visitölubundnir
reikningar
(15-30 mánaða)
Meðalhækkun inn-
lánsvaxta 2,2
LANDSBANKINN, Búnaðarbankinn og sparisjóðirnir hækka vexti óverð-
tryggðra útlána í dag. Mest er hækkunin hjá Landsbanka þar sem meðal-
vextir almennra skuldabréfalána hækka um 4,55%. Meðalvextir hjá
Búnaðarbanka hækka um 4,25% en hjá sparisjóðunum um 2,80%. Útláns-
vextir hækka einnig í nokkrum öðrum lánaflokkum hjá þessum aðilum
og hluti innlánsvaxta. Engar breytingar verða hins vegar á útláns- eða
innlánsvöxtum íslandsbanka, sem hækkaði nafnvexti óverðtryggðra út-
lána um 4-5% um seinustu mánaðamót.
Björn Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar Alþingis
Ekki ágreinmgur í ríkis-
stjórn um afstöðu til NATO
BJÖRN Bjarnason, formaður utanríkismálanefndar, segir að enginn
ágreiningur hafi verið í nefndinni um þá niðurstöðu sem Atlantshíifs-
bandalagið komst að í fyrradag, sem m.a. felur í sér að hernaðaraðgerð-
ir gagnvart Serbum verði skilyrtar formlegu samþykki framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna.
„Undanfarið hafa verið uppi get-
gátur um að skoðanaágreiningur hafí
verið innan ríkisstjómarinnar um
þetta mál. Ég tel að á fundi nefndar-
innar í gær hafí verið að fullu upplýst
að um engan slíkan ágreining var að
ræða og það hafi verið réttilega að
málinu staðið af hálfu ríkisstjómar-
innar. Mér fínnst ástæða til að harma
að fréttastofa Ríkisútvarpsins virðist
jafnvel enn álíta að á vettvangi ríkis-
stjórnarinnar hafi verið deilt um
þetta mál,“ segir Björn.
Ólafur Ragnar Grímsson, Alþýðu-
bandalagi, segir að utanríkisráðuneyt-
ið hafi verið að breiða afsökunarhjúp
yfir afstöðu forsætisráðherra. „Á
fundi nefndarinnar var staðfest að því
miður hafi íslendingar haft þá afstöðu
á fyrri fundi Atlantshafsbandalagsins
í síðustu viku að styðja hugmyndir
Bandaríkjanna um loftárásir á Serba
án þess að samþykki Sameinuðu þjóð-
anna lægi formlega fyrir,“ segir Ólaf-
ur. „Því tel ég að lýsingar Davíðs
Oddssonar forsætisráðherra á afstöðu
íslands, þar sem hann hefur bæði lýst
og rökstutt þá afstöðu að íslendingar
ættu að styðja slíkar herskáar kröfur
hafí verið rétt og utanríkisráðuneytið
hafí verið að breiða afsökunarhjúp
yfír þessa afstöðu.“
Ríkisstjórn ekki hjálpað upp úr
feninu
„Ég hef enga ástæðu til að ætla
að forsætisráðherra hafí ekki komið
hreinskilninslega fram og sagt það
sem gerðist og ég hef miklu meiri til-
hneigingu til að trúa honum heldur
en Jóni Baldvin," segir Páll Péturs-
son, Framsóknarflokki.
„Það er hins vegar bót í máli hvern-
ig málið hefur þróast því það er ekki
eins hættulegt og áður. I gær var
samþykkt hjá NATO að árásirnar yrðu
bundnar samþykki aðalritara SÞ og
þær eru því orðnar aðilar að málinu
en ekki er lengur um að ræða einhliða
ákvörðun NATO. Utanaðkomandi at-
vik urðu þvi til að hjálpa ríkisstjóm-
inni upp úr feninu,“ segir Páll.
Landsbankinn hækkar einnig for-
vexti almennra víxillána og yfirdrátt-
arlána um 4,50% í dag, Búnaðarbank-
inn um 4,25% og sparisjóðimir um
2,80%. Þá hækka vextir af afurðalán-
um í krónum um 2,75% hjá sparisjóð-
unum, 3,50% hjá Búnaðarbanka og
4,50% í Landsbanka. Sparisjóðirnir
lækka hins vegar vexti afurðalána í
nokkrum erlendum myntum frá
0,10%-0,30%.
Vaxtaliækkanir á hluta innlána
Aðeins Landsbankinn hækkar vexti
almennra sparisjóðsbóka að þessu
sinni og á sértékkareikningum um
0,25%. Eftir breytinguna er Lands-
bankinn með hæstu innlánsvexti á
almennum sparisjóðsbókum eða
1,25%, íslandsbanki með 0,50%, Bún-
aðarbanki 0,75% og sparisjóðirnir
með 0,70%. Þá hækka vextir óverð-
tryggðra kjara á óbundnum sérkjara-
reikningum um 3% í Landsbanka og
Búnaðarbanka og 2,50% hjá spari-
sjóðunum sem lækka einnig vexti vísi-
tölubundinna reikninga um 0,25%.
Búnaðarbankinn hækkar auk þess
óverðtryggð kjör á bundnum skipti-
kjarareikningum um 4,25%.
Valur Valsson, bankastjóri íslands-
banka, sagði að íslandsbanki hefði
lokið sínum hækkunum um mánaða-
mótin og ekkert tilefni hefði verið
fyrir vaxtahækkunum nú. Aðspurður
hvort ekki hefði þótt ástæða til að
gera breytingar á vöxtum almennra
sparisjóðsbóka sagði Valur að al-
mennar sparisjóðsbækur væru ekki
lengur notaðar sem spariform heldur
sem veltureikningur og því fylgdu
kjör þeirra vöxtum á veltureikningum
en ekki vöxtum á sparileiðum. Is-
landsbanki hafi aftur á móti hækkað
vexti á öllum sparileiðum sínum um
5% um seinustu mánaðamót.
Tap vegna vaxtamisvægis
í fréttatilkynningu frá Búnaðar-
banka er vísað til þess, að verðbætur
sem bankar greiddu á verðtryggð
innlán í júlí hafí tekið mið af mikilli
hækkun lánskjaravísitölunnar í kjöl-
far gengisfellingarinnar í lok júní.
Töluverður hluti innlánanna sé ávaxt-
aður í óverðtryggðum útlánum og séu
vextir óverðtryggðra útlána ekki
hækkaðir í takt við verðlagsþróun
valdi það tapi sem geti haft afger-
andi áhrif á rekstrarafkomu ársins.
Vaxtahækkunin í júlí hafi aðeins jafn-
að að hluta mismun á verðtryggðum
og óverðtryggðum kjörum og rekstr-
aruppgjör fyrir júlí staðfesti að bank-
inn hafí orðið fyrir verulegu tapi.
„Það er skylda stjórnenda bankans
að bregðast við þessari þróun þannig
að jafnvægi náist í rekstrinum. Jafn-
framt er ljóst að samræming vaxtakj-
ara þýðir að vextir óverðtryggðra
lána munu lækka hraðar en ella þeg-
ar verðbólgan hjaðnar á ný,“ segir í
fréttatilkynningu bankans.
Samkeppni um nýtt
hús Hæstaréttar lokið
Verðlaunatillagan eftir ráðhúsarkitekt-
ana Steve Christer og Margréti Harðardóttur
STEVE Christer og Margrét Harðardóttir, arkitektar í Studio Granda,
unnu til fyrstu verðlauna í hönnunarsamkeppni um nýtt hús fyrir
Hæstarétt Islands. Alls bárust dómnefnd 40 tillögur og voru þrjár
þeirra verðlaunaðar auk þess sem þrjár til viðbótar voru valdar til
innkaupa. Að sögn Þorsteins Pálssonar, dómsmálaráðherra, er gert
ráð fyrir að framkvæmdir við húsið hefjist innan skamms, en verklok
eru áætluð árið 1995, á 75. afmælisári Hæstaréttar. Þess má geta að
Steve og Margrét unnu einnig hönnunarsamkeppni um ráðhús Reykja-
víkur. Tillögumar verða til sýnis í Borgarleikhúsinu virka daga kl.
14-20 og kl. 14-18 um helgar.
Verðlaunatillagan gerir ráð fyrir
dómhúsi bakvið Safnahúsið við
Hverfísgötu, Lindargötumegin. I
umtali dómnefndar um tillöguna seg-
ir meðal annars: „Efnismeðferð er
skýr og vönduð. Hvítt inngangshom
að Ingólfsstræti er látlaust og fellur
vel við Safnahúsið . . . Brotsteinn
og koparklæðning mynda söguleg
tengsl við alþingishús og dómkirkju.
Tenging inn á ás Ingólfsstyttu og
Arnarhól með trjágróðri er tilgerðar-
laus og látlaus landslagslist sem
færir borginni nýjan garð sunnan
við bygginguna."
Mikil vinna lykillinn að
velgengninni
Aðspurður hvað lægi að baki því
að vinna fyrst samkeppni um ráðhús
Reykjavíkur og svo um hús Hæsta-
réttar íslands, sagði Steve Christer
það vera mikla vinnu og ekkert ann-
að. „Við gerðum tillögur á víxl og
völdum þær bestu. Ef engin var nógu
góð þá gerðum við bara nýjar. Svona
gekk þetta aftur og aftur.“
Margrét Harðardóttir sagði fram-
kvæmd verksins að mörgu leyti svipa
til ráðhússins — húsið væri á við-
kvæmum stað og verkið þyrfti að
ganga hratt fyrir sig, þótt það væri
mun minna í sniðum. „Maður fer
mikið á staðinn. Svo situr maður þar
í rigningu og sól og öllum veðrum
og reynir að ímynda sér hlutinn. Svo
fer maður til baka og prófar.“
Kynslóðaskipti í arkitektúr?
Stefán Guðmundsson, formaður
dómnefndar, sagði að alger samstaða
hefði ríkt um val á verðlaunatillög-
unni. Athyglisvert hafí þótt, að með-
alaldur þátttakenda væri aðeins 34
ár og af þeim sem unnu til verðlauna
hafí verið 3 konur og 4 karlar. Gæti
það bent til að kynslóðaskipti stæðu
fyrir dyrum í arkitektúr, auk þess sem
kynjaskipting væri jafnari.
Að sögn Þórs Vilhjálmssonar, for-
V er ðlaunatillagan
AFSTÖÐUMYND af hinu fyrirhugaða dómhúsi Hæsta-
réttar sýnir glögglega legu þess milli Arnarhóls, Arn-
arhvols, Þjóðleikhúss og Landsbókasafns. í klæðningu
hússins er fyrirhugað að nota tilhöggvið grágrýti,
gabbró og forveðraðan kopar.
Arkitektarnir
MARGRÉT Harðardóttir og Steve Christer, arki-
tektar verðlaunatillögunnar, tóku á móti viðurkenn-
ingu fyrir bestu tillöguna að nýju dómhúsi fyrir
Hæstarétt í Borgarleikhúsinu í gær. Alls bárust 40
tillögur í samkeppnina.
seta Hæstiréttar, uppfyllir núverandi
húsnæði réttarins ekki nútímakröfur
um aðbúnað, vinnuaðstöðu og heil-
brigði. Hæstiréttur hóf starfsemi
sína þann 16. febrúar 1920 í hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg. Þar
starfaði rétturinn fyrstu 29 árin, en
árið 1949 flutti hann í núverandi
húsnæði. Til marks um aukin um-
svif á þeim áram sem síðan era lið-
in, má nefna að árið 1949 felldi rétt-
urinn 134 dóma, en þeir voru 412 í
fyrra, að sögn Þórs.
í samkeppnislýsingu var það með-
al annars gert að skilyrði að heildar-
verktakakostnaður skyldi vera lægri
en 302 milljónir króna, þannig að
byggingarkostnaður yrði ekki hærri
en 400 milljónir, að sögn Dagnýjar
Leifsdóttur, deildarstjóra í dóms-
málaráðuneytinu og formanns bygg-
ingarnefndar.
Auk fyrstu verðlauna, að upphæð
1200 þúsund krónur, voru veitt 2.
og 3. verðlaun, auk þess sem þijár
tillögur voru valdar til innkaupa.
Höfundar annarra verðlaunatillagna
voru: 2. verðlaun, kr. 700 þúsund,
Halldóra Bragadóttir, Helgi B. Thor-
oddsen og Þórður Steingrímsson. 3.
verðlaun, kr. 500 þúsund, Ogmundur
Skarphéðinsson og Ragnhildur
Skarphéðinsdóttir. Til innkaupa fyrir
kr. 200 þúsund hver var valin tillaga
Teiknistofunnar Traðar, tillaga Æv-
ars Harðarsonar, Ólafar Flygenring
og Jon Nordsteien og tillaga Asdísar
H. Ágústsdóttur, Jóhannesar Þórðar
sonar og Sigurðar Halldórssonar.
Endurskoðun á tekjum sveitarfélaga
Útsvar hækkí
í hámark 9,2%
Samráðsnefnd ósammála um hve mikið tekju-
skattur skuli lækka á móti útsvarshækkun
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær að fela Jóhönnu Sigurðardóttur fé-
lagsmálaráðherra og Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra að semja
frumvarp um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga vegna niðurfell-
ingar aðstöðugjalds í nóvember síðastliðnum. Ráðherrarnir munu í
megindráttum fara eftir tillögum samráðsnefndar sveitarfélaganna og
ríkisins, en hún leggur til að útsvar verði hækkað úr 7,5% að hámarki
í 9,2%, eða um 1,7 prósentustig. Á móti lækki tekjuskattur sá, sem rík-
ið innheimtir. Nefndarmenn eru hins vegar ósammála um hversu mikið
hann skuli lækka. Jafnframt leggja þeir til að álagning fasteignaskatta
á atvinnuhúsnæði hækki.
Niðurfelling aðstöðugjalds fyrir-
tækja var liður í efnahagsaðgerðum
ríkisstjórnarinnar í nóvember síðast-
liðnum. Talið er að sveitarfélögin
hafí með því orðið af 4,2 milljarða
króna tekjum. í tillögum samráðs-
nefndarinnar segir að hækkun út-
svars gefi sveitarfélögunum mögu-
leika á 3,8 milljarða króna tekjuöflun.
Fulltrúar Sambands sveitarfélaga í
nefndinni lögðu áherzlu á að tekju-
skattur yrði lækkaður sem hækkun
útsvars næmi, þannig að hlutfall stað-
greiddra skatta af launum yrði áfram
41,35%. Aðrir nefndarmenn, sem eru
skipaðir af félags- og fjármálaráð-
herra og stjórnarflokkunum, telja rétt
að tekjuskatturinn lækki en „telja
ekki rétt að tilgreina nákvæma tölu
í því sambandi" eins og segir í áliti
nefndarinnar.
Fasteignaskattar á
atvinnuhúsnæði hækkaðir
Nefndin leggur til að fasteigna-
skattar á atvinnuhúsnæði hækki úr
1% í 1,12%. Það muni skila sveitarfé-
lögum 265 milljónum króna. Þar að
auki er gert ráð fyrir sérstöku álagi
á skrifstofu- og verzlunarhúsnæði,
sem á að skila sveitarfélögunum 335
milljónum króna í tekjur. Á móti verði
skattur ríkisins á skrifstofu- og verzl-
unarhúsnæði hins vegar felldur niður.
„Þegar á heildina er litið ættu fast-
eignaskattar á skrifstofu- og verzlun-
arhúsnæði því að lækka við þessa
breytingu," segir í áliti nefndarinnar.
Landsútsvar fellt niður
Nefndin leggur til að landsútsvar
verði fellt niður, en af því hafa 511
milljónir runnið í Jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga. Nefndin leggur til að ríkis-
sjóður greiði Jöfnunarsjóði upphæð,
sem nemi 0,227% af álagningarstofni
útsvars. Jafnframt verði benzíngjald
hækkað til að vega upp á móti niður-
fellingu landsútsvars olíufélaga, en
það nam 143 milljónum króna á síð-
asta ári. Þá er lagt til að úthlutun
jöfnunarframlaga til sveitarfélaga
verði endurskoðuð, einkum með hlið-
sjón af breyttri tekjumyndun sveitar-
félaga.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið að sér og fjármálaráð-
herra hefði verið falið að undirbúa
frumvarp um tekjustofnabreytingarn-
ar, sem lagt yrði fyrir Alþingi í haust.
„Ég geri ráð fyrir að farið verði eftir
tillögum nefndarinnar í megindrátt-
um,“ sagði Jóhanna.
Útlit fyrir áframhald-
andi samdrátt kinda-
kjötsframleiðslunnar
5% verðskerðing í haust og útlit fyrir
6-7% kvótaskerðingu næsta haust
UTLIT er fyrir að sala kindakjöts verði rúm 7.000 tonn á því verðlags-
ári sem lýkur um næstu mánaðamót en framleiðsla innan greiðslumarks
var 8.600 tonn í fyrrahaust. Því er útlit fyrir um 1.500 tonna birgðir
við upphaf sláturtíðar í haust. Greiðslumark fyrir framleiðslu haustsins
er 8.150 tonn og miðað við sömu sölu áfram bætist stöðugt á kjötfjall-
ið. Útlit er fyrir að lagt verði 5% verðskerðingargjald á bændur í haust
til að leysa úr birgðavandanum og síðan 6-7% skerðingu framleiðslurétt-
ar haustið 1994, til viðbótar samdrætti framleiðslunnar undanfarin ár.
Nú stendur yfir undirbúningur fyr-
ir ákvörðun um greiðslumark í kinda-
kjöti fyrir haustið 1994 en greiðslu-
mark er sú framleiðsla sem bændur
geta stundað með stuðningi ríkisins.
Greiðslumarkið var lækkað úr 8.600
tonnum í fyrra í 8.150 tonn í haust
og útlit er fyrir að það þurfí að lækka
enn frekar fyrir næsta ár, eða niður
í 7.600 til 7.800 tonn, samkvæmt
upplýsingum Jóhanns Guðmundsson-
ar deildarstjóra í landbúnaðarráðu-
neytinu.
Salan rúm 7.000 tonn
Sala á kindakjöti var um 8.400
tonn þrjú síðustu verðlagsár en í ár
stefnir í rúmlega 7.000 tonna sölu,
að sögn Gísla Karlssonar fram-
kvæmdastjóra Framleiðsluráðs land-
búnaðarins, og mun það óhjákvæmi-
lega leiða til lækkunar greiðslumarks
vegna þess að það miðast við sölu á
innanlandsmarkaði. Bændur telja að
mikil sala á kindakjöti í ágúst í fyrra,
vegna sérstakra niðurgreiðslna í lok
síðasta ársins sem ríkið ábyrgðist
söluna, hafi komið niður á sölunni á
þessu verðlagsári og vilja að tekið
verði tillit til þess við ákvörðun
greiðslumarks. Verði greiðslumarkið
sett í 7.600 tonn þarf að skerða kvóta
bænda að meðaltali um 6-7% fyrir
annað haust.
5% verðskerðing
Þá er óieystur birgðavandinn sem
kerfið feiur í sér vegna þess misræm-
is sem skapast vegna minnkandi sölu.
Reyndar hafa um 300 tonn verið flutt
til Japans en útflutningurinn hefur
ekki verið gerður upp. Bændur bera
sjálfír ábyrgðina á umframkjötinu og
hafa um tvo möguleika að velja: Að
taka verðskerðingargjald af eigin
tekjum til að selja kjötið með sérstök-
um söluaðgerðum á innanlandsmark-
aði eða flytja það út gegn því verði
sem býðst. Ekki var hægt að taka
verðskerðingargjald af framleiðslu
síðasta hausts vegna þess að heimild-
ir skorti en búist er við að bændasam-
tökin innheimti allt að 5% gjald af
innleggi bænda í haust og kemur það
til viðbótar þeim skerðingum sem
bændur hafa tekið á sig vegna sam-
dráttar framleiðslu. Þetta gjald inn-
heimtist ekki fyrr en í fyrsta lagi 15.
desember og því eru engir peningar
til að leysa núverandi birgðavanda
með útsölum eða útflutningi í haust.
4-