Morgunblaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.08.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1993 Bragabragur Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Bragi Ólafsson: Ytri höfnin (48 bls.). Bjartur 1993. Ytri höfnin er í stórum dráttum ferðalag um ókunna staði, gamlar bækur og eftirminnilega atburði. Fyrsta ljóð bókarinnar, Merkilega iðja, er viðeigandi upphafsstaður þessa ferðalags; mælandinn ruglar í bókum í stað þess að sendast eftir brauði út í búð! Ljóðin í Ytri höfninni geyma margvíslegar vísanir, margar í heimsbókmenntimar en aðrar í persónulega reynslu („Manstu / Eduardo / litina á húsunum / í Aveiro...“). Grunntónninn'er sefj- andi og oft líkt því að verið sé að ávarpa trúnaðarvin; þessi „þú“ kemur alloft fyrir. Málfar bókarinnar er yfírleitt einfalt, sveipað vissri dulúð. Orðin eru út af fyrir sig hversdagsleg, skiljanleg, en ósamstæðar setning- arnar margræðar og misvísandi. Hefðbundið stílbragð eins og við- Iíking kemur gjaman fyrir. Mynd- málið stundum flókið og einka- legt. Fyrir kemur að myndimar klóri í augun þannig að maður tekur í fyrsta sinn eftir því sem ekki verður auðveldlega séð, t.d. í Farþegaskipinu: Það er deginum ljósara að festar skipsins eru ekki dregnar inn fyrir okkur; að sá hluti Esjunnar sem það hylur verður eftir þegar það fer. Það er einnig við hæfi að sein- asta ljóðið ber heitið Úr höfn. Al- veg eins og lesandinn er Ieiddur gegnum bókaskápinn inn í þessa höfn þannig er hann dreginn burtu úr henni eins og farþegaskip. En Bragi Ólafsson með því er fjarri öllu lokið, fram- tíðin geymir fyrirheit: Dauði! Maður er verðlaunaður með dauða. Þegar fiðrið úr himinsænginni dregur upp mynd af sporum mínum á stéttinni, og auða svæðið í miðborginni er horfið undir innflutt sirkustjald, þá líður mér svo að þetta kvöld muni nýt- ast mér til aðfanga; að framtíðin feli í sér óvænta símhringingu. t Þessi bók staðfestir að skáld- skapur Braga er á þroskabraut, sérstaklega hvað snertir myndmál og tungutak. Alltaf má samt pota í eitt og annað. T.d. þykja þessum lesanda mörg ljóðanna full ábúðar- mikil og óljós. VTVALDI _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Seinni sumartónleikarnir í Skál- holtskirkju, um síðustu helgi voru eingöngu helgaðir Vivaldi og þá leiknir tveir blokkflautukonsertar, einn fyrir kammersveit og tónleik- unum lauk svo með flórfiðlukon- sert. Flytjendur voru Kammersveit Skálholts, undir stjórn Jaap Schröder, sem ásamt Camillu Söd- erberg flautuleikara, var einnig einleikari í fjórfiðlukonsertinum, ásamt Lilju Hjaltadóttur, Svövu Bernharðsdóttur og Hildigunni Halldórsdóttur. Antonio Vivaldi var ráðinn sem fiðlukennari við Pio Ospedale della Pieta, með 60 dúkata árslaun, en þetta barnaheimili var eitt af fjór- um slíkum fyrir munaðarlaus börnj sem starfrækt voru í Feneyjum. I Pieta var lögð áhersla á að tónelsk- ar stúlkur fengju tilsögn í hljóð- færaleik og venja var að þær léku fyrir aðalsfólk og erlenda gesti, sem svo fjárhagslega styrktu þessa merkilegu starfsemi. Margar af stúlkunum störfuðu sem kennarar (maestra) og urðu frægar langt út fyrir umráðasvæði Pieta, t.d. eins og Anna Maria, sem stundum var sérstaklega tilgreind á titilsíðum konsertanna eftir Viv- aldi, bæði sem einleikari og af- burðastjómandi. 1716 var Vivaldi hækkaður í tign og útnefndur maestro de’ concerti, enda fylgdi sú kvöð, að semja tvo konserta á mánuði, sem honum tókst að standa við með glæsibrag. Tónleikamir hófust á konsert í c-moll (RV-441) fyrir blokkflautu og kammersveit og var einleikar- inn Camilla Söderberg. Vivaldi samdi 16 flautukonserta en af tveimur konsertum fyrir blokk- flautu, í c-moll og F-dúr er sá seinni í raun endurritun af flautu- konsert RV-334. Konsertinn var mjög vel leikinn, bæði af hljóm- sveit og einleikara, en á köflum með svolitlum óróa. Hægi kaflinn, Largo, var einstaklega vel leikinn af Camillu, blátt áfram sunginn fram af sterkri tilfinningu. Konsert í g-moll (til em 6 slík- ir) fyrir strengjasveit er fallegt Kór Flensborgarskóla Kristskirkja Tónleikar Kórs Flensborgarskóla Kór Flensborgarskóla syngur íslensk og erlend tónverk í Kristskirkju (Landakoti) í kvöld kl. 20.30. Kórinn mun síðan endurtaka þessa tónleika í Votivk- irche í Vínarborg nk. laugardag á tónleikaferð hans um Austurríki og Þýskaland. Tónleikarnir í kvöld verða síðustu kirkjutónleikar kórsins hér á landi und- ir handleiðslu stjórnanda og stofnanda hans Margrét- ar J. Pálmadóttur en hún lætur af störfum sem stjórn- andi kórsins í haust og Þórunn Guðmundsdóttir söng- kona tekur við. Ljóðaþýðingar úr finnsku Túlkun: Lárus Már Björnsson Bókmenntir Ingi Bogi Bogason VERALDIR (93 bls.). Hring- skuggar 1993. Ekki er ljóst af inngangsorðum Skopmynd af Vivaldi eftir Pier Leone Ghezzi. verk og það var mjög vel leikið en á eftir honum var konsert fyrir sópranino (flautino) í C-dúr en Vivaldi samdi þijá slíka (tveir í C-dúr og einn í a-moll). Það sama má segja um flautino-konsertinn og c-moll blokkflautukonsertinn, að hann var í heild frábærlega vel leikinn en hröðu kaflarnir þó með nokkrum óróa, sem á ekki alls kostar við í barokktónlist. Lokaverk tónleikanna var fjór- fiðlukonsert í e-moll (RV-550), op.3 nr. 4 úr L’estro armonica, sem þessarar bókar hví ljóð eftirtalinna fjögurra skálda eru gefin út í einni bók: Sirkka Annikki Turkka, Lars Huldén, Paavo Haavikko og Mart- in Enckell. Víst eru þau öll finnsk og em meðal fremstu fulltrúa ljóðagerðar í landi sínu. Hugsan- Jaap Schröder gefinn var út í Amsterdam 1711. Þetta er glæsilegt verk, og var það í heild mjög vel flutt þó fallega mótaður samleikur fiðlanna bæri samt af. Megineinkenni tónleik- anna var fínlegur flutningur, sem fiðlararnir komu einkar vel til skila, svo og, að fámenni strengja- sveitarinnar gaf tónlistinni sér- stæðan og fallegan blæ, ólíkan þeim, þegar ofurkapp er lagt á að undirstrika andstæður einleiks og samleiks. lega markast valið af því hve ólík þau eru, þau eru afsprengi ólíkra tíma og ólíkra strauma. Kann að vera þótt ekki sé þess getið í for- mála. Kveðskapur Sirkka Annikki Turkka (1939) þykir torræður og myrkur. Hér birtast á þriðja tug ljóða eftir hana, mörg prósaljóð. Astin kemur gjarnan við sögu og sjálf náttúran, bæði sjálfrar sín vegna og sem liður í myndmáli: „I dag hrasaði ég um tijágrein og stígurinn, elfa skógarins sjálfs / sló mig í hjartastað með mosa- hnefa sínum." Skáldskapur Lars Huldén (1926) er margbreytilegur. Hér eru aðallega ljóð frá millitímabili í kveðskap hans. Ljóð hans spretta gjarnan af viðkynnum við fjarlæga staði, m.a. ísland: „Líf mitt rann sitt skeið íReykjavík. / Frá tuttug- usta æviári mínu / til þess áttug- asta og þriðja / orti ég dag hvern kvæði / um Esjuna...“/ Paavo Haavikko (1931) er af mörgum talinn eitt allra fremsta ljóðskáld Finna um þessar mundir. Aðaleinkenni hans eru nýsköpun tungunnar og Jiýstárlegt mynd- mál. Yfir ljóðunum er ævintýra- bragur: „Trén, öll grænka þeirra. / Eg vildi færa þér engi, / með eigin hendi, / því það var vor. / En ég varð of seinn..." Martin Enckell (1954) er barn ’68-kynslóðarinnar og þeirrar sem kennd hefur verið við pönk. Skáld- skapur hans er markaður þessum áhrifum, ljóðin eru sprottin af reynslu þess sem hefur kynnst lífí undirheimanna: „enginn getur grætt mein okkar með ást, / eng- ÚTSALA 20-60% AFSLÁTTUR »hummel^P íþróttaskór, íþróttagallar, bolir, sundfatnaður, dúnúlpur, regnfatnaður o.fl. s aíLPog® ais N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.