Morgunblaðið - 14.08.1993, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
7
Heimsmeistaramótið í Hollandi
Hestamir við
bestu heilsu
Hestar íslenska landsliðsins sem keppir á heimsmeistara-
mótinu í hestaíþróttum í Hollandi í næstu viku eru komnir
á áfangastað í Spaarnwoude þar sem mótið fer fram. Að
sögn Péturs Jökuls Hákonarsonar liðsstjóra gekk ferðin
vel. Voru hrossin flutt með einu af skipum Eimskipa og
tóku þau land í Rotterdam.
Tveir af liðsmönnum, þeir Einar
Öder Magnússon og Atli Guð-
mundsson fylgdu hrossunum og
sagði Pétur að vel hefði farið um
þau á leiðinni. Þeir Einar og Atli
teymdu hrossin tvisvar á dag um
þilfarið og ekkert bar á sjóveiki.
Voru knapamir ánægðir með ásig-
komulag hrossanna, allir við hesta-
heilsu, sagði Pétur. Þá tók Pétur
fram að öll aðstaða væri hreint út
sagt frábær á mótsstað. íslending-
ar hefðu aðstöðu afsíðis fyrir
hrossin sem valin var fyrir um ári
til að forðast smit en íslenskir hest-
ar eru mjög viðkvæmir fyrir ýmis
konar smitsjókdómum sem eru til
staðar á meginlandinu. Mönnum
er enn í fersku minni þegar svona
mót var haldið í Hollandi síðast
1979, að allir hestar íslenska liðs-
ins veiktust og urðu menn að fá
lánaða hesta frá Þýskalandi.
Þá sagði Pétur að vellirnir væru
orðnir mjög góðir en þeir þóttu
hreint afleitir á móti sem haldið
var þarna fyrir um ári. Veðrið
hefur verið frekar leiðinlegt á
mótsstað, rigning og nokkur vind-
ur en slíkt þykir bara betra með
tilliti til umhverfisbreytinga sem
hrossin verða fyrir. íslendingarnir
búa á móteli sem er steinsnar frá
mótssvæðinu og tekur innan við
tíu mínútur fyrir þá að ganga
þangað. Hægt er að leigja reiðhjól
og tekur þá tvær mínútur að kom-
ast þangað, segir Pétur.
Þýska tolleftirlitið rannsakar bókhald Iseyjar
Eigandinn segist
ekkert hafa að fela
MENN frá þýska tolleftirlitinu heimsóttu fyrirtækið ísey
í Bremerhavenn óvænt á miðvikudagsmorguninn og fóru
fram á að fá að kanna bókhald fyrirtækisins en það flytur
fisk frá Islandi til Þýskalands. Samúel Hreinsson eigandi
íseyjar segir að tollararnir hafi verið í góðan hálftíma á
skrifstofum hans en farið að svo búnu. „Við höfum ekkert
að fela hér en þessi heimsókn kom mér ekki á óvart miðað
við alla fjölmiðlaumræðuna
tollsvik í fiskviðskiptum hér,
Hr. Thoms, yfirmaður tolleftir-
litsins í Bremen, segir í samtali
við Morgunblaðið að hann geti
staðfest að rannsókn standi nú
yfir á nokkrum fyrirtækjum vegna
gruns um að íslenskur fiskur hafi
verið seldur undir lágmarksverði.
Hinsvegar sé ekki hægt að gefa
upp nöfn þeirra fyrirtækja sem
rannsóknin beinist að.
„Rannsóknin er enn á byijunar-
stigi og ekki er leyfilegt að gefa
Kveikti
sjálfur í
sem verið hefur í gangi um
segir Samúel.
neinar upplýsingar um hana meðan
hún er í gangi,“ segir Thoms. Að
hans sögn ættu niðurstöður að
liggja fyrir innan 4-6 vikna.
Lent í þessu tvisvar áður
Samúel Hreinsson segir að hon-
um hefði fundist það skrýtið ef
þessi mál yrðu ekki rannsökuð
miðað við þá hörðu umræðu sem
verið hefur um málið í fjölmiðlum.
„Það má geta þess að við höfum
tvisvar áður lent í rannsóknum af
svipuðum toga og þessi var en þar
var um skattaeftirlitið að ræða,“
segir Samúel. Hann vissi ekki til
að önnur íslensk innflutningsfýrir-
tæki í Þýskalandi hefðu fengið toll-
eftirlitið í heimsókn en sagði að
það kæmi sér á óvart ef svo yrði
ekki.
NIÐURSTAÐA lögreglurann-
sóknar á upptökum eldsins sem
braust út á Njarðargötu 39 í
Reykjavík sl. þriðjudag er sú að
maðurinn sem fórst í eldsvoðan-
um hafi kveikt eldinn og vætt
húsið í bensíni.
Húsið stórskemmdist og við lá
að sambyggð hús yrðu eldinum að
bráð. Að ósk ættingja mannsins
sem fórst verður nafn hans ekki
birt í Morgunblaðinu.
VJterkurog
k_/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
á sunnudögum í ágúst
Veitingar og
skemmtiatriöi fyrir
alla fjölskylduna.
HÓTEL LOFTLEIIIR
LON & BLOMASALUR
m Ljósmynd/Kristján Pétur
Gert sjoklart
10 KRAKKAR á aldrinum 8 til 13 ára tóku þátt í siglinganámskeiði
á Optimist - bátum hjá Siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi á dögunum.
Námskeiðið var undirbúningur fyrir íslandsmótið um síðustu helgi.
Myndbandamarkaður
Rætt við
leigur og
útgefendur
STARFSMENN Samkeppn-
isstofnunar hafa undan-
farna daga verið að ræða
við og taka skýrslur af eig-
endum myndbandaleiga og
útgefendum myndbanda
vegna ásakana um meint
samráð útgefenda og mynd-
bandaleiga innan Mynd-
marks um lágmarksverð og
ólöglega viðskiptahætti.
Guðmundur Sigurðsson, yfírvið-
skiptafræðingur Samkeppnis-
stofnunar, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að stofnunin
stefndi að því að ljúka rannsókn
málsins í næstu viku. Hann vildi
ekki að svo stöddu skýra frá því
hvað hefði komið út úr viðtölunum.
SPflRIÐ ÞÚSUIUDIR KRÚNA. ÖLL GÓLFEFNIÁ EINUIVISTAG.
DÚKAR - FLÍSAR - PARKEI - TEPPI - MQTTUR - AFGANGAR. TAKIfl MÁLIN MEB.
12-20%
«7sa\y (20-30%
INIiAR MCn AI IT \ý/í a\ V
15-70%
VBD Dd*
15-50%
yts a\*
20-50%
*ts a\*
«ts a\*
\\isa
15-30%
vts a\^
11. man.
AFGANGAR MEÐ ALLT
AD 70% AFSLÆTTI
kredit
18 mán.
raðgreiðslur
1
s
TEPPABUÐIN
SUÐURLANDSBRAUT 26 • SÍMAR 681950 - 814850