Morgunblaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1993 43
KNATTSPYRNA / 1. DEILD KARLA
Janus þjálf-
ar KR-inga
JANUS Guðlaugsson, íþrótta-
kennari og fyrrum atvinnumað-
ur í knattspyrnu, var í gær ráð-
inn þjálfari 1. deildarliðs KR
ásamt Atla Eðvaldssyni. Eins
og greint var frá í blaðinu í gær
lét tékkneski þjálfarinn Ivan
Sochor af störfum hjá félaginu
vegna lélegrar frammistöðu
liðsins í undanförnum leikjum.
Lúðvík Georgsson, formaður
knattspyrnudeildar KR, sagði
við Morgunblaðið að ákveðið hafí
verið að leysa þetta mál innan fé-
lagsins og þess vegna var leitað til
Janusar, sem hefur þjálfað 2. flokk
félagsins og haft yfirumsjón með
unglingaflokkum félagsins. Hann
þekkir því vel til í herbúðum KR-
inga. „Skútan er lögð í hendur Jan-
usar og Atla og þeir eiga að sjá
um að koma henni í höfn og við
treystum þeim til þess,“ sagði Lúð:
vík.
Formaðurinn sagði að stjórnin
og leikmenn liðsins hafí verið sáttir
við þessa niðurstöðu. „Það verða
vonandi áherslubreytingar við
þjálfaraskiptin. Það þarf að fínna
ánægjuna hjá strákunum aftur,“
sagði Lúðvík.
Næsti leikur KR-inga er við ÍBV
í Vestmannaeyjum á sunnudaginn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Janus Guðlaugsson stjómaði æfingu hjá KR í fyrsta sinn í gærkvöidi. Ef
marka má svip leikmanna á myndinni er Janus að stappa stálinu í þá.
ÚRSLIT
4 2. mínútu fengu
1 B^#Þórsarar horn-
spymu. Sveinbjörn sendi á Hlyn
Birgisson sem skaut að marki
af vítateig, knötturinn fór I
vamarmann Víkinga og í mark-
hornið.
<*% af%Þórsarar fengu horn-
spyrnu sem Svein-
björn tók á 12. mínútu. Eftir
mikinn darraðardans í vítateig
Víkings barst boltinn til Sigxir-
páls Árna Aðalsteinssonar
sem skoraði af stuttu færi.
3a^V?á1l Gíslason tók
■ l#hornspymu á 65.
mín., sendi á höfuð Júlíusar
Tryggvasonar sem skallaði af
krafti í netið.
4a#%Á 66. mínútu sendi
»\#Hlynur góða send-
ipgu upp kantinn á Sigurpái
Áma sem framlengdi áfram á
Sveinbjörn Hákonarson, sem
skoraði frá markteig.
C«Afflynur lék ;l n°kkra
■\#Víkinga og sendi
knöttinn frá vítateig á Ama Þ6r
Árnason sem komst einn inn-
fyrir, lék framhjá Guðmundi og
skoraði á 83. mín.
5a «■ Eftir mikla þvögu á
■ | vítateig Þórs barst
knötturinn til Lámsar mar-
kvarðar frá samherja. Láms tók
knöttinn upp með höndum og
fékk dæmda á sig óbeina auka-
spyrnu 6 metra frá marklínu.
Upp úr henni skoraði Atli Helga-
son á 87. mín.
Þórsarar kafsigldu
slaka Víkinga
ÞÓRSARAR unnu stórsigur 5:1
á Víkingum igærkvöldi. Með
þessum sigri þokuðu Þórsarar
sér af hættusvæðinu við botn
deildarinnar, en staða Víkinga
dökknaði enn. Fyrir þessa um-
ferð voru Þórsarar búnir að
skora tfu mörk, í tólf umferð-
um, og fjölgaði mörkunum því
um fimmtíu prósent í þessum
eina leik.
Frá
Reyni
Eiríkssyni
á Akúreyrí
Júlíus Tryggvason, fyrirliði Þórs,
var að vonum ánægður eftir
leikinn. „Við vissum að það var
annað hvort að duga
eða drepast eftir
skellinn á Akranesi
um síðustu helgi.
Leikurinn var mjög
mikilvægur vegna þess að ef við
hefðum ekki sigrað beið okkar
strögl á botninum. Við lékum vel
og náðum að skora mörg góð mörk
sem oft hefur vantað hjá okkur í
sumar,“ sagði fyrirliðinn.
Þórsarar hófu leikinn af krafti,
og eftir rúmlega einnar mínútu leik
lá knötturinn fyrsta sinni í marki
Víkinga og var þar að verki Hlynur
Birgisson. Litlu síðar mátti Guð-
mundur Hreiðarsson, markvörður
Víkings, hafa sig allan við er hann
varði þrumuskot frá Emi Viðari. Á
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlynur Blrgisson var besti leik-
maður Þórs gegn Víkingum.
12. mín. kom svo annað mark Þórs-
ara og var þar að verki Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson, sem er kannski
betur þekktur sem handknattleiks-
maður úr Þór. Eftir þessa kröftugu
byijun dofnaði heldur yfir leiknum
og fór hann að mestu fram á miðju
vallarins.
Þórsarar fengu dauðafæri strax
í upphafi seinni hálfleiks en Guð-
mundur sá við þeim. Guðmundur
Steinsson, Víkingur, fékk skömmu
síðar ágætis tækifæri á að minnka
muninn, en allt kom fyrir ekki.
Þegar Víkingar virtust vera að
komast meira inní leikinn vöknuðu
Þórsarar og kafsigldu Víkinga síð-
ustu 25 mínúturnar með þremur
mörkum. Fyrst Júlíus, þá Svein-
björn og endahnútinn á fimm
marka sigur þeirra batt Árni Þór
Árnason. Auk þess áttu Þórsarar
tvö góð skot að marki sem Guðr
mundur varði mjög vel. Fjórum
mín. fyrir leikslok náði Víkingur
að klóra í bakkann með marki Atla
Helgasonar.
Þórsarar mættu mjög ákveðnir
til þessa leiks og Víkingar áttu aldr-
ei neitt svar við baráttu og krafti
þeirra. Júlíus var færður aftur á
sinn gamla stað í vörninni með
Hlyn sér við hlið og máttu sóknar-
menn Víkinga sig lítils. Sveinbjörn
og Sigurpáll Ámi léku frammi og
tókst ágætlega upp.
Víkingar voru slakir í þessum
leik, vörnin eins og gatasigti og
sóknin bitlaus. Sá sem stóð sig best
í liði þeirra og kom í veg fyrir stærri
sigur Þórs var Guðmundur Hreið-
arsson, markvörður.
Þór-Víkingur 5:1
Akureyrarvöllur, íslandsmótið í knatt-
spyrnu — 1. deild karla, fimmtudaginn 19.
ágúst 1993.
Aðstæður: Norðan gola, rigning og völlur-
inn blautur og háll. ,
Mörk Þórs: Hlynur Birgisson (2.), Sigur-
páll Árni Aðalsteinsson (12.), Júiíus
Tryggvason (65.), Sveinbjöm Hákonarson
(66.), Ámi Þór Amason (83.).
Mark Víkings: Atli Helgason (86.).
Gult spjald: Stefán Ómarsson, Víkingi (31.)
- fyrir brot, Atli Helgason, Víkingi (39.) -
fyrir brot, Tómas Javorek, Víkingi (57.) -
fyrir mótmæli. Láms Orri Sigurðsson, Þór
(40.) - fyrir brot, Örn Viðar Arnarson, Þór
(59.) - fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Ólafur Ragnarsson. Dæmdi ágæt-
lega.
Línuverðir: Gísli Guðmundsson og Jón Sig-
uijónsson.
Áhorfendur: 370 greiddu aðgang.
Þór: Láras Sigurðsson — Öm Viðar Amar-
son, Hlynur Birgisson, Júlíus Tryggvason,
Þórir Askelsson — Páll Gíslason, Sveinn
Pálsson, Láras Orri Sigurðsson, Ásmundur
Amarsson — Sveinbjörn Hákonarson, Sig-
urpáll Ámi Aðalsteinsson (Ámi Þór Ámason
68.).
Víkingur: Guðmundur Hreiðarsson — Stef-
án Ómarsson, Hörður Theódórsson, Björn
Bjartmarz — Hólmsteinn Jónasson (Snævar
Hreinsson 57.), Marteinn Guðgeirsson, Atli
Helgason, Kristinn Hafliðason Guðmundur
Guðmundsson — Guðmundur Steinsson,
Tomas Javorik.
Hlynur Birgisson, Þór.
Öm Viðar Arnarson, Sveinbjöm Hákonar-
son, Ásmundur Amarson, Júlíus Tryggva-
son, Páll Gíslason, Þór. Guðmundur Hreið-
arson, Víkingi.
I
I
I
l
I
t
EVROPUKEPPNIN
Albanir reikna með að
sigrast á „óþekkta“
fslenska andstæðingnum
ÍSLANDSMEISTARAR Akurnesinga í knattspyrnu fara áleiðis til
Albaníu í dag, þar sem þeir mæta Partizan frá Tirana, ífor-
keppni Evrópukeppni meistaraliða á sunnudag. Þetta erfyrri
leikur liðanna en sá síðari verður á Akranesi um mánaðamótin.
Skv. upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér, er al-
banska liðið það lang sterkasta þar í landi og búast Albanirnir
við að slá andstæðinginn „óþekkta" frá íslandi út úr keppninni.
Partizan varð albanskur meistari
í 15. skipti sl. vor. Liðið hlaut
43 stig en Tauta varð í öðru sæti,
fímm stigum á eftir. Partizan-liðið
gerði 53 mörk í 30 leikjum, en fékk
23 á sig. Liðið sigraði í 17 leikjum,
gerði níu jafntefli og tapaði aðeins
fjórum leikjum. Þess má geta að lið-
ið varð einnig albanskur bikarmeist-.
ari, sigraði Albpetrol 1:0 í úrslita-
leik. Helsti markaskorari Albaníu
spilar með Partizan, Admond Dosti,
27 ára, sem gerði 21 mark í deild-
inni á síðasta keppnistímabili.
Skv. upplýsingum sem Morgun-
blaðið fékk um lið Partizan, er Edm-
ond Dosti mjög hættulegur fram-
herji. Fljótur og leikinn, góður skot-
maður með báðum fótum og mjög
sterkur skallamaður. Markvörðurinn
Avenir Dano er sagður öruggur,
enda mjög leikreyndur og lykilmaður
í vamarleik liðsins. Vamarmennirnir
era sagðir sterkir og gjamir á að
sækja fram, sérstaklega bakvörður-
inn Shahin Barberi, sem sé mjög
hættulegur þegar hann bregði sér í
sóknina. Liðsmenn Partizan eru
sagðir nokkuð stórir, sterkir líkam-
lega, en einnig fljótir og með góða
knatttækni. Liðið er sagt leggja allt
kapp á sóknarleik á heimavelli. „Við
eram mun sigurstranglegri á heima-
velli. Við verðum að sigra með að
minnsta kosti tveggja marka mun,
til að vera í góðri stöðu áður en við
ferðumst til hins fjarlæga íslands.
Við búumst við hinu versta þar, en
vonumst þó til að slá andstæðinga
okkar út úr keppninni," sagði fyrir-
liði Partizan, Adnad Ocelli, við blaða-
mann sem sendi Morgunblaðinu
þessar upplýsingar.
Lið Partizan, sem er að byija
keppnistímabilið um þessar mundir
eins og önnur félög á meginland-
inu, hefur æft tvisvar á dag síðan
6. júlí. „Ég held að albönsk knatt-
spyma sé betri hvað tækni og leik-
skipulag varðar en sú íslenska.
Aftur á móti hef ég heyrt að íslensk-
ir leikmenn sé mjög duglegir og
gefíst aldrei upp; hlaupi stanslaust
í 90 mínútur. Við megum þess
vegna ekki sofna á verðinum, verð-
um að koma til leiks vel undirbúnir
til beggja leikja," sagði þjálfari liðs-
ins, Sulejman Starova.
Hitinn í Tirana gæti reynst leik-
mönnum IA erfiður, en reiknað er
með allt að 35 stiga hita meðan
leikurinn stendur yfír, en hann hefst
kl. 17 að staðartíma. Búist er við
25.000 áhorfendum á leikinn á
sunnudaginn á leikvanginum í Tir-
ana, þar sem íslendingar töpuðu
0:1 fyrir Albönum í Evrópukeppni
landsliða fyrir tveimur árum. Þess
má geta að einn leikmaður ÍA-liðs-
ins í dag tók þátt í þeim leik, Ólaf-
ur Þórðarson, sem þá var reyndar
í herbúðum norska liðsins Lyn.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍA 13 11 1 1 46: 12 34
FH 12 7 3 2 24: 17 24
FRAM 13 7 1 5 33: 22 22
VALUR 12 6 1 5 20: 14 19
ÞÓR 13 5 3 5 15: 18 18
ÍBK 12 5 2 5 19: 22 17
KR 13 5 1 7 25: 25 16
FYLKIR 13 4 1 8 16: 28 13
ÍBV 12 3 3 6 15: 26 12
VÍKINGUR 13 1 2 10 14: 43 5
2. deild kvenna
A-riðill:
Fram- Haukar..........................1:7
B-riðilI:
Dalvík - Tindastóll................. 3:1
C-riðill:
Einherji-KBS..........................3:1
Eydís Hafþórsdóttir 2, Svava Birna Stefáns-
dóttir - Katrín Jónsdóttir
4. deild D
Höttur - Huginn..................... 4:1
Grétar Eggertsson 2, Haraldur Klausen,
Hörður Guðmundsson -
Frestað í Kaplakrika
Fresta varð leik FH og ÍBV í 1.
deild karla sem fram átti að fara í
Kaplakrika í Hafnarfírði gærkvöldi
vegna þess að Eyjamenn komust
ekki til lands í tæka tíð vegna veð-
urs. Leikurinn hefur verið settur á
27. ágúst.