Morgunblaðið - 15.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.09.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 208. tbl. 81.árg. MIÐVIKUDAGUR15. SEPTEMBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins Noregur fjar- lægist EB-aðild Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. LÍKURNAR á því að Noregur gangi í Evrópubandalagið (EB) minnk- uðu verulega eftir þingkosningarnar, sem fram fóru í landinu á mánudag. Þegar 89% atkvæða höfðu verið talin benti allt til þess að andstæðingar EB-aðildar á þingi yrðu 74 af 165. í samtali við Aftenposten lýsti Gro Harlem Brundtland forsætisráð- herra áhyggjum sínum vegna þessa Hafnaði bónorði Fischers Búdapest. Reuter. BOBBY Fischer, fyrrum heimsmeistari í skák, brást ókvæða við er ungversk kær- asta hans, Zita Rajcsanyi, hafnaði bónorði hans, að sögn dagblaðsins Kurir. Ungverska skákkonan sem er tvítug staðfesti í samtali við Kurir að hún hefði hryggbrotið Fischer. Hann bað hennar er þau voru stödd í héraðinu Vojvodina í Serbíu. „En ég hafnaði bónorð- inu þar sem mér fannst hann ekki vera draumaprinsinn minn,“ sagði Rajcsanyi. Aðspurð um hvemig Fischer hefði tekið synjuninni sagði hún: „Hann gekk nánast af göflum, skipti um ham og varð rnjög ruddalegur." Hún vildi ekki gefa nánari upplýsingar en sagði að hann hefði sært ástvini sína og valdið ieiðindum. Mótleikur hennar við hamskiptum Fischers var að segja honum upp. og sagði það vera umhugsunarvert hversu margir hinna nýkjörnu þing- manna vildu ekki taka tillit til þjóðar- atkvæðagreiðslu um inngöngu í EB. Vegna tölvubilunar hafa tölur frá Ósló ekki enn borist en talið er að niðurstöður verði ámóta og þegar 89% atvæða höfðu verið talin. Mið- flokkurinn hafði þá fengið 16,5% atkvæða, sem er 10% aukning. Flokkurinn fær því 31 þingmann en hafði 11. Verði úrslitin óbreytt hefur Verkamannaflokkurinn aukið fylgi sitt um 2,6% og fær því 67 þing- sæti. Hægriflokkurinn tapaði 4,8% fylgi og átta þingsætum. Sósíalíski vinstriflokkurinn hefur hlotið 13 þingsæti. Allt bendir til þess að andstæðing- ar EB-aðildar á þingi verði 74 en 90 fylgjandi. Tveir þingmenn Verka- mannaflokksins hafa neitað að gefa upp afstöðu sína til aðildar. Sjá „Andstæðingar EB...“ bls. 20 Samkomulag um frið FULLTRÚAR Jórdana og ísraela, Fayez Tarameh og Elyakim Rubinstein, takast í hendur eftir að hafa undirritað viljayfirlýsingu um friðarsamning landanna. Yfirlýsingin var undirrituð í Washington og sést m.a. í Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir aftan fulltrúana. Samkomulag Jórdana og ísraela um að hefja friðarviðræður Yitzliak Rabin væntir við- urkenningar arabaríkja Shevardn- adzenær sínu fram Tbílísi. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, leið- togi Georgíu, tók tilmælum tug- þúsunda stuðningsmanna í gær og ákvað að endurskoða þá ákvörðun sína frá því fyrr um daginn að segja af sér. Shevardnadze setti tvö skilyrði fyrir því að gegna áfram leiðtoga- starfi. „Hið fyrra er að þingið sam- þykki á morgun [í dag] neyðarlög og hið síðara að það samþykki síðan að gera þriggja mánaða hlé á störfum sínum,“ sagði hann á útifundi í miðborg höfuðborgar- innar. Þingið synjaði Shevardnadze um neyðarlög í gærmorgun með þeim afleiðingum að hann sagðist segja af sér en síðdegis gekk það að fyrra skilyrði hans og fól honum að stjórna með neyðarlögum í tvo mánuði frá 20. september. Búist var við að þingið gengi einnig að síðara skilyrðinu. Reuter Lufthansa-vél brotlendir í Varsjá FLUGVÉL þýska flugfélagsins Lufthansa, Airbus A320, brotlenti í lendingu í Varsjá í Póllandi í gær. Sjötíu manns voru um borð, 64 farþegar og sex manna áhöfn. Mikil rigning var er slysið varð og eldur kviknaði í vélinni þegar eftir brotlendinguna. Lufthansa lýsti því yfír í gærkvöldi að 68 hefðu lifað slysið af en pólska lögreglan sagði að óvíst væri um afdrif 16 manna. Washington, Amman, Rabat, Ósló. Reuter. STAÐFEST var í gær í Washington vifjayfirlýsing ísraela og Jórd- ana um að hefja viðræður um frið. Að sögn jórdanskra embættis- manna hafa vaknað vonir um að yfirlýsingin leiði til þess að alls- heijár friðarsáttmáli verði gerður milli ísraela og nágranna þeirra innan tveggja ára. Samkomulagið var að miklum hluta tilbúið á síðasta ári en Jórdanar vildu ekki staðfesta það fyrr en Palestínu- mönnum yrði ágengt í friðarumleitunum sínum við ísraela. Yitz- hak Rabin, forsætisráðherra Israels, kom við í Marokkó á heim- leið frá Bandaríkjunum og ræddi við Hassan, konung landsins. Vakti óvænt heimsókn hans vangaveltur um að Marokkó yrði fyrst arabaríkja til að viðurkenna Ísraelsríki að Egyptum frátöldum sem viðurkenndu það í kjölfar Camp-David samkomulagsins 1979. Sagðist Rabin búast við að Arabaríkin fetuðu í fótspor Egypta og Frelsissamtaka Palestínu innan skamms Sendiherra Jórdana í Bandaríkj- unum og aðalsamningamaður Isra- ela undirrituðu samkomulag rikj- anna um að hefja samninga. Samn- ingur landanna verður byggður á tveimur samþykktum Sameinuðu þjóðanna um að ísraelar dragi herlið sitt til baka frá herteknu svæðunum. Með viljayfirlýsingunni hafa ísraelar samþykkt að draga her sinn til baka frá tveimur óbyggðum svæðum, við Dauðahafið og í Norður-Jórdaníu sem Israelar náðu á sitt vald í sex daga stríðinu 1967. Þar sem Palest- ína er ekki viðurkennt ríki verður samningur ísraela við Jórdana hinn fyrsti sem ísrael gerir við arabaríki frá 1979. Viðbrögð í Jórdaníu voru ýmist ánægja eða vonbrigði, einn jórd- anskra stjórnmálaflokka kallaði hann „innrás gyðinga" en annar sagði að samningurinn myndi binda enda á hugmyndina um að Jórdanía væri hugsanlegt föðurland Palest- ínumanna. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, átti fund með George Mitchell, leiðtoga demókrata á Bandaríkjaþingi, í gær. Óskaði Arafat eftir því að lögum, sem bönnuðu fjárhagsstuðning við Palestínumenn, yrði aflétt. Geir Lundestad, forseti Nóbels- stofnunarinnar, gerði að engu vonir manna um að þeir sem stóðu að samningum ísraela og PLO hlytu frið- arverðlaun Nóbels í ár. Hann sagði samningamenn verða að bíða til ársins 1994, þar sem frestur til að skila inn tillögum rann út 1. febrúar sl. Sjá „Samtök heittrúar- manna...“ bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.