Morgunblaðið - 15.09.1993, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993
51500
Maríubakki - Rvík
Til sölu góð 3ja herb. íb. á 1.
hæð. Herb. fylgir í kj. V. 6,8 m.
Hafnarfjörður
Klettahraun
Gott einbhús ca 140 fm íbhæð
auk kj., bílsk. og blómaskála.
Fallegur garður. Skipti mögul. á
minni eign. V. 15,0 m.
Hjallabraut 33
- þjónustuíbúð
Höfum fengið til sölu 3ja herb.
íb. á 4. hæð á þessum vinsæla
stað fyrir Hafnfirðinga 60 ára
og eldri. Áhv. ca 3,2 m. byggsj.
Álfaskeið
Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á
1. hæð í þríbýlishúsi.
Klettagata
Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í
tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta
selst saman.
Lindarhvammur
Glæsil. efri sérhæð ásamt risi
ca 140 fm. Mikið endurn.
Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn-
arfirði ca 200-300 fm.
Ölduslóð
Til sölu góð ca 110 fm íb. í tvíb-
húsi á 2. hæð. 4-5 herb.
Hjallabraut
Góð 4ra-5 herb. íb. á 1. hæð í
fjölbhúsi. Nýviðgert að utan.
Árni Grétar Finnsson hrl.,
Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.,
dö™ Linnetsstíg 3, 2. hœð, Hfj.,
símar 51500 og 51601.
Þorsteinn Guðmundsson og Bessi Bjarnason í hlutverkum sínum í Spanskflugunni.
Borgarleikhúsið
Spanskflugan eftir Arnold og
Bach frumsýnd á Stóra sviðinu
SPANSKFLUGAN eftir Arnold
og Bach verður frumsýnd á
Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu
föstudaginn 17. september.
Leikstjóri er Guðrún Asmunds-
Arnarholt - Borgarfirði
Jörðin Arnarholt, Stafholtstungnahreppi, Mýrasýslu er
til sölu. Góðar byggingar, landmikil jörð, umtalsverð
veiðihlunnindi. Hitaveita. Jörð sem gefur mikla mögu-
leika hvort heldur til búskapar eða t.d. fyrir félagasam-
tök. Myndir og nánari uppl. gefnar á skrifstofu FM.
Einkasala. 10279.
ffe^FASTEIGNA
1 MIÐSTÖÐIN
162 20 30 SKIPHOLTI50B - 105 REYKJAVÍK
SÍMI 622030 - SÍMBRÉF 622290
dóttir, en hún setti Spanskflug-
una upp fyrir rúmum tuttugu
árum á vegum Húsbyggingar-
sjóðs og er sú sviðsetning mörg-
um í fersku minni, en ríflega
fimmtíu þúsund áhorfendur sáu
þá sýningu.
Spanskflugan hefur verið á fjöl-
um Leikfélagsins reglulega frá því
verkið var frumsýnt á íslandi 1926.
Er óhætt að fullyrða að fá verk á
sýningarskrá Leikfélagsins hafi
hlotið jafn innilegar móttökur
áhorfenda. Þessu græskulausi
gamanleikur skipar þannig sér-
stakan sess í huga almennings og
ættu endurvakin kynni af Klinke
sinnepsframleiðanda, vinum hans
og vandamönnum, að vekja sömu
viðbrögð áhorfenda og löngum:
óbærilega skemmtun og óstöðv-
andi hlátur.
Að þessu sinni fer Bessi Bjarna-
son með hlutverk Klinke, en hans
góðu konu leikur Helga Þ. Steph-
ensen. Pála dóttir þeirra er í hönd-
um Eddu Heiðrúnar Backman.
Vinahópur Klinke er leikinn af
Karli Guðmundssyni, Guðmundi
Ólafssyni og Marinó Þorsteinssyni.
Elskhuginn ungi er í höndum
Valdimars Flygenring. Assiríu-
fræðingurinn uppburðarlitli er leik-
inn af Þorsteini Guðmundssyni, en
Wally, þá sem honum ann, leikur
Guðrún Marinósdóttir. Aðrir sem
fram koma í sýninguni eru Soffía
Jakobsdóttir, Ragnheiður Elfa
Arnardóttir, Theódór Júlíusson og
Valgerður Dan. Þá er þriggja
manna hljómsveit sem annast und-
irleik söngva í Spanskflugunni
undir stjórn Carls Möller. Leik-
mynd hannar Steinþór Sigurðsson
en Þórunn Sveinsdóttir búninga.
Dansa semur Guðmunda Jóhann-
esdóttir en lýsingu Ögmundur Þór
Jóhannesson.
Spanskflugan er sígildur gam-
anleikur misskilnings, blekkinga
og undanbragða. Hann hefur stað-
ið fyrir sínu sem fölskvalaus
skemmtun í nær sjötíu ár á íslensk-
um leiksviðum og væntir Leikfélag
Reykjavíkur þess að svo verði einn-
ig á frumsýningunni þann 17 sept-
ember.
(Fréttatilkynning)
Leiklist-
ar klúbbur
Tónabæjar
setur upp
sýningu
LEIKLISTARKLÚBBUR Tóna-
bæjar er um þessar mundir að
setja upp leikritið „Fullorðinssag-
an um Lísu í Undralandi" eftir
Klaus Hagerup.
Hópurinn samanstendur af 12
unglingum sem hafa unnið saman
síðastliðin 2 ár undir stjórn Maríu
Reyndal. Vorið 1992 settu þau upp
leikritið „Slúðrið“ eftir Flosa Ólafs-
son sem tókst mjög vel. Nú seinni
part sumars hafa krakkarnir unnið
hörðum höndum við undirbúning
Lísu í Undralandi. í leikritinu er
frumsamin tónlist eftir Kristján Við-
ar Haraldsson og Óla Jón Jónsson
og Kristín Thors sér um smink og
hár. Leikstjóri og leiðbeinandi hóps-
ins er María Reyndal.
Frumsýnt var miðvikudaginn 8.
september og lokasýning 17. sept-
ember en sýningarnar verða 7 tals-
ins. Sýningartíminn verður kl. 20.30
og miðaverð 500 krónur.
(Fréttatilkynning)
----------------
Stofnfund-
ur Menning-
ar- og lista-
samtaka
STOFNFUNDUR Menningar- og
listasamtaka ungs fólks á Islandi
verður haldin í Hinu húsinu,
Brautarholti 20, á morgun
fimmtudaginn 16. september kl.
14 á 3. hæð.
Tilgangur samtakanna er að
starfrækja upplýsingamiðstöð í sam-
ráði við félög, félagasamtök, ríki og
sveitarfélög.
Að vinna að varðveislu íslenskrar
menningar með hagsmuni alls ungs
fólks að leiðarljósi. Að styðja við
bakið á ungu listafólki. Að koma
ungu fólki á framfæri. Að efla sam-
skipti ungs fólks á íslandi við erlend
menningar- og listafélög.
Helstu stofnaðilar eru Bandalag
íslenskra sérskólanema (BÍSN) og
Félag framhaldsskólanema (FF) og
aðrir þeir sem eru sérstaklega skráð-
ir í samtökin.
011 KH 01 07A L^RUS Þ' VALDIMARSS0N FRAMKVÆMDASTJORI ■
L I Iwvakl0/v KRISTINNSIGURJONSSON,HRL.loggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu - eignir sem vekja athygli:
Nýleg eign - einstakt tækifæri
Vel byggt stein- og stálgrindarhús v. Kaplahraun í Hafn. Grunnfl. 300
fm. Vegghæð 7 m. Glæsil. innr. ris 145 fm íb./skrifst. Stór lóð m.
byggrétti. Margs konar breytinga- og nýtingamögul. Ýmiss konar eigna-
skipti möguleg. Tilboð óskast.
Glæsileg sérhæð - eignaskipti möguleg
Efri hæð 143 fm nettó v. Hvassaleiti. Sólsvalir. Allt sér. Góður bílsk.
28,1 fm. Miklar geymslur í kj. Glæsil. trjágarður. Fráb. útsýni.
Háaleitisbraut - endaíbúð - bflskúr
Mikið endurn. 5 herb. endaíb. neðarl. v. Háaleitisbraut. Svalir. Endur-
bætt sameign. Fráb. útsýni. Tilboð óskast.
Lítii sérhæð - tvíbýli
Nýendurbyggð 3ja herb. íb. rúmir 80 fm á neðri hæð í tvíbhúsi í
Smáíbúðahverfi. Allt sér. 40 ára húsnlán 3,6 millj. Tilboð óskast.
Hafnarf jörður - ný úrvalsíbúð - útsýni
Stór 2ja herb. íb. á 3. hæð v. Álfholt. Uppgerð sameign. Parket. Sér-
þvottaaðstaða. Langtlán kr. 3,0 millj. Fráb. útsýni.
Endaíbúð - sérþvottahús - bflskúr
Stór og góð 5 herb. endaíb. við Stelkshóla. Skipti æskil. á góðri 4ra
herb. íb. t.d. í nágrenninu.
Dagiega leita tii okkar
traustir kaupendur með margs konar óskir um kaup á fasteignum.
Sérstaklega óskast 3ja-4ra herb. íb. í Vogum eða nágr. og ennfremur
einbhús eöa raðhús í borginni sem þarfnast standsetningar.
• • •
Auglýsum á 10. eða 11. síðu
í Mbl. að jafnaði á þriðju-,
miðviku- og laugardögum.
Opið á laugard. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAl AH
Þuríður Baxter í Hafnarborg
_________Tónlist____________
Ragnar Björnsson
Að því mér skilst voru tónleikar
Þuríðar í Hafnarborg sl. sunnudag
hennar fyrstu sjálfstæðu opinberu
tónleikar. Píanóleikari á tónleik-
unum var Davíð Knowles, nú orð-
inn Játvarðsson, vegna nýfengins
íslensks ríkisfangs. Að því leyti
voru þetta óvenjulegir debut-tón-
leikar að flytjandinn var öfugu
megin við tvítugt. Að þvi leyti
voru þetta ekki venjulegir frum-
raunar-tónleikar að viðkomandi
hafði þroskaðan tónlistarsmekk
og heldur ekki um alvenjulega
söngtónleika að ræða, þar sem
söngkonan virðist vel músíkölsk.
Að því leyti aftur á móti, venjuleg-
ir frumraunartónleikar að ekki var
allt í topplagi.
Hvort röddin er lítil eða mikil á
eftir að koma í ljós, því enn er hún
í nokkrum viðjum, er svolítið stíf,
verður við það grönn og á til að
verða sár, eins og flytjandinn þori
ekki að láta röddina hljóma í öllum
líkamanum, leyfa röddinni að
fljúga eins og hún hefur eðli til.
Fyrir bragðið verður sönglínan
stundum svolítið óhrein, nokkuð
sem er algjörlega óskylt slæmri
Þuríður Baxter
tónheyrn og er því óþarft ef stuðn-
ingur á tóninum er réttur. Stund-
um getur þetta orðið af hræðslu
við að verða grófur, eða að missa
röddina frá sér, en fljúgandi fær,
hinn situr eftir.
Þuríður byrjaði tónleikana með
nokkrum gömlum ítölskum lögum
sem mér fannst einna síst skila
sér í meðferð Þuríðar, eins og hún
áttaði sig ekki fyllilega á töfrum
og séreinkennum þessara gömlu
laga. Píanóleikur Davíðs hjálpaði
því miður ekki mikið til, nóturnar
voru réttar, en fram yfir það var
ekki mikil hjálp, innblásturinn
vantaði. Gabriel Fauré-lögin komu
á óvart. Þar var Þuríður sem á
heimavelli, hún náði stílnum og
þó tónarnir væru ekki alltaf hrein-
ir, svifu yfir listræn tök, nokkuð
sem „réttu megin við tvítugt“ nær
ekki. í Les berceaux sýndi Þuríður
fallega dýpt. Hún sýndi oft í efnis-
skránni góðan flúrsöng og undir-
rituðum datt oftar en einu sinni í
hug hvort hún ætti ekki að reyna
sig við kóloratúr. Fleiri frönsk tón-
skáld komu í kjölfarið og virðist
litur raddarinnar henta vel
franskri músík. í lokin söng Þuríð-
ur aríur úr „Tancredi“ (Rossini),
„Mignon“ (Thomas) og úr „Carm-
en“ (Bizet). Sameiginlegt um með-
ferð þessara aría var að söngkon-
an skildi og náði stílnum og er sá
hæfileiki því miður ekki alltaf
fylgifiskur.
Þrátt fyrir einhveija vöntun á
stjórnun raddarinnar var menn-
ingarbragur af tónleikum þessum
og hefðu þeir mátt heyrast nokkr-
um árum fyrr. Annars er árafjöldi
aðeins mæíikvarði sem listin tekur
ekki mark á.