Morgunblaðið - 15.09.1993, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.09.1993, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993 FOLK ■ PÉTUR Guðmundsson, kúlu- varpari úr KR, náði besta árangri sínum í ár á kastmóti sem fram fór á Laugardalsvelli sl. laugardag. Hann varpaði kúlunni 19,70 metra. Hann notaði svokallaðan O’Brian stíl. Bjarki Viðarsson, HSK, varð annar með 14,95 metra. ■ JÓN Sigurjónsson úr UBK kastaði sleggju á sama móti 59,76 metra. Bjarki Viðarsson varð ann- ar með 53,88 metra og Pétur Guðmundsson þriðji með 43,92 metra ■ TRYGGVI Nielsen úr TBR sigraði í einliðaleik á opnu móti U-18 ára í Yorkshire í Englandi um síðustu helgi. Hann vann P. Thackray frá Englandi, 15:3 og 15:6 í úrslitaleik. En í undanúrslit- um vann Tryggvi Englandsmeist- ara U-18, M. Edge, 17:14 og 15:6. ■ VIGDÍS Ásgeirsdóttir, einnig úr TBR, tók þátt í sama móti og komst í 8-manna úrslit í einliða- og tvíliðaleik. Þess má geta að Tryggvi og Vigdís eru bæði 16 ( ára og eiga því tvö ár eftir í þessum aldursflokki. ■ STEFFI Graf frá Þýskalandi vann Helenu Sukovu frá Tékk- landi 6-3, 6-3 í úrslitum einliða- leiks kvenna á Opna bandaríska mótinu í tennis um helgina. Þetta var 14. sigur Graf á stórmóti. ■ PETE Sampras frá Banda- ríkjunum sigraði í karlaflokki, vann Frakkann Cedric Pioline 6-4, 6-4, 6-3 í úrslitum. ■ SAMPRAS settist þar með í fyrsta sæti afreksmannalistans og fékk 535.000 dollara (tæplega 37 millj. kr.) j verðlaun. ■ ARNÓR Guðjohnsen var besti maður Hacken, að vanda, er liðið sigraði Oster 3:2 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. HJynur Stefánsson jafn- aði fyrir Orebro, 1:1, á útivelli gegn Degerfors á síðustu mínútu leiksins — er seinni hálfleikur var orðinn 54 mínútur! Mikið var um tafir vegna meiðsla í hálfleiknum. LEIÐRETTING Vilhjálmur fékk rautt Þróttarinn Vilhjálmur Vilhjálms- son fékk að sjá rauða spjaldið í 2. deildar leiknum við KA um helgina en ekki Óskar Óskarsson, eins og stóð í blaðinu í gær, og er beðist velvirðingar á mistökunum. HANDKNATTLEIKUR / HM 21 ARS LANDSLIÐA Dagur Sigurðsson átti mjög góðan leik gegn Svíum og skoraði átta mörk. OLYMPIUNEFND Um fjögurra millj. kr. styrkur frá Flugleiðum Verðum að treysta áSvía TIL þess að leika úrslitaleikinn, verðum við að treysta á að Svíar geri jafntefli við Egypta, eða vinni þá með minnstum mun í síð- asta leik mijliriðilsins, sagði Þorbergur Aðaisteinsson, landsliðs- þjálfari, en íslendingar, Egyptar og Svíar eru allir með sex stig fyrir síðustu umferðina. Egyptar standa best að vígi — með 23 mörk í plús, en Svíar eru með 10 mörk í plús og íslendingar 7 mörk. Íslenska liðið náði mjög góðum leik og lagði Svía að velli, 21:19 í gær, eftir að hafa verið yfir 9:7 í leikhléi. Þorbergur sagði að leikurinn hafi verið mjög erfiður, en sigurinn þó aldrei í hættu, en Svíar skoruðu síðasta mark leiksins. Dagur Sig- urðsson skoraði mest, eða átta mörk, en Patrekur Jóhannesson kom næst- ur á blaði með sjö mörk. Ingvar Ragnarsson átti mjög góðan leik í markinu. Egyptar unnu stórsigur, 22:13, á Argentínumönnum í gær. ísland leikur gegn Portúgal á morgun og með sigri er öruggt að íslendingar leika um verðlaunasæti. Þorbergur sagði að stefnt yrði að því að vinna leikinn með sem mestum mun, til að vera með sem flest mörk í plús ef markatala ræður úrslitum. KNATTSPYRNA / 2. FLOKKUR Markaregn á Akureyri KA og Fram gerðu jafntefli, 4:4, í framlengdum úrslitaleik í bikarkeppni 2. flokks á Akureyri í gærkvöldi. Leikurinn var mjög fjörugur og skoruðu KA-leikmenn þijú fyrstu mörkin — Brynjólfur Sveinsson (10. mín.) og ívar Bjarklind, tvö (42., 55.). Framarar settu Helga Sigurðsson inná í seinni hálf- leik og lagði hann upp mörk fyrir Þorbjöm Sveinsson (57.) og Rúnar Sigmunds- son (57.), áður en hann jafnaði sjálfur, 3:3, á 76. mín. Helgi skoraði síðan á fimmtu mín. framlengingarinnar, 3:4, en á 20 mín. jafnaði Þorvaldur Sigbjörns- son fyrir KA, 4:4. Liðin leika aftur í Reykjavík eftir hálfan mánuð. Fiugleiðir og Ólympíunefnd ís- lands undirrituðu í gær sam- starfssamning, sem gildir næstu fjögur ár, og verður fyrirtækið helsti styrktaraðili nefndarinnar. Samningurinn færir nefndinni um fjórar milljónir króna í ferðastyrk, en auk þess kemur nefndin til með að njóta hagstæðustu fargjalda fyr- ir íþróttafólk á hennar vegum hveiju sinni. Pétur J. Eiríksson, framkvæmda- stjóri markaðssviðs Flugleiða, og Gísli Halldórsson, formaður Ólymp- íunefndar íslands, undirrituðu samninginn. Pétur sagði við það tækifæri að íslenskir íþróttamenn væru mikilvægir viðskiptavinir Morgunblaðið/Ámi Sæberg Frá undirritun samningsins. Sigurður Skagfjörð, forstöðumaður söluskrif- stofu Flugleiða, er lengst til vinstri, síðan Pétur J. Eiríksson, Gísli Halldórsson og Júlíus Hafstein, 2. varaformaður Ólympíunefndar. Flugleiða, ekki síst vegna vaxandi erlendra samskipta, sem efldu ís- lenskan ferðaiðnað. Gísli sagði að samningurinn væri mjög mikils virði fyrir Ólympíu- nefndina, en framundan væru Vetrarólympíuleikarnir í Lilleham- mer í Noregi í bytjun næsta árs, Smáþjóðaleikarnir í Lúxemborg 1985 og Ólympíuleikarnir í Atlanta 1996. Nefndin hefði átt langt og gott samstarf við Flugleiðir, en stærsta skrefið hefði verið stigið með þessum samningi. >. GULIR OG GLAÐIR SKAGAMENN Upphitun fyrir Evrópuleikinn í Ölveri í Glæsibæ í dag frá kl. 5.30 til 7.48. ÍA varningur til sölu. Heiðursgestir: Bikarmeistarar ÍA í kvennaflokki. Skrúðganga á Laugardalsvöll. Mætið tírnanlega. Síðast mættu nærri 400 manns. Stuðningsmenn ÍA Við getum enn bætt við okkur nokkrum góðum stuðningsmönnum í þennan bráðskemmtilega félagsskap. Áhugasamir mæti í Ölver og skrái sig eða hringi í síma 686220. KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA Undarleg tilfinning segir Arnar Gunnlaugsson, sem mætirfyrrum samh.erjum sínum í ÍA Arnar Gunnlaugsson verður óvenjulegri stöðu á Laugar- dalsvelli í kvöld,_ en kl. 20.30 hefst fyrri viðureign IA og Feyenoord í 1. umferð Evrópukeppni meistara- liða. Fyrir ári átti hann stóran þátt í að tryggja Skagamönnum sæti í Evrópukeppni meistaraliða, en nú leikur hann með hollenska liðinu Feyenoord og mætir fyrrum sam- heijum sínum. „Þetta er undarleg tilfinning og það verður skrýtið að spila gegn Skagamönnum," sagði hann við Morgunblaðið eftir æfingu með Hollendingunum á Valbjarnar- velli í gær. Feyenoord er með þekktari liðum í evrópskri knattspyrnu og hefur ekki byrjað leiktíð betur í rúma tvo áratugi, en liðið hefur leikið sex leiki í hollensku deildinni og sigrað í þeim öllum. Hópurinn er sterkur og mikil barátta um stöður, en allt bendir til að Arnar leiki á vinstri vængnum í stað Reginalds Blin- kers, sem er í leikbanni. „Baráttan er mikil og þegar menn fá tæki- færi verða þeir að sýna og sanna sig,“ sagði íslenski landsliðsmaður- inn. Seinni hálfleik verður sjónvarpað beint til Hollands, en þar er gengið út frá því að Feyenoord fari örugg- lega áfram í 2. umferð. Arnar sagði að markmið félagsins væri að kom- ast í átta liða úrslitakeppnina, en menn væru minnugir erfiðra Evr- ópuleikja gegn liðum frá'ísrael og Albaníu undanfarin tvö ár og því yrði ekki um neitt vanmat að ræða. „Menn vita hvað þeir þurfa að gera og ekkert verður gefið eftir, en sennilega hef ég mestar áhyggjur. Samt held ég að þetta verði mjög gaman og spennandi." Sigursteinn úr axlariið Skagamaðurinn Sigursteinn Gíslason datt við kartöfluburð á sunnudag með þeim afleiðingum að hann fór úr axlarlið. Hann fékk sérstaka spelku í gær og æfði með hana, en Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, var ekki bjartsýnn á að_ Sigur- steinn gæti leikið í kvöld. „Ég legg mikla áherslu á að hann verði með, en útlitið er ekki gott.“ Guðjón sagði undirbúning liðsins hefðbundinn og ljóst væri að erfiður leikur væri framundan. Stuðningsmenn ÍA hittast Stuðningsmenn Skagamanna munu hittast fyrir leikinn í kvöld eins og venjan hefur verið í sumar. Þeir mæta í Ölveri í Glæsibæ kl. 18 til að hita upp fyrir leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.