Morgunblaðið - 15.09.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1993
29
Yfirburðir Kasparovs
Skák
Margeir Pétursson
ÞAÐ stefnir í mikinn yfirburða-
sigur heimsmeistarans Gary Ka-
sparovs á áskorandanum Nigel
Short í einvígi þeirra í Lundún-
um eftir að Kasparov vann
fjórðu skákina á svart í gær-
kvöldi. Hann hefur nú hlotið
þrjá og hálfan vinning gegn að-
eins hálfum vinningi Englend-
ingsins. Þetta var að auki sá
mest sannfærandi af þremur
sigrum heimsmeistarans í ein-
víginu. í hinu einvíginu í Hol-
landi, sem FIDE stendur fyrir,
burstaði Karpov Timman í gær-
kvöldi. Það var ekki nóg með
að Kasparov yki forskot sitt í
gærkvöldi, hann vann einnig
mikilvægan fræðilegan sigur.
Kasparov endurtók ekki fremur
vafasama byijanataflmennsku sína
úr annarri skákinni heldur lét hann
nú reyna á hvað Short hefði fram
að færa í því fræga „eitraða peðs
afbrigði", sem þrátt fyrir nafnið
er hornsteinninn í Najdorf-afbrigð-
inu í Sikileyjarvöm. Það virðist
afar hæpið á svart, en þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunar öflugra meist-
ara og stórmeistara hefur ekki tek-
ist að finna einhlíta leið til að refsa
svarti fyrir peðsránið. „Það hafa
fleiri vinnustundir glatast vegna
eitraða peðs afbrigðisins en í
bresku allsherjarverkfalli" segir
enski stórmeistarinn óg fræðibóka-
höfundurinn dr. John Nunn.
Eftir þrettán leiki í skákinni í
gær var komin upp sama staðan
og í eftirminnilegri elleftu einvígis-
skák þeirra Spasskís og Fischers í
Reykjavík 1972. Þá kom Spasskí
með óvæntan riddaraleik á upp-
hafsreitinn bl, króaði drottningu
Fischers inni og vann glæstan sig-
ur. Short hermdi ekki eftir Spasskí
þótt hann léki riddaranum líka upp
I borð. Hann valdi honum stað á
dl. Skömmu síðar átti Englending-
urinn kost á að þráleika til jafntefl-
is, en hann hafnaði því og vann
síðan skiptamun.
En Kasparov hafði tvö peð í
bætur og góða peðastöðu og Short
sá greinilega ofsjónum yfir þessu
því hann var alltof bráður á sér,
fórnaði peði til viðbótar og réðst á
stöðu heimsmeistarans með miklu
offorsi. Heimsmeistarinn sá við at-
lögunni og vann öruggan sigur.
Hvítt: Nigel Short
Svart: Gary Kasparov
Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3
— d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 —
Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Bg5 — e6,
7. f4 - Db6, 8. Dd2 - Dxb2, 9.
Rb3 - Da3, 10. Bxf6 - gxf6, 11.
Be2 - Rc6, 12. 0-0 - Bd7, 13.
Khl - h5, 14. Rdl!?
Það er vafalaust mörgum skák-
unnendum í fersku minni þegar
Spasskí lék 14. Rbl gegn Fischer
fyrir rúmum 20 árum og eftir Í4.
— Db4, 15. De3 - d5?, 16. exd5
— Re7, 17. c4! náði hann vinnings-
stöðu. Karpov endurbætti tafl-
mennsku svarts síðar með 15. —
Re7! Leikur Shorts er ekki síður
frumlegur.
14. - Hc8, 15. Re3 - Db4, 16.
c3!? - Dxe4, 17. Bd3 - Da4, 18.
Rc4 Hc7, 19. Rb6 - Da3, 20.
Hael!?
Ria, grísk eiginkona Shorts, mætti með dóttur þeirra Kyveli á einvíg-
ið, en allt kom fyrir ekki.
sjónarhóli kunni það að vera best.
Með þessú leggur Short snjalla
gildru fyrir andstæðinginn, hann
vonast eftir 20. — Be7?, 21. Rc4 —
Da4, 22- He4! með vinningsstöðu.
Kasparov finnur snjalla lausn, hann
lætur af hendi skiptamun, enda
þegar búinn að fá tvö peð í bætur.
20. - Re7!, 21. Rc4 - Hxc4, 22.
Bxc4 - h4, 23. Bd3?!
Það er erfitt að réttlæta þetta
tímatap.
23. - f5, 24. Be2 - Bg7, 25. c4
- h3, 26. g3 - d5!, 27. Bf3?
Það er eins og örvænting hafí
gripið Short og hann leggur alltof
miírið kapp á að tefja svart í að
hróka. Eftir 27. cxd5 — Rxd5, 28.
Bf3 — 0-0! má svartur að vísu vel
við una, því peðið á h3 er sem fleinn
í holdi hvíts. Úrslitin eru þó langt
frá því að vera ráðin eftir 27. Hcl.
27. - dxc4, 28. He3 - c3!
Líklega hefur Short aðeins reikn-
að með því að Kasparov myndi
taka manninn. Eftir 28. — cxb3,
29. Hxb2 — Da4, 30. Hxb7 er afar
erfitt fyrir svart að losa um sig.
29. Hxc3 — Bxc3, 30. Dxc3 — 0-0
Kóngurinn er loksins kominn í
örugga höfn á kóngsvængnum og
svartur er tveimur sælum peðum
yflr. Short tekst ekki að grugga
vatnið í tímahrakinu.
31. Hgl - Hc8, 32. Df6 - Bc6!,
33. Bxc6 — Hxc6, 34. g4 — Rg6,
35. gxf5 — exf5, 36. Dxf5 —
Dxa2, 37. Dxh3 - Dc2, 38. f5 -
Hc3, 39, Dg4 — Hxb3, 40. fxg6
— Dc6+ og Short gafst upp, því
hann getur aðeins valið um von-
laust peðsendatafl og að lenda í
hróksendatafli með tveimur peðum
minna.
Karpov tók forystuna
Anatólí Karpov, fyrrum heims-
meistari, vann mjög öruggan sigur
í sjöttu skákinni í FIDE-heims-
meistaraeinvíginu í Hollandi. Hann
hefur því tekið forystuna, er með
þijá og hálfan vinning, en Jan
Timman hefur tvo og hálfan.
Timman beitti afar hvössu
Vínarafbrigði drottningarbragðsins
í gær sem Karpov hefur vafalaust
átt von á að mæta. Hann var greini-
lega vel undirbúinn og í tíunda leik
sá Timman sig knúinn til að koma
með nýjung. Karpov lét það ekki
■ BJÖRG UNARS VEIT Ingólfs
í Reykjavík heldur kynningarfund
fyrir nýliða í Gróubúð, Granda-
garði 1 í kvöld, miðvikudag, klukk-
an 20. Fólk frá 17 ára aldri, sem
áhuga hefur á björgunarstörfum til
lands og sjávar, er velkomið á fund-
inn.
-------» ----------
slá sig út af laginu, náði öruggum
stöðuyfirburðum og lét það aldrei
þessu vant eftir sér að tefla stíft
upp á kóngssókn. Timman lék illa
af sér í 19. leik, lék drottningu sinni
á reit þaðan sem Karpov gat strax
rekið hana til baka. Við það tapaði
hann tíma og kóngssókn hvíts varð
óviðráðanleg. í framhaldinu fórnaði
Karpov manni og þegar Timman
gafst upp var hann óveijandi mát.
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Jan Timman
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
- d5, 4. Rc3 — dxc4, 5. e4 —
Bb4, 6. Bg5 — c5, 7. Bxc4 —
cxd4, 8. Rxd4 — Bxc3+, 9. bxc3
- Da5, 10. Rb5 - Bd7!?, 11.
Rd6+ - Ke7, 12. Dd2 - Bc6, 13.
f4 - Rbd7, 14. Hdl - Hhd8, 15.
Dd4 - h6, 16. Bh4 - Dh5, 17.
Bf2 - Kf8, 18. e5 - Rd5, 19. 0-0
- Dg4?, 20. h3! - Dh5, 21. f5 -
Kg8, 22. Hd3 - R7b6, 23. Bxd5
- Bxd5, 24. Hg3 - Hd7, 25. Be3
- Bc4, 26. Hf4 - f6, 27. exf6! -
e5, 28. Dxe5 - Ddl+, 29. Kh2 -
Dxd6
30. f7+ - Kxf7, 31. Dxg7+ -
Ke8, 32. Dh8+ - Ke7, 33. He4+
og Timman gafst upp, því auk þess
sem mikið lið er að falla verður
máti ekki forðað.
Dæmalaus
skaðræðisgripur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Denni dæmalausi („Denis the
Menace“). Sýnd í Bíóborginni.
Leikstjóri: Nick Castle. Fram-
leiðandi: John Hughes. Aðalhlut-
verk: Walter Matthau, Mason
Gamble, Christopher Lloyd, Lea
Thompson, Joan Plowright.
Þegar krakkar eru að taka völd-
in í kvikmyndunum (ein skærasta
stjaman vestra er drengur og mót-
leikarar Amolds Schwarzeneggers
í tveimur síðustu myndum eru
drengir auk þess sem kvikmynda-
verin leggja áherslu á að hafa
myndir sínar ætlaðar krökkum) er
ekki nema von að menn líti til yfir-
burðaprakkarans Denna dæma-
lausa, teiknimyndastjömu Tímans
um árabil, eftir gríni og fjöri.
Það er John Hughes, framleið-
andi Aleins heima 1 og 2, sem lát-
ið hefur gera mynd um Denna
undir leikstjóm Nicks Castles, sem
nú er sýnd í Bíóborginni, og reiðir
sig talsvert á margt skothelt úr
hinni ofurvinsælu tvennu sinni.
Eins og lesendur Tímans vita er
samband Denna og hins úrilla ná-
granna Wilsons ekki eins og best
verður á kosið og myndin fjallar
nokkurn veginn eingöngu um þá
tvo félagana og hvemig Wilson
greyið verður fyrir barðinu á
Denna. Kemur í ljós það sem mann
hefur svosem grunað að flestir
hrekkimir í Denna er misskilin
greiðasemi.
En það er ekki nóg að byggja á
Denna og Wilson einum og því
hefur ófrýnilegur innbrotsþjófur
verið skrifaður í handritið og fær
sá viðlíka meðferð hjá Denna og
þeir Joe Pesci og Daniel Stern
fengu í Aleinum heima myndunum.
Sá sögulegi leikari Walter
Matthau er afburðagóður í hlut-
verki hins skapstirða Wilsons. Hið
teygjanlega andlit á honum minnir
á pizzudeig og hann beitir því til
hins ýtrasta. Svipbrigði hans þegar
hann verður fyrir barðinu á drengn-
um em einna hlægilegustu hlutar
myndarinnar auk þess sem Matt-
hau hefur löngum notið sín sem
skapstirt gamalmenni; hann hamr-
ar reyndar á því að hann sé ekki
illmennið í sögunni heldur fórnar-
lambið en hver tekur mark á því?
Christopher Lloyd fer ágætlega
með hlutverk innbrotsþjófsins og
flakkarans og byggir heilmikið á
Fagin virðist vera og fær útreið
við hæfi. Mason Gamble heitir
drengurinn sem fer með hlutverk
Denna og gerir það vel þótt hann
sé kannski full sléttur og felldur
fyrir prakkarahlutverkið.
Leikstjórinn Castle skapar
Denna fullkomna og sólríka út-
hverfaveröld sem helst minnir á
póstkort frá sjötta áratugnum og
hann gætir þess að ofbeldið sé
slysalegt og teiknimyndalegt og
fyrst og fremst spaugilegt eins og
nú tíðkast. Denni dæmalausi er
sárasaklaus fjölskylduskemmtun
sem á margt sameiginlegt með títt-
nefndum metsölumyndum og er vel
þess virði að sjá þótt ekki væri
nema fyrir Walter Matthau.
Hver er
löggan?
Tveir truflaðir... og annar verri
(„Who’s the Man“). Sýnd í Laug-
arásbíói. Leikstjóri: Suzanne de
Passe. Aðalhlutverk: Doctor Dré
og Ed Lover.
Svertingjar hafa eins og kunn-
ugt er orðið mjög áberandi í Holly-
wood á undanförnum árum. Hafa
menn eins og Spike Lee og Eddie
Murphy opnað þeim leið inn í kvik-
myndaiðnaðinn sem áður var þeim
lokuð og hafa margar myndir
þeirra hlotið verðskuldaða viður-
kenningu. Þær hafa ekki síst vakið
athygli á bágum lífskjörum og
umhverfi svertingja í Bandaríkjun-
um með eftirtektarverðum hætti.
En svo eru líka myndir eftir
svertinga sem leggja áherslu á létt-
ara hjal eins og sú sem nú er sýnd
í Laugarásbíói. Titillinn á frummál-
inu á myndinni Tveir truflaðir... og
annar verri er „Who’s the Man?“
og þýðir á svertingjamáli Hver er
löggan? Þetta er gamansöm saka-
málamynd - fyrsta hipphopp
glæpamyndin segir í auglýsingu -
sem segir af tveimur vinum á raka-
rastofu í Harlem sem fá störf hjá
löggunni og rannsaka morð á fé-
laga sínum eiganda rakarastofunn-
ar. En í stað þess að hafa Tvo trufl-
aða hreina og léttgeggjaða gaman-
mynd er byggt á margtuggnum
klisjum um vonda hvita manninn
sem arðrænir svertingjana og vílar
ekki fyrir sér morð og meiðingar.
Þar er ekkert nýtt að finna nema
í þetta sinn er hvíta illmennið fast-
eignabraskari sem fundið hefur
olíu í miðju Harlemhverfi og þótt
það sé í sjálfu sér brandari tekur
myndin furðu alvarlega á því og
gerir heilmikinn píslarvott úr rak-
aranum.
Annars er áherslan á rapp og
hipp hopp eins og hver getur í sig
látið og koma ófáir þekktir per-
sónuleikar við sögu: Kriss Kross,
Ice T, Heavy D, Public Enemy,
Naughty By Nature og margir
fleiri. Brandaradúettinn Doctor Dré
og Ed Lover, sem leika lögguvin-
ina, sveija sig í ætt við Abbott og
Costello en myndin þeirra nær aldr-
ei neinu verulegu flugi hvorki sem
gamanmynd né spennumynd.
Formúlan gengur bara ekki upp.
í 34 ár
f g h
Það væri alger hneisa í slíku ein-
vígi að þráleika með 20. Rc4 —
Da4, 21. Rb6, þótt frá hlutlægum
■ I TILEFNI af því að Hafnar-
gönguhópurinn er ársgamall um
þessar mundir verður í kvöld, mið-
vikudagskvöldið 15. september,
gengið hafnargarða á milli í gömlu
höfninni og ýmislegt til gamans
gert. Að venju verður farið frá
Hafnarhúsinu kl. 20. Allir velkomn-
ir.
Hressingarleikfimi kvenna og' karla
Haustnámskeið hefjast fimmtudaginn 23. september nk.
Kennslustaöir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og Iþróttahús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfíngar
Músik - Dansspuni - Þrekæfingar
- Slökun - Ýmsar nýjungar
Irmritun og upplýsingar
f dag kl. 9.00-22.00
í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.